Morgunblaðið - 02.12.2010, Page 1
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2010
íþróttir
Tennis Það var mikið fjör hjá tennisstjörnum framtíðarinnar á móti sem haldið var fyrir 10
ára og yngri í Tennishöllinni. Glæsileg tilþrif sáust og skemmtu krakkarnir sér vel. 4
Íþróttir
mbl.is
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Júlíus Jónasson hefur látið af störf-
um sem þjálfari karlaliðs Vals í
handknattleik. Miklar breytingar
urðu hjá Val í sumar og liðið hefur
ekki fundið taktinn í N1 deildinni en
aðeins einn sigur er kominn í hús á
leiktíðinni. Auk þjálfaraskipta fór
nánast heilt lið frá félaginu en
nokkrir snjallir leikmenn komu þó í
staðinn, þar á meðal Sturla Ásgeirs-
son landsliðsmaður og Valdimar
Þórsson, leikmaður ársins.
Á heimasíðu Vals segir að stjórn
handknattleiksdeildar hafi komist að
samkomulagi við Júlíus um að láta af
störfum. Óskar Bjarni Óskarsson,
fyrrum þjálfari liðsins, tekur við lið-
inu ásamt Heimi Ríkarðssyni sem
var aðstoðarþjálfari Júlíusar og
Óskars. Þeir taka við liðinu tíma-
bundið og eru það í sjálfu sér engin
tíðindi. Þegar hafði verið ákveðið að
þeir myndu stýra liðinu í desember í
fjarveru Júlíusar sem einnig er
landsliðsþjálfari kvenna. Ísland leik-
ur í lokakeppni EM í Danmörku og
Noregi en mótið hefst í næstu viku.
Ekki náðist í Svein Stefánsson, for-
mann handknattleiksdeildar Vals, í
gærkvöldi.
Júlíus Jónasson lætur
af störfum hjá Val
Framhaldið óljóst Óskar og Heimir stjórna tímabundið
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Guðjón Valur Sigurðsson snéri aftur á hand-
boltavöllinn í gærkvöldi eftir hnémeiðsli þegar lið
hans, Rhein-Neckar Löwen hristi af sér slenið og
sigraði Þýskalandsmeistara Kiel á heimavelli í
Mannheim 29:26. Guðjón kom inn á þegar rúmar
fimm mínútur voru eftir af leiknum en hann hafði
ekki spilað síðan í bronsleiknum gegn Pólverjum á
EM í Austurríki í janúar. Þetta eru afar góð tíð-
indi fyrir íslenska landsliðið eins og nærri má geta
en liðið tekur þátt á HM í Svíþjóð í janúar.
Þetta var þriðja tap lærisveina Alfreðs Gísla-
sonar í Kiel í deildinni á þessari leiktíð. Aron
Pálmarsson verður ekki sakaður um tapið en
hann var frábær í fyrri hálfleik og skoraði þá fjög-
ur mörk en lét minna fyrir sér fara í þeim síðari.
Sigurinn var vafalaust kærkominn fyrir Guð-
mund Guðmundsson, þjálfara Löwen, en liðið hef-
ur hikstað nokkuð undanfarið. Ólafur Stefánsson
skoraði þrjú mörk og tvö þeirra á mikilvægum
augnablikum í síðari hálfleik. Róbert Gunnarsson
fékk að spreyta sig á línunni og skoraði eitt mark
en Guðjón Valur fékk ekki marktækifæri á þeim
mínútum sem hann spilaði.
Kiel er í 3. sæti deildarinnar með 22 stig en Lö-
wen er í því 4. með 21. Segja má að þessi úrslit
hafi verið vatn á myllu Hamburgar sem er á
toppnum með 26 stig og hefur aðeins tapað einum
leik. Í öðru sæti eru svo Dagur Sigurðsson og Al-
exander Petterson hjá Füchse Berlín með 23 stig
og eiga leik til góða.
Ljósmynd/Jürgen Pfliegensdörfer
Barátta Aron Pálmarsson, leikstjórnandi Kiel, sækir að vörn Rhein-Neckar Löwen. Til varnar er Ólafur nokkur Stefánsson.
Guðjón Valur sneri aftur
Spilaði í fyrsta skipti síðan á EM Löwen vann Kiel og blandar sér í baráttuna
Logi Gunnarsson
átti stórleik í
sænska körfu-
boltanum í gær-
kvöldi og skoraði
23 stig fyrir
Solna í sigri á 08
Stokkhólmi.
Solna sigraði
92:76 en leikið
var í Stokkhólmi.
Solna færðist
upp um eitt sæti með þessum sigri
og er í 6. sæti deildarinnar. Logi
hitti mjög vel í leiknum og setti nið-
ur fimm af sjö þriggja stiga skotum
sínum. Hann var stigahæstur hjá
Solna í leiknum og hefur skorað
mest á leiktíðinni. kris@mbl.is
Logi stiga-
hæstur hjá
Solna
Logi
Gunnarsson
Það er óhætt að
segja að Eiður
Smári Guðjohn-
sen sé úti í kuld-
anum hjá enska
úrvalsdeildarlið-
inu Stoke en
hann hefur ekk-
ert komið við
sögu í deildinni
síðan hann lék
síðustu 12 mín-
úturnar á móti Manchester United
24. október. Frá þeim tíma hefur
Stoke spilað sex deildarleiki. Hann
kom síðast við sögu hjá Stoke 27.
október þegar hann lék síðasta
hálftímann í tapleik á móti West
Ham í deildabikarnum. Stoke, sem
er taplaust í síðustu fjórum leikj-
um, sækir Wigan heim á laug-
ardaginn.
gummih@mbl.is
Eiður ekkert
spilað síðustu
fimm vikur
Eiður Smári
Guðjohnsen
Arna Sif Pálsdóttir er 22 ára gömul og er ein sextán
handboltakvenna sem skipa íslenska landsliðið í
handknattleik þegar það tekur í fyrsta sinn þátt í
lokakeppni Evrópumeistaramótsins.
Arna Sif er línumaður og einnig afar sterkur varn-
armaður. Hún ólst upp hjá HK í Kópavogi og lék með
meistaraflokksliði félagsins allt þar til hún danska úr-
valsdeildarliðið Horsen HK sumarið 2009. Með Hor-
sens lék Arna Sif í eitt ár en þegar liðið féll niður um
deild í vor skipti hún yfir í raði úrvalsdeildarliðsins
Team Esbjerg.
Arna Sif á að baki 49 landsleiki sem hún hefur
skorað í 54 mörk. Hún lék sinn fyrsta landsleik í Rotterdam 1. nóvember
2006 er íslenska landsliðið mætti því hollenska og tapaði 32:27. Það var
jafnframt fyrsti leikur kvennalandsliðsins undir stjórn Júlíusar Jón-
assonar, núverandi landsliðsþjálfara.
ÚRSLITAKEPPNI EM KVENNA HEFST EFTIR FIMM DAGA
Arna Sif Pálsdóttir