Morgunblaðið - 02.12.2010, Blaðsíða 1
Tveir miðlar, ein auglýsing, tvöföld áhrif. Auglýsingin birtist líka á mbl.is2. desember 2010
Vínkæliskápur er eitt af því sem Sigurði
Flosasyni, saxafónleikarnum góðkunna,
finnst vanta á heimili sitt. Nýtt hjónarúm er
líka á óskalistanum, þótt konan skuli
vera sú sama og verið hefur. 8
Í Evrópu hefur rafbíllinn Leaf frá
Nissan verið valinn bíll ársins.
Skref til megnunarleysis.
Gert er ráð fyrir að bíllinn
komi á markað hér eftir
rúmlega eitt ár. 17
Eitt af glæsilegustu húsum
Árbæjarsafns stóð eitt sinn við Lækjargötu og var
reist árið 1852. Þar var VR stofnað og verslun Hagkaupa um
langt skeið. Upp á Árbæ var svo farið með húsið fyrir rúmlega
tuttugu árum. 4
Starf verslunarstjórans er anna-
samt. Bökunarvörur, kjöt og bækur
seljast vel í verslun Krónunnar í Ár-
bænum sem Sigurlaug Siggeirs-
dóttir stýrir. 10
Líklega hefur Sigrún Edda Björnsdóttir leikkona sleg-ið nýtt met í síðasta mánuði. Í liðinni viku kom húnfram í átta sýningum og í haust hefur hún leikið sam-tímis stór hlutverk í þremur verkum: Gauragangi,
Fólkinu í kjallaranum og Fjölskyldunni. Samhliða hefur hún
einnig farið með rullu í sjónvarpsþáttunum Hlemmavídeó,
glensað í Áramótaskaupinu, og ofan á allt þetta bætast stífar
æfingar fyrir Ofviðrið eftir Shakespeare, sem er jólaleikrit
Borgarleikhússins í ár.
„Ég er ekki frá því að nóvembermánuður hafi verið nálægt
Íslandsmeti því mér telst til að ég hafi komið fram á 29 sýn-
ingum. Sumir kollegar mínir hafa verið að grínast með að þetta
hljóti að vera orðinn ótrúlegur fjöldi orða sem ég er búin að
leggja á minnið fyrir öll þessi hlutverk og ekki úr vegi að reikna
út fjöldann áður en haft er samband við Heimsmetabókina,“
segir Sigrún Edda hlæjandi og bætir við að í nóvember hafi hún
hiklaust geta tekið undir þau orð Shakespeares að öll hennar
veröld væri leiksvið, enda gerðist ósköp lítið í lífi hennar utan
leikhússins þann mánuðinn.
Meira en til stóð
Það var alls ekki ætlunin að vinnuálagið yrði svona mikið á
Sigrúnu Eddu. „Það átti enginn von á að vinsældir Gauragangs
og Fjölskyldunnar yrðu svona miklar en eftirspurnin kallaði á
að framlengja þessar sýningar yfir á haustið. Svo vakti Fólkið í
kjallaranum svona rosalega lukku og við sýnum oft tvær sýn-
ingar á dag af því verki,“ útskýrir hún aðspurð hvernig stendur
á þessu mikla vinnuálagi.
Síðasta sýning á Gauragangi var á sunnudag og væntanlega
verður lokasýning Fólksins í kjallaranum í desember, svo von-
andi getur Sigrún farið að slappa örlítið af á nýju ári.
Ítalskt óbermi
Frumsýning á Ofviðrinu verður 29. desember.
Þar fer Sigrún Edda með hlutverk Antoníós.
„Hann er sennilega mesta skítseiði sem ég hef á
ævinni leikið. Antoníó leggur á ráðin um að auka
völd sín með því að myrða bróður sinn Prosperó,
hertoga af Mílanó, og dóttur hans um leið,“ segir
Sigrún Edda um verkið sem hún segir best mega lýsa sem æv-
intýra-gleðileik blönduðum djúpum alvörutónum.
Atoníó telur ráðagjörðir sínar hafa gengið að óskum, nema
hvað Prosperó kemst undan og reynist vera vel lesinn í galdra-
fræðum. „Magnar hann upp óveður þegar Antoníó er á siglingu
með mönnum sínum og ber þá að eyjunni þar sem Prosperó
hefst við. Upphefst þá uppgjör milli góðs og ills.“
Ófelía og nornin
Þó að verk breska skáldsins birtist reglulega á
fjölum íslenskra leikhúsa, og tilþrifin hafi oft verið
eftirminnileg, er ekki hægt að sega að Shakespeare
sé beinlínis fastagestur á íslensku leikhússenunni.
Sigrún Edda segist sjálf hafa gaman af að takast á
við Shakespeare, sem hún hefur ekki gert síðan hún
túlkaði Ófelíu fyrir lifandi löngu og síðan norn í Makbeth. „En
það virðist eins og allir ætli að setja Shakespeare-leikrit á svið í
vetur. Borgarleikhúsið er með Ofviðrið, Lér konungur verður í
Þjóðleikhúsinu og ég veit af a.m.k. tveimur menntaskólasýn-
ingum þar sem Draumur á Jónsmessunótt er á dagskrá,“ segir
hún og er ánægð með þessa skemmtilegu tilviljun.
ai@mbl.is
Sigrún Edda Björnsdóttir æfir sitt fyrsta karlmannshlutverk, Antoníó í Ofviðri Shakespeares
„Sennilega mesta skítseiði
sem ég hef á ævinni leikið“
Morgunblaðið/Golli
Það virðist eins
og allir ætli að
setja Shake-
speare-leikrit á
svið í vetur.
Sigrún Edda leikur Antonio, en óvenjulegt er að kona leiki þetta
karlhlutverk. Er þar snúið á haus með skemmtilegum hætti þeim
sið sem tíðkaðist í leikhúsunum sem Shapespeare samdi fyrir, þar
sem karlar fóru með kvenmannshlutverkin.
Kona í Krónubúð
atvinna
Lækjargötu-
húsið
fasteignir
Laufið er bíll ársins
Líklegt er að einhverjir hætti í jeppasporti
verði vörugjöld á mengunarþunga bíla auk-
in. Þetta er mat formanns Ferðakúbbsins
4X4, Sveinbjörns Halldórssonar. Run-
ólfur Ólafsson, talsmaður FÍB tekur í
sama streng. 14
Hætta í jeppasporti
Hjónarúm og vínskápur
bílar
finnur.is Bókanir í síma 570 3030
flugfelag.is
Gefðu g ða
ferð í jólagjöf
14.900 kr.
Opið laugardag frá kl. 11-16 og virka daga 10-18 • Sími 588 8477 • www.betrabak.is
Chiro Collection
heilsurúm
25% jóla-
afsláttur
TempraKON dúnsængur
100% hvítur gæsadúnn
20% afsláttur
kr. 29.900,-
Heilsuinniskór
Inniskór sem laga sig að fætinum og dreifa
þyngd jafnt undir allt fótasvæðið.
Sendum frítt út á land - betrabak.is
He
ils
ui
nn
is
kó
r s
em
lag
ar sig
að fætinum
- einstök
þæ
gindi
Parið kr. 3.900,-
2 pör kr. 6.980,-
3 pör kr. 9.990,-