Morgunblaðið - 02.12.2010, Blaðsíða 16
bílar16 2. desember 2010
Það er löngu liðin tíð aðVolvo framleiði öruggakassa á hjólum sem jafngaman er að aka og trak-
torum. Og það er líka liðin tíð að
Volvo-bílar eyði miklu, séu kraftlitlir
og eingöngu hugsað um öryggi far-
þega. Nútíma Volvo-bílar eru lúx-
usbílar hlaðnir nýjustu tækni, með
aflmiklar og sparneytnar vélar, eru
frábærir í akstri og öryggi farþega
hefur enn aukist.
Volvo S40 er dæmi um þetta, bíll
sem eyðir 3,9 lítrum í blönduðum
akstri, er mjög góður akstursbíll, vel
búinn í alla staði og er þrátt fyrir litla
dísilvél merkilega aflmikill. Volvo
S40 má reyndar fá með allskonar vél-
um og verksmiðjurnar bjóða sex
bensínvélar og þrjár dísilvélar.
Brimborg býður bílinn með tveimur
bensín- og tveimur dísilvélum. Bens-
ínvélarnar eru 2,0 og 2,5 lítra, 145 og
230 hestafla en dísilvélarnar 1,6 og
2,0 lítra túrbóvélar, 115 og 150 hest-
afla. Verðið er frá 4,2 til 5,4 milljónir.
Skortir aldrei afl
Reynsluakstursbíllinn var með 1,6
lítra túrbó dísilvélinni, sem ekki er
skráð fyrir nema 115 hestöflum en
togið er heilir 270 Newton-metrar.
Greinarhöfundur hafði af því áhyggj-
ur að bíllinn væri nokkuð vélarvana
með þessa litlu vél en staðreyndin er
að hann skortir aldrei afl og skilar
gríðarlegu togi, sérstaklega fyrir of-
an 2.000 snúninga. Bíllinn var af út-
færslunni DRIVe, sem er sú spar-
neytnasta og allt til þess gert að hann
eyði litlu. Hann drepur á sér ef stöðv-
að er og sett í hlulausan, en reynslu-
akstursbíllinn var beinskiptur.
Undirvagninn er allur sléttur og
vindflæðiplötur minnka vindmótsöð-
ustuðul. Álfelgurnar eru hannaðar
sérstaklega fyrir bílinn og eru sér-
lega sléttar, en ekkert sérlega fal-
legar. Hver er svo árangurinn? Jú,
hann eyðir 3,8 lítrum í blönduðum
akstri og mengar 104 CO2 g/km, sem
er með því lægsta sem finnst í al-
minnstu bílum. Bílnum var ekið til
Akureyrar og til baka auk snatts í
höfuðstað Norðurlands og ekki
þurfti að bæta á tank fyrr en komið
var aftur til Reykjavíkur. Bíllinn er
því alger sparibaukur.
Ljúflingur í akstri
Það kom á óvart hversu skemmti-
legur S40 er í akstri með svo netta vél
og nánast fáránlegt að ímynda sér
hvernig væri að aka T5 útfærslu bils-
ins með 230 hestafla bensínvélinni.
Akstureiginleikar eru góðir, fjöðrun
til prýði, stýri nákvæmt, ekkert finnst
fyrir hraða og langkeyrsla ánægjuleg.
Bíllinn er vel hljóðeinangraður og til
vitnis um það fannst lítið fyrir því að
hann væri á negldum dekkjum. Að
sjálfsögðu hefur Volvo S40 fengið
fimm stjörnur í öryggisprófunum og
bíllinn er hlaðinn öryggisbúnaði.
Volvo S40 er frekar lítill bíll með
ekki mikið fótarými fyrir afstursæt-
isfarþega en gott höfuðrými. Ekki
þarf að efast um mikla endingu S40
eins og annarra Volvo bíla og gott
endursöluverð er aðalsmerki þeirra.
Því ættu kaup á S40 að vera hag-
kvæm á tvo vegu, en eldsneyt-
iskostnaður er með því allra lægsta.
Helstu samkeppnisbílar Volvo S40
eru seríu 1 bílar BMW, Audi A3 og
Mercedes Benz A-Class. Með breyttu
vörugjaldi á bíla má búast við því að
verð á Volvo S40 með þessari vél
lækki verulega vegna lítillar CO2 los-
unar og yrði um fjórar milljónir kr.
finnur@reykjavikbags.is
Morgunblaðið/Golli
Volvo S40 árg. 2010
1,6 l. Díselvél
115 hestöfl
Beinskipting, 5 gíra
5 sæti
6 líknarbelgir
ISO-FIX festingar
Eyðsla innanb: 4,3
Eyðsla utanb: 3,5
CO2 g/km: 99
Spólvörn og
hemlajöfnun
16” álfelgur
0-100: 11,4 sek.
Hámarkshraði: 195 km
Framhjóladrif
Verð: 4.690.000 kr.
Umboð: Brimborg
Reynsluakstur Volvo S40
Sparibaukur með
öllum þægindum
Sparneytinn lúxusbíll, vélin
merkilega afkastamikil. Vél-
in ekki stór en skilar miklu
togi. Aksturseiginleikar
góðir, fjöðrun til stakrar
prýði, stýri nákvæmt og
langkeyrsla ánægjuleg.
Stílhreinar línur hafa alltaf einkennnt Volvo. Nýjasta útgáfan S40 er þar engin undantekning, auk heldur sem bíllinn er
öruggur og eyðslugrannur. Gera má ráð fyrir því að verð bílsins lækki, vegna fyrirhugaðra breytinga á vörugjöldum.
Tilvalið í jólapakkann! 15%
Jólafsláttur af
þessum frábæru
hleðslutækjum
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Nýlegir, yfirfarnir
og í toppstandi
Mercedes-Benz A170
árg. 2005, ekinn 88 þús.
1699cc, bensín, beinsk.
Verð 1.950.000
Mercedes-Benz CLS-Class
árg. 2006, ekinn 55 þús.
5462cc, bensín, sjálfsk.
Verð 7.690.000
Mercedes-Benz SLK-Class
árg. 2005, ekinn 72 þús.
3490cc, bensín, sjálfsk.
Verð 4.690.000
Sértilbo
ð
Verð 9.600.000
Mercedes-Benz ML-Class
árg. 2005, ekinn 89 þús.
2700cc, dísil, sjálfsk.
Verð 4.700.000
Mercedes-Benz E240
árg. 2001, ekinn 81 þús.
2597cc, bensín, sjálfsk.
Verð 1.950.000
Mercedes-Benz E280 4M
árg. 2007, ekinn 259 þús.
2987cc, dísil, sjálfsk.
Verð 5.490.000
Við eigum toppeintök af notuðum Mercedes-Benz bílum.
Komdu í ÖSKJU, Krókhálsi 11, eða farðu á www.askja.is
og finndu bíl að þínu skapi.
Mercedes-Benz GL320 CDI
árg. 2006, ekinn 87 þús.
2987cc, dísil, sjálfsk.