Eyjablaðið


Eyjablaðið - 22.11.1951, Page 1

Eyjablaðið - 22.11.1951, Page 1
i2. árgangur. Vestmannaeyjum, 22. nóv. 1951 18. tölublað. Veizluhöld á vegum bæjarins 1 Fylki hinn 9. nóv. s.l. eru tvær ofstækisfullar greinar um veizluhöld á vegum bæjarsjóðs, ýmist lygar frá rótum eða stór- kostlega ýktar. Höfundar eru Sigfús J. Johnsen gagnfræða- skólakennari og einhver, sem ! skammast sín fyrir nafn sitt, en setur þess í stað einfalt f. Þáð má merkilegt heita að for- ustumenn Sjálfstæðisflokksins skuli láta þessa óþroskuðu sprellukarla dansa svona eftir- litslaust í flokksblaði þeirra, Fylki, flokknum til stórtjóns. Að vísu var fyrir nokkru frá því skýrt, að eitthvað af blaðamönnum Fylkis hefðu farið til höfuðstaðarins í „stjórnmála- skóla“, en frumstæðustu manna siði hefði þó verið hægt að kenna piltunum hér heima, ef í það hefði verið lögð mikil vinna. Tildrög þessara æsiskrifa um veizluhöld bæjarsjóðs eru eins og kunnugt er, þessi: Gagnfrœðaskólinn. Fyrir nokkru síðan var lokið við: að steypa gagnfræðaskóla- bygginguna og reisa sperrur. Það er íslenzkur siður, hve gamall veit ég ekki, áð þeir sem eru með byggingu í smíðum bjóði til sín þeim mönnum, sem að byggingunni hafa unnið til nokkurs glaðnings, þegar sperr- ur hafa verið reistar, og rnunu þá ekki ósjaldan vera veittir hinir sterkari drykkir þeim sem þess óska, en þykir heldur mið- ur ef ekki er. í sambandi við þennan stóra áfanga við gagnfræðaskólabygg- inguna bauð bæjarstjóri hand- verksmönnum og öðrurn þeim, sem við bygginguna höfðu unn- ið, ásamt nokkrum gestum til kaffidrykkju. í hófi þessu var ekki veittur dropi af víni á kostnað bæjar- sjóðs, enda hefði skólastjórinn Þorsteinn Þ. Víglundsson kunn- að því illa, ef svo hefði verið, þar sem hann er kunnur bind- indismaður og skólabyggingin hans áhugamál. Mér kemur það ekki á óvart, þó aðstandendum Fylkis, sé sárt um og telji eftir, að þeim sem við þessa byggingu hafa unnið, hafi verið veittur kaffisopi við þetta tækifæri, og meti lítils að kostnáðarverð byggingarinnar er fyrir þeirra ágætu vinnu, allt að helmingi minna, en annars- staðar þekkist, og t. d. fagmenn í Reykjavík eru agndofa yfir. Því að í þeim herbúðum hef- ur ekki ríkt áhugi fyrir þessum framkvæmdum. Sjómannaminnismerkið. Samdægurs og minnismerkið var afhjúpað, bauð bæjarstjórn Stjórn minnismerkissjóðsins, á- samt fleiri gestum til kaffi- drykkju, en það kallar Sigfús J. Johnsen ömurlegt vínboð Bokk- usar. Ég hefði ekki trúað því, að svo væri fjandskapur blaðsins rnikill gegn öllu því, sem til fegurðar og menningarauka væri hér í Eyjum, að telja eftir þennan kaffisopa, sem veittur var, eftir að minnismerkið var afhent bæjarstjórn f. h. bæjar- búa, og svo er óvildin mikil, að því er logið til, að þar hafi verið veitt áfengi á kostnað bæjar- sjóðs, og það auðvitað til áfellis þeim sem að boðinu stóðu. Þið bæjarbúar, sem urðuð til þess áð neyta liins eftirtalda kaffisopa, getið sjálfir um það dæmt hvor óvirðingin er meiri, að efna til þessa boðs, eða telja eftir ykkur það, sem veitt var að viðbættum stórlygum. Koma nýja Þórs. Við komu nýja Þórs til Eyja bauð skipstjóri bæjarstjórn og fleiri borgurum um borð að skoða skipið og þiggja veiting- ar. Hér kemur skip í fyrsta sinn, sem kemur til með að verða ís- lenzkum sjómönnum og þá ekki síður Vestmannaeyingum til mikils öryggis, og á vafalaust eftir að færa bæjarbúum jafnvel ótaldar milljónir króna, vegna gæzlu á veiðarfærum og á ann- an hátt. Auk þess hafa Vestmannaey- ingar með réttu af nokkru að státa, sem frumherjar í björg- Samkvæmt athugun, sem Sam vinnutryggingar hafa nýlega gert, greiddu tryggingarfélögin hér á landi um 25 milljónir króna í bætur fyrir tjón á bif-. reiðum í árekstrum síðastliðin fimm ár. Athugunin leiddi enn- fremur í Ijós, áð 75% þessara árekstra varð af ýmsum orsök- um, sem ástæða er til að ætla, að komast hefði mátt hjá með meiri varúð og gætni við akst- ur. Hafa því verið greiddar 18.500.000 krónur á fimm árum vegna óvarkárni og kæruleysis ökumanna, en auk þess er mik- ið tjón á bifreiðum, sem aldrei koma til kasta tryggingarfélag- anna. Væri hægt að draga úr þessum árekstrum, mundu ekki aðeins mikil verðmæti, gjald- eyrir og fyrirhöfn sparast, held- ur mundu iðgjöld bifreiðatrygg inganna þá geta lækkað veru- lega. Frá þessari athyglisverðu at- hugun er skýrt í ritinu „TRYGGING“, sem Samvinnu tryggingarnar hafa gefið út, en það fjallar um öryggis- og trygg- ingarmál. Er þáð tilgangur rits- ins, sem dreift verður í stóru upplagi, að opna augu manna fyrir auknu öryggi, og sýna fram á, hvaða hlutverki trygg- ingarstarfsemi gegnir í nútíma þjóðfélagi. í ritinu er fyrst grein um stofnun og starf Samvinnutrygg- inga, en félagið varð fimm ára á þessu hausti og er það nú þeg ar orðið annað stærsta trygg- J ingafélag landsins, en jafnframt hið eina, sem starfar á sam- I vinnugrundvelli. Hafa Sam- ' vinnutryggingar giæitt 532.905 unar- og landhelgismálum hér við land, og finnst t. d. þetta glæsilega skip, nýi Þór, vera nokkurs konar arftaki vegna frumkvæðis Eyjamanna í þess- um efnum. Að sjálfsögðu var skipstjóra og skipshöfn boðið að þiggja góðgerðir við komu þeirra í land, og þá um leið boðið nokkr Framhald á 2. síðu. krónur í arð til hinna tryggðu undanfarin tvö ár. Þá er í ritinu greinin um or- sök bifreiðaárekstra og eru í henni margar fróðlegar upplýs- ingar, er byggjast á reynslu bif- reiðadeildar félagsins, sem nú tryggir 3500 bifreiðar, eða þriðju hverja bifreið í landinu. Enn má nefna greinina „Hvers vegna skyldi ég líftryggja mig?“ þar sem rætt er um helztu kosti og galla líftrygginga og sýnt fram á þýðingu þeirra fyrir ein- staklinginn. Þá er skýrt frá at- hyglisverðu máli vegna bifreiða áreksturs, sem kom fyrir dóm- stóla hér, og er lesandinn beð- inn að dæma í málinu eftir kunnáttu sinni á umferðaregl- unum, en aftar í ritinu er skýrt frá niðurstöðu dómstólanna. Þá er grein um endurtryggingar og skýrt frá gildi þeirra en þess má geta sem dæmis, að einn nýsköpunartogari er endur- tryggður hjá 70—80 endurtryggj . endum, og eru þessar trygging- ar flókið og alþjóðlegt öryggis- kerfi tryggingarfélaga. Að lok- um er grein um dýrtíð og bruna tryggingar, og er þar rætt um þörfina á því að tryggingarupp- hæð á innbúi standi í eðlilegu sambandi við raunverulegt verð innbúsins á hverjum tíma, ef tryggingin á að nægja til að bæta tjón á því. Rit þetta er prentað í Eddu í þrem litum og hið snotrasta að öllum frágangi. Samvinnu- tryggingar hafa áður gefið út bókina „Öruggur akstur" fyrir bifreiðastjóra og bifreiðaeig- endur. „Trygging”

x

Eyjablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.