Eyjablaðið - 15.01.1954, Blaðsíða 2
EYJABLAÐIÐ
Um hvað er kosið?
sé á eina verk þeirra frá þess-
Framhald af 1. síðu.
Það er satt, kreppuárin voru
erfið bæjarféláginu í lieild, en
það fór heldu rekki fram hjá
alþýðunni hverjir þá fóru með
völdin. Ef einhverjir vildu rifja
upp þá tíma, þegar bæjarfélagið
var síðasta nauðvörn bjargþrota
heimila, þá jgæti verið að dýr-
lingsgríman féllu al' sumum
þeím, sem nú þykja góðir sýn-
ingargripir á framboðslista í-
haldsins.
Reknir úr skiprúmi.
Þau eru spaugileg krókódíls-
tárin, þegar íhaldið er að væla
yfir því, að EKKERT HAFI
VERIÐ GERT síðan ÞAÐ varð
áhrifalaust í bæjarmálunum. —
Hvað gerði íhaldið fyrir al-
þýðu þessa bæjar í 25 ár?
Er nú ekki rétt að það leggi
fram landakortið yfir það sælu-
ríki, sem það stjórnaði, svo fólki
gefist kostur á að líta? Við skul-
utn sleppa ömurleika kreppuár-
anna af vorkunnsemi, — en eftir
að stríðið hófst og peningaflóðið
sprengdi allar stfflur? . . . Nei,
mennirnir sem sátu að völduni
í' peningaflóðinu mikla frá 1940
til 1946 ættu að hafa vit á því
að minnast ekk i á FRAM-
KVÆMDIR í þágu bæjarfélágs-
ins, þeir ættu að varast. að
hreykja sér eins og upptrektir
liana og gala af monti frammi
fyrir alþýðu og benda á sjálfa
sig sem stjórnvitringa.
En þeir geta mohtað sig af
öðru, þeir geta rnontað sig af
því að hafa sviki/t um að fram-
kværna samþykktir bæjarstjórn-
ar (aprfl 1942) um að taka tvö
skip til ísfiskflutninga á veg-
um bæjarins og af því, að hafa
s'vo sjálfir tekið skipin til sömu
flutninga í eiginhagsmunaskyni!
Þeir geta státað sig al því að
hafa lellt tiljögur frá sama ári
,um að byggja Elliheimili og
Gagnfræðaskóla, þegar vaxta-
laus Ián voru á boðktólum!
Þeir geta hrósað sér af þvf að
hafa ekki framkvæmt samþykkt
ir sjálfra sín um að reisa Sam-
skóla og kvennaskóla Sem búið
var að veita fé til nð reisa! Og
hafnarmálin! Þeir geta verið
stoltir al því að hala EKKI
svo árum skipti fullnotað það
litla framlag sem ríkið lagði til
hafnarinnar! hvað þá að þeim
dytti í hug að líta við þeim
lánsfjármöguleikum sem þá
voru fyrir hendi til stórra
framkvæmda. Þeir geta gortað
af því að hafa samþykkt ógrynni
tillagna frá Einari Sigurðssyni
(sem margar voru góðar) án
þess að láta sér til hugar koma
framkvæmd þeirra! Svo rninnst
um árum, sem var hagur allra
bæjarbúa, Dalabuið, þá hefur
aldrei verið reist önnur eins for
smán á landi hér og kostnaðar-
reikninginn skildu þeir eftir í
bankanum eins og hann lagði
sig, þegar þeir kvöddu.
}á, þeir geta hrósað sér af
því að liafa t erið svo uppteknir
af því að maka sinn eigin krók
á þessunt árum, að þeir máttu
ekki vera að því að halda bæj-
arstjórnarfundi svo mánuðum
skipti og má á því sjá, hvort
hagur og velferð bæjatfélagsins
hefur legið þeim þungt á hjarta.
Hafi nokkru bæjarfélagi ver-
ið stjórnað ti! óheilla fyrir al-
þýðu og launþega, þá var það
bæjarfélag Vestmannaeyja í tíð
íhaldsins, enda fór svo að það
var rekið lrá völdum \ið lítinn
sóma.
Vtréttur faðmur.
Launþegar mega aldrei
gleyma því, að atvinnurekend-
urnir standa sem einn veggur
um stéttarhagsmuni sína, hversu
ágætir sem þeir kunna annars
að vera sent einstaklingar, og
þó að þeir bítist innbyrðis —
og þeir hafa sinn flokk til að
vernda þessa hagsmuni sína.
Smávægilegustu kjarabætur
\erða launþegarnir að Sækja í
grcipar þeirra nteð hörku og
fórnum langra verkfalla og eru
dæntin deginum ljósari unt
það. Það efar enginn, að með-
al atvinnurekenda eru margir
dugnaðar- og ágætismenn, en
það dtigar ekki til, góðmennsk-
an gildir ekki, þegar stéttar-
hagsmunirnir eru annarsvegar.
Gott dæmi um það, hvernig
fer fyrir þeim atvinnurekanda,
sem brýtur í bága við heildina
er þetta:
Útgerðarmaður einn á Suður
nesjurn var svo heiðarlegur, að
hann greiddi sjóníönnum sín-
um bátagjaldeyrisuppbætúrnar
al þeirra aflahluta (og þótti eng
um mikið). F.n livað skeður?
Hann var ekki aðeins útskúfað-
ur tir samfélagi sinna samhcrja,
á staðnum, heldur var tekið fyr
ir (">ll lians bankaviðskipti, svo
að liann varð að hætta við at-
\innurekstur sinn!
í samningum Eyjasjómanna
er það skýrt tckið fraiu, að sjó-
menn eigi að fá SAMA VERD
FYRIR SINN AFLAHLUTA
OG ÚTGERÐARMENN FÁ,
— og margir útgerðarmenn við-
urkenna þetta í orði, en ekki
einn einasti þeirra hefur haft
vilja eða kjark til að greiða full
ar uppbætur. Þett aer því ömur-
legri staðreynd sem fleiri útgerð
armenn eru og hafa verið sjó-
menn og beinir þátttakendur
í framleiðslustarfinu en annars
staðar á landinu, og enginn
bær á jafn mikið undir sjó-
mönnum sínum og Vestmanna-
eyjar.
Allt ber að sama brunni:
hagsmunirnir eru látnir sitja í
fyrirrúmi fyrir heiðarleika og
drengskap, ef svo ber undir og
ekki skir/t við að brjóta samn-
inga ef með þarf. ÞAÐ SKIPT-
IR MILLJÓNUM, SF.M ÚT-
GERÐIN HEEUR DREGIÐ
SÉR AE KAUPI SJÖMANNA
Á ÞENNAN HÁTT, VAR-
LEGA ÁÆTLAÐ 8-10 ÞÚS-
UNDIR KRÓNA Á HÁSETA-
HLUT YFIR GREIÐSLU-
TÍMABII.IÐ! Og nú koma
fulltrúar útgerðarinnar fram
fyrir þá, sem þeir hafa hlunn-
farið og segja: Það er ekki nóg
að við séum góðir og heiðarleg-
ir útgerðarmenn ,við viljum
líka sýna í verki, hvað við get-
um gert fyrir ykkur í bæjarmál
um! — F.ruð þið ekki hrifnir,
sjómenn?!
/ réttu Ijósi.
Það er hægt að finna margt
að þeim meirihlutum, sem hér
hafa stjórnað tvö undanfarin
kjörtímabil, en íhaldinu ferst
það ekki. Þeint, er rekinn hefur
verið úr skiprúmi með skönun
lyrir sérdrægni og lydduskap,
ferst ekki að vera sá fyrsti til
að níða þann skipverja sem í
hans stað kemur. Það hefur
ekki verið framkvæmd nein
bylting, en það hefur horft í
rétta átt og verið unnið af heið
arleika í þágu almennings eft-
ir því sem elni og aðstæður
leyfðu. Það er hægt að benda á
margskonar framkvæmdir og
það eru blind augu ,sem ekki
sjá þær. Og ef íhaldið færi út
á þá braut að hrósa sér af fram
kvæmdum í sinni stjórnartíð,
hvað myndi það þá gera, ef það
hefði staðið fyrir því, sem gert
hefur verið síðan það var rek-
ið frá völdum?! — Nei, íhaldið
hefði aldrei gert ÞAD, sem gert
hefur verið, þvf það helur verið
gert í þágu ALMENNINGS,
en ekki ákveðinnar hagsmuna-
klíku.
{ sjálfu sér er það ekkert hrós
vert að vinna að hagsmunamál-
um almennings, þessir meiri-
hlutar voru kosnir til þess, en
þá eiga þeir líka að njóta sann-
mælis fyrir verk sín. En það er
eitt mál, sem er hrósvert, enda
kannski þýðingarmesl af öllu
þvf, sem gerzt hefur í bæjarlíf-
inu undanfarin ár, en því hef-
ur ekki verið á lofti haldið sem
vert væri. Það eru bvggingar-
málin almennt. Fyrir skömmu
EYJABLAÐID
------- Útgefandi: ----
Sósíalistafél. Vestmannaeyja
Ritnefnd:
Ólafur Á. Kristjánsson, Þórarinn
Magnússon, Oddgeir Kristjánsson,
Sigurður Jónsson áb.
Prentsmiðjan „Eyrún" h.f.
var maður nokkur, sem siglir
meðfram ströndum landsins að
því spurður, livar hann áliti
mestar framkvæmdir á seinni
árum. I Vestmannaeyjum, svar-
aði liann án þess að hugsa sig
um. Takið eftir þessu: í VEST
MANNAEYJUM HAFA HIN
AEKÁRALEGU LÖG UM
BYGGINGARHIN DRANIR
VERIÐ AÐ ENGU HÖFÐ.
Eyjamenn hafa einir lands-
manna byggt yfir sig án þess
að skeyta boði eða banni. í
öllum bæjum og sveitum hafa
lög þessi verið tekin góð og
gild og hvergi verið byggt fram
yfir það sem Fjárhagsráð leyfði,
NF.MA HER. Orsökin til þessa
er fyrst og fremst sú, að hér
var bæjarstjóri, sem var brenn
andi áluigamaður um húsbygg-
ingar. Olafur Á. KristjánsSon
var ekki fyrr búinn að taka við
starfi sínu en hann ruddi í fram
kvæmd hugmyndinni um smá-
íbúðarhverfi. Það kom skrið-
unni á stað. Síðan var liann ó-
þreytandi í að hvetja menn til
cláða og \ekja upp þann stórhug
og þann dugnað, sem húsbygg-
ingar hér eru bezt vit.ni um.
Má fullyrða, að hvergi sé nú
betri húsakostur almennings á
iandi hér en nú er orðinn í
Vestmannaeyjum.
HVERJUM DETTUR NÚ í
HUG AD ÍHALDIÐ HEFÐl
EKKI HLÝTT SÍNUM EIG-
IN LÖGUM HÉR EINS OG
ANNARSSTAÐAR? - Þeir
hæddu smáíbúðalnigmyndina
og kölluðu „Smásálarhverfi" en
hverjir voru smásálir og þrting-
sýnir og leyfðu ekki að byggja
nema margra hæða hús, sem al-
menningi var ókleift? Það cr
heldur ekki grunlaust, að ýms-
ar smásálir hafi hlakkað yfir
Framhalcl á 4. síðu.
‘ELLIHEIMILIÐ
Eflirtaldir aðilnr fccrðu Elli-
lieimilinu gjafir um jólin:
Kvenfélagið Lfkn: Gísli Gísla
son, Oddfellowar, Ársæll Sveins
son, Ásmundur Guðjónsson,
Karl Kristmanns og Tómas
Geirsson.
Þá heimsóttu ýmsir gam|a
fólkið og styttu því stundir.
Öllum þessurn aðilum þakk-
ar heimilisfólkið tyrir velvild
og hlýhug. Forstöðukonan.