Eyjablaðið - 05.11.1960, Síða 4

Eyjablaðið - 05.11.1960, Síða 4
OR bænum Skipstjórnarmenn mótmæla landhelgissvikum. Skipstjóra- og stýrimannafél. Verðandi hélt fund hinn 23. okt. s. 1. Þar var meðal annars landhelgismálið tekið til með- ferðar. Reyndust fundarmenn allir sem einn sammála um að fordæma alla viðleitni stjórnar- valdanna til að semja um til- slökun á 12 mílunum og var til- laga fram borin af Sigurgeir Ól- afssyni um mál þetta samþykkt einróma. Samþykktin er þannig: „Fjölmennur fundur í Skip- stjóra- og stýrimannafélaginu Verðandi haldinn 23. okt. 1960, skorar eindregið á ríkisstjórn og Alþingi að hvika í engu frá 12 mílna landhelgi og standa fast á rétti okkar.“ Kjarasamningum sjómanna sagt upp. Á sameiginlegum fundi, sem Sjómannafélagið Jötunn og Vél stjórafélagið héldu sunnudaginn 30. okt. var samþykkt að segja upp gildandi samningi um kjör og hlutaskipti sjómanna við Ú tvegsbændafélagið. Vélskipið Helgi Helgason í síldarflutningum. Vigfús Friðjónsson frá Siglu- firði hefur nú tekið Helga Helgason á leigu til að flytja ís- aða síld frá Faxaflóahöfnum á ''v ' Vestur-Þýzkalandi. Torfi Einarsson lótinn. Um síðustu helgi lézt á sjúkra húsi í Hafnarfirði Torfi Ein- arsson, er lengi bjó hér í Eyj- um. Torfi var á sinni tíð orðlagð- ur dugnaðarmaður. Hann stund aði hér útgerð og sjósókn í mörg ár og var um skeið for- maður. Síðustu árin hér í Eyjum vann hann í landi. Hann flutti til Reykjavíkur fyrir fáum ár- um, en þangað voru áður flutt 3 af 4 börnum hans. Heimild til dragnótaveiðo runnin út í ór. Lögin um leyfi til dragnóta- veiða ákveða að eigi skuli heim ilt að veiða með því veiðarfæri eftir 31. október. Dragnótabátar allir hættu því veiðum um síðustu mánaðamót og geta þær veiðar ekki hafizt aftur fyrr en næsta vor. EYJABLAÐIÐ Hungurgöngur hraðfrystistöðvatorstjóra Forstjórar hraðfrystistöðvanna hafa mikinn hluta haustsins legið á hnjánum frammi fyrir stjórnarvöldunum í höfuðborg- inni og bankastjórunum þar, biðjandi svo sem ölmusumenn til forna um að stjórnin bryti sínar „viðreisnar“-reglur um útlán, sem ekki máttu aukast pr tonn, þrátt fyrir allar verð- breytingar. Stöðvarnar hafa ekki. greitt viðskiptamönnum sínum hrá- efni um tveggja eða þriggja mánaða skeið. í upphafi mun hafa verið skaplega tekið undir erindi hungurgöngumanna. Síðan fengu þeir að ganga í gegnum strangar yfirheyrslur baukayfir- valda, sem töldu að búið væri að lána þeim sumum allt að, og í tilfellum nokkuð yfir 100% af útflutningsverði hinnar fram leiddu vöru. Allir munu þeir hafa orðið að lofa að hætta öllum lagfær- ingum eða stækkunum á húsum sínum að sinni — því það er stefna stjórnarinnar að nú megi ekkert byggja nema helzt verzl- unarhús, kirkjur og klaustur — og þá munu þeir hafa fengið ádrátt um einhverja hungurlús, til að leysa sárustu vandræðin. Eftir þetta risu forstjórarnir upp af knébeði og héldu heim- leiðis. En heyrzt hefur, að hung urlúsin, sem þeir töldu sig eiga von í eftir allt, hafi síðan verið hlutað í tvennt, svo að þeim séu nú teknar að daprast vonir um að sáransti vandinn verði að svo komnu leystur nema til hálfs, hvcr sem raunin kann að verða. Vaxtaokrið, sem framleiðslu- fyrirtækin þurfa nú að bera, eru bæði hér og annars staðar að stefna þeim í greiðsluþrot, en lánsfjársamdrátturinn, þar sem hann er framkvæmdur, rekur svo smiðshöggið á erfið- leikana. Aðalfundur Æ F V. Æskulýðsfylkingin í Vest- mannaeyjum hélt nýlega aðal- fund sinn. Bættust henni þar margir nýir félagar og gætir nú mikillar framsækni í félagsstarfi ungra sósíalista hér í bæ. í stjórn voru kosin: Garðar Júlíussoon, formaður, Ágúst Hregg-viðsson, vara- formaður. Sigríður Ólafsdóttir, ritari. Magnús Bjarnason, gjaldkeri, Hafsteinn Ágústsson og Sveinn Tómasson, meðstjórn- endur. ^ Fyrir næsta félagsfundi liggur jregar fjöldi nýrra inngönguum- sókna. AlþýSuhúsið nýtur mikilla vinsælda. Verkalýðsfélögin hafa nú á ný hafið rekstur Alþýðuhússins eftir hinar miklu endurbætur, sem gerðar hafa verið á húsinu. Þar er nú fast skemmtana- hald þrisvar í viku: dansleikir á laugardögum, en kaffihús á sunnudags- og fimmtudagskvöld um. Hljómsveit Guðna Herrnan- sen leikur fyrir dansi, en fyrir rekstri hússins stendur Angan- týr Einarsson, starfsmaður verkalýðsfélaganna. Síðan húsið var opnað að nýju, reynist það njóta hinna mestu vinsælda og hefur þar jafnan verið margt um mann- inn á skemmtunum. Enginn útgerðargrundvöllur. Ú tvegsbændafélagið hélt fund sunnudaginn 30. okt. Kom það fram í ályktun fundarins, að útvegsmenn telja nú engan grundvöll fyrir vertíð arútgerð í vetur, þar eð fiskverð er ekki lengur í neinu samræmi við útgerðarkostnaðinn. Er með þessu enn staðfest sú staðreynd að „viðreisn" ríkis- stjórnarinnar er víðsfjarri því að tryggja hallalausan rekstur útvegsins, svo sem þó átti að vera megintilgangur hennar. „Viðreisnin" hefur þar á móti, auk þess, sem hún hefur bælt saman almenn lífskjör, gert út- gerðinni erfiðara fyrir á alla lund. Útvegsbændafélagið sam þykkti að segja upp kjarasamn- ingum við sjómenn, svo þar er um gagnkvæma uppsögn að ræða. Einn nýr kennari. Einn nýr kennari mun nú ráðinn að barnaskólanum í vet- ur og vantar þá 4 í að fullskip- að sé starfsliðið. Hinn nýi kennari er Lilja Sveinsdóttir, sem ættuð er héð- an úr Eyjum og um skeið var kennari við Aðventistaskólann hér. Hafnarbóturinn. Á bæjarráðsfundi, sem hald- inn var 31. október s. 1. var samþykkt bæjarábyrgð fyrir hafnarsjóð vegna hafnarbátsins, sem nú er í smíðum í Þýzka- landi og afhenda á í des. n. k. Upplýst var á fundinum, að báturinn yrði nefndur ,,Lóðs- inn.“ Vitað er, að vaxtaokrið eitt leggur á hraðfrystihúsin álíka þunga greiðslubyrði eins og kaupgjald allt hefði verið hækk að um 20—30%, en vextir hefðu staðið óbréyttir. Hagur þessara framleiðslu- fyrirtækja mundi því ekkert þrengjast frá því, sem er, þótt þau semdu um allar þær kaup- breytingar, seiii Alþýðusamband ið ræður félögum sínum nú til að gera kröfur um, ef vextir væru samtímis færðir úr „við- reisnar“-forminu niður 1 það, sem áður Var, en þá næmu þeir þó enn við hámark þess, sem þekkist meðal síðaðra þjóða. Þröngsýni bæjarráðs Framhald af 1. síðu. gefinui tilkynningu hætt. auka- kennslunni svo sem eðlilegt er. Þar með hefur endemishátt- Guðlaugs og Ársæls komið skólahaldinu í öngþveiti, þann- að börn í Vestmanriaeyjum fá ekki lengur kennslu í samræmi við fræðslulögin. Það er hugsanlegt að bæjar- félagið geti með þessu sparað sér einhverjar krónur og má- ske er það áform þeirra heið- ursmanna sem hér eru í for- svari að vinna að; 'einhverju upp rneð þessum hætti það fé, sém'áð urtdanförnu héfur verið stolið út úr lúkunum á þeim úr sjóðum bæjarins.

x

Eyjablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.