Morgunblaðið - 03.01.2011, Page 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011
StigameistariEimskips-
mótaraðarinnar í
golfi á liðnu ári,
Hlynur Geir Hjart-
arson, er genginn
til liðs við sinn
gamla golfklúbb á
Selfossi. Hann
hefur undanfarin
ár verið í Keili en gekk frá því á gaml-
ársdag að taka við nýju starfi
framkvæmdastjóra GOS auk þess
sem hann mun starfa sem kennari við
klúbbinn.
Tveir Íslendingar eru í úrvalsliðiNorðurlandanna sem norska
blaðið Verdens Gang hefur valið.
Þetta eru landsliðsmennirnir Gylfi
Þór Sigurðsson, leikmaður þýska liðs-
ins Hoffenheim, og Grétar Rafn
Steinsson, leikmaður Bolton á Eng-
landi.
Liðið er þannig skipað:
Markvörður: Jüssi Jaaskelainen,
Bolton (Finnlandi), Varnarmenn:
Grétar Rafn Steinsson, Bolton (Ís-
landi), Simon Kjær, Wolfsburg (Dan-
mmörku), Brede Hageland, Bolton
(Noregi),
John Arne Riise, Roma (Noregi),
Miðjumenn: Gylfi Þór Sigurðsson,
Hoffenheim (Íslandi), William Kvist,
FC Köbenhavn (Danmörku), Morten
Gamst Pedersen, Blackburn (Nor-
egi), Jesper Gronkjær, FC Köben-
havn (Danmörku).
Sóknarmenn: Johan Elmander,
Bolton (Svíþjóð), Zlatan Ibrahimovic,
AC Milan (Svíþjóð).
George Burley, fyrrverandi lands-liðsþjálfari Skota í knattspyrnu,
var rekinn úr starfi sem knatt-
spyrnustjóri enska 1. deildarliðsins
Crystal Palace á laugardaginn. Liðið
tapaði fyrir Millwall, 3:0, og strax eft-
ir leikinn fékk Burley reisupassann
en hann tók við liðinu í júní. Palace er
í fallsæti en liðið hefur tapað þremur
af síðustu fimm leikjum sínum.
Spánverjinn Rafael Nadal hrósaðisigri á tennismóti í Abou Dhabi á
nýársdag. Þar lagði hann Roger
Federer frá Sviss í úrslitaleik sem var
æsispennandi. Nadal sigraði í tveimur
settum, 7:6 og 7:6.
Ralf Rangnick, þjálfari þýskaknattspyrnuliðsins Hoffenheim,
sem Gylfi Þór Sigurðsson leikur með,
er hættur en þýskir fjölmiðlar
greindu frá því á nýársdag að hann
hefði komist að samkomulagi við for-
ráðamenn félagsins um að láta af
störfum. Ástæðan er talin vera sú að
miðjumaðurinn Luiz Gustavo var
seldur til Bayern München án hans
vitundar og sætti hann sig ekki við
það.
ForráðamennNBA-
deildarinnar í
körfuknattleik
hafa tekið fram
refsivöndinn á nýju
ári og sektað þá
Paul Pierce, leik-
mann Boston, og
Stan Van Gundy,
þjálfara Orlando.
Pierce var sektaður um 1,7 milljónir
króna fyrir að henda einhverju óskil-
greindu upp í áhorfendapallana í úti-
leik á móti Indiana. Van Gundy þarf
að punga út sem nemur 4 milljónum
íslenskra króna fyrir að gagnrýna
störf dómara opinberlega.
Ivica Kostelic frá Króatíu og MariaPietilae-Holmner frá Svíþjóð
sigruðu í gær í samhliða svigi á
heimsbikarmóti í München í Þýska-
landi. Kostelic hafði betur í úrslitum á
móti Julien Lizeroux frá Frakklandi
en í 3. sæti varð Bode Miller. Sænska
stúlkan var fljótari en Tina Maze frá
Slóveníu en í 3. sæti varð Elisabeth
Görgle frá Austurríki.
Fólk sport@mbl.is
Meistarar Chelsea voru eina liðið af
þeim fimm efstu í ensku úrvalsdeild-
inni sem ekki náði að vinna sigur í
fyrstu umferðinni á nýju ári. Chelsea
og Aston Villa skildu jöfn, 3:3, í mögn-
uðum leik á Stamford Bridge í gær
þar sem Ciaran Clark jafnaði fyrir
Villa í uppbótartíma. Þar með hefur
Chelsea dregist enn frekar aftur úr
efstu liðum en Manchester-liðin tvö
tróna áfram í toppsætunum.
Didier Drogba og John Terry virt-
ust hafa tryggt Chelsea sigur með
mörkum undir lok leiksins þegar þeir
komu meisturunum í 3:2.
„Ég er vonsvikinn því við höfðum
sýnt mikinn baráttuvilja með því að
komast aftur yfir eftir að hafa lent
undir í seinni hálfleik. Við héldum að
sigurinn væri í höfn, við þurftum á
honum að halda, en nú verður þetta
enn erfiðara fyrir okkur,“ sagði Carlo
Ancelotti, knattspyrnustjóri Chelsea.
Arftaki Solkjærs fundinn?
Mexíkóinn Javier Hernández, „litla
baunin,“ var hetja Manchester United
sem vann mikinn heppnissigur gegn
WBA á The Hawthorns. United marði
2:1 sigur og skoraði Hernández, eða
hinn nýi Ole Gunnar Solskjær eins
margir hafa kallað leikmanninn, sig-
urmarkið með skalla eftir hornspyrnu
stundarfjórðungi fyrir leikslok.
„Það er mikil hvatning að heyra
svona en ég á langt í land með að líkj-
ast Solskjær og þarf að leggja mjög
hart að mér til þess,“ sagði Mexíkóinn
hæverskur eftir leikinn.
Wayne Rooney skoraði fyrra mark
Manchester-liðsins með skalla, hans
fyrsta mark í opnum leik síðan í mars,
en James Morrisson jafnaði skömmu
síðar með þrumufleyg. WBA var
betra liðið á vellinum en fór illa með
færin. Peter Odemwingie skaut t.d.
framhjá úr vítaspyrnu í seinni hálfleik.
WBA átti líka fá vítaspyrnu líka í fyrri
hálfleik og Gary Neville í leiðinni að
fjúka út af en Chris Foy dómari vildi
meina að Neville hefði ekki brotið á
Graham Dorrans.
„Þetta var virkilega erfitt. Völlur-
inn var þungur og gerði erfitt fyrir en
ég viðurkenni að við höfðum heppnina
með okkur. WBA átti að fá vítaspyrnu
í fyrri hálfleik og ef liðið hefði nýtt vít-
ið í seinni hálfleik hefðum við líklega
tapað,“ sagði Sir Alex eftir leikinn en
hann hélt upp á 69 ára afmæli sitt á
gamlársdag.
Frábær tilþrif Arsenal
Arsenal sýndi frábær tilþrif á St.
Andrews þar sem liðið burstaði
Birmngham, 3:0.
„Lið mitt var tilbúið í líkamleg átök
á móti Birmingham. Menn voru ein-
beittir og héldu ró sinni. Við spiluðum
okkar leik og uppskárum frábæran
sigur. Við vitum að það er mikilvægt
að vinna útileiki á stöðum eins og
Birmingham því jafntefli dugar lítið á
meðan hin toppliðin vinna sína leiki,“
sagði Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, en aftur gerði
hann átta breytingar á liði sínu milli
leikja.
Cole bjargvættur Liverpool
Joe Cole kom Liverpool til bjargar
gegn Bolton á Anfield. Þegar tvær
mínútur voru komnar fram yfir venju-
legan leiktíma skoraði varamaðurinn
sigurmarkið af stuttu færi eftir fyr-
irgjöf frá Steven Gerrard, og bjargaði
þar með starfi Roy Hodgson, alla vega
um stundarsakir.
Kevin Davies kom Bolton yfir með
skallamarki undir lok fyrri hálfleiks
en Fernando Torres skoraði með við-
stöðulausu skoti í byrjun seinni hálf-
leiks eftir glæsisendingu frá Steven
Gerrard.
„Þetta snýst ekki um mig heldur
leikmennina. Ég er mjög stoltur af
frammistöðu liðsins í dag og það var
mjög ánægjulegt að skora mark undir
lokin. Nú þurfum við að byggja ofan á
þennan sigur. Við þurfum að bæta
frammistöðuna á útivöllum ef við ætl-
um að komast nær toppliðunum,“
sagði Hodgson eftir leikinn.
Tévez gat skorað sex mörk
Manchester City gefur ekkert eftir
í toppbaráttunni en liðið marði
Blackpool, 1:0, á heimavelli sínum.
Sigurinn hefði þótt átt að verða stærri
en liðið óð í færum og Carlos Tévez fór
þar fremstur í flokki. Hann hefði vel
getað skorað sex mörk en Argent-
ínumaðurinn skaut til að mynda
framhjá úr vítaspyrnu. Adam Johnson
skoraði sigurmarkið á 33. mínútu og
City er í öðru sæti með sama stiga-
fjölda og topplið Manchester United.
Bale enn á ferðinni
Hinn magnaði Gareth Bale sá um
að tryggja Tottenham sigur á Fulham
á White Hart Lane en Walesverjinn,
sem hefur verið frábær á tímabilinu,
skoraði eina mark leiksins með skalla
eftir aukaspyrnu Rafael van der Vaart
í fyrri hálfleik.
„Þetta er búin að vera fín vika. Níu
stig úr þremur leikjum og maður get-
ur ekki beðið um meira í jólatörninni.
Við þurftum að hafa fyrir sigrinum en
þeir Willam Gallas og Michael Daw-
son voru frábærir í vörninni,“ sagði
Harry Redknapp, knattspyrnustjóri
Tottenham, eftir leikinn.
gummih@mbl.is | vs@mbl.is
Chelsea sex stigum
á eftir efstu liðunum
Reuters
Erfitt Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri Chelsea var súr á svip á Stamford Bridge í gær, enda misstu meistararnir enn
af dýrmætum stigum. Aston Villa jafnaði í uppbótartíma, 3:3, og Chelsea situr þar með í fimmta sæti deildarinnar.
Clark jafnaði 3:3 fyrir Aston Villa í uppbótartíma Hin toppliðin unnu öll
fara á flug of
r Þ. Guðmundsson,
dknattleik, við Morg-
purinn kemur saman
a hefst í Svíþjóð 13.
k daginn eftir og eru
rnir.
a strákana en veit
r og klárir í slaginn
ð minnsta ráð fyrir
iði að allir séu heilir
eit maður ekki hvar
ingaleikina við Þjóð-
ðmundur, en ís-
um í Laugardalshöll-
rdaginn. „Þar
tum í framhaldi af
við stöndum,“ sagði
Hann sagðist hafa verið
óhress með leiki liðsins á móti
Lettum og Austurrík-
ismönnum fyrr í vetur. „Í
leikjunum við Norðmenn
mátti sjá ákveðinn bata og við
verðum að vinna okkur áfram
með það jákvæða sem þar
sást. Ég er tilbúinn með það
sem ég ætla að leggja fyrir
strákana og við verðum að ná
góðri sókn og góðri vörn áður
en mótið hefst,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Hann neitaði því ekki að smáfiðringur væri
kominn fyrir mótið. „Jú, jú, að sjálfsögðu. Eitt
hefur maður samt lært í gegnum tíðina og það er
að ganga aldrei að neinu vísu í þessu. Menn
verða að vera á jörðinni,“ sagði Guðmundur.
skuli@mbl.is
sþjálfarinn varar fólk við
f snemma á flug
Guðmundur
Guðmundsson
Á milli jóla og nýjárs tókst forsvars-
mönnum danska handboltaliðsins AaB
Håndbold að bjarga því frá gjaldþroti.
Landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingi-
mundarson leikur með liðinu og því er
orðið ljóst að hann getur haldið áfram að
leika með liðinu þegar HM lýkur í byrjun
febrúar. AaB varð danskur meistari á síð-
asta keppnistímabili.
Nokkuð er um liðið síðan tilkynnt var að
liðið yrði lagt niður vegna fjárhags-
vandræða. En á milli hátíðanna ákvað Ei-
gild Christensen, danskur viðskiptajöfur,
að leggja félaginu til fé og það verður því
áfram með í slagnum í dönsku deildinni.
Sem stendur er liðið í fjórða sæti deild-
arinnar með 22 stig úr fyrstu sautján um-
ferðunum.
„Það er alveg frábært að okkur skyldi
takast á svona skömm-
um tíma að ná að
tryggja fjárhagsstöð-
una og leggja þar með
grunninn að því að
halda handboltanum
áfram hérna á norður-
hluta Jótlands,“ segir
Jan Larsen, íþrótta-
stjóri félagsins.
Liðið mun leika undir
nafni AaB það sem eftir
er tímabilsins og spila í Gigantium-
höllinni í Álaborg. Útlit er fyrir að næsta
haust verði búið að skipta um búninga og
komnir aðrir styrktaraðilar. „Við vonumst
til að fá styrktaraðila héðan af Norður-
Jótlandi þannig að handboltinn geti verið
hér áfram,“ sagði Larsen. skuli@mbl.is
Liði Ingimundar, AaB Håndbold,
bjargað frá gjaldþroti
Ingimundur
Ingimundarson