Morgunblaðið - 03.01.2011, Side 4

Morgunblaðið - 03.01.2011, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2011 VIÐTAL Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Mér líður mjög vel hjá Hearts og er ekkert sérstaklega að hugsa mér til hreyfings. En það kemur að því að ég þarf á nýrri áskorun að halda til að bæta mig frekar sem knatt- spyrnumaður,“ sagði Eskfirðing- urinn Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður og varafyrirliði skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts frá Edinborg, í spjalli við Morgunblaðið um áramótin. Hann fékk lítið jólafrí, eins og aðr- ir fótboltamenn á Bretlandseyjum, því Hearts spilaði við St. Mirren á miðvikudaginn og aftur við Hib- ernian á nýársdag. Þá vann Hearts sætan sigur í grannaslagnum í Ed- inborg, 1:0, og Eggert lék allan leik- inn að vanda. Leik liðsins sem fram átti að fara á öðrum degi jóla, gegn Kilmarnock, var þó frestað vegna veðurs og vallarskilyrða í Skotlandi. Fjölskyldan til Edinborgar „Nei, maður kemst ekki heim um þetta leyti árs en þá snerum við þessu bara við og fjölskyldan kom til mín hingað til Edinborgar,“ sagði Eggert, sem er 22 ára gamall og er þó að komast í hóp þeirra leikmanna sem lengst hafa spilað með Hearts. Hann var nefnilega aðeins tæp- lega 17 ára gamall þegar hann hleypti heimdraganum og gekk til liðs við skoska félagið sumarið 2005. Þá hafði hann þó þegar leikið í hálft annað ár með meistaraflokki Fjarða- byggðar og tekið þátt í að vinna lið- inu sæti í 2. deild í fyrsta skipti. Eggert lék fyrr í vetur sinn 100. leik með Hearts í skosku úrvals- deildinni og hann hefur af og til ver- ið fyrirliði liðsins, sem nú er í þriðja sæti og komið á hæla stórveldanna Celtic og Rangers eftir frábært gengi að undanförnu. Með sigrinum á Hibernian hefur Hearts unnið átta leiki og gert eitt jafntefli í síðustu níu leikjum sínum og ekki tapað síð- an í október. Alltaf líklegir til að skora „Við erum með mjög gott lið í vet- ur. Fyrir tveimur árum gekk okkur reyndar líka mjög vel og enduðum í þriðja sæti en í fyrra gekk ekkert okkur í hag og við duttum niður í sjötta sætið. Nú er allt í góðu gengi, nýr þjálfari kom með sínar áherslur og við höfum verið á góðri siglingu. Í lok október fengum við skell á heimavelli gegn Kilmarnock en rif- um okkur svo upp með því að vinna Hibernian í nágrannaslag og það kom okkur í réttan gír á ný. Við erum alltaf líklegir til að skora mörk, erum með skæða menn frammi og spilum góðan sóknar- bolta, þannig að þegar okkur tekst að halda hreinu eru allar líkur á að við vinnum leikina,“ sagði Eggert. Lít á mig sem miðjumann Hann er fyrst og fremst varnar- tengiliður en hefur sýnt mikla fjöl- hæfni hjá Hearts, og spilað flestar stöður á vellinum. Í síðustu leikjum hefur hann leikið sem hægri bak- vörður. „Ég lít alltaf á mig fyrst og fremst sem miðjumann, það er mín staða, en það er allt í lagi að breyta til stöku sinnum. Ég hef verið bakvörð- ur að undanförnu en á meðan við vinnum leiki og svona gott jafnvægi er á liðinu kvarta ég ekki yfir því. Við erum með frekar stóran hóp þannig að samkeppnin er talsverð,“ sagði Eggert. Skoski fótboltinn hefur farið illa út úr slæmu veðri og vallarskil- yrðum undanfarnar vikur og fjölda leikja hefur verið frestað. Hearts hefur þó sloppið bærilega, aðeins tveimur leikja liðsins hefur þurft að fresta, báðum útileikjum, en það hef- ur náð að spila sína heimaleiki. Fimmtán stiga frost og frosin vatnsrör „Já, við erum með frábæra að- stöðu á okkar velli, sem er upphit- aður eins og allir vellir í þessari deild verða að vera. Önnur félög hafa hinsvegar lent í ýmiss konar vand- ræðum, rör hafa sprungið í frostinu þannig að vatn hefur flætt á völl- unum og þeir því verið óleikfærir. Eins hefur leikjum verið frestað af öryggisástæðum þar sem erfitt hef- ur verið að ferðast vegna veðurs. Það hefur líka verið óvenju leið- inlegt veður undanfarið, allt að 15 stiga frost, en sá kafli er vonandi að baki. Það var kominn sjö stiga hiti núna fyrir áramótin og allur snjór- inn að hverfa svo við ættum að vera komnir yfir þetta núna. Sem betur fer var bara tveimur leikjum hjá okkur frestað, þannig að við lendum ekki í of miklu leikjaálagi, en sum liðin fóru verr út úr þessu og eiga tvo til þrjá leiki inni á önnur lið,“ sagði Eskfirðingurinn. Ætlum að koma öðrum en sjálfum okkur á óvart Hann hefur leikið nokkuð með A- landsliði Íslands upp á síðkastið, og er auk þess í hinu sigursæla 21-árs landsliði sem leikur til úrslita í Evr- ópukeppninni í Danmörku næsta sumar. Eggert segir að tilhlökkunin sé að sjálfsögðu mikil. „Já, þetta blundar alltaf í manni þó langt sé til sumars og ég er þegar orðinn spenntur. Markmiðið er að vera í sínu allra besta formi þegar að keppninni kemur og sýna að við er- um með gott lið. Stefnan er að halda áfram að koma öðrum en sjálfum okkur á óvart, við vitum sjálfir að liðið er til alls líklegt í keppninni.“ Eggert er hinn rólegasti eftir hálft sjötta ár hjá Hearts en eins og fram kemur í inngangi greinarinnar er hann lítið að hugsa sér til hreyf- ings. „Það kemur að því, ég verð ein- hvern tíma að huga að nýrri áskorun til að bæta mig en er mest lítið að hugsa um það núna. Ég er samn- ingsbundinn í hálft annað ár til við- bótar og sem stendur er ekkert ann- að í myndinni en að standa sig sem best og reyna að veita Celtic og Rangers keppni um meistaratitilinn það sem eftir er tímabilsins,“ sagði Eggert Gunnþór Jónsson. „Kemur að því að ég þarf á nýrri áskorun að halda“  Eggert Gunnþór Jónsson er ánægður með lífið hjá Hearts í Edinborg  Veita Celtic og Rangers keppni í úrvalsdeildinni  Bíður spenntur eftir úrslitakeppni 21-árs liðanna í Danmörku í sumar Morgunblaðið/Eggert Landsliðsmaður Eggert Gunnþór Jónsson í harðri baráttu í landsleik Íslands og Noregs í undankeppni Evr- ópumótsins í haust. Hann er líka í lykilhlutverki í 21-árs landsliðinu sem spilar í úrslitum EM í sumar. Eggert Gunnþór Jónsson » Hann er 22 ára gamall Esk- firðingur og hóf að spila 15 ára með meistaraflokki Fjarða- byggðar. » Hearts fékk hann í sínar rað- ir sumarið 2005 og Eggert hef- ur átt fast sæti í aðalliði félags- ins í hálft fjórða ár. » Stuðningsmenn Hearts völdu Eggert leikmann ársins hjá félaginu tímabilið 2009- 2010. » Eggert hefur leikið 8 A- landsleiki fyrir Íslands hönd og 12 leiki með 21-árs landsliðinu, auk 19 leikja með yngri lands- liðunum. KR er Reykjavíkurmeistari í körfuknattleik karla, en liðið lagði Fjölni 91:84 í úrslitaleik á næstsíðasta degi liðins árs. ÍR varð í þriðja sæti, vann Val 87:75 í leik um þriðja sætið. KR og Fjölnir mætast í 8-liða úrslitum bikarsins í DHL-höll KR-inga á sunnudag- inn, og því má segja að leikurinn í Dalhúsum hafi verið upphitun fyrir þá viðureign. Athygli vakti í leiknum að Pavel Ermol- inskij lék ekki með KR, hann hafði lofað sér í góðgerðarleik í Borgarnesi og stóð við það loforð sitt. Það kom þó ekki að sök því þó svo Fjöln- ismenn hafi byrjað betur náðu KR-ingar að jafna og leikurinn var allan tímann jafn og spennandi en KR-ingar voru sterkari á lokakafl- anum og fögnuðu sigri. Finnur Magnússon var stigahæstur hjá KR með 22 stig og Brynjar Þór Björnsson gerði 14 stig. Hjá Fjölni var Tómas Tómasson með 17 stig, Magni Hafsteinsson 16 og Jón Sverrisson 15. Í leiknum um þriðja sætið gerði Nemanja Sovic 34 stig fyrir ÍR og Sveinbjörn Claessen 16 en hjá Val var Snorri Sigurðsson með 27 stig. skuli@mbl.is KR-ingar Reykjavíkurmeistarar Finnur Magnússon Íslenskir kylfingar fóru 108 sinnum holu í höggi á liðnu ári, en það er draumahögg allra kylf- inga. Árið 2009 náðu kylf- ingar 133 sinnum að fara holu í einu höggi þannig að draumahöggunum fækkaði á milli ára um 19%. Samkvæmt upplýs- ingum Einherjaklúbbsins, sem heldur utan um draumahöggin hjá íslenskum kylfingum, var nýliðið ár þó nokkuð eðlilegt hvað þetta varðar því 2009 var vel yfir meðaltali. Árið 2008 var 105 sinnum slegið beint í holu, 114 sinnum árið þar á undan og síðan 99 sinn- um árið 2006 og 97 sinnum árið 2005. Hola í höggi leit oftast dagsins ljós á Korpúlfsstaðavelli þeirra GR-inga en þar var fimmtán sinnum farin hola í höggi á síð- asta ári. Sem fyrr er það margfaldur Íslandsmeist- ari í golfi, Björgvin Þorsteinsson, sem situr í efsta sæti þeirra sem farið hafa holu í höggi, en þessi snjalli kylfingur hefur tíu sinnum slegið beint í holu af teig. Þess má geta að Björgvin fór tvisvar holu í höggi í sumar, tvo daga í röð á Jaðarsvelli á Ak- ureyri, en það er hans heimavöllur enda Akureyringur. skuli@mbl.is Holum í höggi fækkar milli ára Björgvin Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.