Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.01.2011, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2011 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Arnar Sigurðsson, tenniskóngur Ís- lands, fór með öruggan sigur af hólmi á meistaramótinu í tennis sem fram fór í Kópavogi í nýliðinni viku. Arnar vann Birki Gunn- arsson, samherja sinn úr TFK, í úr- slitaleik á laugardag, 6:0 og 6:1. „Þetta var nú ekki eins auðvelt og það hljómar kannski, en engu að síður fór hann 6:0 og 6:1 þannig að það er ennþá ákveðinn munur á okkur. En bilið er alltaf að minnka,“ sagði Arnar sem er marg- faldur Íslandsmeistari en hætti fyr- ir nokkru að æfa tennis að ráði og tók þess í stað fram takkaskóna. „Ég er búinn að æfa tennis lítið sem ekki neitt síðan á Íslands- mótinu í ágúst, en tók mig til í des- ember og gerði mig kláran í þessi tvö mót, jólamótið og meist- aramótið. Svo er ég að spila fót- bolta líka þannig að maður heldur sér í formi,“ sagði Arnar sem er ánægður með að fá meistaramót aftur en nokkuð er síðan það var síðast haldið. „Þetta er frábært innlegg inn í flóruna og skemmtilegt mót fyrir keppendur og áhorfendur. Þarna eru komnir þeir 8 bestu og það er mikið af leikjum,“ sagði Arnar. Arnar lék knattspyrnu með Breiðabliki sumarið 2009 en skipti yfir til Tindastóls fyrir síðasta sum- ar og lék þar við góðan orðstír. Hann skoraði 6 mörk í 14 leikjum. „Það gekk ótrúlega vel. Við nátt- úrulega unnum 3. deildina og mér tókst að skora í úrslitaleiknum, og var svo valinn leikmaður ársins hjá okkur. Þetta var allt hið æv- intýrilegasta,“ sagði Arnar sem mun leika með sameiginlegu liði Hvatar og Tindastóls í 2. deildinni á komandi leiktíð. sindris@mbl.is „Fótboltinn heldur mér í formi“ Morgunblaðið/hag Sigursæll Arnar Sigurðsson mundar hér spaðann í tennishöll Kópavogs á laugardaginn þar sem hann vann enn einn sigurinn hérlendis. Berglind ÍrisHansdóttir, landsliðs- markvörður í handknattleik, varði 25 skot á laugardaginn þeg- ar lið hennar, Fredrikstad, tók á móti Stabæk í norsku úrvalsdeildinni. Þetta framlag Berglindar dugði þó skammt því Fre- drikstad tapaði, 22:29. Lið hennar er í 8. sæti af 12 liðum í deildinni með 5 stig eftir tíu leiki.    Team Tvis Holstebro komst á laug-ardag upp í 5. sæti dönsku úr- valsdeildarinnar í handknattleik kvenna með öruggum tíu marka heimasigri á Odense, 31:21. Rut Jóns- dóttir skoraði 5 mörk fyrir heimakon- ur. Rut og stöllur hennar eru með 12 stig í 5. sæti deildarinnar, tíu stigum á eftir toppliði Viborg sem hefur unnið alla 11 leiki sína til þessa.    Harpa Sif Eyjólfsdóttir, landsliðs-kona í handknattleik, skoraði 3 mörk fyrir Spårvägen sem vann Skövde, 25:24, í hörkuleik í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær- kvöld. Lið Hörpu er í fjórða sæti deildarinnar, sex stigum á eftir topp- liðinu Sävehof. Lið H 43/Lundagård, sem Þorgerður Anna Atladóttir er að ganga til liðs við, tapaði fyrir Skuru, 34:27, og er í 9. sæti af 12 lið- um.    Íris Guðmunds-dóttir frá Ak- ureyri hafnaði í 5. sæti af 91 kepp- anda á alþjóðlegu svigmóti í Oppdal í Noregi í gær. Aðeins 38 náðu að ljúka keppni og ís- lensku keppend- urnir þrír voru all- ir í hópi 13 efstu. Fanney Guðmundsdóttir úr Reykjavík var í 8. sæti og Erla Ásgeirsdóttir úr Breiðabliki hafnaði í 13. sæti. Fimm Íslendingar voru með í karlaflokki á mótinu en enginn þeirra náði að ljúka báðum ferðum. Jakob Helgi Bjarna- son frá Dalvík, Gunnar Þór Hall- dórsson og Sigurgeir Halldórsson frá Akureyri luku ekki fyrri ferðinni og þeir Brynjar Jökull Guðmundsson og Jón Gaui Ástvaldsson úr Reykja- vík heltust úr lestinni í þeirri síðari.    Íslenska skíðafólkið var einnig áferðinni í Oppdal á laugardag. Þá náði Íris Guðmundsdóttir 2. sæti í svigi og var hálfri sekúndu á eftir sig- urvegaranum, heimakonunni Krist- inu Riis-Johannessen. Fanney Guð- mundsdóttir varð í 8. sæti líkt og í gær og Erla Ásgeirsdóttir í 38. sæti. Hjá körlunum varð Gunnar Þór Hall- dórsson í 16. sæti, Brynjar Jökull Guðmundsson í 21. sæti og Jakob Helgi Bjarnason í 23. sæti. Fólk sport@mbl.is Á VELLINUM Stefán Stefánsson ste@mbl.is „Við vorum eitthvað að bögglast við þetta framan af og vörnin stóð sig ekki alveg nógu vel til að byrja með en svo kom þetta hjá okkur,“ sagði Jóna Margrét Ragnarsdóttir sem lét til sín taka með níu mörk í 33:26-sigri Stjörnunnar á Fylki í N1-deild kvenna í Mýrinni á laug- ardaginn en þessi leikur var í 9. umferð. Með sigrinum eru Garðbæingar komnir með 16 stig úr níu leikjum og tekst að halda í við Framkonur sem unnu Gróttu sama dag og hafa þar með unnið alla átta leiki sína og eiga einn til góða. Sama má segja um Valskonur sem unnu ÍBV örugglega, hafa tapað einum leik og eiga einn til góða á Stjörnuna. „Við ætlum að vera í toppbarátt- unni, erum ekki í handbolta bara til að vera með. Deildin hefur þróast eins og við áttum von á, það eru fjögur lið ofarlega með meiri yfirburði og við vonumst til að geta strítt þeim liðum, eins og við höf- um gert,“ bætti Jóna Margrét við. Þorgerður Atladóttir heldur í vikunni í atvinnumennsku til Sví- þjóðar en Jóna Margrét taldi það ekki mundu slá liðið út af laginu. „Það kemur auðvitað maður í manns stað. Við erum að reyna vinna úr því eins og við getum og það kemur bara í ljós hvernig það gengur. Við erum komnar með Gunni Sveinsdóttur úr FH og þótt við séum búnar að bæta við nokkr- um eldri leikmönnum eigum við yngri stelpur í bílförmum.“ Var orðin leið á handbolta Sjálf var Jóna Margrét hætt í handbolta en sneri aftur, spilaði tvo síðustu leiki síðasta tímabils og árið áður nokkra leiki. „Ég var komin með leið á handbolta og hætt en langaði til að koma aftur. Margrét Vilhjálmsdóttir er komin aftur og Kristín Clausen og Sól- veig Lára Kjærnested að koma úr fæðingarorlofi. Hins vegar erum við ekki gamlar, ég er bara 27 ára, ég byrjaði bara svo snemma. Við erum líka með margar efnilegar svo að hópurinn er blandaður.“ Fylkiskonur náðu að standa uppi í hárinu á Stjörnunni fyrstu tutt- ugu mínúturnar en með fimm mörkum Garðbæinga skildi á milli liðanna. Í hálfleik munaði fjórum mörkum, sem er ekki ógerlegt bil að brúa, en það sem gerði næstum út um leikinn var að fyrstu tíu mínútur síðari hálfleiks gerðu átta mörk Garðbæinga gegn tveimur útslagið því eftir það snerist leik- urinn meira um hve munurinn yrði mikill í lokin. Leiknum lauk síðan með 33:26-sigri heimasætnanna þrátt fyrir ágætt viðbragð gest- anna í lokin. Hræðilegt Sunna Jónsdóttir hélt Fylkislið- inu uppi en var ekki sátt. „Þetta var hræðilegt, ekki það sem við ætluðum okkur. Við byrjum ágæt- lega en það er ekki nóg að spila vel í tuttugu mínútur þegar leik- urinn er sextíu mínútur! Það fór allt í baklás hjá okkur, helst að vörnin stoppaði, og þá var ekki mikill sóknarleikur hjá okkur auk þess sem hraðaupphlaupin skiluðu sér ekki,“ sagði Sunna sem sjálf skoraði 14 mörk. „Þau skipta engu máli því allt liðið verður að standa sig til að við getum unnið topp- liðin.“ Karen skoraði 12 mörk Framkonur héldu áfram óslitinni sigurgöngu sinni þegar þær lögðu Gróttu að velli með 15 marka mun, 37:22. Karen Knútsdóttir skoraði 12 mörk fyrir Fram og Pavla Nev- arilova sex. Hildur Marín Andr- ésdóttir og Tinna Laxdal Gauta- dóttir skoruðu sex mörk hvor fyrir Gróttu, sem er í næstneðsta sæti deildarinnar. ÍR-ingar enn án stiga ÍR-ingar eru enn án stiga á botni deildarinnar eftir tap gegn HK í Digranesinu, 34:16. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 17:8. Elísa Ósk Viðarsdóttir skoraði sex mörk fyrir HK, líkt og Gerður Arinbjarnar, og þær Tinna Rögn- valdsdóttir, Elín Anna Bald- ursdóttir og Elva Björg Arnars- dóttir skoruðu fimm mörk hver. Hjá gestunum úr Breiðholtinu var Þorbjörg Anna Steinarsdóttir markahæst með fimm mörk. Yfirburðir Valskvenna Valur átti ekki í vandræðum með ÍBV og vann 26 marka sigur á Hlíðarenda, 44:18. Hrafnhildur Ósk Skúladóttir var eins og oft áður markahæst hjá Val með sjö mörk og þær Rebekka Skúladóttir og Kristín Guðmundsdóttir gerðu sex mörk hvor. Hin danska Camilla Transel skoraði fimm mörk í sínum fyrsta leik fyrir Val og Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir fjögur, en hún kom til liðsins frá FH fyrir skömmu. Rakel Hlynsdóttir og Þórsteina Sigurbjörnsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor fyrir ÍBV.  Staðan, markaskorarar og aðr- ar tölur úr leikjunum eru á úr- slitasíðunni. »6 „Erum ekki í handbolta bara til að vera með“  Jóna Margrét með níu mörk í 33:26-sigri Stjörnunnar á Fylki í Mýrinni Morgunblaðið/Kristinn Níu Jóna Margrét Ragnarsdóttir var markahæst í liði Stjörnunnar gegn Fylki og hér er mark í uppsiglingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.