Morgunblaðið - 13.01.2011, Page 16
LEIKJADAGSKRÁIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þegar heimsmeistarakeppnin var
haldin á Íslandi árið 1995 var það
jafnframt í fyrsta skipti sem 24 þjóð-
ir léku til úrslita um heimsmeist-
aratitilinn. Fram að þeim tíma, frá
árinu 1958, höfðu ávallt sextán þjóð-
ir tekið þátt í lokakeppninni, nema
hvað þær voru tólf árið 1961.
Í tveimur fyrstu heimsmeistara-
mótunum þar á undan voru þátt-
tökuliðin öllu færri, aðeins fjögur á
fyrsta mótinu í Þýskalandi árið 1938
og síðan léku sex þjóðir um heims-
meistaratitilinn í Svíþjóð árið 1954.
Keppnin sem nú fer fram í Svíþjóð
er sú níunda í röðinni þar sem 24
þjóðir mæta til leiks. Eins og sjá má
hér að ofan er leikjadagskráin þétt
skipuð þessa 18 daga sem mótið
stendur.
Leikið um Forsetabikarinn
Þó er hér að ofan ekki getið um
hluta keppninnar. Liðin sem enda í
neðri þremur sætum riðlanna fara
ekki heim að riðlakeppninni lokinni.
Þau halda áfram og spila um sæti 13
til 24 en þar er leikið um Forsetabik-
arinn, Presidents Cup, sem fellur í
skaut sigurliðsins í þeirri keppni,
þess sem endar í 13. sæti heims-
meistaramótsins í heild.
Eins og sjá má á riðlaskiptingunni
mun það koma í hlut margra öflugra
handknattleiksþjóða að komast ekki
í milliriðla og leika um Forsetabik-
arinn í staðinn.
Opnunarleikur í Gautaborg
Svíþjóð og Chile mætast í opn-
unarleik HM í Gautaborg í kvöld,
fimmtudagskvöldið 13. janúar. Það
er eini leikurinn sem þá fer fram en
það er jafnframt söguleg viðureign
því þar leika Chilebúar sinn fyrsta
leik í úrslitakeppni heimsmeist-
aramótsins frá upphafi.
Öll hin 22 liðin hefja keppni á
morgun, föstudaginn 14. janúar.
Riðlakeppninni lýkur síðan fimmtu-
daginn 20. janúar. Öll liðin eiga frí á
föstudeginum en keppni í milliriðl-
um hefst laugardaginn 22. janúar,
sem og slagurinn um Forsetabik-
arinn.
Þrjú efstu liðin í A- og B-riðlum
fara saman í milliriðil I og taka með
sér innbyrðis úrslitin. Það er því
mest hægt að taka 4 stig með sér í
milliriðilinn.
Sama er að segja um þrjú efstu
liðin í C- og D-riðlum, þau fara sam-
an í milliriðil II.
Öll nema fjögur hafa lokið
keppni 28. janúar
Tvö efstu lið milliriðlanna komast
síðan í undanúrslitin sem fara fram
í Kristianstad og Malmö föstudag-
inn 28. janúar. Liðin sem enda í
þriðja til sjötta sæti í milliriðlunum
spila um sæti fimm til tólf dagana
27. og 28. janúar. Þar með hafa 20
lið af 24 lokið keppni á HM, öll
nema þau fjögur sem spila um verð-
launasætin.
Úrslitaleikir mótsins fara síðan
fram í Malmö Arena, höllinni glæsi-
legu, sunnudaginn 30. janúar.
Átján dagar í Svíþjóð
Níunda skiptið frá HM 1995 á Íslandi sem 24 þjóðir leika til úrslita um
heimsmeistaratitilinn Sterkar þjóðir komast ekki í keppni tólf þeirra bestu
B–riðill
Leikið í Norrköping og Linköping
Úrslit:
14. jan. klukkan 16.00
Ísland – Ungverjaland ___:___
14. jan. klukkan 18.10
Noregur – Japan ___:___
14. jan. klukkan 20.30
Austurríki – Brasilía ___:___
15. jan. klukkan 15.30
Ungverjaland – Noregur ___:___
15. jan. klukkan 17.45
Japan – Austurríki ___:___
15. jan. klukkan 20.00
Brasilía – Ísland ___:___
17. jan. klukkan 16.00
Ungverjaland – Brasilía ___:___
17. jan. klukkan 18.10
Noregur – Austurríki ___:___
17. jan. klukkan 20.30
Ísland – Japan ___:___
18. jan. klukkan 16.00
Japan – Ungverjaland ___:___
18. jan. klukkan 18.10
Noregur – Brasilía ___:___
18. jan. klukkan 20.30
Austurríki – Ísland ___:___
20. jan. klukkan 16.00
Brasilía – Japan ___:___
20. jan. klukkan 18.10
Ísland – Noregur ___:___
20. jan. klukkan 20.30
Austurríki – Ungverjal. ___:___
C–riðill
Leikið í Malmö og Lundi
Úrslit:
14. jan. klukkan 17.00
Króatía – Rúmenía ___:___
14. jan. klukkan 19.15
Danmörk – Ástralía ___:___
14. jan. klukkan 19.45
Serbía – Alsír ___:___
16. jan. klukkan 17.00
Ástralía – Serbía ___:___
16. jan. klukkan 19.00
Alsír – Króatía ___:___
16. jan. klukkan 19.15
Rúmenía – Danmörk ___:___
17. jan. klukkan 17.00
Króatía – Ástralía ___:___
17. jan. klukkan 17.00
Rúmenía – Alsír ___:___
17. jan. klukkan 19.15
Danmörk – Serbía ___:___
19. jan. klukkan 17.00
Serbía – Króatía ___:___
19. jan. klukkan 19.15
Danmörk – Alsír ___:___
19. jan. klukkan 19.30
Ástralía – Rúmenía ___:___
20. jan. klukkan 17.00
Alsír – Ástralía ___:___
20. jan. klukkan 19.15
Króatía – Danmörk ___:___
20. jan. klukkan 19.30
Serbía – Rúmenía ___:___
D–riðill
Leikið í Gautaborg
Úrslit:
13. jan. klukkan 19.15
Svíþjóð – Chile ___:___
14. jan. klukkan 17.15
S–Kórea – Argentína ___:___
14. jan. klukkan 19.15
Pólland – Slóvakía ___:___
15. jan. klukkan 15.15
Chile – S–Kórea ___:___
15. jan. klukkan 17.15
Slóvakía – Svíþjóð ___:___
15. jan. klukkan 19.15
Argentína – Pólland ___:___
17. jan. klukkan 15.15
Slóvakía – Argentína ___:___
17. jan. klukkan 17.15
Pólland – Chile ___:___
17. jan. klukkan 19.15
Svíþjóð – S–Kórea ___:___
18. jan. klukkan 15.15
Chile – Slóvakía ___:___
18. jan. klukkan 17.15
S–Kórea – Pólland ___:___
18. jan. klukkan 19.15
Svíþjóð – Argentína ___:___
20. jan. klukkan 15.15
S–Kórea – Slóvakía ___:___
20. jan. klukkan 17.15
Argentína – Chile ___:___
20. jan. klukkan 19.15
Pólland – Svíþjóð ___:___
Leikjadagskráin á HM 2011 í Svíþjóð
A–riðill
Leikið í Kristianstad og Lundi
Úrslit:
14. jan. klukkan 17.00
Frakkland – Túnis ___:___
14. jan. klukkan 17.15
Þýskaland – Egyptaland ___:___
14. jan. klukkan 19.15
Spánn – Bahrain ___:___
16. jan. klukkan 15.15
Bahrain – Þýskaland ___:___
16. jan. klukkan 16.30
Túnis – Spánn ___:___
16. jan. klukkan 17.45
Egyptaland – Frakkland___:___
17. jan. klukkan 17.30
Spánn – Þýskaland ___:___
17. jan. klukkan 19.30
Frakkland – Bahrain ___:___
17. jan. klukkan 19.45
Túnis – Egyptaland ___:___
19. jan. klukkan 17.00
Bahrain – Túnis ___:___
19. jan. klukkan 17.15
Þýskaland – Frakkland ___:___
19. jan. klukkan 19.30
Spánn – Egyptaland ___:___
20. jan. klukkan 17.00
Egyptaland – Bahrain ___:___
20. jan. klukkan 17.30
Þýskaland – Túnis ___:___
20. jan. klukkan 19.45
Frakkland – Spánn ___:___
Úrslitaleikir
27. jan. Kristianstad kl. 17.00
Leikið um 11. sæti
27. jan. Kristianstad kl. 19.30
Leikið um 9. sæti
28. jan. Kristianstad/Malmö
Leikið um 7. sæti
28. jan. Kristianstad/Malmö
Leikið um 5. sæti
28. jan. Kristianstad
Undanúrslitaleikur
28. jan.Malmö
Undanúrslitaleikur
30. jan.Malmö kl. 13.30
Leikur um bronsið
30. jan. Malmö kl. 16.00
Úrslitaleikur
Milliriðill I
Leikið í Jönköping
22. jan.
A2 _______ – B3 _______
22. jan.
A3 _______ – B1 _______
22. jan.
A1 _______ – B2 _______
24. jan.
B1 _______ – A2 _______
24. jan.
B3 _______ – A1 _______
24. jan.
B2 _______ – A3 _______
25. jan.
A3 _______ – B3 _______
25. jan.
A2 _______ – B2 _______
25. jan.
A1 _______ – B1 _______
Milliriðill II
Leikið í Malmö og Lundi
22. jan.
C2 _______ – D3 _______
22. jan.
C3 _______ – D1 _______
22. jan.
C1 _______ – D2 _______
23. jan.
D1 _______ – C2 _______
23. jan.
D3 _______ – C1 _______
23. jan.
D2 _______ – C3 _______
25. jan.
C3 _______ – D3 _______
25. jan.
C2 _______ – D2 _______
25. jan.
C1 _______ – D1 _______
16 | MORGUNBLAÐIÐ
Ekki verður einungis leikið upp á
heiður og verðlaun á heimsmeist-
aramótinu í Svíþjóð. Þar verður
einnig keppt um sex sæti í undan-
keppni Ólympíuleikanna sem fram
fara í London eftir tvö ár. Liðin
sem hafna í öðru til sjöunda sæti
komast í undankeppni Ólympíu-
leikanna sem Alþjóðahandknatt-
leikssambandið, IHF, stendur fyrir
í annað sinn 6. til 8. apríl á næsta
ári. Fyrsta undankeppni fyrir ÓL
var háð í lok maí og byrjun júní
2008 og var Ísland þar á meðal
þátttökuþjóða. Nú hefur verið
ákveðið að flytja keppnina fram
um tvo mánuði.
Heimsmeistararnir fá sjálfkrafa
keppnisrétt á ÓL 2012, en þjóð-
irnar sex sem lenda í næstu sæt-
um fara í forkeppnina sem eins og
áður mun fara fram í þremur fjög-
urra liða riðlum. Auk sex Evr-
ópuþjóða bætast við tvær þjóðir
frá Afríku, þær sem hafna í öðru
og þriðja sæti í Afríkukeppninni á
næsta ári, ein þjóð frá Asíu og ein
frá Ameríku.
iben@mbl.is
Sæti á ÓL
í London í
húfi á HM
Auk gullverðlaunapenings og bik-
ars fær sigurlið heimsmeistara-
mótsins 200.000 svissneska
franka í sigurlaun á heimsmeist-
aramótinu í handknattleik í Sví-
þjóð. Það er jafnvirði um 24,5
milljóna króna. Fyrir annað sætið
verða greiddir 150.000 sviss-
neskir frankar, um 18,3 milljónir
króna. Liðið sem hafnar í þriðja
sæti fær í sinn hlut 75.000
franka, jafnvirði 9,1 milljónar
króna og 25.000 frankar koma í
hlut þess liðs sem hafnar í fjórða
sæti, rétt rúmlega 3 milljónir
króna. Það er því eftir talsverðu
að slægjast að komast í undan-
úrslit á HM að þessu sinni.
Verðlaunafé hefur hækkað
nokkuð frá síðasta heimsmeist-
aramóti, nærri því tvöfaldast.
Ástæða þess er ekki síst sú að Al-
þjóðahandknattleikssambandið
náði hagstæðari samningum á
sölu sjónvarpsréttar frá mótunum
2009 til og með 2013. Þýski vef-
urinn Handball-World telur að
IHF hafi fengið á milli 75 og 80
milljónir svissneskra franka fyrir
söluna á sýningarréttinum að
þessum þremur mótum.
iben@mbl.is
Milljónir á
milljónir ofan
Alþjóðahandknattleikssambandið,
IHF, hefur tilkynnt að hálfleikshlé
verði 15 mínútur í stað hefðbund-
inna 10 mínútna í öllum leikjum
heimsmeistaramótsins í handknatt-
leik í Svíþjóð. Ekki hefur verið
gefin sérstök skýring á þessum
lengri hálfleikshléum. Talið er að
þau séu að beiðni rétthafa sjón-
varpsútsendinga sem gerði fyrir
nokkru nýjan samning við UFA
um útsendingarrétt á heimsmeist-
aramótum karla og kvenna fyrir
árin 2011 og 2013.
Til stóð að gera fleiri breyt-
ingar í þessari keppni, s.s. að lið-
um væri heimilt að taka aukahlé
þannig að í stað tveggja leikhléa í
hvorum hálfleik bættist við eitt
leikhlé í hvorum hálfleik. Ekkert
varð af þeim breytingum að þessu
sinni, að sögn Róbert Geirs Gísla-
sonar, starfsmanns Handknatt-
leikssambands Íslands. Ekki er
útilokað að viðbótarleikhlé verði
tekin upp á næsta HM á Spáni eft-
ir tvö ár, jafnvel þegar á HM
kvenna sem haldið verður í Bras-
ilíu í lok þessa árs.
iben@mbl.is
Lengri hálf-
leikshlé á HM