Morgunblaðið - 13.01.2011, Page 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÁLFARINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Dagur Sigurðsson, þjálfari spútn-
ikliðs Füchse Berlin í þýska hand-
boltanum, hefur ýmsar tengingar við
liðin í B-riðli heimsmeistara-
keppninnar í Svíþjóð. Dagur er fyrr-
verandi fyrirliði Íslands og lék fyrir
Íslands hönd í fjórum heimsmeist-
aramótum, 1995, 1997, 2001 og 2003.
Dagur er einnig fyrrverandi lands-
liðsþjálfari Austurríkis og náði eft-
irtektarverðum árangri með liðið á
EM í fyrra.
Þá má einnig nefna að Dagur er
fyrrverandi atvinnumaður í Japan en
mikla athygli vakti þegar hann hélt
þangað á sínum tíma. Það gerðu
reyndar einnig frönsku heimsmeist-
ararnir Frédéric Volle og Stéphane
Stoecklin um svipað leyti.
Gamli þjálfarinn stjórnar liði
Japans
„Minn gamli þjálfari hjá Wak-
unaga í Japan, Kiyoharu Sakamaki,
er landsliðsþjálfari Japans. Ég veit
að hann á eftir að berja baráttuanda í
liðið en ég veit bara ekki hversu
sterkir þeir eru. Það er orðið það
langt síðan ég var í Japan að ég þekki
ekki marga sem eru í landsliðinu
núna. Ég hef hins vegar haldið
ágætu sambandi við Sakamaki og
hann heimsótti mig til dæmis til Bre-
genz. Hann er góður þjálfari og er
búinn að liggja yfir þessu í hálft ár.
Það mun ekkert koma honum á óvart
en það er bara spurning hversu mikil
gæði eru í þeirra liði til að stríða
stóru liðunum.
Þeir eru gersamlega reynslulausir
þegar kemur að svona móti. Ég vona
að Japan komi til með að hafa áhrif á
úrslitin í riðlinum og vinni óvænt
eitthvert þeirra liða sem Ísland er að
berjast við,“ sagði Dagur þegar
Morgunblaðið leitaði álits hans á
þeim liðum sem hann þekkir best í B-
riðli.
Mikil stemning í liði
Austurríkis
Dagur telur að hans gömlu læri-
sveinar hjá Austurríki muni verða
erfiðir við að eiga í mótinu.
„Ég sá Austurríkismennina gera
jafntefli á móti Þjóðverjunum á úti-
velli í undankeppni EM í haust. Það
voru mögnuð úrslit en Austurríkis-
menn voru í raun óheppnir að vinna
ekki leikinn. Þjóðverjarnir voru eitt-
hvað lemstraðir en það er svo sem
engin afsökun. Þeir fylgdu þessu eft-
ir með óvæntum sigri á Íslendingum
en ég held að orsökin fyrir því hafi nú
legið frekar hjá okkar mönnum en
Austurríkismönnum.
Því er þó ekki að neita að stemn-
ingin er mikil í austurríska liðinu eft-
ir að þeir héldu EM og ég held að það
muni fylgja þeim í Svíþjóð. Það verð-
ur örugglega erfitt að eiga við þá.
Það er komið ákveðið sjálfstraust í
liðið og liðið er gott. Þeirra markmið
er að komast upp úr riðlinum sem er
tiltölulega lágstemmt og raunhæft að
mínu mati. Útlitið var ekkert sér-
staklega bjart hjá þeim framan af
vetri en nú hafa lykilmenn liðsins
verið að spila vel að undanförnu.
Slinger hefur spilað vel undanfarið
með Balingen, Wilczynski hefur leik-
ið mjög vel hjá mér síðustu leikina og
sama má segja um Robert Weber hjá
Magdeburg. Markvörðurinn getur
einnig verið mjög erfiður eins og við
vitum. Szilagyi hefur auk þess verið
að komast betur inn í leikinn hjá
Flensburg. Það eru því ágæt teikn á
lofti hjá Austurríki í augnablikinu.“
Guðmundur alltaf aftur á
byrjunarreit
Hvað íslenska liðið varðar telur
Dagur það erfitt að leika um verð-
laun á þriðja stórmótinu á fjórum ár-
um.
„Það væri með ólíkindum ef þeim
tækist að halda sér á þeim stalli ef
maður horfir raunhæft á málið. Ég
hef frekar áhyggjur af liðinu framan
af móti en það var einmitt vanda-
málið í Austurríki í fyrra. Þá voru
þeir ekki nógu sterkir til að byrja
með en þegar komið var í leiki sem
skipta miklu máli, eins og Danaleik-
inn, þá voru þeir ótrúlega eitraðir.
Þeir eru með mikla rútínu í sínum
leik en maður heyrði á Gumma að
það hafi verið horfið í leikjunum í
haust. Það var léttara yfir honum eft-
ir heimsbikarmótið í vetur en það er
greinilegt að hann virðist alltaf þurfa
að byrja aftur á byrjunarreit. Ef þeir
komast í milliriðilinn þá er ekkert
gott fyrir liðin að þurfa að mæta okk-
ur. Það er reynsla og rútína í íslenska
liðinu og við erum örugglega ekki
óskamótherji í milliriðli,“ sagði Dag-
ur og benti á að fleiri leikmenn þurfi
að láta til sín taka en hinir hefð-
bundnu lykilmenn.
Tími kominn á Aron
„Við þurfum að fá markvörslu frá
fleiri markvörðum en Bjögga, það er
alveg ljóst. Það þurfa fleiri að draga
vagninn og varnarleikurinn þarf að
vera þéttur. Arnór Atla átti ótrúlegt
mót í fyrra og það er ekki hægt að
ætlast til þess að hann eigi annað
eins mót. Nú er kominn tími á að Ar-
on stígi hressilega fram fyrir skjöldu
og dragi vagninn með lykilmönn-
unum, sérstaklega þar sem Logi er
ekki með. Ekki er heldur hægt að
ætlast til þess að Guðjón Valur spili
sextíu mínútur í öllum leikjum eins
og hann gerði í tíu ár. Mér líst hins
vegar mjög vel á hann núna miðað
við það sem ég hef séð til hans. Riðill-
inn býður aðeins upp á það að hreyfa
liðið og hvíla menn,“ sagði Dagur
Sigurðsson við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristinn
Austurríki Undir stjórn Dags Sigurðssonar komu Austurríkismenn verulega á óvart í úrslitakeppni EM fyrir ári síðan og hann reiknar með því að þeir
verði Íslendingum áfram erfiðir andstæðingar. Dagur þekkir líka til Japana eftir að hafa leikið þar á árum áður, undir stjórn núverandi landsliðsþjálfara.
Með ólíkindum ef liðið
helst á þessum stalli
Dagur Sigurðsson þekkir vel mótherja Íslands Spilaði í Japan og þjálfaði lið
Austurríkis Vonar að Japanar hjálpi Hefur áhyggjur af byrjun Íslands á HM
Íslendingar og
Ungverjar hafa
sjö sinnum leitt
saman hesta sína
í lokakeppni
heimsmeistara-
móts. Áttundi
leikurinn verður
á morgun þegar
landslið þjóð-
anna mætast í
Linköping.
Ungverjar hafa unnið fimm leiki
af sjö, þar af þá fjóra fyrstu.
Fyrst mættust þjóðirnar á HM
1958 í Magdeburg. Ungverjar
unnu, 19:16. Aftur unnu þeir á HM
1964 í Bratislava, 21:12. Sex ár liðu
þar til þjóðirnar mættust á ný. Þá
var leikið í Mulhouse í Frakklandi
og enn unnu Ungverjar, 19:9. Árið
1986 unnu Ungverjar með eins
marks mun í spennuleik, 21:20.
Undir stjórn Þorbergs Aðal-
steinssonar fann íslenska landslið-
ina leiðina að sigri gegn Ungverj-
um. Fyrst á HM í Svíþjóð 1993,
25:21, og aftur á HM 1995, 23:20, á
heimavelli. Síðast mættust þjóð-
irnar á HM 1997. Þá hrósuðu Ung-
verjar sigri, 26:25, í leik um sæti í
undanúrslitum. iben@mbl.is
Tveir sigrar á
Ungverjum í
7 HM-leikjum
Þorbergur
Aðalsteinsson
Ísland hefur
tvisvar mætt Jap-
an í kappleik á
HM, 1970 í
Frakklandi og
aftur á HM í
Kumamoto í Jap-
an 27 árum síðar.
Japan vann við-
ureignina árið
1970, 20:19. Sagt
er að leikmenn
íslenska landsliðsins hafi mætt
værukærir til leiks og talið sig eiga
sigurinn vísan, en annað kom á dag-
inn. Þeir vökunuðu undir lok leiks-
ins og skoruðu fimm síðustu mörkin
en það nægði ekki, Japan vann með
einu marki. Stórskyttan Einar
Magnússon var markahæstur í ís-
lenska liðinu með 5 mörk og önnur
stórskytta, Ingólfur Óskarsson,
kom næstur með 4 mörk.
Ísland vann hins vegar öruggan
sigur í Kumamoto, 24:20, þar sem
Patrekur Jóhannesson skoraði níu
mörk og Valdimar Grímsson sjö.
iben@mbl.is
Tvisvar leikið
gegn Japan
Patrekur
Jóhannesson
Patrik Fölser,
einn reyndasti
leikmaður aust-
urríska landsliðs-
ins, segir að að-
almarkmið
liðsins á HM í
Svíþjóð sé að
komast í milli-
riðil. Austurríki
er í riðli með Ís-
landi og þjóð-
irnar mætast í Linköping 18. jan-
úar, í næstsíðustu umferð riðilsins.
„Við erum með á HM í fyrsta sinn
síðan 1993, verðum að byrja keppn-
ina vel og megum ekki vanmeta lið-
in sem talin eru veikari,“ sagði hinn
34 ára gamli Fölser við Handball-
World. Austurríki mætir Brasilíu
og Japan í fyrstu tveimur leikj-
unum og leikur síðan við Noreg, Ís-
land og Ungverjaland.
„Þetta er mjög jafn riðill en við
höfum sett okkur það markmið að
komast í milliriðilinn,“ sagði Föl-
ser, sem leikur með þýska 2. deild-
arliðinu Düsseldorf. vs@mbl.is
Markmið
Austurríkis er
milliriðillinn
Patrik
Fölser