Morgunblaðið - 27.01.2011, Side 11
27. janúar 2011 11 atvinna
Að kaupa vöru á netinu er auðvelt ogoftar en ekki hagkvæmt, jafnvel þóað borga þurfi allhressileg sending-argjöld og tolla. Gaman getur verið
að dunda sér við búðarrápið í vefverslunum
eins og Amazon og bera saman tegundir og
verð.
Áður en varan er afgreidd úr innkaupakörf-
unni er samt þjóðráð að líta inn á vefsíður eins
og Retailmenot.com. Þar er haldið utan um af-
sláttarkóða fyrir fjöldann allan af verslunum á
netinu og undantekningalítið hægt að finna
góðan afslátt af einmitt þeirri vöru sem hug-
urinn girnist.
Ef Retailmenot reynist ekki hafa nógu góð-
an kóða má slá inn leit í Google með heiti vör-
unnar og orðinu „coupon“. Koma þá örugglega
upp nokkrar vefsíður með kóðum sem eiga við
eða ábendingum um hvar varan færst ódýrari.
Tölvur og bílaleigubílar
Sá sem þetta skrifar keypti sér t.d. um daginn
tölvu sem sótt verður fljótlega í heimsókn til
vinar í Bandaríkjunum. Enga stund tók að finna
kóða sem sparaði um 30.000 kr. af kaupverðinu
sem var þó fyrir töluvert lægra en verðið á
sömu tölvu á Íslandi. Í sama ferðalagi verður
leigður bíll í nokkra daga og var ekki nóg með
að mjög ódýr leiga væri auðfundin á Google
(mun ódýrari en þær bílaleigur sem koma fram
þegar leitað er í venjulegum bókunarvélum),
heldur lumaði Retailmenot á afsláttarkóða sem
mun spara nokkuð marga þúsundkalla.
ai@mbl.is
Retailmenot.com heldur utan um afsláttarkóðana
Auðvelt að fá
afslátt á netinu
Morgunblaðið/Golli
Mörgum þykir hagkvæmt að versla á netinu og skaðar ekki ef enn meiri afsláttur er í boði.
Atvinnuauglýsingar
Au-pair Argentína
Við leitum að sjálfstæðri, barngóðri og
ábyrgri stúlku til að fylgja fimm manna
fjölskyldu til Buenos Aires í Argentínu. Í
starfinu felst að sinna og aðstoða með
börnin sem eru á aldrinum 1, 3 og 7 ára
hluta úr degi auk þess að gæta þeirra
stöku kvöld. Um er að ræða dvöl í 10-12
mánuði frá og með mars/apríl 2011. Við
bjóðum laun, húsnæði og fæði auk
spænskunáms. Umsækjandi þarf að vera
eldri en 18 ára, kostur ef viðkomandi kann
spænsku og hefur stúdentspróf.
Umsóknir og fyrirspurning má senda á
aupair354@gmail.com fyrir 6. febrúar.
Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Sælukot óskar eftir að ráða
aðstoðarleikskólastjóra.
Nánari upplýsingar veitir Didi í síma
562 8533.
Yfirvélstjóri
Evrópskt útgerðarfyrirtæki leitar að yfir-
vélstjóra á frystitogara sem stundar veiðar í
Barentshafi. Viðkomandi þarf að hafa full
réttindi (4. stig) og reynslu af frystitogara vél-
stjórn. Enskukunnátta nauðsynleg.
Um er að ræða langtímastarf.Yfirvélstjóri er á
aflahlut en kauptrygging á sjó eru 10.000 evrur
á mánuði.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsóknir,
með upplýsingum um menntun og fyrri störf,
með tölvupósti til: barentstrawl@live.com.
Raðauglýsingar
Félagsstarf
Aðalfundur
Félags sjálfstæðismanna
í Langholtshverfi
Félag sjálfstæðismanna í Langholtshverfi held-
ur aðalfund fimmtudaginn 3. febrúar kl. 17.30 í
Valhöll.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf en
gestur fundarins verður Friðrik Sophusson fyrr-
verandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Allir velkomnir!
Fundir/Mannfagnaðir
Hestamannafélagið
Gustur
Aðalfundur
og lagabreytingatillögur
Boðað er til aðalfundar Hestamannafélagsins
Gusts fimmtudaginn 27. janúar 2011 kl. 20.00.
Fundurinn verður haldinn í sal félagsins í
Glaðheimum.
Tilkynningar
Kaupi bækur
bókasöfn, dánarbú og
ýmsa gamla muni
Upplýsingar í síma 898 9475
Úthlutun
vegna afnota á bókasöfnum
Af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á
bókasöfnum er úthlutað til rithöfunda,
þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa,
samkvæmt útlánum og afnotum verka þeirra
á bókasöfnum. Um úthlutun gilda lög nr.
91/2007 og reglur nr. 323/2008. Athygli er
vakin á að formálar sem nema að lágmarki
36 bls. og safnrit þar sem hlutur hvers
höfundar nemur að lágmarki 36 bls. svo og
hljóðrit og stafrænar útgáfur bóka sem sam-
svara að lágmarki 36 bls. í prentuðu formi
veita rétt til greiðslu samkvæmt sérstakri
umsókn.
Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum
þurfa höfundar og rétthafar að sækja um á
sérstökum eyðublöðum sem fást hjá
Rithöfundasamband Íslands, Dyngjuvegi 8,
104 Reykjavík, sími: 568 3190, rsi@rsi.is eða
á www.rsi.is/greidslur_vegna_bokasafna/
Umsóknarfrestur er til 17. febrúar.
Vakin er athygli á að þeir sem nú þegar hafa
skilað skráningu þurfa EKKI að skrá sig aftur.
Ný verk eru sjálfkrafa færð á skrá höfundar.
Ýmislegt
Ávöxtun
hefur þú áhuga á betri ávöxtun?
Er með gott ávöxtunartækifæri 40-100% + ?
ávöxtun eftir skatta (fjármagn 5-10 milljónir,
stuttur binditími og 100% trúnaður).
Áhugasamir sendi tölvupóst á box@mbl.is
merkt “X24375,,
Félagslíf
I.O.O.F. 11 19101278 T.W/Fl.
Námskeið fimmtudagur
kl. 20 Námskeið um heima-
hópa, Umsjón; Margaret Saue
Marti.
Kaffi Amen, föstudagur
kl. 21 Lifandi tónlist. Allir
velkomnir.
Samkoma sunnudag kl. 14
Umsjón; Arney og Konráð.
Sunnudagsskóli í kjallarastofu.
Heimilasamband mánu-
dagur kl. 15 Konur koma
saman til að eiga ánægjulega
stund með Guði.
Söngstund og morgunbæn -
alla daga kl. 10.30.
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6,
opin alla virka daga kl. 13-18.
Umsóknir um
byggðakvóta
Auglýsing vegna úthlutunar byggða-
kvóta á fiskveiðiárinu 2010/2011 sbr.
reglugerð um úthlutun byggðakvóta
til fiskiskipa nr. 999, 17. desember 2010
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um
byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin
byggðarlög:
Tálknafjarðarhreppur
Akureyri (Grímsey)
Borgarfjarðarhreppur (Borgarfjörður
eystri)
Djúpavogshreppur
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra
úthlutunarreglna í neðanskráðum
byggðarlögum sbr. auglýsingu nr. 46/2011 í
Stjórnartíðindum.
Árborg (Stokkseyri, Eyrarbakki)
Snæfellsbær (Arnarstapi, Hellissandur,
Rif, Ólafsvík)
Árneshreppur
Húnaþing vestra (Hvammstangi)
Sveitarfélagið Skagaströnd
Dalvíkurbyggð (Hauganes, Árskógs-
sandur)
Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður)
Akureyri (Hrísey)
Fjarðabyggð (Mjóifjörður, Stöðvar-
fjörður)
Breiðdalshreppur
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðu-
blaði sem er að finna á heimasíðu stofnun-
arinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofan-
greindar reglur einnig aðgengilegar.
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar
2011.
Fiskistofa, 26. janúar 2011.
Landsst. 6011012719 X