Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.01.2011, Blaðsíða 17
27. janúar 2011 17 bílar Bremsudælan er föst Ábending Það kemur fyrir hjá bestu bílum að stimplar festast í bremsu- dælum, oftast að framan. Í verstu tilfellum getur hjól festist al- gjörlega nái bremsudælan að hitna og þenjast. Þetta getur kom- ið sér afar illa t.d. úti á landi og haft í för með sér mikinn kostnað við að koma bílnum á verkstæði þar sem hann verður varla fluttur öðru vísi en á vagni. En til er ráð við þessu. Sé krafttöng höfð á meðal verkfæra í bíl má klemma bremsuslöngu viðkomandi hjóls saman, bíða þar til dælan hefur kólnað, og aka þá bílnum varlega heim eða á verkstæði. inn 67 þús. Km. Hann var enn á upprunalegu dekkjunum af tegund- inni Good Year. Þau voru orðin áberandi slitin. Í staðinn keypti ég heilsársdekk af tegundinni Hercules All trac A/T. Samkvæmt ráðleggingum dekkjamanna valdi ég stærðina 245/70R16 í stað 235/70 R16 sem upphaflega voru undir bílnum og mér var sagt að flestir gerðu. Vandamálið er að eyðslan hefur rokið upp um allt að 3 lítra á hundr- aðið í innanbæjarakstri samkvæmt eyðslumælinum, þó hef ég verið að aka eins sparlega og ég get. Getur þetta verið vegna þess að dekkin eru grófari og betri í snjó eða spilar inní að þau eru með 10 mm breiðari sóla. Mér finnst þetta mikill munur á eyðslu fyrir ekki meiri stærðaraukningu. Hver getur skýringin verið? Skoda Octavia: „Haltrar heim“ Spurt: Ég á Skoda Octavia, ‘05, ek- inn 94 þ. 2.0 lítra FSI bensínbíl. Vélkerfið fór í „Safe mode“. Ég fór með hann á verkstæði og lét lesa vélartölvuna. Útkoman var bil- unarkóði P1545 (throttle valve controller ). Þeir á verkstæðinu hreinsuðu minni tölvunnar og end- urræstu. Skömmu seinna fór kerfið aftur í þennan bilanaham (safe mode). Hjá umboðinu var mér sagt að þetta stykki sem stjórnaði inn- gjöfinni kostaði nýtt um 130 þús. lr. Ég er ekki sáttur við að þurfa að borga þá upphæð fyrir þetta. Mundir þú telja að hægt væri að laga þetta á ódýrari hátt eða jafn- vel fá þetta stykki einhvers staðar ódýrara en í umboðinu? Svar: Ég er ekki viss um að þú þurfir að kaupa neitt. Það kemur fyrir þegar ekið hefur verið með óhreina loftsíu að óhreinindi setjast í inngjafarkverkina, á spjaldið og geta gert það að verkum að spjal- dásinn verður stirður. Rafstýrður mótor í kverkinni, sem stýrir lausa- gangi getur verið stirður vegna óhreininda (throttle step-motor). Ástigið (inngjöfin inni í bílnum) er þrepalaus rofi (throttle valve cont- roller). Sé loftbarkinn losaður frá kverkinni og spjaldið og umhverfi þess hreinsað með hæfilega stífum listmálarapensli eða tannbursta og „Carburettor Cleaner“ (fæst á úða- brúsum á bensínstöðvum) og pass- að upp á að opna lítil göt með nál eða fínum vír, sem eru hvort sínum megin við spjaldið, spjaldið liðkað á ásnum með WD-40 og þetta síðan þurrkað með hreinni léreftstusku, getur inngjöfin virkað eðlilega á ný. Þú getur losað inngjafarrofann frá gólfinu og reynt að þrífa hann með WD40 og þrýstilofti. Til að endurræsa vélartölvuna og losna við „safe mode“ þarftu ekki á að- stoð verkstæðis að halda. Það á að vera hægt með því að opna húddið og bílstjórahurðina og svissa einu sinni á – án þess að starta. Gagnist ekkert af þessu skaltu athuga hvort Vaka eigi þennan „throttle valve controller“ nýjan. Þeir eru nokkuð seigir í svona varahlutum og sann- gjarnir í verði. Ford Explorer: Geta ný dekk aukið eyðslu? Spurt: Fyrir um viku síðan end- urnýjaði ég dekkin undir Ford Explorer XLT með 6 síl. 4.0 lítra vél. Bíllinn er af árgerð 2007 og ek- Svar: Ég þekki ekki þessi dekk af eigin raun – en oft eru það einfald- lega gæði dekkja, of stífar hliðar, sem ráða eyðslu – þessi eyðslu- aukning er greinilega meiri en 3 lítrar þar sem þú ert að bera saman við mikið slitin dekk en ekki t.d. ný BFGoodrich. Nýju dekkin eru rúm- lega 4% hærri sem ruglar eyðslu- mælinn – gerir það að verkum að eyðslan mælist meiri en hún er í raun og veru. Ónógur þrýstingur eykur eyðslu. Hafðu 36 pund í dekkjunum og sjáðu hverju það breytir (það er eðlilegur þrýstingur í tæknilega rétt byggðum dekkjum núorðið). Leó M. Jónsson véltæknifræðingur leoemm@simnet.is (Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og ítarlegri svör eru birt á www.leo- emm.com) Leó M. Jónsson svarar spurningum um bílamál Áhrif dekkja á eyðslu bíls geta verið umtalsverð Þegar ekið hefur verið með óhreina loftsíu að óhreinindi setjast í inngjafarkverkina, á spjaldið og geta gert það að verkum að spjaldásinn verður stirður. Mótor sem stýrir lausagangi getur verið stirður vegna óhreininda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.