Morgunblaðið - 31.01.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.01.2011, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011 Vátryggingafélag Íslands hf. | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis.is Baráttukveðjur frá VÍS! Strákarnir okkar eru svo skemmtilega ólíkir og okkur þykir óskaplega vænt um þá alla. VÍS er stoltur styrktaraðili íslenska landsliðsins á HM í Svíþjóð. íþróttir Knattspyrna Landsliðsmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson fór á kostum í hollensku úrvalsdeild- inni um helgina. Gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk í 6:1 sigri AZ Alkmaar 7 Íþróttir mbl.is Sænska handknattleikssambandið telur að spár sínar um að minnsta kosti 10 milljóna sænskra króna hagnað gangi eftir en þeir voru gest- gjafar á heimsmeistaramótinu sem lauk í gær. Það er jafnvirði um 180 milljóna íslenskra króna. Hagnaður verður lagður í þrjá þætti; uppbygg- ingu handknattleiks meðal barna, í unglingalandsliðin í samráði við landsliðsþjálfara A-landsliðsins og loks til almenns kynningarstarfs í íþróttinni sem hefur átt undir högg að sækja síðustu ár eftir að blóma- skeið landsliðsins undir stjórn Bengts Johannssonar rann sitt skeið í byrjun aldarinnar. Alls seldust rúmlega 210.000 að- göngumiðar á leiki keppninnar af þeim 270 þúsund sem voru til sölu. Áætlanir Svía fyrir heimsmeist- arakeppnina um 10 milljóna sænskra króna hagnað þóttu djarfar en virðast hafa gengið eftir. iben@mbl.is Góður hagn- aður á HM Frakkar voru fjórða landsliðið í sögunni sem nær að verja heimsmeistaratign sína í handknattleik karla þegar þeir lögðu Dani í mögnuðum fram- lengdum úrslitaleik í Malmö í Svíþjóð í gærkvöld. Frakkar hrósuðu sigri, 37:35, og unnu þar með fjórða stórmótið í röð en þeir eru heimsmeist- arar, Evrópumeistarar og ólympíumeistarar. Svíar voru fyrstir til að gera þetta þegar þeir vörðu titilinn 1958 eftir að hafa orðið heimsmeistarar á heimavelli fjórum árum áð- ur. Rúmenar léku sama leikinn 1964 í Tékkó- slóvakíu en þeir höfðu orðið meistarar þremur árum áður þegar keppnin fór fram í Vestur- Þýskalandi. Rúmenar endurtóku afrekið 1974 í Austur- Þýskalandi þegar þeir vörðu titilinn er þeir unnu í Frakklandi fjórum árum áður. Það eru sem sagt liðin 37 ár síðan ríkjandi heimsmeist- arar í handknattleik vörðu tign sína en Frakkar unnu það afrek í gær. iben@mbl.is, gummih@mbl.is Reuters Bestir Frakkar í sigurvímu eftir að hafa verið krýndir heimsmeistarar í handknattleik eftir sigur á Dönum í úrslitaleik í Malmö í gær. Þeir fjórðu sem verja titil Menn frá norsku sjónvarpsstöðinni TV2 fylgdust grannt með heims- meistaramótinu í handbolta og eftir úrslitaleikinn völdu sérfræðingar stöðvarinnar úrvalslið mótsins. Í því er Alexander Petersson í stöðu hægri hornamanns. Liðið sem þeir völdu er þannig: Markvörður: Thierry Omeyer, Frakklandi. Vinstri skytta: Mikkel Hansen, Danmörku. Hægri skytta: Marko Vujin, Serbíu. Leikstjórn- andi: Nikola Karabatic, Frakklandi. Hægri horn: Alexander Petersson, Íslandi. Vinstri horn: Lars Christi- ansen, Danmörku. Línumaður: Bjarty Myrol, Noregi. gummih@mbl.is Völdu Alex- ander í liðið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.