Morgunblaðið - 31.01.2011, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011
G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i
G
Ú
S
T
A
V
S
S
O
N
B
J
Ö
R
G
V
I
N
P
Á
L
L
„NOW eru klárlega fæðubótarefni í landsl iðsklassa
fyrir al la íþróttamenn. Mæli sterklega með þessum
vörum fyrir þá sem leita eftir styrk, úthaldi og
snerpu -þær virka vel fyrir mig.“
NOW virkar vel fyrir mig!
NOW - Fullkomin lína af íþróttafæðubótarefnum
– fáanleg í verslunum um allt land
Í fimmta sinn í sögu HM í handknattleik, sem rekja má aft-
ur til 1938, varð að framlengja úrslitaleikinn til þess að
knýja fram úrslit og krýna heimsmeistara. Fyrst var gripið
til framlengingar á HM 1961 í Vestur-Þýskalandi þar sem
Rúmenar unnu Tékka, 9:8, eftir tvær framlengingar. Já,
það var ekki hratt spilað í þá daga. Aftur varð að grípa til
framlengingar níu árum síðar í þegar úrslitaleikurinn fór
fram í París þar sem Rúmenar unnu Austur-Þjóðverja,
13:12, einnig í tvíframlengdum leik. Tólf árum síðar unnu
Sovétmenn Júgóslava, 30:27, úrslitaleik í Vestur-Þýska-
landi. Árið 2001 urðu Frakkar heimsmeistarar þegar þeir
lögðu þáverandi heimsmeistara, Svía, 28:25, í úrslitaleik í
Bercy-höllinni í París. Staðan var jöfn 22:22, eftir venjulegan leiktíma.
Í gær höfðu Danir nærri því fetað í fótspor Frakka fyrir 10 árum þegar þeim
tókst að knýja fram framlengingu í úrslitaleik HM í Malmö í Svíþjóð gegn
ríkjandi heimsmeisturum. iben@mbl.is
Framlengt í fimmta skiptið
Nikola
Karabatic
vía voru sammála um að leikur lið-
hefði getað fallið báðum megin. Þrátt
r sterkari þegar upp var staðið.
fyrir mitt lið, en þegar öllu er á botn-
ður með okkar leik. Leikmennirnir
eyndu mikið að knýja fram sigur. Að
arnir sem voru heppnara liðið,“ sagði
álfari Svía. Hann vildi ekki gefa það
ns sem rennur út í sumar yrði end-
ur væru ekki tímabærar.
Spánverja sagði mikla vinnu liggja
veggja jafnra liða. Sóknin okkar gerði
nn einkenndist af frábærri mark-
tur við úrslit okkar á mótinu. Við höf-
að ná svona langt, ekki bara á þessu
til enda
Mikkel Hansen,
efnilegasti leik-
maður heims um
þessar mundir var
markahæstur á
heimsmeist-
aramótinu í hand-
knattleik með 68
mörk í 10 leikjum.
Hansen skoraði 12
mörkum meira en
næsti maður Marko
Vujin frá Serbíu sem skoraði 56 mörk.
Efstur Frakka er Nikola Karabatic í 7.
sætinu með 51 mark. Alexander Pet-
erson var 6. á listanum og markahæst-
ur íslenska liðsins með 53 mörk. Á eftir
honum kom Guðjón Valur Sigurðsson
með 47 mörk í 8. sætinu. Snorri Steinn
Guðjónsson var þriðji markahæsti Ís-
lendingurinn á mótinu með 29 mörk.
Sverre Jakobsen er í þriðja sæti yfir
flest refsistig á mótinu en hann fékk 5
gul spjöld og 12 brottvísanir. Oscar
Carlén frá Svíþjóð er kóngur refsi-
stiganna með 5 gul og 13 brottvísanir.
Það er athyglisvert að bæði Vignir
Svavarsson og Ásgeir Örn Hall-
grímsson eru með fleiri refsistig en
Ingimundur Ingimundarson, 4 brottvís-
anir og 6 gul spjöld, sem þó spilaði mun
fleiri mínútur. omt@mbl.is
Hansen skoraði mest allra
Mikkel
Hansen
HM Í SVÍÞJÓÐ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Morgunblaðið leitaði álits þriggja
erlendra sérfræðinga á frammistöðu
íslenska landsliðsins á HM í hand-
bolta. Um er að ræða þá Ljubomir
Vranjes, fyrrum leikstjórnanda
sænska landsliðsins, Daniel Con-
stantini, fyrrum landsliðsþjálfara
Frakka og Stefan Kretzmar sem lék
um árabil með þýska landsliðinu.
Allir eiga þeir sameiginlegt að
hafa fagnað sigri á stórmótum og
þeir fylgdust með leikjunum í milli-
riðli okkar Íslendinga í Jönköping.
Viðtölin við þá Constantini og
Kretzmar verða birt í vikunni.
Svíinn smávaxni, Ljubomir Vranj-
es, fylgdist með tveimur leikjum Ís-
lands í milliriðlinum sem háður var í
Jönköping, gegn Þjóðverjum og
Spánverjum.
Varð fyrir vonbrigðum
,,Íslendingar spiluðu ekki vel
gegn Þjóðverjum og voru í vand-
ræðum bæði í vörn og sókn. Þjóð-
verjarnir nýttu sér það vel að ís-
lenska liðið skyldi skipta tveimur
leikmönnum út á milli varnar og
sóknar og útfærðu hraðaupphlaup
sín vel. Ísland átti heldur ekki góðan
leik á móti Spánverjum. Ég varð
fyrir miklum vonbrigðum með ís-
lenska liðið í þeim leik og þá sér-
staklega spilamennsku liðsins fyrstu
20 mínúturnar. Íslendingarnir
lærðu ekki af mistökum sínum í
leiknum gegn Þjóðverjum og gerðu
sömu mistök á móti Spáni og þeir
gerðu gegn Þýskalandi tveimur dög-
um áður. Liðið breytti engu í leik
sínum og ég átti erfitt með að skilja
hvers vegna, þar sem varnarleik-
urinn var mjög slakur gegn Þjóð-
verjum. Ég var því mjög hissa að Ís-
lendingar skyldu ekki draga lærdóm
af leiknum gegn Þjóðverjum.
Spænska liðið er gott og má eiga
það en það er íslenska liðið einnig og
munurinn á liðunum á vitaskuld ekki
að vera tíu mörk að loknum fyrri
hálfleik,“ útskýrði Vranjes og sagð-
ist fyrir keppnina hafa búist við því
að Ísland færi alla leið í undanúrslit.
Spáði því að Ísland færi í und-
anúrslitin
,,Ég spáði því opinberlega að ís-
lenska liðið færi í undanúrslit en var
reyndar sá eini af sænsku sjón-
varpsmönnunum sem átti von á því.
Ég taldi að íslenska hefði burði til
þess vegna þess að liðið getur spilað
góða vörn. Þeir hafa hins vegar
breytt áherslum sínum í varn-
arleiknum og það virkaði alla vega
ekki í milliriðlinum. Þegar spilað er
á móti rútíneruðum liðum sem
þekkja vel sinn sóknarleik, þá er
vörn Íslands eins og hún var í milli-
riðlinum, ekki nægilega sterk. Vörn-
in var mun sterkari hjá Íslendingum
á síðustu mótum og það liggur í aug-
um uppi, að sé vörnin ekki nægilega
góð þá fær liðið ekki mörg hraða-
upphlaup, sem er eitthvað sem Ís-
lendingar eru góðir í. Íslenska liðið
fór því á mis við mörg auðveld mörk
sem liðið fær alla jafna á góðum
degi,“ sagði Vranjes í samtali við
Morgunblaðið.
„Lærðu ekki
af mistök-
um sínum“
Morgunblaðið/Golli
Bestur Alexander Petersson var jafnbesti leikmaður íslenska liðsins á heimsmeistaramótinu.
Ljubomir Vranjes átti von á meiru
Alexander Petersson var valinn í
úrvalslið heimsmeistaramótsins í
handknattleik en liðið var tilkynnt
í gær fyrir leik Svía og Spánverja
um bronsverðlaunin í Malmö í
gær.
Frakkinn Nikola Karabatic var
valinn besti leikmaður heimsmeist-
arakeppninnar en hann á hins-
vegar ekki í sæti í úrvalsliði móts-
ins.
Úrvalslið heimsmeistaramótsins
er skipað eftirtöldum leikmönnum:
Vinstra horn: Hårvard Tvedten,
Noregi.
Vinstri skytta: Mikkel Hansen,
Danmörku.
Línumaður: Bertrand Gille,
Frakklandi.
Leikstjórn-
andi: Dalibor
Doder, Svíþjóð.
Hægri skytta:
Alexander Pet-
ersson, Íslandi.
Hægra horn:
Vedran Zrnic,
Króatíu.
Markvörður:
Thierry Omeyer,
Frakklandi.
Besti leikmaðurinn: Nikola Kar-
abatic, Frakklandi.
Enn ein rós í hnappagat Alex-
anders
Þetta er enn ein rósin í hnappa-
gat Alexanders á undanförnum
vikum en sem kunnugt er var hann
valinn íþróttamaður ársins fyrir
frábæra frammistöðu á árinu 2010.
Hann var jafnbesti leikmaður ís-
lenska liðsins á HM. Alexander
var einnig markahæsti leikmaður
íslenska liðsins í mótinu, skoraði
53 mörk í níu leikjum og átt flestar
stoðsendingarnar í íslenska liðinu.
Samtals hefur Alexander skorað
119 mörk fyrir íslenska landsliðið í
24 leikjum á þremur heimsmeist-
aramótum. Hann er um leið fjórði
markahæsti Íslendingurinn á HM
frá upphafi og vantar aðeins þrjú
mörk upp á að skjótast upp fyrir
Patrek Jóhannesson sem situr í
þriðja sæti.
iben@mbl.is, gummih@mbl.is
Alexander valinn
Alexander Petersson var valinn í úrvalslið HM
Frakkinn Nikola Karabatic var valinn sá besti
Alexander
Petersson
ra,
víti.
inn
Jé-
var
r en
að
Í
an-
sig
tap.
um
m
að
nd-
í
ð
m
lið
a Ul-
r-
ers
r