Eyjablaðið


Eyjablaðið - 30.03.1983, Qupperneq 1

Eyjablaðið - 30.03.1983, Qupperneq 1
5. tölublað Vestmannaeyjum, 30. mars 1983 43. árgangur ÖRFÁ ORÐ um fyrstu menn G-listans í Suðurlandskjördæmi í 1. tölublaði Jötuns 1983 eru frambjóðendur Alþýðu- bandalagsins í Suðurlandskjör- dæmi kynntir. Einnig er mein- ingin að aðstandendur G-list- ans í Vestmannaeyjum komi þeirri kynningu betur út til kjósenda. Það er því ekki ætlun mín að rekja ættir eða uppruna þessa fólks, heldur að fara fáum orðum um þá hæfileika, þekk- ingu og lífsreynslu, sem það hefur til að bera og ég tel að einkum mæli með því að við kjósum það á löggjafarþing ís- lensku þjóðarinnar. Garðar Sigurðsson, 1. sæti: Um það bil 80% af útflutn- ingi, þ.e. gjaldeyrisöflun þjóð- arinnar, er fiskur. Það er því engum vafa bundið að efnaleg velferð allrar þjóðarinnar, til sjávar og sveita, byggist á því að rétt sé á málum haldið við öflun þess gjaldeyris. Garðar hefur, lengst sinnar þingmennsku, setið í sjávarútvegsnefnd og þekkir því allar tölulegar stærð- ir og vanda fiskiskipa og fisk- vinnslu. En hann er ekki einn um það, það gera fleiri, jafnvel þótt þeir þekki naumast kola frá loðnu. En Garðar hefur, líklega einn þingmanna, stund- að sjómennsku einhvern tíma á hverju ári. Hann er því líka þátttakandi í kjörum sjómanna, fylgist ef eigin raun með veiði og veiðarfærum flotans, svo og meðferð á fiskinum um borð og í höfn, að sjálfsögðu sem á- byrgur þingmaður, en leitar að ágöllum, sem hægt er að bæta úr. Þessa þekkingaraðstöðu veit ég ekki til að neinn annar þingmaður þjóðarinnar hafi og er það eitt nóg til þess að ég tel að sunnlenskir kjósendur eigi umfram allt að tryggja sér hann inn á þing. Það tel ég og kost við Garðar að hann fylgir sínum persónu- legu skoðunum og setur ofaní við sína flokksmenn ekki síður en aðra, ef honum finnst þeir gera afglöp, en Garðar er mn'i glöggskyggnari mönnum, eins og þeir vita, sem hann þekkja. Þá hefur Garðar reynst mjög starfadrjúgur í ýmsum nefnd- um, og vil ég þar til fyrst nefna flugráð, þar sem hann átti sæti í 8 ár og ég meina að flugvallar- byggingin hér í Eyjum sé vottur um m.m. Þá hefur hann ekki heldur setið auðum höndum í atvinnu- málanefnd og samgöngunefnd, og ætti Eyjamönnum að vera kunnugt um það. Margrét Frímannsdóttir: 2. sæti á listanum skipar Margrét Frímannsdóttir á Stokkseyri. Margrét hefur unnið algeng verkalýðsstörf, m.a. í fiskvinnu. Hún er því í beinni snertingu við kjör ís- lensks verkalýðs, en það tel ég höfuðnauðsyn, þar sem AI- þýðubandalagið er að mínu mati eini verkalýðsflokkur landsins, eini flokkurinn sem reynir að hamla gegn því að arðránsflokkarnir fái frelsi til að skapa atvinnuleysi og að at- vinnurekendur hafi frjálsar hendur til að láta verkamenn bjóða kaupið niður hver fyrir öðrum, til þess að fá vinnuna, eins og ein sjálfstæðishetjan boðaði hér í morgunútvarpi fyrir skemmstu. Síðan fái kaupmenn frjálsa álagningu á allar vörur, og vísitalan tekin úr sambandi við laun. Þetta er höfuðstefna Sjálfstæðisflokksins í dag. Þess vegna þurfa sjómenn og ó- breyttir launþegar að skipa þingsæti Alþýðubandalagsins á Alþingi. Margrét er ágætlega máli farin, þaulvön félagsmálum og er nú hreppsnefndaroddviti Stokkseyrarhrepps. Ragnar Óskarsson, 3. sæti: Ragnar hefur mest starfað hér á heimavígstöðvunum í Eyjum. Störfhanseru því Vest- mannaeyingum svo kunn að óþarft er að orðlengja um þau. Hann er uppalinn af foreldrum sínum, verkafólki, í Lambhaga hér í bæ, enda harður verka- lýðssinni. Eitt kjörtímabil starfaði hann hér í bæjarstjórn, en kunnastur er hann sem skólamaður, og mundi hann því öðrum fremur geta komið fram sem spesíalisti listans í skóla- og félagsmálum, þótt Garðar hafi raunar kennt nokkur ár við Gagnfræðaskóla Vestmanna- eyja og víðar. Gunnar Sverrisson, 4. sæti: Hann var í skóla hjá mér í Reykholti í Biskupstungum. Var hann stálgreindur strákur og samviskusamur. ,,Hvað ungur nemur, gamall temur”, segir máltækið, og þótt ung- lingurinn eflist og þroskist með aldrinum, þá er það reynsla mín, að höfuðeinkenni og eðli mannsins sé það sama ævina út. Gunnar er uppalinn í sveit, við nautgripa- og sauðfjárrækt og nú stundar hluti af fjölskyldu hans ylrækt. Gunnar er því góður fulltrúi og sérfræðingur G-listans um málefni bænda, hvort heldur er kvikfjárræktar- bænda eða garðyrkju- og yl- ræktarbænda. —Þórarinn Magnússon. S AMSTARFSGRUND V ÖLLUR Nú á dögunum var Sam- starfsgrundvöllur Alþýðu- bandalagsins kynntur. Þar eru birt þau helstu áherslu- atriði sem Alþýðubanda- lagið mun leggja megin- áherslu á í þeirri kosninga- baráttu sem nú er hafin. Markmið samstarfsgrund- vallarins er að skapa for- sendur fyrir samstarfi við þá sem berjast vilja gegn at- vinnuleysi, treysta vilja Iífs- kjörin og sjálfstæði þjóðar- innar. Höfuöatriðin í sam- starfsgrundvellinum eru ein- mitt vörn gegn atvinnuleysi og verðbólgu, en Alþýðu- bandalagið leggur nú sem fyrr megináherslu á barátt- una gegn atvinnuleysi á ís- landi, atvinnuleysi sem ó- hjákvæmilega kæmi af full- um þunga yfir þjóðina ef hægriöflin í landinu undir forystu Sjálfstæðisflokksins kæmust til valda. Innan tíðar mun sér- prentun með samstarfs- grundvelli Alþýðubanda- lagsins verða dreift hér í Eyjum, en við birtum hér meginatriði hennar. í næstu blöðum verða síðan birtir einstakir kaflar úr sér- prentuninni. —R.Ó. € „Alþýöubandalagið er flokkur allra íslenskra vinstri manna, sem vilja vernda og treysta sjálfstæöi þjóöarinnar, standa vörð um hagsmuni vinnandi fólks og tryggja alhliða framfarir í landinu", eins og segir í stefnuskrá bandalagsins. €> Alþýöubandalagið berstfyrir félagslegu jafnrétti, lýðræði og sósíalisma. € Alþýðubandalagið berst fyrir friðlýstu íslandi og er andvígt hersetu og aðild íslands að hernaðarbandalagi. € Alþýðubandalagið vill skapa einingu um íslenska leið í baráttunni gegn kreppu og atvinnuleysi. Sú íslenska leið er svar við erlendum íhaldskenningum, sem hægri öflin vilja nú hrinda í framkvæmd hér á landi. € Þó Alþýðubandalagið hafi sérstöðu á mörgum sviðum getur það átt samleið með öllum þeim sem vilja sækja til betra ir.annlífs og menningar, og þeim sem vilja sameinast um að sporna við tilraunum til að mola niður samhjálp og sjálfstæði. € Alþýðubandalagið leggur áherslu á uppgjör við afturhaldsstefnuna. í kosningunum ertekist á um stefnu kreppu og atvinnuleysis eða samstöðu um að treysta lífskjör í landinu, þjóðlega atvinnuvegi og sjálfstæði þjóðarinnar.

x

Eyjablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.