Eyjablaðið


Eyjablaðið - 30.03.1983, Blaðsíða 2

Eyjablaðið - 30.03.1983, Blaðsíða 2
2 EYJABLAÐIÐ EYJABLAÐIÐ Ritnefnd: Ragnar Óskarsson Sveinn Tómasson Inga Dröfn Ármannsdóttir Þórarinn Magnússon (ábm.) Baldur Böðvarsson Utgefandi: Alþýðubandalagið í Vestmannaeyjum Tölvusetning og offsetprentun: Eyrún hf., Vm. Tveir kostir Nú um þessar mundir er kosningabaráttan vegna Alþingiskosninganna hinn 23. apríl n.k. að komast í fullan gang. Stjórnmálaflokkarnir eru sem óðast að gefa út kosningastefnuskrár sínar sem þjóðin síðan skoðar og metur. Flokkarnir hafa nú sem fyrr margt til málanna að leggja, um sumt er enginn ágreiningur en um annað greinir flokkana verulega á. Við Alþýðubandalagsmenn teljum að í kosningunum verði tekist á um tvö megin sjónarmið. Annarsvegar er um að ræða sjónarmið Sjálfstæðisflokksins og Versl- unarráðs íslands, ómengaða afturhalds- og íhalds- stefnu sem leiða mun atvinnuleysi og félagslegan ó- jöfnuð yfir þjóðina nái hún fram að ganga. Hins vegar er um að ræða stefnu Alþýðubandalagsins, stefnu sem leggur höfuðáherslu á uppgjör við afturhaldsstefnuna og leitast við að skapa samstöðu um að teysta lífskjör í landinu, treysta þjóðlega atvinnuvegi og verja sjálfstæði þjóðarinnar. Alþýðubandalagið, einn íslenskra stjóm- málaflokka, getur boðið íhaldinu í landinu birginn og því er afar mikilvægt að almenningur geri upp við sig hvort hann velur afturhaldsstefnu Sjálfstæðisflokksins eða traust afl til vinstri, þ.e. Alþýðubandalagið. í komandi kosningum er etv. mikilvægara en nokkru sinni fyrr að allir vinstrimenn sameinist gegn aftur- haldsöflunum í landinu og að vinstrimenn geri sér grein fyrir því að Alþýðubandalagið er eina stjórnmálaaflið sem myndað getur breiðfylkingu gegn íhaldinu. Fess vegna heitir Alþýðubandalagið á þig og þinn stuðning í Alþingiskosningunum hinn 23. apríl n.k. Frá upplausn til ábyrgðar Sjálfstæðisflokkurinn gengur nú til kosninga undir kjörorðinu ,,Frá upplausn til ábyrgðar”. Kjörorðið er í sjálfu sér ekki slæmt, en hins vegar verður að draga í efa að Sjálfstæðisflokkurinn, margklofinn eins og hann nú er sé til þess fallinn að veita forystu og skapa ábyrgð í íslenskum stjórnmálum. í kosningastefnuskrá Sjálfstæðisflokksins sem nýlega leit dagsins ljós er á hinn bóginn reynt að leiða Is- lendingum fyrir sjónir mikilvægi Sjálfstæðisflokksins fyrir framtíð þjóðarinnar. Eitt það atriði, sem þar er að finna varðar fjárhagslegt sjálfstæði, en Sjálfstæðis- flokkurinn telur sig geta tryggt þetta fjárhagslega sjálfstæði með stefnu sinni. Þessi fullyrðing flokksins er vægast sagt hæpin vegna þess að flokkur sem ætlar sér að selja í hendur erlendum aðilum ýmsa þætti atvinnu- lífsins stuðla sannarlega ekki að sjálfstæði þjóðarinnar, heldur þvert á móti. Og flokkur sem auka vill öll umsvif bandaríska hernámsliðsins á íslandi stuðlar heldur ekki að sjálfstæði og allra síst efnahagslegu sjálfstæði þjóð- arinnar. Þetta þarf almenningur í landinu að gera sér Ijóst, því allt tal Sjálfstæðisflokksins um efnahagslegt sjálfstæði er blekking ein. Ragnar Óskarsson Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins að Bárugötu 9 (Kreml) er opin alla daga milli kl. 17 og 19 og milli kl. 20 og 22. Mikilvægt er að allir leggi sitt af mörkum og komi til starfa sem fyrst. Kaffi á könnunni, spjall og sitthvað fleira Kosningastjórn * Arni Johnsen kveinkar sér í forystugrein Fylkis stynur Árni Johnsen undan meintum skætingi í sinn garð af hálfu okkar kommaskrattanna og hneykslast að vonum á því að þessir sömu „kommar” skrifi ómálefnalega um framboð í- haldsins og stefnu þeirra. Er það að vonum. Árni er nefnilega eins og kunnugt er alvarlega hugsandi persóna, svo sem reynslan sýnir og ábyggilegur svo af ber. Árni skrifar málefnalega, hann fer ekki með fleipur. Er það furða þótt maðurinn hneykslist? Ekki vil ég, né þori, að deila við þennan nýja stjórnmála- garp um stefnuleysi ríkisstjóm- arinnar undir forystu þing- manns Sjálfstæðisflokksins, Gunnars Thoroddsen, það er nefnilega hluti af heimaerjum innan hans flokks, enda er ég viss um að hann veit allt um þetta mál eins og önnur. „Skætingur” minn í garð herra Johnsen var einungis fólginn í því að segja, að hann væri: „Þekktastur fyrir vísna- söng með gítarspili og annan trúðleik” (Jötunn 5.3. 83). Þetta hélt ég og held enn að sé einfaldlega satt. Það er ekki gott, ef menn telja sannleikann „skæting” þá er einhversstaðar maðkur í mysunni. Það er ekki mér, og allra síst skáklistinni til sóma að telja mig til skákmanna. Ég kann það bara alls ekki og hef ekki stundað það, nema til gamans um borð í bátum, sem ég hef verið á, þegar gefist hefur stund milli stríða. Það er hins vegar rétt, að í þinginu er skáktafl, eins og ger- ist á allflestum vinnustöðum landsins. í það er stundum gripið í kaffitímum eða öðrum frjálsum stundum, þátttakend- ur í því eru ýmsir, þar á meðal nokkrir þingmenn sem hafa Iagt það fyrir sig meira eða minna, en ég undirritaður get hreint ekki talist til þeirra. Hitt er svo annað, að þegar einhverjir þingmenn setjast að skákborðið (auðvitað ófrjáls- ir), þá er það segin saga að birtist einhver meira eða minna vel innrættur blaðamaður og tekur mynd og segir svo: „Þarna sjáið þið, þeir hafa ekki annað þarfara að gera.” Þrátt fyrir ýmsa kosti sem prýða Árna og fjölbreytilega þekkingu, sem honum hefur á- skotnast í sínu blaðamanns- starfi, þá hefur honum í þessari grein orðið það á, sem aldrei skyldi verið hafa, að tala um hluti sem hann hefur ekki þekkingu á. Ekki trúi ég að hann ljúgi. Starf þingmanna er að minnstu leyti unnið úr ræðu- stól. Minn aumingjaskapur telur hann mestan vera sem þingmanns að tala ekki og jafn- vel ekkert úr ræðustól, gott og vel, en hvemig eru þá hinir þingmenn Suðurlands, þar með taldir þingmenn Sjálfstæðis- flokksins? Ég get fullvissað Áma, þennan prýðispilt, um það og það getur hann sannreynt, ef vilji er fyrir hendi, að ég tala oftar og meir úr ræðustól á Al- þingi en allir hinir þingmenn Suðurlands til samans. Ég get líka fullvissað Árna um það, að ég tel mig ekkert merkilegri fyrir það, enda ekki mitt að dæma. í þeirri stöðu, sem Ámi er nú, ætti hann ekki að gera sér far um að lítilsvirða störf al- þingismanna, nógu margir eru um það, því Árni verður þing- maður eftir 23. apríl. Ekkert getur komið í veg fyr- ir það. Ég hef ekki trú á því, að „hnípin þjóð í vanda” hreppi slíkan vinning. Garðar Vitið þið hvað það þýðir? Þetta var fyrirsögn í síðasta blaði, þar var spurt nokkurra spurninga, að gefnu tilefni frá valdakjarna sjálfstæðisflokks- ins, Viðskiptaþingi, þar sem settar voru fram og tímasettar aðgerðir í efnahagsmálum. 7. MAÍ: Vísitölubinding af- numin: stöðug skerðing vinnu- launa í takt við verðbólgu, bóta- laust. Sífelld átök á vinnu- markaði. 7. MAÍ. Gjaldeyrisviðskipti gefin frjáls frá 1. júlí: óheft flóð erlends fjár inn í Iandið; stórt skref til að glata efnahagslegu sjálfstæði. 1. JÚNÍ: Niðurgreiðslur af- numdar: tvöföldun verðs á landbúnaðarvörum og í sumum tilfellum meira á einu bretti plús hækkanir vegna verðþenslu. Stórkostleg kjaraskerðing fyrir launafólk, einkum þá sem minnst hafa. 7. MAÍ: Gengið frá niður- skurði á framlögum til húsnæð- ismála um meira en 300 millj.: hvar á þá að taka peninga fyrir lánum upp á 80% byggingar- kostnaðar, sem Geir boðaði í öllum fjölmiðlum um daginn og þótti mörgum vel í lagt, að koma með slíkt yfirboð rétt fyrir kosningar. 7. MAI: Lánasjóður náms- manna svo gott sem þurrkaður út: ýmsir hnökrar kunna að vera á meðferð lánasjóðsins, en þessi aðgerð þýðir einfaldlega það, að þeir einir geta leitað sér menntunar, sem efni hafa, hinir sitja heima. Það má geta nærri, að fólk utan af landi stendur verr að vígi en þeir af höfuð- borgarsvæðinu. 1. ÁGÚST: Sala aflakvóta vegna veiða hefst: um þetta þarf ekki að hafa mörg orð, en það þýðir m.a. meiri kostnað út- gerðar og í raun lakari hluta- skipti, raunar er á öðrum stað í áætlunum valdakjarna íhalds- ins gert ráð fyrir „breyttum” hlutaskiptum. Ofantalin sex atriði eru að- eins sýnishorn, miklu fleiri verkefni eru á þeirri athafna- skrá íhaldsmanna, þótt þeir tali tæpitungu nú fram að kosning- um, en fyrirliði Sjálfstæðis- flokksins, Albert Guðmunds- son er í Verslunarráðinu og síðasti formaður þess, næstur á undan Ragnari Halldórssyni í álinu, auk þess sem hugmynda- fræðingar þessarar klíku eru meðal annarra þeir Friðrik Sóf. og Þorsteinn Pálsson, þið kann- ist við nafnið. Hér verða ekki tíunduð fleiri atriði af efnisskránni, kannski síðar, en meginatriðið er að öll paragröffin eru í sama anda og þessi. Landinu skal bjarga með enn frjálsari verslun. Hvaða launa- maður skyldi trúa því? Hver sá Iaunamaður, sem ekki vill kjósa Á MÓTI slíkum fyrirætlunum? Garðar Páskaliljur f'vrir páska Ljósm.: Guðmundur Sigfússon Kosningasími Alþýðubandalagsins S 1570

x

Eyjablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.