Eyjablaðið


Eyjablaðið - 30.03.1983, Page 3

Eyjablaðið - 30.03.1983, Page 3
EYJABLAÐIÐ 3 Alþýðubandalagsfélagar og gestir Munið spilakvöldið fimmtudaginn 31. mars n.k. (Skírdag) í Alþýðuhúsinu kl. 20.30. Mætum öll hress og kát. Síðast var fjör. Félagsmálanef nd Nýkomið úrval af efnum í gardínur og fatnað. Ódýrir sportskór no.: 20-39. Buxur og skyrtur í úrvali. Fermingarföt og HR-jakkaföt. Opið á laugardag kl. 09:00-12:00. V' kaupfélag YESTMANNAEYJA V efnaðarvörudeild AÐALFUNDUR Aðalfundur Sjómannafélagsins Jötuns verður haldinn í dag, miðvikudag, kl. 16.30 í Alþýðu- húsinu. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf Lagabreytingar Önnur mál Veitingar Stjórnin Kjötborðin hjá okkur eru yfirfull af úrvals kjötvörum ATHUGIÐ í dag, miðvikudag 30. mars er opið til kl. 19:00 LOKAÐ laugardaginn 2. apríl Gleðilega páskahátíð UTANKJÖRFUNDAR ATKVÆÐAGREIÐSLA vegna alþingiskosninga 23. apríl n.k. hófst laugar- daginn 26. mars s.l. Kosning fer fram á skrifstofu bæjarfógeta virka daga kl. 10:00 til 12:00 og kl. 13:00 tif 15:00. Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum Aðalfundur Sparisjóðs Vm. Aðalfundur Sparisjóðs Vest- mannaeyja fyrir árið 1982 var haldinn 18. febrúar s.l. í Akógeshúsinu. Fundarstjóri var kosinn Þórarinn Magnús- son og ritari fundar Kristmann Karlsson. Á fundinum kom m.a. fram, að heildarinnstæður í árslok námu 47,5 millj. og er þar um 55% aukningu á milli ára að ræða. Útlán námu í árs- lok 30,4 millj. Bundnar inn- stæður í Seðlabanka íslands námu í árslok 13 millj. en inn- stæða á viðskiptareikningi nam 1.4 millj. og er það allmikill bati frá árinu áður. Hagnaður ársins nam 869 þús., sem lagður var í varasjóð. Eigið fé sjóðsins nam í árslok 4,4 millj. Er þar um 1 10% aukningu að ræða milli ára. Fasteign Sparisjóðsins Bárugata 15 er bókfærð á gild- andi opinberu fasteignamati og nam það í árslok 3,8 millj., en brunabótamat á sama tíma nam 5.4 millj. Næturhólf var sett upp í Sparisjóðnum nú um áramótin og er það mikið notað af við- skiptavinum sjóðsins, þeim til mikils hagræðis. 3. desember 1982 voru liðin 40 ár frá stofnun Sparisjóðs Vestmannaeyja og af því tilefni var öllum viðskiptavinum Sparisjóðsins boðið í afmælis- kaffi í afgreiðslusalnum þann dag og þótti það takast mjög vel, um 800 manns mættu í afmæliskaffið. í tilefni afmælisins gáfu eig- endur 3ja verslana Sparisjóðn- um forláta kaffikönnu, tii not- kunar á biðstofunni, en nokkuð er um það að aðrir sparisjóðir veiti sínum viðskiptamönnum þá þjónustu að bjóða upp á kaffi á biðstofum. Gefendur könnunar voru þeir Ragnar í Eyjabæ, Engilbert í Kostakjör og Hörður í Skýlinu. Kann Sparisjóðurinn þeim bestu þakkir fyrir gjöfina. í stjórn Sparisjóðsins voru kosnir þeir Sigurgeir Kristjánsson, Þor- björn Pálsson og Jóhann Björnsson. í stjórninni eru kosnir af bæjarsjóði þeir Arnar Sigurmundsson og Ragnar Óskarsson. Á fyrsta stjórnar- fundi eftir aðalfund, var Sigur- geir Kristjánsson kosinn for- maður og Arnar Sigurmunds- son varaformaður. Löggiltur endurskoðandi er Endur- skoðunarskrifstofa Sigurðar Stefánssonar s.f. en forstöðu- rnaður þeirrar skrifstofu hér í bænum er Þorvarður Gunnars- son löggiltur endurskoðandi. Endurskoðendur kosnir af bæjarstjórn eru þeir Magnús Kristinsson og Hermann Kr. Jónsson. Starfsmenn voru í árslok 8. Sparisjóðsstjóri er Benedikt Ragnarsson og skrifstofustjóri Guðjón Hjörleifsson. AUGLÝSIÐ í EYJABLAÐINU Eyjablaðið óskar öllum bæjarbúum gleðilegra páska V estmannaeyingar Alþýðubandalagið í Vestm.eyjum gengst fyrir opnum stjórnmála- fundi í Alþýðuhúsinu mánudaginn 4. apríl n.k. (annar í páskum) og hefst hann kl. 16.00 A fundinum flytja ávörp og svara fyrirspurnum Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins og efstu menn á lista Alþýðubandalags- ins í Suðurlandskjördæmi Alþýðubandalagið Félagsstarf eldri borgara Félagsstarf eldri borgara á Hraunbúðum á fimmtudagskvöldum í mars og apríl verður sem hér segir: Fimmtud. 31. mars kl. 14........Sinawik Fimmtud. 7. apríl kl. 16 ..........Líkn Fimmtud. 14. apríl kl. 20 .........J.C. Fimmtud. 21. apríl kl. 16 .........Líkn Fimmtud. 28. apríl kl. 20 ........Eygló Félagsmálaráð. FUNDARBOÐ Ferðamálanefnd Vestmannaeyja hefur ákveð- ið að boða til fundar með hagsmuna- og öðrum áhugaaðilum um ferðamál og þjónustu þeim tengdum. Fundartími: Fimmtudaginn 7. apríl 1983 kl. 20.00. Fundarstaður: Hallarlundur. Fundarstjóri: Kristmann Karlsson, form. ferðamálanefndar Vm. Frummælendur: Einar Helgason, Flugleiðum hf. og Birgir Porgilsson, Ferðamálaráði íslands. Tilgangur: Fundurinn er ætlaður til að kanna áhuga þeirra, sem að ferðamálum vinna til að sameina krafta sína til eflingar og aukningar á þjónustu og bættum aðbúnaði ferðamanna í Vestmannaeyjum. Einnig að leita eftir áhuga fyrir samstarfsvettvangi í einhvers konar félags- formi, sem annast gæti skipulagningu og sam- ræmingu á sviði ferðamála. Ferðamálanefnd Vestmannaeyja

x

Eyjablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.