Eyjablaðið


Eyjablaðið - 29.11.1983, Síða 2

Eyjablaðið - 29.11.1983, Síða 2
2 EYJABLAÐIÐ EYJABLAÐIÐ Ritnefnd: Sveinn Tómasson Ragnar Óskarsson (ábm.) Inga Dröfn Ármannsdóttir Baldur Böðvarsson Edda Tegeder Elías Bjömsson Oddur Júlíusson Ármann Bjarnfreðsson Útgefandi: Alþýðubandalagið í Vestmannaeyjum Tölvusetning og offsetprentun: Eyrún h.f. Vm. V -----------—_____ — Að loknum landsfundi Ekki fer á milli mála að landsfundur Alþýðubanda- lagsins sem haldinn var dagana 17.-20. nóv. s.l. tókst vel. Lað sem öðru fremur einkenndi þennan landsfund var samstarfsvilji og baráttuandi innan Alþýðubanda- lagsins. Áhersla var lögð á að greiða fyrir samstöðu allra vinstri manna á íslandi og fylkja þeim til baráttu gegn þeirri ríkisstjórn sem nú situr og hefur með aðgerðum sínum skert kjör launafólks meir en nokkur dæmi eru til hérlendis á síðari árum. Þá settu jafnréttismál mikinn svip á landsfundinn og staða kvenna innan Alþýðubandalagsins var mjög til umræðu. Að landsfundinum loknum er það Ijóst að staða kvenna er nú góð innan flokksins. Varaformaður og gjaldkeri eru konur en auk þess eru konur nær helmingur miðstjórnarmanna. Þessi dæmi sýna að Alþýðubandalagið er í raun jafnréttisflokkur sem hefur þróast í takt við tímann og sinnt sanngjörnum kröfum kvenna um aukin áhrif í stjórnmálum. Það er á hinn bóginn afar fróðlegt að athuga við- brögð andstæðinga Alþýðubandalagsins við lands- fundinum. Morgunblaðið reynir á allan hátt að gera fundinn tortryggilegan og telur hann misheppnaðan. Blaðið hefur að undanförnu eytt mikilli orku og miklu rúmi til þess að fræóa landsmenn um þessa túlkun sína. Þessi afstaða Morgunblaðsins er auðvitað kærkomin Alþýðubandalaginu því hún sýnir raunverulega að landsfundurinn tókst vel og Morgunblaðið óttast þá samstöðu sem þar náðist svo til í hverju máli. Að þessum landsfundi loknum bíða Alþýðubanda- lagsins mörg og brýn verkefni en segja má að megin- verkefni séu þrenns konar: — Alþýðubandalaginu ber aö skoða samstarf og einingu vinstri manna sem sitt meginviðfangsefni. Það samstarf er nauðsynlegt til mótvægis við þau markaðs- hyggjuöfl sem nú ráða ríkjum hér á landi. — Álþýðubandalaginu ber að taka þátt í og styðja bar- áttu verkalýðshreyfingarinnar af fullum krafti, einkan- lega nú á næstu mánuðum. — Alþýðubandalaginu ber að gera sitt til þess að tryggja rekstur íslenskra atvinnuvega gegn því mikla peninga- lega uppgjöri sem yfir stendur. Þessi markmið þurfa að nást, þau eru nauðsynleg og frá þeim má Alþýðubandalagið ekki hvika. Nýtt kalt stríð Ógnvænleg tíðindi hafa borist um heimsbyggðina. Sambúð stórveldanna í austri og vestri hefur nú á síðustu dögum versnað svo mjög að menn eru farnir að tala um nýtt kalt stríð. Nú er svo komið að samninga- viðræður stórveldanna um takmörkun vígbúnaðar hafa siglt í strand eftir margra ára samningsþóf og þar sem svo er komið rnunu stórveldin halda áfram hinu tryllta kapphlaupi um framleiðslu vígvéla af enn meiri hörku en nokkru sinni fyrr. Þessi þróun sýnir jarðarbúum hve vonlaust það er í raun að leggja traust sitt á stórveldin til að tryggja frið í heiminum. Hún sýnir jarðarbúum hins vegar að eina leiðin til að tryggja raunhæfan frið felst í því að efla frðarbaráttuna í austri og vestri og hafna í því sambandi algerlega forsjá og stefnu stórveldanna sem nú hefir beðið endanlegt skipbrot. —R.Ó. AVARP TIL ISLENDINGA Framhald af 4. síðu lagsins telur að nú sé brýnna en nokkru sinni fyrr að leita sam- starfs um lausn á helstu vanda- málum þjóðfélagsins. Til við- bótar við þau áföll sem þjóðar- búið hefur orðið fyrir, magnar stefna núverandi ríkisstjórnar vanda efnahagslífsins. Alþýðubandalagið er nú í stjórnarandstöðu, en flokkur- inn er engu að síður reiðubúinn til þess að taka á þeim vanda- málum sem brýnast er að leysa. Við ríkjandi aðstæður hlýtur það að vera meginverkefni AI- þýðubandalagsins að reyna að samfylkja vinstrimönnum og verkalýðssinnum um úrræði í efnahags- og atvinnumálum og til að hrinda þeirri framsókn hægri aflanna sem núverandi ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir, og koma ríkisstjórn fésýslu- aflanna frá. Alþýðubandalagið skorar á íslendinga að taka nú höndum saman um nýja stefnu sem tekur á vandanum á grundvelli félagshyggju og jafnréttis, lýð- ræðis og samvinnu með varð- veislu sjálfstæðis þjóðarinnar FORVITNILEG SKÝRSLA 5. nóvember s.l. birti Efnahags- og framfara- stofnunin í París skýrslu um íslensk efnahagsmál. Kennir þar að vanda margra grasa. Ekki er hér rúm fyrir margt úr skýrslu þessari, en ástæða er til að nefna þar fáein atriði. í niðurstöðum skýrsl- unnar segir meðal annars (í lausl. þýðingu): „Fyrst og mikilvægast er að hjöðnun verðbólgu fái meiri forgang en áður, en því markmiði hefur ekki verið gert hátt undir höfði. Reynsla annarra aðildar- ríkja sýnir að aðgerðir gegn verðbólgu, sem fram- kvæmdar eru af festu, skila árangri. Þá sýnir reynslan einnig, að ólíklegt er að við- unandi verðfestu verði náð án fórna, sem koma fram í minni framleiðslu en ella og meira atvinnuleysi. (leturbr. mín). En þessar fórnir verður að skoða sem það verð sem greiða þarf fyrir það að glæða varanlegan hagvöxt”. Parna hafa menn það. Ég er ekki viss um að það sé rétta leiðin okkar út úr efnahagsvandanum að framleiða minna og þaðan af síður er líklegt að stór- kostlegt atvinnuleysi auki verðmætið á bak við pen- ingana í landinu. í niðurlagi skýrslunnar og viðbæti er að finna fleira gott eins og t.d. krafa um hærri vexti, aukinn niður- skurð opinberra fram- kvæmda, hækkaða refsi- vexti Seðlabanka, og að lokum er klykkt út með því að segja: „Þær aðgerðir, sem þegar hefur verið gripið til, eru í rétta átt, en eru þó aðeins lágmark þess sem gera þarf’. Þarna hefur ríkisstjórnin pantað sér hæfilega for- skrift. G.S. að leiðarljósi. Verkalýðshreyfingin er nú í fjötrum þvingunarlaga sem skerða samningsrétt til tveggja ára. Ríkisstjórnin leggur fjötra á sjálfstæði og fjárhag alþýðu- heimilanna. Utanríkisstefnan festir ís- lendinga fastar í hernámsfjötra. Alþýðubandalagið berst fyrir því að létta þessum fjötrum af þjóðinni — fyrir framtíð án fjötra. V estmannaey ingar! Verðum með jólatréssölu. Tökum á móti pöntunum. Allt innflutt tré í góðum gæðaflokki. LAUS STAÐA Staða lögreglumanns í lögreglunni í Vest- mannaeyjum er laus til umsóknar. Laun skv. kjarasamningi B.S.R.B. og ríkisins. Umsóknir er greina aldur, menntun og fyrri störf ásamt með- mælum sendist Bæjarfógetanum í Vestmanna- eyjum fyrir 20. desember n.k. Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögregluþjóni, er jafnframt gefur nánari upplýsingar. Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum, Kristján Torfason. VESTMANNAEYJABÆR Vetrarstarf aldraðra Fimmtudaginn 8. des. 1983 kl. 16:00 verður spilað á Hraunbúðum í umsjón Kvenfélagsins L^nar Félagsmálaráð. LAUS STAÐA Starf aðalbókara við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum er laust til umsóknar. Laun skv. kjarasamningi B.S.R.B. og ríkisins. Umsóknir ásamt meðmælum og upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 20. desember n.k. Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum, Kristján Torfason. f AFSLÁTT ARKO RT 10% afsláttur til félagsmanna Afsláttarkortin hafa verið send heim til félags- manna. Nýir félagar fá afhent kort á skrifstofunni. <ESi I kaupfelag VESTMAN KAEYJA

x

Eyjablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.