Eyjablaðið - 29.11.1983, Qupperneq 3
EYJABLAÐIÐ
3
EKKI HAFT EFTIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
Þú ert að spyrja hvernig mér
lítist á þjóðmálin. „Ja, ég verð
að segja alveg eins og er að ég
er aldeilis hissa á þjóðinni, og
ég harma það”.
Hvort mér finnist aðgerðir
stjórnarinnar koma hart niður á
láglaunafólkinu.
„Jú vissulega, og mér þykir
ákaflega fyrir því, ég harma það
mjög. Eg veit að það eru margir
sammála mér í þeim efnum, og
ég harma það alveg sérslak-
lega”.
Hvort aðrar leiðir hefðu ver-
ið færari.
„Ég skal ekki segja um það,
en þessi var alveg nauðsynleg.
Fólk hefur verið svo andsnúið
því að spara, sérstaklega lág-
launafólkið. Það hefur alltaf
eytt bókstaflega öllu sem það
hefur þénað, og aldrei lagt neitt
fyrir, hvorki í fasteignum eða
Iausu fé. Aðrir hafa ekki hagað
sér svona. Þetta er ill nauðsyn.
Láglaunafólkið skilur ekki
hvað það er að spara, ég hefi
reynt þetta persónulega á
sjálfum mér þessa dagana, í
sambandi við bílinn, ég er ákaf-
lega hryggur út af þessu og verð
að segja það alveg eins og það
er, ég harma þetta alveg sér-
staklega”.
Þú spyrð um þingið.
„Ég harma þetta með þingið
og ég veit, að ríkisstjórnin öll
gerir það. Það er ekki henni að
kenna, að við gátum ekki
sparað okkur þingið. Það var
látið undan þrýstihópunum.
Þjóðin gerir sér ekki ljóst hvað
það má spara mikla peninga,
með því að hafa ekki þetta
þing. Ég vil líka að það komi
fram hér, að það er ekki mín
sök, og okkar framsóknar-
manna, að þingið er komið
þarna. Við vorum alveg á því,
strax eftir síðustu kosningar, að
spara þingið og erum það enn,
en við náttúrulega ráðum ekki
öllu — og ég harma það — ég
harma það alveg sérstaklega.
Það eru margar þjóðir miklu
stærri en við, sem spara sér
svona þing. Ég bið þjóðina að
íhuga það í næstu kosningum
að við framsóknarmenn erum
reiðubúnir að stjórna landinu,
án þess að hafa þing, það er að
segja; ég, Dóri, Alli og Nonni
og einhverjir fleiri náttúrulega,
því Framsóknarflokkurinn
hefur ákaflega mörgum hæfum
mönnum á að skipa.
Ég bið menn líka að hugleiða
í alvöru að við höfum sýnt, að
það má spara þjóðinni allt
verkalýðsþrasið, sem kostar
ákaflega mikla peninga. En við
verðum að fá að ráða þessu, án
íhlutunar ofbeldisaflanna. En
það er íhugunarvert fyrir
okkur, sem stöndum vörð um
frelsið og lýðræðið, hve of-
beldisöflin eru ráðandi meðal
þjóðarinnar, og það er alvarlegt
mál, að vita ekki heimilisföngin
hjá þeim öllum. Það er
skemmst að minnast að for-
ystumenn Iaunþega — „struns-
uðu” — liggur mér við að segja,
út af fundi forsætisráðherra,
þar sem löglega kjörin stjórn-
völd vildu gera þeim grein fyrir
stöðunni í efnahagsmálum
þjóðarinnar, vegna þess að þeir
vildu, þvert ofan í gildandi lög,
ég endurtek, — „þvert ofan í
gildandi lög” — fara að þrasa
um kaup og kjör. Ég verð að
segja það eins og Reagan for-
seti sagði þegar rússarnir ruku
út af friðarfundunum í Evrópu
og sögðust ekki vilja, „ég
harma þetta alveg sérstak-
lega”, kjarnorkusprengjur til
að eyða illgresinu úr sínum kál-
görðum: „Ég harma afstöðu
verkalýðshreyfingarinnar og
verð að segja alveg eins og það
er, að ég bara veit ekki hvað
hægt er að gera fyrir svona
verkalýðshreyfingu, ég tek það
ákaflega nærri mér og þykir
mjög mikið fyrir því. Ég vil
ítreka það sem ég sagði hér í
upphafi að ég er harmisleginn,
útaf þessu öllu saman fyrir
hönd allrar þjóðarinnar.
Ég vil svo að það komi hér
fram, að það sem ég segi í þessu
viðtali er ekki haft eftir mér.
—N.N.
AÐALFUNDUR
Herjólfur h.f. Vestmannaeyjum, heldur aðal-
fund fyrir árið 1982 í Alþýðuhúsinu, föstudaginn
2. desember 1983 kl. 20:30.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu
félagsins frá og með 25. nóvember n.k.
Stjómin.
V estmannaey ingar!
Munið Líknarkaffið á morgun, 1. des., frá kl.
15:00 í Samkomuhúsinu.
Líknarbazar verður í Hallarlundi frá kl. 15:30.
Fjölmennið og styrkið í leiðinni gott málefni.
Kvenfélagið Líkn.
VESTMANNAEYJABÆR
ATVINNA
Verkamenn óskast til sorp-
hreinsunarstarfa. Upplýsingar veittar í síma
Áhaldahússins, S 1533.
Áríðandi tilkynning um
innheimtu þinggjalda
Þann 1. desember n.k. er síðasti gjalddagi
þinggjalda árið 1983.
Vinsamlegast greiðið gjaldfallna skuld nú
þegar og forðist kostnað er hlýst af innheimtu-
aðgerðum.
Lögtaksaðgerðir eru þegar hafnar gagnvart
þeim, sem eigi hafa staðið í skilum með gjald-
fallnar greiðslur.
Athygli skal vakin á því að innheimtir verða
fullir dráttarvextir hjá þeim sem af einhverjum
ástæðum gera ekki skil á réttum tíma.
BÆJARFÓGETINN •ék
í VESTMANNAFYJUM
REGUJR
UMUTHLUTUN
UTBRnTD PT B Ifffl
SKV. ÁKVÖRÐUN
RÍKISSTJÓRNARINNAR.
| Umsækjendum, sem fengu eða fá lán
til nýbygginga og lán til kaupa á eldra
húsnæði á árunum 1982 og 1983 úr
Byggingarsjóði ríkisins, ergefinn kostur
á viðbótarláni allt að 50% af upphaflegu
láni þeirra.
O Viðbótarlánin koma til greiðslu á árinu
“• 1983 og nema allt að 50% af þeim
lánshlutum, sem veittir voru á árunum
1982 og 1983. Lánshlutar, sem koma
til greiðslu á árinu 1984 verða með 50%
hækkun, skv. ákvörðun ríkisstjórnar-
innar.
D Ef framkvæmdaaðili (t.d. byggingar-
samvinnufélag) hefur fengið fram-
kvæmdalán til byggingar íbúða, þá eiga
kaupendur þeirra rétt á viðbótarláni, að
því tilskildu, að íbúðirnar hafi verið
gerðar fokheldar frá og með 1. október
1980 og uppgjör hafi farið fram á
árunum 1982 og 1983. Ef uppgjör við
framkvæmdaaðila fer fram frá og með
1. janúar 1984 þarf ekki að sækja um
viðbótarlán, sbr. 2. tölulið.
A Ef um eigendaskipti er að ræða á
“•núverandi eigandi rétt á viðbótarláni,
leggi hann fram þinglýstan kaupsamn-
ing eða veðbókarvottorð.
5Viðbótarlán verða afgreidd frá veðdeild
• Landsbanka íslands með kjörum, sem
gilda um nýbyggingarlán (F-lán) og lán
til kaupa á eldra húsnæði (G-lán).
Varðandi veð skal þó heimilt að taka
síðari veðrétti en 1. og 2. veðrétt, að
því tilskildu, að áhvílandi uppfærð lán,
að viðbættu viðbótarláni húsnæðis-
málastjórnar, nemi ekki hærri fjárhæð
en 65% af brunabótamati íbúðarinnar.
Æ Sækja verður um viðbótarlán á
^•eyðublaði, sem Húsnæðisstofnun
ríkisins leggur til.
7Umsóknir um viðbótarlán skulu berast
• Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 1.
desember 1983.
I lúsnæðisslol'niin ríkisins