Eyjablaðið


Eyjablaðið - 29.11.1983, Side 4

Eyjablaðið - 29.11.1983, Side 4
4 EYJABLAÐIÐ TILLAGA STJÓRNMÁLANEFNDAR Stjórnmálayfirlýsing landsfundar Alþýðubandalagsins, sem haldinn var í Reykjavík 17.-20. nóvember 1983. ÁWRP TIL ÍSLENDINGA íslendingar hafa á undan- förnum árum orðið að þola samdrátt í þjóðarframleiðslu og þjóðartekjum. Þegar þjóðin stendur frammi fyrir slíkum vanda er nauðsynlegt að við stjórn landsins sé lögð megin- áhersla á samstöðu og sam- vinnu. Með framsókn hægri aflanna í ríkisstjórn Framsóknarflokks- ins og Sjálfstæðisflokksins hefur félagslegum lausnum á vanda þjóðfélagsins verið hafnað. í staðinn fá markaðs- öflin að vaða fram. Samtök launafólks eru svipt mann- réttindum og lífskjör eru lakari en um áratugaskeið. Atvinnu- öryggi er í verulegri hættu. Fyrirtækin eru að stöðvast og hundruðum manna hefur þegar verið sagt upp störfum. Kaup- máttur tímakaups er nú kom- inn niður í það sem var fyrir 30 árum. Stefna ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir því að kaupið verði lækkað enn frekar á næsta ári og ísland verði láglauna- svæði þar sem veruleg og vax- andi kjaraskerðing festist í sessi. I atvinnumálum skapar stefna ríkisstjórnarinnar alvar- leg vandamál. Hún ýtir undir vantrú á getu þjóðarinnar til þess að lifa af auðlindum lands og sjávar. Á þann hátt er brautin rudd fyrir erlenda stór- iðju og aukna hernámsvinnu. Stjórnin vísar frumkvæðinu frá íslendingum og yfir á forystu erlendra auðfélaga sem á skammri stundu geta breytt ís- lenska þjóðfélaginu í hálfný- lendu. Almenningur er síðan látinn greiða niður orkuverð til slíkra stóriðjufyrirtækja. Þegar Alþýðubandalagið var aðili að ríkisstjórn landsins tókst að halda aftur af her- námsöflunum hér á landi. Kröfur Bandaríkjanna náðu ekki fram að ganga. Því má ljóst vera, að bandaríkjastjórn hlýtur að hafa lagt ofurkapp á að mynduð yrði hlýðin ríkis- stjórn þegar ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen fór frá. Erlend öfl — bandaríkjastjórn og Alusuisse — höfðu því ríkra hagsmuna að gæta þegar rætt var um myndun ríkisstjórnar- innar á s.l. vori. Launamenn verða fyrir sárs- aukafullri lífskjaraskerðingu, félagsleg þjónusta er skorin niður en sóun og bruðl með fjármuni ríkir á öðrum sviðum. • Fjárfesting í verslun nemur á næsta ári nærri 1.000 millj- ónum króna. Ríkisstjórnin ætlar að fella niður skatt af skrifstofu- og verslunar- húsnæði sem oft er eini skattur- inn sem stóreignaaðilar greiða. • Gert er ráð fyrir að eyða 100 milljónum króna í flug- stöðvarbyggingu á næsta ári en allar framfarir í heilbrigðis- málum eru stöðvaðar. • Á sama tíma og foreldrar eru neyddir til að vinna myrkr- anna á milli til að geta fram- fleytt fjölskyldum sínum eru uppi áætlanir um að fella niður framlög til dagheimila. • Niðurskurður á bótum almannatrygginga sem boðað- ur hefur verið á næsta ári, ógnar afkomu þeirra hópa sem verst eru settir: aldraðra, öryrkja og sjúkra. • Fjárfesting í bankabygg- ingum nemur hundruðum milljóna króna á þessu ári. • Milliliðirnir í landbúnaði, sem undanfarið hafa lagt millj- arða króna í vinnsluhallir, halda ótrauðir áfram að festa fé í þarflitlu húsnæði, þótt fram- leiðsla fari minnkandi. • Fullnýting á aflaverðmæti og fjárfestingu í sjávarútvegi verður æ brýnni þegar af- rakstur fiskistofna dregst saman. • Á þjóðinni hvíla enn þungir baggar frá dögum viðreisnar- stjórnarinnar og hægri stjórnar- innar 1974-1978 vegna mis- taka við gerð orkusölusamn- inga og orkuframkvæmdir. Ríkisstjórnin ber því við að öll stefna hennar beinist að því að takmarka verðbólgu. Nú liggur hins vegar fyrir að verð- bólga muni fara vaxandi á næstu misserum, því hvergi hefur verið hróflað við raun- verulegum ástæðum verðbólg- unnar. Aðeins með enn frekari aðför að kjörum launafólks, geta ráðherrar stundað blekk- ingarleikinn enn um sinn. Ríkisstjórnin segir að vextir hafi lækkað. Staðreyndin er hins vegar sú að vextir, miðað við kaupgjald, hafa aldrei verið hærri en einmitt nú. Á fyrstu fjórum mánuðum valdaferils ríkisstjórnarinnar hækkaði lánskjaravísitala um meira en 35% — sem nemur 100% hækkun á ársgrundvelli — en á sama tíma hækkuðu laun um aðeins 8%. Ríkisstjórnin segist vera að leysa vanda húsbyggjenda. Staðreyndin er sú, að það tekur launamanninn nú rúmum tveimur árum lengri tíma að vinna fyrir staðalíbúð en á sama tíma í fyrra. Alþýðubandalagið leggur ríka áherslu á að þjóðin nái saman um úrræði í efnahags- málum sem geta boðið stjórnarstefnunni byrginn. í þeim efnum bendir lands- fundur Alþýðubandalagsins á eftirfarandi tillögur um að- gerðir hér og nú: 1. Bráðabirgðalögin um skertan samningsrétt verði af- numin. Gert verði samkomulag við vinnustéttirnar um kaup og kjör, aðgerðir gegn verðbólg- unni og nýja íslenska atvinnu- og uppbyggingarstefnu. Stefnt verði að því að ná þeim kaup- mætti almennra launa sem var á árinu 1982; launamunur verði aldrei meiri en 1:2 og launa- flokkum verði fækkað í jöfn- unarskyni. Unnið verði að einu sam- felldu lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn og að allir njóti sömu lífeyrisréttinda. Tryggja verður með samn- ingum verkalýðshreyfingar, ríkisvalds og atvinnurekenda að engir hópar verði útundan og því er sérstaklega krafist leiðréttingar á kjörum öryrkja og ellilífeyrisþega. 2. Stöðvaðar verði þarf- lausar eyðsluframkvæmdir á vegum banka, olíufélaga og annarra milliliða. Bönkum verði fækkað og þeir sam- einaðir. 3. Grundvöllur hagkerfisins verði sjálf verðmætasköpun framleiðsluatvinnuveganna. Fjármagni verði beint í auknum mæli til þess að tryggja fulla atvinnu og auka verð- mætasköpun atvinnuveganna. Þar verði einkum lögð áhersla á: • Endurbætur í skipulagi at- vinnuveganna auki framleiðslu og framleiðni. • Fjármagnskostnaði verði létt kerfisbundið af fram- leiðsluatvinnuvegunum svo að svigrúm gefist til þess að taka á móti þeim vanda sem fram- undan er. Miðað skal við að tvöfalda lánstíma að jafnaði. • Bæta þarf nýtíngu sjávarafla og tryggja hagkvæma nýtingu fiskistofna. Rannsóknir þarf að auka stórlega á öllum þeim sviðum sem tengjast öflun og vinnslu sjávarfangs. Kanna verður miklu betur en gert hefur verið náttúruleg skilyrði sjávar, nýtanlega fiskistofna og veiðiaðferðir. • Öflugri markaðsstarfsemi og aukið svigrúm í afurðasölu á erlendum mörkuðum verði burðarás nýrrar útflutnings- sóknar. • Markviss innlend orku- nýting verði liður í víðtækri iðnþróun. • Fiskirækt og fiskeldi skipi stóran þátt í atvinnuupp- byggingu næstu ára. 4. Komið verði á samfelldu húsnæðiskerfi, þar sem bankar og opinberir aðilar í samvinnu við lífeyrissjóði tryggi láns- fjármagn til íbúðabygginga með greiðari hætti en nú. Jafnframt verði lögð áhersla á byggingu leiguhúsnæðis, for- gangsrétt byggingarsamvinnu- félaga og húsnæðissamvinnu- félaga og endurbætur á verka- mannabústaðakerfinu. 5. Dregið verði úr innflutn- ingi með beinum og mark- vissum aðgerðum án þess að kjaraskerðingu sé beitt í þessu skyni. 6. Orkuverð til álversins verði hækkað skilyrðislaust, svo náð verði framleiðslu- kostnaðarverði. Beitt verði í þessu skyni einhliða aðgerðum ef þörf krefur. Arðurinn af hækkuninni verði m.a. notaður til þess að jafna og lækka orkukostnað heimilanna. 7. Frekari útþensla banda- ríska hernámsins verði stöðvuð. Alþýðubandalagið er reiðu- búið til viðræðna við önnur stjórnmálasamtök og aðila vinnumarkaðarins um útfærslu þessara efnisþátta í nýrri stjórnarstefnu. Reynslan hefur sýnt að eingöngu með sam- eiginlegu átaki landsmanna er unnt að ráðast í stór verkefni á íslenskan mælikvarða. Kreddukenningar markaðs- aflanna um lausn á atvinnu- málum hafa aldrei skilað varanlegum árangri á íslandi. Landsfundur Alþýðubanda- Framhald á 2. síðu Firmakeppni ÍBV S.l. sunnudag fór fram fyrsta umferðin í Firmakeppni ÍBV. Fjórtán fyrirtæki eru skráð til leiks og er þeim skipt í 3 riðla. A-RIÐILL: 4 lið eru í þessum riðli: Geisli, Net, Áhaldahúsið og Trésm. Ella Pé. Net sigraði Geisla strax í fyrsta leik, en að margra áliti áttust þarna við tvö bestu liðin í riðlinum. Þó gæti Trésm. Ella Pé bitið vel frá sér eins og sást í leiknum við Geisla. Lítum þá á úrslitin: Net-Áhaldahús 8-4 Net-Geisli 10-6 Trésm. Ella Pé-Geisli 9-7 B-RIÐILL: 5 lið eru í þessum riðli: Sam- frost, FIVE, Skipalyftan, VSV (b-Iið) og Frystihús FIVE. í þessum riðli skera tvö lið sig nokkuð úr, Skipalyftan og FIVE. Leik liðanna lauk með jafntefli, svo það gæti farið svo að markatala réði úrslitum í riðlinum. Leikirnir fóru annars þannig: Samfrost-FIVE 6-16 Skipalyftan-Fr.h. FIVE 13- 5 Samfrost-VSV (b.) 7- 3 Skipalyftan-FIVE 7- 7 VSV (b.)-Frystih. FIVE 7- 2 C-RIÐILL: Ekki var leikið í þessum riðli. Byrjað verður að Ieika í honum n.k. laugardag, en liðin í riðl- inum eru: Hraðfrystihús Vm., Árntýr, ísfélagið, VSV (a-lið), og Gengið (bankaveldið og Raggi Sjonna). Efsta liðið í hverjum riðli kemst í úrslit. Riðlakeppnin verður kláruð n.k. laugardag og hefst hún kl. 13. Hvet ég bæjar- búa til að horfa á þessa skemmtilegu keppni og styrkja þá í leiðinni (með aðgangseyri) IBV. * Iþróttamaður Vestmannaeyja 1983 Á ársþingi ÍBV s.l. sunnudag voru birt úrslitin í kjöri íþrótta- manns Vm. 1983. Það kom engum á óvart að fyrir valinu varð golfleikarinn Gylfi Garðarsson. Hann hefur lagt mikla rækt við golfið undan- farin misseri, og er nú árangur- inn af erfiðinu að koma í ljós. Óska ég Gylfa innilega til hamingju með nafnbótina. Tipp Ekki virðast Vestmanna- eyingar vera miklir spámenn. Átta duttu úr síðustu keppni og hafa því 42 spáð í þau fimm skipti sem keppnin hefur farið fram. Sex réttir er það besta sem náðst hefur en var í 1. umferðinni, en meðaltalið í spákeppninni er 4,8 réttir. Vona ég að þetta fari að lagast því með þessu áframhaldi verður hálfur bærinn liggur við, búinn að spá um áramótin. Þeir Jón Ó. Jóhannsson og Gylfi Birgisson duttu úr síðustu keppni, en þetta var í 5. skipti sem þeir voru með. Næst besti árangur er tvö skipti! Jóhann Georgsson spáir: Arsenal-WBA 1 Geri það fyrir Ómar. Óskar F. Brynjarsson spáir: Aston Villa-West Ham 2 „The Hammers” eru í allt öðrum gæðaflokki en Villa. Sigbjörn Óskarsson (2) spáir: Liverpool-Birmingham 1 Liverpool er langbesta liðið á Englandi. Ingibjörg Ólafsdóttir (2) spáir: Luton-Coventry 1 Ég gef Luton 1 því ég er svo hrifin af Brian Stein. Viðar Einarsson spáir: Sunderland-Ipswich 1 Ipswich eru hræðilega slappir á útivelli. Sigmar Pálsson spáir: Man. Utd.-Everton 1 Utd. eru sterkir á heimavelli, auk þess sem þeir eru í góðu formi um þessar mundir. Jósúa Steinar Óskarsson (2) spáir: Norwich-Tottenham 2 Það stendur sem ág sagði: „Spurs verða Englands- meistarar”. Hörður Þórðarson spáir: Wolves-Watford 2 Watford er langtum betra lið. Pottþéttur útisigur. Raggi rakari (2) spáir: Charlton-Middlesbro 2 M’boro er sterkara enda gamall jaxl er því stjórnar. Sigurður Ó. Ólafsson spáir: Chelsea-Man. City 1 Chelsea er mun sigurstrang- legra. Stefán Jónsson spáir: Derby-Newcastle 2 Með Keegan í fararbroddi vinnur Newcastle öruggan sigur. Sigfús G. Guðmundsson spáir: Swansea-C. Palace 2 Swansea er tvímælalaust lé- legasta liðið í 2. deild.

x

Eyjablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.