Morgunblaðið - 03.02.2011, Side 1

Morgunblaðið - 03.02.2011, Side 1
FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2011 íþróttir Evrópuleikir Framkonur taka á móti Blomberg frá Þýskalandi í Evrópukeppni bikarhafa á föstudag og laugardag. Karen Knútsdóttir segir Fram eiga möguleika gegn þessu sterka liði. 2 Íþróttir mbl.is Harpa Sif Eyj- ólfsdóttir skoraði fimm mörk í gær þegar lið hennar, Spårvägens HF, vann Tyresö, 35:20, á heima- velli í sænsku úr- valsdeildinni í handknattleik. Með sigrinum færðist Spårvä- gens HF upp í fjórða sæti deild- arinnar með 21 stig að loknum 17 leikjum níu stigum á eftir Sävehof. Harpa Sif á sigurbraut Harpa Sif Eyjólfsdóttir Gunnar Steinn Jónsson, leikstjórn- andi sænska úrvalsdeildarliðsins Drott, sneri sig illa á ökkla á æf- ingu í fyrrakvöld og gat af þeim sökum ekki leikið með liðinu þegar það sótti Sävehof heim í gærkvöldi og tapaði 31:26. Í fyrstu var óttast að Gunnar Steinn væri brotinn en við skoðun í gær kom í ljós að svo var ekki. Hann verður frá keppni tíma en Drott leikur þrjá leiki í deildinni á næstu 10 dögum. iben@mbl.is Gunnar Steinn frá keppni HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Framarar hafa náð samningi við markvörðinn Guðrúnu Ósk Maríasdóttur um að hún leiki með liði félagsins frá og með næsta keppnistímabili. Þetta hefur Morgunblaðið samkvæmt heimildum og mun Guðrún þegar hafa skrifað undir tveggja ára samning við Safamýrarliðið og væntanlegir samherjar hennar verið upplýstir um málið. Guðrún Ósk, sem verður 22 ára á þessu ári, leikur nú með Fylki og hefur vakið mikla athygli fyrir vasklega framgöngu í marki Árbæjarliðsins á yfirstandandi keppnistímbili. Samningur Guð- rúnar Óskar við Fylki rennur út í vor. Guðrún Ósk hefur verið með annan fótinn í ís- lenska landsliðinu, var m.a. þriðji markvörðurinn í æfingahópi landsliðsins fyrir Evrópumeistara- mótið í Danmörku í lok nýliðins árs. Hún varð að láta í minni pokann fyrir Berglindi Írisi Hans- dóttur og Írisi Björk Símonardóttur þegar Júlíus Jónasson valdi keppnishópinn fyrir EM. Guðrúnu Ósk verður ætlað að fylla skarð sem Íris Björk skilur eftir sig þegar hún yfirgefur her- búðir Fram í vor eftir tveggja ára veru. Íris Björk hefur ákveðið að flytja til Stokkhólms með eigin- manni sínum þar sem honum hefur boðist vinna, eftir því sem Morgunblaðið kemst næst, en ekki náðist í Írisi Björk í gærkvöldi. Eftir því sem næst verður komist stefnir Íris Björk á að halda áfram í handknattleik ytra og hyggst freista þess að ná samningi við félag í Stokkhólmi en að minnsta kosti tvö úrvalsdeild- arfélög eru í borginni. Landsliðskonan Harpa Sif Eyjólfsdóttir leikur með öðru þeirra, Spårvägens HF. Íris Björk mun ljúka keppnistímabili með Framliðinu sem er í hörkukeppni við Val og Stjörnuna um Íslandsmeistaratitilinn auk þess sem Fram er komið í undanúrslit bikarkeppn- innar að þessu sinni en Safamýrarliðið hefur titil að verja í þeirri keppni. Reyndu að krækja í Sunnu Heimildir Morgunblaðsins herma ennfremur að Framarar hafi áhuga á að krækja í fleiri leikmenn úr herbúðum Fylkis. Forráðamenn handknatt- leiksdeildar Fram munu hafa borið víurnar í Sunnu Jónsdóttur, markahæsta leikmann Fylkis og landsliðskonu, áður en félagaskiptaglugginn var lokaður 31. janúar en samningar tókust ekki. Heimildur herma ennfremur að ekki sé loku fyrir það skotið að þráðurinn milli Sunnu og Fram verði tekinn upp á nýjan leik þegar yfirstandandi keppnistímabili lýkur. Guðrún Ósk fer í mark Framara í stað Írisar  Íris Björk á leið til Stokkhólms  Sunna Jónsdóttir einnig í sigtinu í Safamýri Guðrún Ósk Maríasdóttir Íris Björk Símonardóttir Sunna Jónsdóttir Freydís Halla Einarsdóttir frá Reykjavík endaði í 2. sæti í sínum aldursflokki, 1994-1995, í stórsvigi á heimsmeistaramóti unglinga í Crans Montana í Sviss í gær. Samanlagður tími hennar úr tveimur ferðum var 2.45,15 mín- útur en Petra Vlhova frá Slóvakíu varð fyrst í þessum aldursflokki á tímanum 2.36,22. Þetta er frábær árangur hjá Freydísi Höllu en hún endaði í 37. sæti í heildarkeppninni. Eini Íslendingurinn sem hefur áður unnið til verðlauna á heimsmeist- aramóti unglinga var Björgvin Björgvinsson árið 1998 í Frakk- landi. Hann vann þá gull í stórsvigi. Angelica Simari frá Argentínu varð þriðja í gær en svo skemmti- lega vill til að Cristian bróðir henn- ar varð annar á eftir Björgvini árið 1998. Þá kepptu einnig Katrín Krist- jánsdóttir, Fanney Guðmundsdóttir og Erla Ásgeirsdóttir en þær luku ekki fyrri ferð. Töluverð afföll voru í keppninni en af 120 keppendum luku aðeins 47 báðum ferðum. Að- stæður í Crans Montana eru mjög erfiðar. Færið er hart og brekkan með 386 metra fallhæð. Slíkar að- stæður er ekki að finna á Íslandi nema ef vera kynni í Hlíðarfjalli. omt@mbl.is/vs@mbl.is Freydís Halla með silfur á HM í Sviss Ljósmynd/Skíðasamband Íslands Verðlaunapallurinn Freydís Halla Einarsdóttir, til vinstri, á verðlaunapallinum í Crans Montana í gær. Fyrir miðju er sigurvegarinn í hennar aldursflokki, Petra Vlhova frá Slóvakíu, og hægra megin er Angelica Simari frá Argentínu sem varð þriðja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.