Morgunblaðið - 03.02.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.02.2011, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2011 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þeir fjölmörgu stuðningsmenn Liv- erpool sem grétu brotthvarf Fern- andos Torres á mánudagskvöldið tóku gleði sína á ný í gærkvöld. Þeir eignuðust nýja hetju. Úrú- gvæinn Luis Suárez, sem var keypt- ur af Ajax fyrir 23 milljónir punda á mánudag, var fljótur að stimpla sig inn í hjörtu áhorfenda á Anfield. Suárez hafði aðeins verið inni á í stundarfjórðung sem varamaður þegar hann gulltryggði sigur Liv- erpool á Stoke City, 2:0, og styrkti stöðu liðsins í sjöunda sæti úrvals- deildarinnar. Reyndar hjálpaði Andy Wilk- inson, varnarmaður Stoke, við að koma boltanum í netið en hann var á leið þangað þegar Wilkinson reyndi að bjarga og sendi tuðruna í stöng og inn. Stuðningsmönnum Liverpool var slétt sama. Suárez er tekinn við af Torres. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki tekinn inn í leikmannahóp Fulham sem lagði Newcastle, 1:0. Eiður sat í stúkunni og verður að bíða laug- ardagsins þegar Fulham sækir Aston Villa heim. Manchester City var hið eina af fimm efstu liðum deildarinnar sem vann ekki í vikunni. Reyndar mátti City þakka sínum sæla fyrir jafn- tefli, 2:2, í Birmingham, þrátt fyrir að liðið kæmist tvisvar yfir í fyrri hálfleik. Peter Crouch skoraði strax í byrjun leiks fyrir Tottenham gegn Blackburn á Ewood Park, með skalla eftir sendingu frá Rafael van der Vaart. Það reyndist sig- urmarkið. Victor Obinna skoraði tvívegis fyrir West Ham sem komst af botn- inum með 3:1 útisigri á Blackpool. Suárez nýja hetjan á Anfield Reuters Mark Luis Suárez horfir á eftir boltanum í netmöskvana hjá Stoke City. Andy Wilkinson líka en hann liggur eftir að hafa reynt að forða marki.  Eiður ekki tekinn inn í hóp Fulham sem lagði Newcastle HANDBOLTINN Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is N1-deild karla hefst að nýju í kvöld eftir eins og hálfs mánaðar hlé vegna heimsmeistaramótsins í handknatt- leik sem fram fór í Svíþjóð. Fyrir þá sem eru búnir að gleyma hvað gekk á í fyrstu 11 umferðunum, þá spiluðu Akureyringar eins og þeir sem valdið hafa og unnu fyrstu 9 leikina. Í 10. umferð komu Framarar norður yfir heiðar, þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu Akureyri nokkuð sannfærandi, 34:30. Akureyri tapaði svo stigi gegn Haukum á Ásvöllum í síðustu um- ferðinni fyrir hlé sem leikin var 16. desember. Rofar til hjá Völsurum Þá byrjaði Valur skelfilega á þessu Íslandsmóti. Fyrstu stigin komu ekki fyrr en 18. nóvember gegn Aftureld- ingu. Það fór svo að Júlíusi Jónassyni sem tekið hafði við liðinu fyrir mótið var sagt upp störfum og Heimir Rík- arðsson aðstoðarþjálfari tók við liðinu ásamt Óskari Bjarna Óskarssyni aðstoðarlandsliðsþjálfara. Þeir fé- lagar töpuðu ekki í þeim þremur leikjum sem þeir stýrðu liðinu fram að þessu langa hléi. Þá eru lykilmenn liðsins að skríða saman eftir meiðsli. Akureyri er á toppnum með þriggja stiga forskot á Fram sem hef- ur tapað 3 leikjum í vetur. FH er í 3. sæti, Haukar í því fjórða, síðan koma HK, Valur, Afturelding og Selfoss rekur lestina. Selfyssingar eru aðeins búnir að vinna 1 leik en tapa 10. Fjór- ir leikir eru á dagskrá í þessari 12. umferð í kvöld. HK fær Aftureldingu í heimsókn, Fram tekur á móti FH, Haukar fara til Selfoss og að síðustu tekur efsta lið deildarinnar á móti Val. Æskuvinir mætast í fyrsta skipti Bjarni Fritzson er markahæsti leikmaður Akureyrar með 84 mörk. Hann býst við erfiðum leik í kvöld gegn ósigruðum Völsurum eftir þjálf- araskipti. „Ég er mjög spenntur fyrir þess- um leik, enda er ég að mæta Stulla (Sturlu Ásgeirssyni), einum af mínum bestu vinum. Bræður munu berjast þar en þetta er í fyrsta skipti sem við mætumst á handboltavellinum. Hann nefnilega gerði sér upp meiðsli í síð- asta leik,“ segir Bjarni glottandi og hann býst við að Valsarar hafi nýtt fríið vel. „Við tókum þetta hefðbundna und- irbúningstímabil, allt mjög eðlilegt. Svo fórum við eina ferð suður og spil- uðum tvo leiki. Það er kannski smá ókostur að spila ekki fleiri leiki en þetta er allt í lagi. Mér finnst þetta hlé alveg ágætt. Þá fær maður aðeins að jafna sig og kemur ferskur inn. Eftir þetta skemmtilega HM koma líka allir graðir og með fiðring í putt- unum.“ Akureyri er eins og áður sagði með þriggja stiga forskot á toppi deild- arinnar og Bjarni telur liðið geta haldið því en margt þarf ganga upp. „Við þurfum að vera heppnir með meiðsli og spila saman sem eitt lið og allt það. Við erum búnir að vinna alla einu sinni og við getum alveg gert það aft- ur. Nokkur lið hafa samt verið að styrkja sig, eins og Selfoss og Aftur- elding. Þeir geta því vonandi stolið fleiri stigum. En það er alls ekki sjálf- sagt að við völtum yfir alla og höldum áfram að vera skrefi á undan öðrum.“ Fínt að halda stöðuleika Bjarni Fritzson sem á að baki 42 landsleiki segir að árangurinn sem ís- lenska landsliðið náði á heimsmeist- aramótinu í Svíþjóð hafi verið góður. „Að komast í forkeppni Ólympíu- leikanna var náttúrlega lykilatriðið en auðvitað sá maður að þeir voru svekktir og við sem horfðum á þá vor- um það að sjálfsögðu líka. Það er samt fínt að halda þessum stöð- ugleika þar sem þessi mót eru ár eftir ár. Ég held að þetta hvetji líka menn til að koma enn ferskari á næsta stór- mót.“ Æskuvinurinn gerði sér upp meiðsli í síðasta leik  Handbolti karla af stað í kvöld eftir langt hlé  Bjarni Fritzson og félagar á Akureyri með þriggja stiga forystu  Heldur sigurgangan áfram hjá Val? Ljósmynd/Þórir Tryggvason Skorar Bjarni Fritzson er markahæsti leikmaður Akureyringa í vetur og hér er mark í uppsiglingu gegn HK án þess að Vilhelm Gauti Bergsveinsson fyrirliði Kópavogsliðsins fái að gert. Akureyri mætir Val í kvöld. Úrvalsdeild karla, N1-deildin Staðan: Akureyri 11 9 1 1 326:285 19 Fram 11 8 0 3 372:317 16 FH 11 7 0 4 316:297 14 Haukar 11 6 1 4 282:278 13 HK 11 6 0 5 341:354 12 Valur 11 4 0 7 282:308 8 Afturelding 11 2 0 9 274:310 4 Selfoss 11 1 0 10 310:354 2 Markahæstir: Ragnar Jóhannsson, Selfossi ................. 102 Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK................ 86 Bjarni Fritzson, Akureyri ........................ 84 Einar Rafn Eiðsson, Fram....................... 79 Ólafur Guðmundsson, FH ........................ 74 Bjarki Már Elísson, HK ........................... 70 Ásbjörn Friðriksson, FH.......................... 69 Bjarni A. Þórðarson, Aftureldingu.......... 69 Björgvin Hólmgeirsson, Haukum ........... 66 Atli Ævar Ingólfsson, HK ........................ 63 Oddur Gretarsson, Akureyri.....................58 Jóhann Gunnar Einarsson, Fram............ 57 Guðmundur H. Helgason, Akureyri ........ 56 Haraldur Þorvarðarson, Fram ................ 51 Þórður R. Guðmundsson, Haukum ......... 51 Gary Neville, varnarmaðurinn reyndi hjá Man- chester United, tilkynnti í gær að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir 20 ára feril hjá félaginu. Ne- ville, sem verður 36 ára í þessum mánuði, kom til liðs við United sum- arið 1991 og lék 602 leiki með lið- inu, þar af 400 leiki í úrvalsdeild- inni. Hann hefur átta sinnum orðið enskur meistari með Manchester United, þrisvar bikarmeistari, tvisvar deildabikarmeistari, einu sinni Evrópumeistari, og einu sinni unnið heimsbikar félagsliða. Ne- ville lék 85 landsleiki fyrir England á árunum 1995 til 2007. vs@mbl.is Gary Neville er hættur Gary Neville Kanadíska knatt- spyrnuliðið Van- couver White- caps, undir stjórn Teits Þórð- arsonar, vann eitt sterkasta lið Bandaríkjanna, Real Salt Lake, 2:1, í fyrsta und- irbúningsleiknum fyrir MLS- deildina sem hefst í mars. Vancou- ver er nýliði í deildinni en Teitur hefur stýrt liðinu í þrjú ár með mjög góðum árangri. Leikurinn fór fram í Arizona en þar er Teitur með sitt lið í æfingabúðum. Síðar í mánuðinum eru m.a. á dagskrá tveir leikir við LA Galaxy, lið Davids Beckhams, sem er síðan einn af andstæðing- unum í MLS-deildinni. vs@mbl.is Góð byrjun hjá Teiti Teitur Þórðarson HANDBOLTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.