Morgunblaðið - 03.02.2011, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 2011
KÖRFUBOLTINN
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
„Þetta hefur gengið ágætlega. Það hefur
verið stígandi í þessu hjá okkur en það var
mikil deyfð yfir okkur í síðasta leik og menn
kannski værukærir,“ segir Helgi Jónas Guð-
finnsson, þjálfari karlaliðs Grindavíkur í
Iceland Express-deild karla í körfuknatt-
leik, spurður um gengi liðsins í vetur.
Grindavík er efst í deildinni ásamt Snæ-
fellingum með 24 stig. Framundan er hörð
barátta því KR og Keflavík eru aðeins
tveimur stigum frá toppnum og ljóst að liðið
má ekki við að tapa leikjum líkt og gegn
Haukum í síðustu umferð. Þeim til happs
missteig Snæfell sig einnig en þeir fóru
vestur og töpuðu gegn neðsta liði deild-
arinnar, KFÍ. Heil umferð fer fram í kvöld,
Grindavík sækir ÍR heim en allir leikirnir
hefjast klukkan 19:15.
„Það leggst vel í mig. Við þurfum að rífa
okkur upp eftir síðasta leik, þá fengum við
spark í rassinn. ÍR-ingar eru búnir að
styrkja sig með einum erlendum leikmanni
síðan við mættum þeim síðast. Þeir eru með
mjög góða liðsheild og eru í raun sterkir
hvert sem litið er. Sveinbjörn Claesson er
líka kominn aftur og það styrkir þá.“
Það eru 7 umferðir eftir í deildinni og
Grindavík á eftir að mæta efstu þremur lið-
unum sem nefnd voru hér á undan. „Deildin
er mjög sterk, það sýndi sig
tapaði á móti KFÍ og við át
með þá fyrir vestan. Ef liði
baráttunni koma ekki einb
liðunum í neðri hlutanum þ
Maður hugsar ekki of lan
ann. Þetta er bara þessi ga
ur tekur einn leik fyrir í ein
liðið bara fyrir þann leik. É
grein fyrir því að við eigum
erfiða útivelli. Við tökum b
þar að kemur.“
Leiðinlegt að horfa á Yo
Grindvíkingar hafa ekki
með erlenda leikmenn þett
remy Kelly sem spilaði með
„Við þurfum að rífa okkur
Grindvíkingar mæta með nýjan Bandaríkjamann gegn ÍR-ingum í kvöl
England
A-DEILD:
Birmingham – Manch.City ..................... 2:2
Nikola Zigic 23., Craig Gardner 77. (víti) –
Carlos Tévez 5., Aleksander Kolarov 41.
Blackburn – Tottenham ......................... 0:1
Peter Crouch 4.
Blackpool – West Ham............................ 1:3
Charlie Adam 42. – Victor Obinna 24., 44.,
Robbie Keane 37.
Hólmar Örn Eyjólfsson er meiddur og
ekki í hópi West Ham.
Bolton – Wolves ....................................... 1:0
Daniel Sturridge 90.
Grétar Rafn Steinsson lék ekki með
Bolton vegna meiðsla.
Fulham – Newcastle................................ 1:0
Damien Duff 67.
Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leik-
mannahópi Fulham.
Liverpool – Stoke .................................... 2:0
Raúl Meireles 47., Luis Suárez 79.
Staðan:
Man. Utd 24 15 9 0 54:22 54
Arsenal 24 15 4 5 50:23 49
Man. City 25 13 7 5 39:22 46
Chelsea 24 13 5 6 46:21 44
Tottenham 24 11 8 5 33:26 41
Sunderland 25 9 10 6 30:28 37
Liverpool 25 10 5 10 33:31 35
Bolton 25 8 9 8 35:35 33
Blackburn 25 9 4 12 31:38 31
Newcastle 24 8 6 10 36:34 30
Stoke City 24 9 3 12 28:30 30
Fulham 25 6 11 8 26:26 29
Blackpool 24 8 4 12 35:44 28
Aston Villa 25 7 7 11 28:43 28
Everton 24 5 12 7 28:31 27
WBA 24 7 5 12 31:45 26
Birmingham 23 4 12 7 23:33 24
West Ham 25 5 9 11 27:44 24
Wigan 25 4 11 10 22:41 23
Wolves 24 6 3 15 24:42 21
C-DEILD:
Bristol Rovers – MK Dons ...................... 1:2
Notts County – Walsall............................ 1:1
Staða efstu liða:
Brighton 26 14 8 4 44:19 50
Bournemouth 28 14 7 7 51:30 49
Huddersfield 27 14 4 9 44:32 46
Southampton 26 13 5 8 45:23 44
Oldham 27 11 10 6 43:37 43
MK Dons 28 13 4 11 38:40 43
Peterborough 26 13 3 10 56:51 42
Charlton 25 11 8 6 42:35 41
Colchester 26 9 11 6 34:35 38
Rochdale 26 9 10 7 36:31 37
Carlisle 25 9 8 8 36:28 35
Þýskaland
C-DEILD:
Wehen – Unterhaching .......................... 3:0
Garðar B. Gunnlaugsson var varamaður
hjá Unterhaching en kom ekki við sögu.
A-DEILD KVENNA:
Saarbrücken – Essen .............................. 1:3
Sif Atladóttir lék allan leikinn með Saar-
brücken.
Spánn
Bikarkeppnin, undanúrslit, seinni leikir:
Almería – Barcelona ................................ 0:3
Barcelona í úrslit, 8:0 samanlagt.
Ítalía
A-DEILD:
Cesena – Catania.......................................1:1
Chievo – Napoli .........................................2:0
Fiorentina – Genoa ...................................1:0
Palermo – Juventus ..................................2:1
Parma – Lecce ...........................................0:1
Roma – Brescia .........................................1:1
Sampdoria – Cagliari ................................0:1
Udinese – Bologna ....................................1:1
Staðan:
AC Milan 23 14 6 3 39:18 48
Napoli 23 13 4 6 36:22 43
Lazio 23 12 5 6 29:21 41
Roma 22 11 6 5 32:25 39
Inter Mílanó 21 11 5 5 36:24 38
Palermo 23 11 4 8 38:29 37
Udinese 23 11 4 8 37:30 37
Juventus 23 9 8 6 37:29 35
Cagliari 23 9 5 9 27:23 32
Chievo 23 7 9 7 25:22 30
Bologna 22 7 8 7 24:30 29
Fiorentina 22 7 7 8 22:23 28
Sampdoria 22 6 9 7 20:23 27
Genoa 22 7 6 9 18:21 27
Parma 23 6 7 10 22:29 25
Lecce 23 6 6 11 22:39 24
Catania 23 5 8 10 19:30 23
Cesena 23 5 6 12 17:29 21
Brescia 23 5 4 14 18:31 19
Bari 22 3 5 14 14:34 14
Skotland
Rangers – Hearts .................................... 1:0
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leik-
inn með Hearts.
Hibernian – St. Mirren............................ 2:0
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Hibernian.
Staðan: Celtic 58, Rangers 53, Hearts 48,
Kilmarnock 36, Inverness 29, Dundee
United 29, St. Johnstone 29, Motherwell
28, Aberdeen 23, Hibernian 19, St. Mirren
18, Hamilton 14.
Belgía
Lokeren – Cercle Brugge ...................... 2:1
Alfreð Finnbogason var ekki löglegur
með Lokeren þar sem um frestaðan leik frá
því fyrir áramót var að ræða.
Arnar Þór Viðarsson lék allan leikinn
með Cercle Brugge.
Mechelen – Kortrijk ............................... 1:0
Bjarni Þór Viðarsson lék allan leikinn
með Mechelen.
Staðan: Anderlecht 54, Genk 51, Gent
434, Club Brugge 42, Lokeren 38, Standard
Liege 36, Cercle Brugge 35, Kortrijk 34,
Mechelen 34, Zulte-Waregem 31, Westerlo
28, Sint-Truiden 22, Eupen 19, Germinal
Beerschot 19, Lierse 16, Charleroi 11.
KNATTSPYRNA
Svíþjóð
A-DEILD KARLA:
Sävehof – Drott ....................................31:26
Gunnar Steinn Jónsson lék ekki með
Drott vegna meiðsla.
Guif – Lugi ............................................29:35
Haukur Andrésson skoraði tvö mörk
fyrir Guif. Kristján Andrésson er þjálfari
Guif.
A-DEILD KVENNA:
Spårvägens HF – Tyresö.....................35:20
Harpa Sif Eyjólfsdóttir skoraði fimm
mörk fyrir Spårvägens HF.
Danmörk
A-DEILD KVENNA:
Roskilde Håndbold – Team Esbjerg ..25:38
Arna Sif Pálsdóttir lék með Esbjerg en
skoraði ekki mark.
Tvis Holstebro – Viborg HK ...............26:27
Rut Jónsdóttir skoraði tvö mörk fyrir
Holstebro.
HANDBOLTI
NBA-deildin
New Orleans – Washington................. 97:89
Portland – San Antonio........................ 99:86
Sacramento – Boston ........................... 90:95
LA Lakers – Houston ...................... 114:106
Eftir framlengingu.
Svíþjóð
Borås – Solna ..................................... 104:82
Logi Gunnarsson skoraði 7 stig fyrir
Solna, tók 5 fráköst og átti 3 stoðsendingar.
Södertälje – Uppsala........................... 82:71
Helgi Már Magnússon skoraði 4 stig fyr-
ir Uppsala, tók 8 fráköst og átti 3 stoðsend-
ingar.
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Höllin Ak.: Akureyri – Valur.................... 19
Digranes: HK – Afturelding................ 19.30
Framhús: Fram – FH .......................... 19.30
Selfoss: Selfoss – Haukar .................... 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, IE-deildin:
DHL-höllin: KR – Keflavík ................. 19.15
Hveragerði: Hamar – Njarðvík .......... 19.15
Ásgarður: Stjarnan – KFÍ................... 19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Tindastóll .. 19.15
Seljaskóli: ÍR – Grindavík ................... 19.15
Ásvellir: Haukar – Fjölnir ................... 19.15
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Egilshöll: Valur – Þróttur R................ 19.10
Egilshöll: Leiknir R. – Fram.................... 21
Í KVÖLD!
EVRÓPUKEPPNI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Kvennalið Fram í handknattleik stendur
í ströngu um helgina en þá mæta bikar-
meistararnir þýska liðinu HSG Blom-
berg-Lippe í 16-liða úrslitum Evrópu-
keppni bikarhafa og fara báðir leikirnir f
ram í íþróttahúsi Fram í Safamýri. Sá
fyrri verður annað kvöld klukkan 19 og
sá síðari á laugardaginn klukkan 16.
Fram sló út LC Brühl frá Sviss í 2.
umferð keppninnar með tveimur sigrum
í Sviss, samanlagt 57:50, og burstaði síð-
an Podatkova frá Úkraínu í tveimur
leikjum hér á landi, samanlagt 67:45.
Blomberg sat hjá í 2. umferðinni en
vann síðan tvo örugga sigra gegn Akra-
tron frá Hvíta-Rússlandi í 32-liða úrslit-
unum, 36:27 og 36:28. Báðir leikirnir
fóru fram í Minsk og þýska liðið spilar
því ekkert á heimavelli í þessum um-
ferðum keppninnar.
„Það er mikil tilhlökkun hjá okkur
fyrir þessa leiki. Við vitum að mótherj-
arnir eru sterkir en við förum í þessa
leiki með því hugarfari að reyna að slá
þýska liðið út,“ sagði Karen Knútsdóttir,
fyrirliði og leikstjórnandi Fram-liðsins,
við Morgunblaðið.
Karen segir það hjálpa liðinu mikið að
spila báða leikina á heimavelli.
„Við erum virkilega ánægðar að hafa
fengið leikina hingað heim. Stjórnin hef-
ur unnið vel í þessum málum og nú
treystum við bara á að fá góðan stuðn-
ing. Hann skiptir mjög miklu máli.“
Hávaxnar og líkamlega sterkar
Blomberg hefur gefið aðeins eftir síð-
ustu vikurnar en eftir að hafa verið um
tíma í fjórða sæti þýsku 1. deildarinnar
er það í 7. sæti af 12 liðum í deildinni.
Allir leikmenn liðsins eru þýskir að ein-
um undanskildum sem kemur frá Belg-
íu.
„Einar þjálfari er búinn að grand-
skoða þrjá leiki Blomberg-liðsins sem
hann fékk senda og við höfum verið að
skoða leikina saman í vikunni. Við eigum
að vera vel undirbúnar fyrir þessa leiki
og ekkert sem á að koma okkur á óvart.
Þetta er hörkusterkt lið. Leikmennirnir
eru flestir hávaxnir og líkamlega sterkir.
Liðið spilar sterka 6:0 vörn en við eigum
vonandi einhver svör við henni. Vi
lítum svo á að við höfum allt að
vinna í þessum leikjum og það er
líka þrælgaman að fá að takast á v
þetta verkefni. Við teljum okkur e
möguleika á að komast áfram og
leikirnir segja til um hvar við stön
um á alþjóðlegum mælikvarða. Við
þurfum tvo toppleiki og vonandi
tekst okkur að ná því besta fram í
okkar leik,“ sagði Karen.
„Við teljum okkur
eiga möguleika“
Morgunblaðið/Eggert
Ákveðin Karen Knútsdóttir telur að Fram geti staðið í hinum öflugu mótherjum
frá Þýskalandi. Liðin mætast tvisvar í Framheimilinu í Evrópukeppni bikarhafa
Fram mætir Blomberg frá Þýskalandi tvisvar á heimavelli
Eftir velgengni karlalandsliðs Dana í
handknattleik á heimsmeistaramótinu í
Svíþjóð þar sem liðið vann til silf-
urverðlauna bankar fjárhagsvandinn
hressilega á dyrnar hjá mörgum fé-
lagsliðum í Danmörku en mörg hver eru
afar illa stödd fjárhagslega.
Margir segja að fjárhagslegt hrun blasi
við mörgum félögum bæði í karla- og
kvennaflokki en af 20 liðum sem hafa verið
til skoðunar er meðaltap þeirra 2,8 millj-
ónir danskra króna sem jafngildir um 60
milljónum íslenskra króna. Félögin hafa
mörg hver hunsað aðvaranir og hafa hald-
ið áfram að eyða peningum eins og ekkert
sé og lifa einungis vegna velvilja lán-
ardrottna og þeirra sem styrkja félögin
fjárhagslega.
Karlalið GOG varð til að mynda gjald-
þrota í fyrra en þá voru þrír Íslendingar á
mála hjá félaginu, leikmennirnir Snorri
Steinn Guðjónsson og Ásgeir Örn Hall-
grímsson og þjálfarinn Guðmundur Guð-
mundsson.
Kolding og Viborg eru í gríðarlegum
fjárhagsvanda. Tapið hjá Kolding nemur
17,8 milljónum danskra króna, sem eru um
380 milljónir íslenskra króna, og Viborg
skuldar 255 milljónir íslenskra króna.
gummih@mbl.is
Alvarleg staða hjá dönskum liðum
Skartgripasalinn Jesper „Kasi“
Nielsen, eigandi danska hand-
boltaliðsins AG Köbenhavn og
Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi,
þar sem Íslendingar koma við sögu
á báðum stöðum, fylgdist grannt
með heimsmeistaramótinu í hand-
knattleik sem lauk í Svíþjóð um síð-
ustu helgi.
Nielsen segir í viðtali við TV2 í
Danmörku að tveir leikmenn hafi
heillað hann mest, hinn 22 ára
gamli William Accambray, rétthenta skyttan í heims-
meistaraliði Frakka, og hinn 21 árs gamli Kim Ekdahl
Du Rietz úr liði Svía.
Ekki þykir ólíklegt að þessir tv
leikmenn fái upphringingu frá Ni
sen sem vill gjarnan fá þá til liðs v
AG Köbenhaven en með liðinu lei
þeir Snorri Steinn Guðjónsson og
Arnór Atlason.
Nielsen segir að hann hafi einn
hrifist af mörgum leikmönnum
danska landsliðsins en hann vill e
nefna nein nöfn í því sambandi.
Nielsen hefur þegar tryggt sér
einn leikmann úr silfurliðinu en
markvörðurinn Niklas Landin mun ganga í Rhein-
Neckar Löwen á næsta ári.
gummih@mbl.is
Nielsen vill fá tvo efnilega til AG
Kim Ekdahl
Du Rietz
William
Accambray