Siglfirðingur - 31.12.1928, Page 1
II. árg.
Siglufirði, Mánudaginn 31. des. 1928
10. tbl.
Listarnir.
Loksins munu allir þrír listarnir
til bæjarstjórnarkosninganna vera
fullgerðir.
Pað voru harðar fæðingarhriðir
hjá Framsóknarflokknum og heyrð-
ust kvalaveinin um allan bæinn,
enda bar ýmsa enda að. Loks tókst
þó fæðingin stórslysa lítið með at-
beina Thorarensens læknis og ann-
ara góðra manna, en ekki verður
sagt um lista þenna, það sem goð-
sögnin gríska tjáir um fæðing. A-
þenu. Hún hljóp alsköpuð úr höfði
Seifs, en fæðing lista þessa líktist
öllu fremur draugnum, sem ljet sig
detta í pörtum niður um eldhús-
strompinn og skreið svo saman á
gólfinu.
Eftir ýmsar nafnabreytingar og
tilfærslur, lítur listinn þannig út;
1. Pormóður Eyjólfsson, skrifstofu-
stjóri Einkasölunnar.
2. Vilhelm Jónsson, verslunarm.
3. Einar Hermannsson, smiður.
4. Guðm. SigUrðsson, síldarmatsm.
A lista þessum getur vrtanlega
aldrei komið til greina utan efsti
maður. Pað væri þá einungis ef hin-
ir menn listans hefðu getað aflað
listanum atkvæðafylgis, en svo er
ekkb á þennan lista valið, að hinir
neðri mennirnir afli honum atkvæða,
enda er Siglf. kunnugt um, að þeir
láta sig afdrif listans litlu skifta.
Verða því kostir þeirra og lestir,
sem fulltrúaefna,' ekkert ræddir hjer
í bfaðinu.
Aftur á móti benda alskonar Iík-
• ur til þess, að efsti maður listans,
Pormóður Eyiólfsson, nái kosningu
sjerstaklega er þess er gætt, hverjir
að listanum standa. Má þar fyrstan
telja bæjafógetann, sem mun telja
sig eiga að launa honum vinskap og
ýmsan greiða. Pá má nefna Thor-
arensen lækni. Má með sanni segja,
að Thorarensen er minnugur geng-
innar greiðasemi ef ekkert liggur á
bak við fylgi hans nú við Pormóð,
annað en það, að launa nú í sömu
mynt brautargengi Pormóðs við
hann 1924. En sumir telja að Por-
móður geti orðið gagnsamur vinum
sínum í bæjarstj. sjerstaklega um
fjárveitingar til vegagerðanna, en
það er vatn á myllu ýmsra bíleig-
enda.
Pá má ekki gleyma hinum ekki
óverulega stuðningi sem vænta má
að listi þessi njóti af konu Pormóðs,
frú Guðrúnu. Öllum er það kunn-
ugt, að frúin hefir við undangengn-
ar bæjarstjórnarkosningar gengið
rösklega að verki og ekki hlíft hvorki
sjer nje öðrum, og er þess þá því
síður að vænta að hún geri það nú,
þegar tímanleg velferð mannshenn-
ar er annars vegar, því það hyggur
Siglf. r'jett mælt, sem haft er eftir
einum stuðningsmanni Pormóðs, að
hann hefði mátt til að gera það
fyrir „greyskinnið" að mæla með
honum, því honum væri svo áríð'
andi að komast í bæjarstjórn vegna
fjárhagsins.
Pó er enn ótalið það lið sem
Síglf. telur veigamest fyrir lista Fram-
sóknarmanna við þessar kosningar
en það er stuðningur sá, sem óhætt
má ætla að jafnaðarmenn veiti list-
anum. Bæði er það nú, að ætla má
að Jörgensen sem merkisberi jafn-
aðarmanna og vinur þormóðs, sje
ljúfur til þess, að beita áhrifum sín-
um honum 1 hag innan fjelagsins
— og sennilega að hann og frú
Guðrún, sem altfram að þessuhefir
falið sig til þess flokks, hafi þar
talsverð áhrif, — enda er þægilegt á
m-arga lund að mæla þar með Por-
móði, bæði sökum sambands þess
sem nú er með Framsókn og jafn-
aðarmönnum og eigi síður hins, að
Pormóður hefir ekki verið við eina
fjölina feldur í pólitikinni, — bauð
sig t. d. fram við siðustu kosningar
hjer sem íhaldsmaður, svo ekki væri
fjærlægt að ætla það, að skeð gæti
að hann, þótt hann nú hjeldi inn-
reið sína í bæjarstjórn, kæmi út
þaðan sem sannur jafnaðarmaður
eða blóðrauður bolsi, alt eftir því
hvaða flokkur yrði þá við völd í
landinu, því Porm. er praktiskur og
kann vel að aka seglum eftirvindi,
Pegar allar líkur eru saman dregn-
ar, bendir þvi flest til að efsti mað-
ur Framsóknarlistans, Pormóður
Eyjólfsson, nái setu í bæjarstjórn
Siglufjarðar að þessu sinni.
En á þá Pormóður erindi í bæj-
arstjórn?
Peirri spurningu mun enginn sem
þekkir manninn svara neitandi. Hitt
má frekar þrátta um, hvort það er-
indi yrði bænum til hagsbóta. —
„Enginn frýr þjer vits, en grunaður
ertu um græsku“. — þau ummæli
vill Siglf. gera að sínum í þessu
sambanhi. — Vjer trúum eigi mann-
inum, alveg frásjeð hinni pólitísku
stefnu Framsóknarfjelagsins. Hinn
pólitíski og persónnlegi terill manns-
ins, er svo mótaður at sjergræðings-
hætti, að fáum mun henta að mæla
sig við hann í þeim efnum nje í
þefvísi á „bita“ og viðbragðsflýtí að
henda þá.
Nei, það frýr enginn Porm. Eyj-
ólfssyni vits; um það bera viðskifti
hans og bæjarstj. Siglufjarðar ljósan
vott á undangengnum árum. — Vjer
getum eigi annað en dáðst að því,
hve lempilega honum tókst hvað
eftir annað, að draga burst úr nefi
bæjarstjórnar í bryggjuleigu og kola-
sölumálunum á árunumog það hvað
eftir annað. En þó tókst honum
að setja nýtt og mikið hærra met
þegar hann á s. 1. vetri ljet bæjar-
stjórn Siglufjarðar kosta sig af bæj-
ins fje til suðurferðar og setu þar,
til að ná i skrifstofustjóraembætti
Einkasölunnar.
Pað er eigi trútt um, að græsku