Siglfirðingur - 31.12.1928, Side 2
2
SIGLFIRÐINGUR
SIGLFIRÐINGUR
kemur út á lnugardögum.
Kostar innanlands 4 kr. árgangur,
minnst 52 tbl. 10 au. blaðið / lausa-
sölu. Utanlands 5 kr. árgangurinn.
Auglýsingataxti: 1 kr. sentimetcr
dálksbreiddar. Afsláttur ef miklð
er auglýst.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Jón Jóhannesson Siglufirði.
Pósthólf 102. Sími 6.
Afgreiðslumaður og gjaldkeri:
Friðb. Níeisson Siglufirði.
Pósthólf 118. Sími 13.
kenni af hendi Pormóðs í garð bæj-
arstjórnar, en ekki er talsmál um,
að aðdáunin verður öll hans megín.
Pormóður Eyjólfsson hefir áður
lagt míkið kapp á það, að komast
í bæjarstjórn Siglufjarðar. Sjálfsagt
mun hann ekki leggja minna kapp
á það nú. Bendir þar til meðal
annars, að í þetta sinn hefir hann
látið bjóða sig öllum ílokkum sem
fulltrúaefni. — Jú, maðurinn á óef-
að brýnt erindi í bæjarstjórn og lík-
lega tekst honum að láta Framsókn-
arfjelagið sem stofnað var sem
fræðslufjelag og sem nú starfar und-
ir fölskum forsendum, ýta sjer inn.
— Tilgangur með slofnun þess var
hvort eð var aldrei annar. „Siglf.“
getur gjarnan „gratulerað" Pormóði,
— svona fyrirfram, en hann hlýtur
jafnfnimt að „kondolera" Siglufjarð-
arbæ og þeim kjósendum sem
hjálpa honum um atkvæði sín.
A lista verkalýðsfjelaganna hefir
áður verið minst hjer í blaðinu. Er
þá eftir þriðji listinn og síðasti, en
það er listi borgaranna.
Á honum eru:
1. Alfons Jónsson, lögfræðingur.
2. Jón Gíslason, verslunarstjóri.
3. Snorri Stefánsson, vjelstjóri.
4. Friðb. Níelsson, kaupmaður.
Hjer í bænum er nýstofnað fje-
lag sem nefnist Borgarafjelag Siglu-
fjarðar. Stendur fjelag þetta að þess-
um lista. Pað má gjarnan kenna fje-
lag þetta við íhaldsstefnuna að því
leyti, að í það hafa skipað sjer
margir þeir menn hjer í bæ, sem
þéirri stefnu fylgja, en annars sam-
anstendur fjelagið af mönnum af
öllum stjettum, sem sje af frjálsum
borgurum bæjarins sem hvorki fylgja
jafnaðarstefnu, kommúnisma nje
framsóknarmönnum í landsmálurn,
en í bæjarmálum er stefna fjelags-
ins sú, að vinna að hag bæjarins
með framsýni og festu í hvívetna,
frásjeð allri flokkspólitík og með
það fyrir augum eru menn valdir á
lista þess.
Prír efstu menn listans eiga það
sameiginlegt, að þeir eru aliir ungir
menn og óreyndir við opinber störf.
En einnig hitt, að þeir njóta al-
menns trausts og virðingar meðal
bæjarbúa.
Efsti maður listans, Alfons lög-
fræðingur Jónsson, hefir, þótt ungur
sje, þe^ar unnið sjer mikið álit sem
glöggur og gætinn fjármálamaður,
starfhæfur og dugmikill og sýnt er
það, að hann hefir erft drjúgan
hlut af skapfestu og gerhygli föður
síns sem eins hins sgmviskusamasta
og nýtasta manns sem starfað hef-
ur hjer að opinberum málum. —
Auk þess er Alfons dugandi lög-
fræðingur og getur það haft sína
miklu þýðingu fyrir bæinn að hafa
fleiri en einn mann með lögfræð-
isþekkingu í stjórn hans, því þau
hafa dæmin gefist undanfarið að
ekki hefði af því veitt.
Annar maður listans, Jón Gísla-
son er gáfaður og framsækinn og
hefir. þótt ungur sje, sýnt það í
starfi sínu að hann verðskuldar traust
og hefir aflað sjer þess.
Priðji maðurinn, Snorri Stefánsson
er einnig ágætum hæíileikum bú-
inn og hefir sýnt það við ábyrgð-
armikil störf sern honum hafa ver-
ið falin, að hann rækir hvert starf
með samviskusemi og dugnaði,
enda unnið sjer traust og velviid
allra jafnt yfir- sem undirmanna
sinna.
Fjórðf maður listans, Friðbjörn
Níelsson, hefir lengi starfað hjer í
hreppsnefnd og bæjarstjórn og að
ýmsum öðrum .opinberum trúnaðar-
störfum og hefir þótt starfa vel í
hvívetna.
Pað er valið á lista þennan með
það eitt fyrir augum að fá í bæjar-
stjórn menn sem hafa vit. þekkingu
og vilja til þess, uð vinna bæ vor-
um gagn og stjórna málum hans
vel. Pessa kosti hafa fulltrúaefnin
á lista Borgarafjelagsins. Oss vitan-
lega hefir ekkert fulltrúaefnanna
verið spurt um það, af meðmæl-
endunum hvaða stefnu það fylgdi í
landsmálum, en þau hafa veriðspurð
um stefnuna í fjármálum bæjarins
og svarið hefur verið hið sama hjá
þeim öllum: Við viljum spara ó-
þarfa bruðlið en eyða í nauðsyn-
legar verklegar framkvæmdir.
Símfregnir.
Útlent,
I London varð sprenging undir
götu einni og sprakk steinlagningin
á kílómeters löngu svæði í loft upp.
Urðu miklar skemdir á húsum og
er skaðinn metinn 150 þús. sterl-
ingspund. 17 menn særðust hættulega
Frá Berlín er símað: Verkfallinu
í skipasmíðaiðnaði og verkbanni í
stáliðnaði í Ruhr, er nú loks lokið
með gerðardómi. Vinnutími var
eitthvað styttur og laun Kækkuð.
Innlent:
Alþingishátíðarnefndin hefir á-
kveðið að veita Einari Benedikts-
syni skáldi 2 þús. kr. verðlaun fyrir
hátíðaljóð hans og að þáu skuli
framsögð á hátíðinni. Einnig Jó-
hannesi úr Kötlum 1000 kr. og skuli
flokkur hans notaður við guðsþjón-
ustu.
Mann tók út af togaranum Kára
Sölmundarsyrii á Pórláksmessu.
Hann hjet Mons Olsen. Var hann
staddur í lifrarbræðsluhúsi skipsins
er sjór kom á það og sópaði því
burtu, og sleit báða björgunarbátana
lausa. Maðurínn druknaði. Hann
var norskur en hafði dvalið hjer á
landi í mörg ár.
Á Akureyri eru framkomnir tveir
listar til bæjarstjórnarkosninganna,
annar frá jafnaðarmönnum með
Erl. F'riðjónssyni, Einari Olgeirssyni,
Porst. Porsteinssyni verslunarm.
Ólafi Magnússyni sundkennara og
Pálma Hannessyni skólakennara.
En af hendi Framsóknar eru þeir:
Brynl. Tobíasson kannari, Sigtr.
Porsteinsson sláturhússstjóri, Guðbj.
Björnsson kaupm. Lárus Rist leik-
fimiskennari og Porst. M. Jónsson
bóksali. Enginn listi enn kominn
V y
fram frá lhaldsmönnum.