Siglfirðingur - 23.12.1931, Blaðsíða 1
Gleðileg jól.
,Si£lfirðin£ur\
Innilegasta hjartans frakklœti og kœra kveðjt/ sendi eg öllum f>eirn mörgu
vinum minum fjær og nær, sem anðsýndu mjer virðingu og vinsemd á
dttatiu dra afmœlisdegi minum.
Jörunn Hailgrímsdóttir.
Til kaupenda blaðsins
Kreppa sú, sem ■ að iindanförnu
heíir gengið yfir nálega öll lönd
veraldar, og lamað hefir framtak
þjóða og einstaklinga, hefir einnig
komið niður á útgéfendum Sigl-
firðings. Afleiðing þessarar kreppu
hefir orðið sú, að blaðið gerir ekki
ráð fyrir að koma eins oft út fram-
vegis, eins og að undanförnu. Kaup-
endur meiga því gera ráð fyrir, að
tölublöðin fækki nokkuð, jafnvel alt
niður í 40 blöð á ári.
f*á hefir sú breyting orðið á rit-
stjórn blaðsins, að undirritaður læt-
ur af ritstjórninni, og er í ráði að
við taki 5 manna ritnefnd. Verður
nánar frá þessu sagt í fyrsta blaði
næsta árgangs, sem ráðgert er að
út komi 9. jan. n. k.
Pá hafa útgefendur orðið að Jaka
þá ákvörðun, vegna mikilia v.inskíla
kaupendanna, að hafa enga fasta á-
skrifendur að blaðinu innanbæjar
framvegis. Verður blaðið því aðal-
lega selt í lausasölu frá næstu ára-
mótum. Pó gela þeir, sem þess
óska, fengið blaðið sent heim til
sín jafnóðum og það kemur út, ef
þeir borga ársgjaldið, kr. 4,00, fyrir-
fra m.
Afgreiðslu blaðsins og reiknings-
hald er ráðgert að jeg hafi áfram,
og eru þeir bæjarbúar, sem heldur
vilja vera fastir áskrifendur, vin-
samlega beðnir að snúa sjer til mín
áður en 1. blað næsta árg. kemur út.
Að svo mæltu þakira jeg öllum
þeim, fjær og flær, sefn á einn eða
annan hátt hafa stutt mig við rit-
stjórn blaðsins áundanförnum árum
og óska að blaðið megi njótasömu
vinsælda í höndum þeirra manna,
sem nú taka við ritstjórn þess.
Friðb. Nielsson.
Hjartanlega fakka eg öllum er sýndu mjer velvild og vinarhag á
fimmtugsafmœli minu.
Kristin Þorsteinsdóttir.
J TSI Ý T A RÍn
Sýnir á annan í jólum kl. 8-J-:
DYNAMIT.
Stórfengleg tal-, söng- og hljómmynd í 13 þáttum, ettir
Jeanie Mc. Pherson, og er samin eftir sönnum viðburð-
um úr ýmsum da£blöðum Bandaríkjanna.
Aðalhlutverkin leika:
CHARLES BICKFORD, KAY JOHNSON,
CONRAD NAGEL.
Myndin er tekin af Metro Goldrvyn Mayfer fjelaginu, undir
stjórn Cecel B. de Mille, sem er góðkunnur frá myndum
'eiris og „Boðorðin tíu“, „Konungur konunganna" og
fieiri ágætis myndum.
Framhalds aukaniðurjöfnun.
Skrá yfir framhalds aukaniðurjöfnun útsvara í Siglutjarðar-
kaupstað árið 1931, liggur frammi, almenningi til sýnis, í verzl-
un Guðbj. Björnssonar 23. — 30. des., að báðum dögum með-
töldum. Kærur yfir útsvörunum sendist formanni nefndarinnar,
Friðb. Níelssyni, innan loka framlagningarfrestsins.
Niðurjöfnunarnefndin.
Veitið athygli.
Brauðbúðirnar verða aðeins opnar sem hjer segir:
Porláksdag til kl. 11. e. h.
Aðfangadag til kl. 5 e. h.
1. og 2. jöladag: frá 11 —12 f. h. og 6—7 e. h.
Gamlársdag: til 5 e. h.
Nýársdag 11 —12 f. h. og 6—7 e. h.
BRAUÐGERÐARHÚSIN.
t
i