Siglfirðingur - 07.08.1942, Side 3
SIGLFIRÐINGUR
3
hafi stillt kröfum sínum í hóf, sem
mest hann mátti, kostnaðarins
vegna. Það tel eg vel meint, en
eigi víst að það verði jafn nota-
drjúgt, er frá líður.
-----o----
EFTIBMÁLI
Þegar eg byrjaði að rita þessa
greinarstúfa, höfðu ráðamenn bæj-
arins ákveðið að stækka sjúkra-
húsið. Sumir kynnu því að halda
því fam, að eg hefði getað sparað
mér þessar 'fyrirhafnir. En eg
svara því neitandi sökum þess, að
þá hafði engu verið slegið föstu
um það, liversu mikið sjúkrahúsið
skyldi stækkað, — og því hefir
ennþá eigi verið slegið föstu.
Eg var og er þeirrar skoðunar,
að úr því yrði eigi skorið nema
með rannsókn heilbrigðisskýrslna
og miða svo stækkunina við þær
niðurstöður, sem þá kæmu í ljós.
Eg var líka þeirrar skoðunar, að
eigi væri nóg að við læknarnir at-
huguðum heilbrigðisskýrslurnar,
eg taldi að forráðamenn bæjarins
og bæjarbúar yfirleitt ættu að
kynna sér þessa hluti, til þess sjálf-
ir að geta myndað sér skoðun um,
hversu miklu beri að fórna á altari
heilbrigðismála bæjarins.
Hafi mér tekizt þetta, þótt eigi
sé nema að nokkru leyti, þá er til-
gangi mínum náð með skrifum
þessum.
H. Kristinsson.
Norðmenn heiðraðir.
Hákon konungur Norðmanna,
sem nú dvelur landflótta í London,
átti 70 ára afmæli 3. þ. m. Kon-
ungurinn er afar ástsæll af þegn-
um sínum og sýndu þeir honum
alla þá vinsemd og virðingu, ef
þeir máttu.Auk þess var konung-
urinn heiðraður á margvíslegan
hátt af lýðræðisþjóðunum.
Hér í kirkjuni var afnmælis Há-
konar konungs minnst með sam-
komú, er hófst kl. 8V&. Þormóður
Eyjólfsson, ræðismaður, flutti á-
varp. Síra Óskar J. Þorláksson
flutti snjallt erindi um Bergrav
biskup og baráttu norsku kirkj-
unnar. Læknisfrú Kristín Þor-
steinson las upp kvæði eftir Nor-
dal Grieg, Andreas Munch og
Björnstjerne Björnson. Sigurjón
Sæmundsson, prentsmiðjustjóri,
söng norsk lög. Kirkjukórinn söng
sálma og að lokum þjóðsöng Norð-
manna.
Öll athöfnin fór mjög hátíðlega
fram og rennur ágóðinn til Noregs
söfnunarinnar.
stórkostlega^
lækkað
verð
Stórkostleg aukning á Síldar-
verksmidjum ríkisins
Tillögur um afkastaaukningu um 30 þúsund mál
á sólarhring.
Eftir ítarlegar umræður um
aukningu á afköstum Síldarverk-
smiðja ríkisins og byggingu nýrrá
síldarverksmiðja, samþ. stjórn
Síldarverksmiðja ríkisins og fram-
kvæmdastjóri einróma á fundi
sínum hinn 27. júlí, að bera fram
eftirfarandi tillögu við ríkisstjórn
og Alþingi:
Þar eð stjórn S. R. og fram-
kvæmdastjóri eru sammála um,
að mikil þörf sé fyrir fleiri
síldarverksmiðjur í landinu, þá
samþykkir stjórnin að fara
fram á við ríkisstjórn og Al-
þingi eftirfarandi heimild til
handa S. R.:
Síldarverksmiðjur ríkisins
byggi nýjar verksmiðjur með
30 þúsund mála afköstum á
sólarhring, svo fljótt, sem á-
stæður leyfa og á eftirtöldum
stöðum:
A. Á Siglufirði 10 þúsund
mála verksmiðju.
B. Á Raufarhöfn 5 þúsud
mála verksmiðju.
€. Á Húsavík 10 þúsund mála
verksmiðju.
D. Á Skagaströnd 5 þúsund
mála verksmiðju.
Um tvær liinar síðasttöldu er
bygging bundin því skilyrði, að
hafnarbætur verði framkvæmd-
ar og að nægilega stórar lóðir
fáist með liagkvæmum kjöriun.
Jafnframt fer stjórn S. R. fram
á að Alþingi lieimili henni að
taka lán með ríkisábyrgð, að
upphæð allt að 25 milljónum
króna, til bygginga hinna nýju
verksmiðja. Lánið, eða hluti
þess, skal boðið út með sam-
þykki ríkisstjórnarinnar, þegar
fullnaðar kostnaðaráætlun um
byggingu hinna einstöku verk-
smiðja er fyrir hendi.
I lok júlímánaðar fór stjórn
Síldarverksmiðja ríkisins og fram-
kvæmdastjóri í þriggja daga
ferðalag til Húsavíkur og Skaga-
strandar, til þess að kynna sér
sameiginlega allar aðstæður fyrir
•byggingUvhinna nýju verksmiðja á
þessum stöðum og til þess að
tryggja verksmiðjunum nægilegt
landrými, ef Alþingi samþykkti til-
lögur verksmiðjustjórnarinnar. Á
Húsavík átti verksmiðjustjórnin
fund með Júlíusi Havstein, sýslu-
manni, oddvita hreppsnefndarinn-
ar og hafnarnefnd kauptúnsins og
á Skagaströnd við Jón Pálmason,
alþingismann og Hafstein Péturs-
son, formann hafnarnefndarinnar.
Árangurinn af þessum viðræðum
varð sá, að á báðum þessum stöð-
um hafa Síldarverksmiðjum ríkis-
ins verið boðnar fram ókeypis þær
stóru lóðarspildur, sem stjórn
S. R. og framkvæmdastjóri töldu
heppilegastar sem verksmiðju-
stæði.
Fulltrúar frá stjórn S. R. munu
væntanlegir til Reykjavíkur nú um
helgina til þess að fylgja fram
tillögum stjórnarinnar við ríkis-
stjórn og Alþingi.
Sjómenn!
Bókaverzlun mín hefir fengið mikið úrval af
ódýrum og góðum bókum til skemmtilesturs.
Lárus Þ. J. Blöndal.
Stúlka
óskast strax. Framtíðar atvinna. Hátt kaup.
Mjólkursamsalan.