Siglfirðingur


Siglfirðingur - 21.04.1943, Side 4

Siglfirðingur - 21.04.1943, Side 4
4 SIGLFIRÐINGUR því bráðum væri væntanlegt liið langþráða Messíasarríki. Þarna voru musterisverðirnir, stór flokk- ur manna, sem meðal annars lok- uðu hliðum musterisins á hverju kvöldi. Þurfti til þess talsverðan mannafla, því hurðir aðal hliðsins voru svo þungar, að tuttugu manna tak var að koma þeim aft- ur. Höfuðsmaðurinn sagði honum að musterinu þjónuðu 20 þúsundir presta, og flestir stunduðu með- fram einhverja atvinnu, búskap eða handiðn. Hann fræddi hann um, að daginn fyrir páskahátíðina kæmu þangað allir heimilisfeður hver með sitt páskalamb. Innýflin væru fórnargjöf, en kjötsins væri neytt heima við páskamáltíðina. Þá var þarna heljarmikill slátur- völlur. Allt varð að ganga ná- kvæmlega eftir settum trúarregl- um, bæði við musterisvígsluhátíð- ina, laufskálahátíðina og hina mikla friðþægingarhátíð. Allt varð að vera hreinleikanum samkvæmt, svo að guð gæti búið í musterinu og verið með sinni útvöldu þjóð. Þeir gengu aftur um götur bæj- arins út að austurhliði borgarinn- ar en þaðan blasti við hið litauðga Olíufjall og þaðan lá vegurinn til Jeríkó. Það var kynleg sjón er þá biasti við augum þeirra. Feikna þyrping kom eftir veginum. Sumir hrópuðu hástöfum, aðrir sungu hátíðasöngva, enn aðrir veifuðu pálmagreinum. Sumir voru með fullt fang blóma, er þeir stráðu á veginn eða fleygðu á hann pálma- greinum, og enn voru aðrir er breiddu á veginn klæði sín og yfir- hafnir. En athygli allra beindist að einum manni, er reið eftir veg- inum á asna sínum. Um hann sner- ist allur fögnuður hins mikla manngrúa. „Þetta er spámaðurinn frá Nazaret!“ hrópaði höfuðsmað- urinn og var um leið horfinn í f jöldann. En um kvöldið kom höf- uðsmaðurinn heim, hryggur í huga. Hann sagði að verið væri að brugga samsæri í borginni gegn spámanninum. Þar voru fremstir i flokki æðstuprestarnir og Farí- searnir sem reyndu að æsa upp lýðinn og fá Rómverjana til að snúast gegn honum. Og höfuðs- maðurinn hvarf aftur út í nætur- húmið til þess að reyna að vinna að því að tryggja líf spámannsins. Valeríus sat einn eftir og hugur hans snerist að lifnaðarháttum og ofstæki þessarar ofsatrúarþjóðar, sem gerði trúmál sín að stjórnmál- um og stjórnmálin að trú. Honum var ljóst, að eitt af tvennu urðu Rómverjar að gera: Láta af stjórn landsins og láta hina þrætugjörnu þjóð taka við stjórninni, ellegar á hinn bóginn að láta hart mæta hörðu, stjórna með hlífðarlausum járnaga og tvístra Gyðingunum í allar áttir. Og hálfri öld seinna tóku Róm- verjar hinn síðari kostinn. Askorun til Alþingis og ríkisstjórnar frá Félagi síldarsaltenda, Siglufirði. Samkvæmt upplýsingum for- manns F. S. S., Jóns L. Þórðar- sonar, var eftirfarandi áskorun samþykkt á fundi félagsins 18. þ. m. Var áskorun þessi samþykkt með öllum (12) greiddum atkvæð- um. Einn fundarmanna greiddi ekki atkvæði. Félag síldarsaltenda, Siglufirði, leyfir sér hér með að skora á Al- þingi og ríkisstjórn að láta ekki flytja út neitt af hinni svokölluðu Svíasíld (þ. e. síld söltuð sumarið 1940) til sölu á erlendan markað. Ásigkomulag fyrrgreindrar síld- ar teljum vér að sé nú þannig, að óverjandi sé að flytja hana úr landi sem verzlunarvöru og breytir það engu, þótt síldin sé flökuð. Teljum vér að útflutningur og sala á síld þessari muni verða til þess að rýra mjög álit neytenda á gæð- um íslenzkrar síldar og vöruvönd- un íslenzkra síldarsaltenda, sem síðar gæti komið fram í minnkuð- um viðskiptum, a. m. k. er ófriðn- um lýkur og leiðir opnast á ný til sænskra og norskra markaða, auk þess sem það tæplega getur talizt vanzalaust fyrir íslenzka ríkið, en síld þessi verður, ef til kemur, seld af opinberri stofnun og er nú eign ríkisins. í sambandi við framanritað vilj- um vér taka fram, að kostnaður við flökun síldarinnar o. fl. mun vera það mikill, að mjög vafasamt má telja, hvort nokkur hagnaður yrði á sölunni, þótt aðeins væri miðað við að selja hana að öðrum kosti að miklu leyti til bræðslu. Teljum vér þetta þó aðeins auka- atriði, eins og málum er háttað. DÝRTÍÐARFRUMVARPIÐ , Frh. af 1. síðu þegar fram á haustið kemur, og það jafnvel að óbreyttum aðstæð- um. Ekki skal hér lagður dómur á einstök atriði frumvarpsins, en Siglfirðingur mun gera sér far um að kynna þetta frumvarp fyrir les- endum sínum, eins og það var end-, anlega samþykkt á þinginu, og hitt mun líka verða gert, að kynna lesendum Siglfirðings þær skoðan- ir, er uppi kunna að verða um gagnsemi frumvarpsins, jafnóðum og þær koma fram. Dýrtíðin leikur enn lausum hala, og menn ættu nákvæmlega að gefa því gaum hvaða áhrif ákvæði þessa frumvarps hafa á eigin hag og annara jafnóðum og þau koma til framkvæmda. En vitanlega ætti það ekki að koma mönnum á óvart, ef nokkurt lið er í frumvarpinu, þótt í einhverju þrengist hagur Aðalfundur Kaupfélags Siglfirðinga verður haldinn í Alþýðu- húsinu þriðjudaginn 27. þ. m. og hefst kl. 4V2 síðd. Dagskrá samkvæmt félagssamþykktum. Stjórnin. Karlmanna-rykfrakkar Verð kr. 82.00 Verzlunarfélag Sigluf jarðar. Illllllllllllllllllllllllllllllll|llllll||||l|||||||||||!lllll!l||||||||||||||||||||||||||||||||||[[[[|[||||||!l|||l!||||||||||||||||||||l|||||||||||||||||||||||l!l|||||||||||||||||||||||||!ll|||!lll|||||l!||||||||||||||||||||||||||||llllll|||||||||||||||||||||||||ll|||||||||lllll|||||||; Pær stúlkur, sem vilja fá síldarvinnu á söltunarstöðinni ,Sunnu‘ á komandi sumri, eru vinsamlega beðnar að tala við undirritaðan I sem allra fyrst. Kolbeinn Björnsson, Lindargötu 17. Stúlku vantar á * 0 S JtJKR AHÚSIÐ Brauðbúðir vorar verða opnar um liátíðirnar sem hér segir: i Skírdag ............................. frá frá kl. 10—5 Föstudaginn langa......................... frá kl. 10—12 Laugardaginn fyrir páska ......................... til kl. 6 Páskadag ................................ frá kl. 10—12 Annan í páskum ............................ frá kl. 10—5 HERTERVIGSBAKARÍ H.F. FÉLAGSBAKARÍIÐ manna, því að það ætti að vera hver j um manni ljóst, að eigi dýrtíðin að dvína að nokkru ráði, verður það ekki fómalaust. Og svo mun til ætlazt að byrðarnar sem þjóð- inni þar með eru á herðar lagðar komi ,sem jafnast niður á atvinnu stéttirnar, svo engin stéttin geti hagnazt á kostnað annarar. Takist þecta með frumvarpinu er mikið á unnið í baráttunni, en takist það ekki er verr farið en heima setið, og þá verður frumvarpið til þess að skapa agg og deilur með þjóð- inni, en af því var nóg fyrir. Ritstjóri og ábyrgðarmaóur: Sigurðui Björgólfsson. Nýja-Bíó sýnir á miðvikudaginn ágæta ameríska mynd sem heitir „Ser- geant York“. Aðalhlutverkið leik- ur Gary Cooper.

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.