Siglfirðingur


Siglfirðingur - 09.09.1943, Qupperneq 1

Siglfirðingur - 09.09.1943, Qupperneq 1
BLAÐ S JÁLFSTÆÐIS M ANN A í SIGLUFIRÐI ISIGLFIRÐINGUR J I mun framvegis koma út | | kl. 5 e.h. á fimmtudögum | | fæst í | Aðalbúðinni, 1 Verzlunarfélasinu | | Verzl. Sv. Hjarrars. j | og Verzl. Vaiur 16. árgangur | Fimmtudaginn 9. september 1943. 32. tölublað < * • # Orðsending til Þóroddar Buðmundssonar. í 27. tbl. Mjölnis þ. á„ birtist grein eftir Þ. G. þar sem liann flytur þau tíðindi „að lítill karl með mikið sjálfsálit hafi skrifað langan greinarflokk I blaðið (Siglfirðing) undir fyrii-sögninni „Einræði á íslandi?1. Þ. G. telur, að þessi „litli karl“ hafi leikið sig og íslenzka komm- línista svo grátt, með skrifum sínum, að sér (Þ. G.) sé í lófa lagið, að fá „litla karlinn dæmdan til þyngstu refsingar eða minnsta kosti svo bungt, aj lítið vrði eftir af honum. Siglfirðingi finnst nú þetta harla ótrúleg saga, því Siglf. hefur bæði lieyrt og lesið miklu ljótara um framferði kommúnistanna (t. d. ofbeldi, kúgun, útlegð, aftökur o. s. frv.) en það, sem „litli karlinn" hefur lýst til þessa. En hvað um það, sé Þóroddur svona illa haldinn, þá finnst Siglfirðingi sjálfsagt, að hann leiti sér Iækn- inga með málshöfðun. Hver veit nema Þóroddur hressist? Miklar tæknilegar íram- kvæmdir í símamálum Si Jarðsími lagður til Sauðaness. Beint talsamband liéðan við skip á hafi úti gegn um fjarstýristöð á Sauðanesi. Jarðstrengur lagður héðan af Eyririni vestur yfir f jallið til Sauðaness. Mesta tæknilegt afrek í síma- málum Siglufjarðar. Beint bæjarsímasamband við Skeiðsfossvirkjun- ina, með svokölluðu HULDULÍNU-fyrirkomuIagi. ilufjarðar. Eins og kunnugt er öllum, sem samband þurfa að hafa við skip á hafi úti héðan, vill oft svo til, að samband truflast mjög af ýms- um orsökum, sem fylgja skilyrðis- laust athafnalífi bæjarins. En þess er mjög brýn nauðsyn sakir veiði- flotans annarsvegar og ríkisverk- smiðjanna, útgerðarmanna og fleiri aðilja hinsvegar, að slíkt sam band geti á verið nokkurnveginn hindrunar- og truflanalaust. Á því getur riðið ekki einungis stórkost- leg ^járhagsleg verðmæti, heldur og einnig líf og öryggi heilla skips- hafna. Þarf ekki að fjölyrða um slíka nauðsyn á öryggi. Hún er öllum kunn. Að þessu mikla öryggismáli hefir um allmargra ára skeið verið ötullega unnið, fyrst og fremst af stöðvarstjóranum hér Otto Jörg- ensen, sem er viðurkenndur fyrir ágæta og staðgóða þekkingu á öllu því, sem viðkemur tækni í símamálum, svo og landsímastjóra Guðmundi Hlíðdal, sem hefir sýnt máli þessu mikinn skilning og unn- ið kappsamlega að því, að mann- virki þetta kæmist á. Siglfirðingur hefir snúið sér til Þórðar Jónssonar, símalagningar- manns, sem séð hefir um símalagn- ingu þessa, og spurt hann nánar um framkvæmdir þessa stórvirkis í siglfirzkum símamálum. Þórði farast orð á þessa leið: Það er nú alveg nýlokið við lagn- ingu jarðsímans héðan úr bænum vestur yfir f jallið til Sauðaness. Er jarðsímalögn þessi um 5 kílómetra löng og má óhætt telja hana eina hina merkilegustu og mikilvæg- ustu framkvæmd, sem hér hefir verið ráðiet í um langt skeið, bæði sakir hinna tæknilegu hliðar máls- ins og þó ennþá frekar sakir þess mikla öryggis er hún getur skapað veiðiflotanum bæði til öruggari veiðifangs og allra hagrænna og viðskipta við land, svo og beinlínis til lífsöryggis sjómannanna. Saga þessa máls er í stuttu máli sú, að árið 1934 var eins og kunn- ugt er reist hér á Eyrinni loft- skeytastöð með 100 watta styrk- leik og mun hún heyrast sæmilega um allt síldveiðisvæðið. En hins- vegar eru talstöðvar skipanna miklu kraftminni og misjafnar að gæðum, og var því örðugt og oft nærri ógerlegt að ná sambandi við skipin, bæði sakir þess hve þær voru afllitlar og í misjafnlega ör- uggu lagi, og eigi síður sakir trufl- ana, er hér voru í bænum. Það var því fljótt öllum þeim ljóst, er mest fjölluðu um þessi mál, að bráða nauðsyn bar til að flytja móttöku- stöðina út fyrir bæinn, þar sem minna, eða lítt gætti truflana. Forráðamenn landsímans, bæði hér og syðra og þá sérstaklega póst- og símamálastjóri G. Hlíðdal, hófust því handa um að hrinda þessu í framkvæmd. Árið 1938 var svo ákveðið eftir nákvæmar athuganir, að Sauðanes myndi vera einna heppilegasti staðurinn fyrir móttökutæki stöðv- arinnar, og þá um leið fyrir þráð- laust firðsamband við skip á hafi úti. Festi landsímastjórnin kaup á efni til þessara framkvæmda í Þýzkalandi, en þegar heimsstyrj- öld sú, er nú geisar, skall á, varð loku fyrir það skotið, að efni þetta fengist flutt hingað og töfðust því allar framkvæmdir í bili. 1940 tókst svo loks að festa kaup á jarðstreng í Englandi til þessarar leiðslu og fékkst hann loks hingað síðastliðið haust. Var svo jarðstrengur þessi, sem var í 35 rúllum fluttur upp fjallið bæði austan frá og vestan, og þótt mörgum þætti í fyrstu erfiðlega horfa um flutninga þessa yfir hið bratta torleiði, þá gekk það með ágætum vel og miklu fljótar en við var búizt. En þá var eftir þyngsta þrautin, en það var að draga úr strengnum, en það er mikið verk og erfitt og krefur mikillar að- gæzlu. Lengi stóð mest á því, að fá nægilegan mannafla til þessa verks en þá vildi svo til, að ekki varð unnið að lagningu vegarins yfir Sigluf jarðarskarð, og gat því verk- stjórinn þar Friðgeir Árnason snúið sér að því með mönnum sín- um að leggja jarðsímann ásamt með vitaverði Sauðanesvitans og Úlfsdalabændum. Alls mun þessi þáttur verksins eigi hafa tekið nema rúman mán- aðartíma, og er því óhætt að full- yrða, að það hafi gengið bæði fljótt og vel, og verið prýðilega af hendi leyst. Tækin, sem notuð eru, eru svo- nefnd fjarstýriviðtæki, og er þeim eins og nafnið bendir til stjórnað úr fjarlægð. Sauðanestækinu er stjórnað héðan af stöðinni með þar til gerðum magnaraáhöldum, en viðtæki og orkugjafi, ásamt loft- neti, er á Sauðanesi og má með þessu móti losna við truflanir þær, sem eru hér í bænum, og torveldað hafa svo mjög viðtöku firðskeyta loftleiðis og firðtöl við skipin, og auk þess eru hlustunarskilyrði margfalt betri á Sauðanesinu en hér í bænum. Ætlunin er sú, að koma á full- komnu firðtalssambandi við skipin loftleiðis strax og ástæður leyfa og mun það gerbreyta öllum við- skiptum í lofti milli skipanna og allra þeirra aðilja er við þau þurfa að skipta, og mun svo eðlilega skeytafjöldinn minnkar en firðtölin í lofti aukast að sama skapi, bæði héðan úr bænum og annarstaðar frá. Annar mikill kostur við þessar framkvæmdir er sá, að með þeim er loks aflétt þeirri einangnm, er

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.