Siglfirðingur


Siglfirðingur - 05.11.1943, Blaðsíða 2

Siglfirðingur - 05.11.1943, Blaðsíða 2
2 / SIGLFIRÐINGUR Frá Alþingi. ★ Reiknigsskrifstofa sjávarútvegsins. Ríkisstjórnin hefir lagt fram á Alþingi frv. til laga um reikninga skrifstofu sjávarútvegsins. Á hún að starfrækjast undir um- sjá Fiskifélags íslands. Skal ákveðnum manni falin stjórn hennar, og leggi Fiskifél- agið honum til aðstoð og starfsfé, er endurgreiðist úr ríkissjóði. Samkv. 3. gr. frumvarpsins er hlutverk skrifstofu þessarar sem hér segir: 1) Að safna saman reikningum um útgerðir víðsvegar á landinu, bæði frá þeim, sem bókhaldsskyld- ir eru, og öðrum, sem halda slíka reikninga, með það fyrir augum að fá sem réttasta mynd af rekstri útgerðar fyrirtækja yfirleitt, og jafnframt af rekstri hinna ýmsu greina útgerðarinnar. 2) Að stuðla að því, að þeir, sem útgerð reka en eru ekki bókhalds- skyldir, haldi sem gleggsta reikn- inga um útgerðina og aðstoða þá við ,,uppgjör“ þeirra. 3) Að vinna hagfræðilegar upp- lýsingar úr þeim reikningum, sem skrifstofunni berast, um allar greinar útgerðarinnar, eftir því, sem unnt er. Birtir skrifstofan skýrslur um niðurstöður sínar ár- lega. 4) Að útbúa og gefa út hentug eyðublöð fyrir útgerðareikninga með skýringum um færslu þeirra 5) Að vera ríkisstjóminni til að- stoðar með hagfræðilega útreikn- inga og skýringar varðandi sjávar- útveginn, ef hún óskar þess. Milliþinganefnd í sjávarútvegs- málum 1943 hefir samið frumvarp þetta. I greinargerð er á það bent, að full og brýn nauðsyn sé slíkrar stofnunar. Hafi á sl. 10 árum þrisvar verið skipuð nefnd eða kosin að tilhlutun Alþingis til þess að leggja ráð á til úrlausnar ým- issa vandamála sjávarútvegsins. Allar þessar nefndir hafa orðið að hefja starf sitt á söfnun skýrslna og gagna um hag útgerð- arinnar og rekstur undanfarinna ára, og reynzt það starf bæði taf- samt og kostnaðarsamt og auk þess séu slíkar skyndiskýrslur lítt ábyggilegar. Telja þeir, er að frumvarpinu standa og margir aðrir, að með því sé stefnt í rétta átt um söfn- un áreiðanlegra heimilda um hag og rekstrarafkomu og rekstrar- Skilyrði sjávarútvegsins. Og auk þess gæti og ætti skrif- stofan að láta útgerðarmönnum í té margskonar nauðsynlegar leið- beiningar. Athugim á nýju fyrir- komulagi um álagningu og greiðslu tekjuskatts. Bjarni Benediktsson, borgar- stjóri flytur í Efri-deild tillögu til þingsályktunar um álagningu og greiðslu tekjuskatts. Þykir öllum tillaga þessi hin merkilegasta Fjallar tillagan um það skatt- greiðslu fyrirkomulag er Vest- menn kalla ,,Pay-as-you-go“ eða „Pay-as-you-earn“, en það er í því fólgið, að skattþegninn greiði skatt af tekjum sínum sama árið og þeirra er aflað, en ekki eftirá, eins og víðast hefir tíðkazt að þessu, og þar á meðal hér á landi. Tillagan er svohljóðandi: „Efri deild Alþingis skora á ríkisstjórnina að afla gagna um fyrirmæli þau, sem ýmist hafa verið gefin eða ráðgerð eru í Bandaríkjum Norður-Ameríku, Kanada og Englandi, í þá átt, að skattar af tekjum séu lagðir á og goldnir þegar á sama ári og tekn- anna er aflað. Skal athugað, hvort fært þykir að lögfesta slíkt fyrir- komulag hér á landi og leggja ár- angur þeirrar athugunar fyrir Al- þingi svo fljótt sem unnt er. Islandsfulltrúi í Hjálparnefndinni. í síðasta blaði var þess getið, að Magnús Sigurðsson, bankastjóri hefði verið skipaður fulltrúi í hjálparnefnd hinna sameinuðu þjóða. Þessa sögulega og merka atburð ar ber að minnast sem gleggst. Blaðinu hefir borizt eftirfarandi skýrsla um atburð þenna frá utan- ríkisráðuneytinu: „Fyrir nokkru var tilkynnt að ríkisstjórn Islands myndi taka þátt í stofnun hjálpar og endur- reisnarstarfi hinna samein- uðu þjóða í Washington í næsta mánuði, og var jafnframt gerð grein fyrir tilgangi þessarar hjálp- arstofnunar og fyrirkomulagi. Nú hefir Magnús Sigurðsson, bankastjóri verið skipaður til þess fyrir hönd rikisstjómar Islands, að undirskrifa samninginn um þessa stofnun og verður það gert í Hvíta húsinu í Washington um 9. nóvember næstkomandi. Enn- fremur hefir Magnús Sigurðsson verið skipaður til þess að eiga sæti í ráði hjálparstofnunarinnar. Sem aðstoðarmaður hans hefir Svein- björn Finnsson, verðlagsstjóri verið skipaður. Fara þeir héðan á næstunni til Bandaríkjanna. Þeir Ólafur Johnson konsúll og Helgi Þorsteinsson, verzlunarfulltrúi, báðir í New York hafa verið kvaddir til að vera ráðgjafar (advisers) Henrik Sv. Björnsson, sendiráðsfulltrúi í Washington til að vera vararáðsmaður í ráði tjeðr ar hjálpar og endurreisnarstofn. Þess má geta, að ríkisstjórnin hefir falið Magnúsi Sigurðssyni, bankastjóra að eiga viðræður við starfsmenn í fjármálaráðuneytinu í Washington um tillögur Banda- ríkjastjórnarinnar um fram- kvæmdir í gjaldeyrismálum að stríðinu loknu, en íslandi hefir verið boðið að taka þátt í sam- starfi um lausn þessara mála. Utanríkisráðuneytið, hinn 27. október 1943 Tillaga til þingsályktunar um samniga við verkalýðssam- tökin um vinnutíma í vega- og brúavinnu. Sigurður Bjarnason, Gunnar Thoroddsen og Sig. Þórðarson flytja eftirfarandi þingályktunar- tillögu: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að taka hið fyrsta upp samninga við Alþýðusamband Is- lands um, að upp verði tekinn 10 stunda vinnudagur í vega- og brúarvinnu í landinu. Greinargerð: Á s. 1. vori varð að samkomu- lagi milli ríkisstjórnarinnar og Al- þýðusambands Islands, að 8 stunda vinnudagur í allri vega- og brúa- vinnu skyldi koma til fram- kvæmda þar, sem slík ákvæði eru í kaupsamningum verkalýðsfé- laga , en það ákvæði mun nú vera í samningum nær allra verkalýðs- félaga landsins. Með þingsályktunartillögu þeirri, sem hér er flutt, er lagt til, að reynt sé að ná samkomulagi um að fá þessu breytt og 10 stunda vinnudag tekinn upp á ný við þessi störf. Reyhslan hefur sýnt, að 8 stunda vinnudagur hentar mjög óvíða í vega- og brúavinnu. Verka- menn vinna við þessi störf flestir fjarri heimilum sínum og verður því lítið úr hinum langa hvíldar- tíma, en bera hins vegar minna úr býtum en ella. Enn fremur var þessi stytting vinnutímans sérstaklega óheppileg á s. 1. sumri, þar sem mannafli til ýmissa nauð- synlegra vega- og brúafram- kvæmda var víða mjög af skorn- um skammti. Meðal margra vegavinnuverka- manna er 8 stunda vinnudagurinn mjög óvinsæll. Til marks um það er sú staðreynd, að vegamála- stjórninni bárust á s. 1. sumri á- skoranir frá nær 700 verkamönn- um um breytingu í þessum efnum. Fyrir kom, að heilir flokkar vega- vinnumanna neituðu að fara til SILKISOKKAR svartir ogf mislitir VALUR Flóabáturinn. Samkvæmt frásögn Pálma Loftssonar, forstjóra Skipaútgerð- ar ríkisins, hefur verið leigður bát- ur, sem á að halda uppi ferðum milli Akureyrar, Siglufjarðar og Sauðárkróks. Bátur þessi er rúmar 100 smá-. lestir að stærð og hefur verið smíðaður á Akranesi á þessu ári. Ganghraði bátsins mun vera um 11 mílur k vöku. Báturinn er smíð- aður til farþegaflutninga og mun hafa gott farþegarúm. Eru líkur til að ferðirnar hefjist um miðjan þennan mánuð. vegagerðar uppi á heiðum vegna hins stutta vinnutíma og þar af leiðandi tekjuskerðingar. Leiddi það svo aftur til þess, að ýmsar nauðsynlegar framkvæmdir hafa tafizt og þokað lítt áleiðis. Því fer fjarri, að'fl. m. þessarar tillögu vilji með flutníngi hennar snúast gegn 8 stunda vinnudegi yfirleitt. Hér er aðeins farið fram á, að samið sé um lagfæringu í þessum efnum, þar sem auðsætt er, að 8 stunda vinnudagur á ekki við og reynslan hefur sannað, að hann er óheppilegur, í senn fyrir verkamennina sjálfa og þjóðar- lieildina, sem þarf að fá ákveðnum nauðsynlegum framkvæmdum lok- ið. Að lokum er hér birtur kafli úr bréfi vegamálastjóra til atvinnu- og samgöngumálaráðuneytisins, dags, 1. okt. s.l. Kemur þar fram álit vegamálastjóra og yfirlýsing um það, hvernig 8 stunda vinnu- dagurinn hafi reynzt á s. 1. sumri í þeirri vinnu, sem hér hefur verið rætt um. í niðurlagi bréfs vegamálastjóra segir svo: „Reynsla þeirrar nýbreitni varð sú, að nær allir verkamenn fjarri heimilum sínum urðu óánægðir með þessa tilhögun og kröfðust 10 stunda vinnudags, svo sem verið hafði, og leiddi ráðstöfun þessi til verulegs fráhvarfs verka- manna frá þessum störfum. Af þessu leiddi og mikið óhagræði fyrir verk þau, sem unnið var að, einkum þar sem langt var á vinnu- stað, en svo hagar til víða við að- gerðir vega bæði í byggð og á f jöll- um uppi. Virðist reynsla benda ótvírætt í þá átt, að breyta tilhögun vinnu við vegagerðir, þannig, að taka aftur upp 10 stunda vinnudag t. d. frá byrjun maí til september- loka.“

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.