Siglfirðingur - 05.11.1943, Blaðsíða 3
SIGLFXEÐINGUR
3
VERKAMANNAFÉLAGIÐ ÞRQTTUR
i4&
sendir sínar beztu þakkir til allra þeirra, sem aðstoðuðu félagið við
nýafstaðna lilutaveltu. með fjárframlögiun, gefmun munum og á
annan hátt.
%
Fjársöfnunarnefnd Verkamannafél. Þróttar
TILKYNNING
Viðskiptaráðið hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á rjúpum til
neytenda:
Óhamflettar .................... Kr. 3,75 fuglinn
Hamflettar ....................... — 4,00 fuglinn
Hamflettar og spikdregnar..........— 4,50 fuglinn
Ákvæði þessi koma til f ramkvæmda frá og með 1. nóvember 1943
Reykjavík, 29. október 1943
VERÐLAGSSTJÓRINN
R E I K N I N G A R
Siglufjarðarkaupstaðar — bæjarsjóðs, vatnsveitu, rafveitu, liafnar-
reisjóðs, mjólkurbús og sjúkrahúss — fyrir árið 1942, svo og efnahags-
reikningar þann 31.des. 1942, liggja frammi — almenningi tjl sýnis —
á bæjarskrifstofunni næstu tvær vikur.
Siglufirði, 1. nóvember 1943
BÆJARSTJÓRI
' SIGLFIRZKIR BLAÐAMENN KOMA SAMAN
IFYRSTA SINN.
Siglfirzk blaðamennska er ung
að árum, aðeins 27 ára, en þó hún
sé eigi eldri en þetta hefir hún
þó haft mikil og margvísleg á-
hrif á bæjarlífið og þroskaferil
hins unga bæjarfélags. Og allmörg
blöð hafa hlaupið hér af stokk-
unum, en orðið mismunandi lang-
líf eins og gengur.
Nú eru gefin hér út 6 blöð í
bænum, og láta þau sig öll skipta
bæjarmálin ásamt sérmálum
þeirra flokka og stefnu, er þau
eru fulltrúar fyrir.
Siglfirzku blaðamennirnir eru í
rauninni ekki blaðamenn að at-
vinnu, heldur er blaðamennskan
ígripaverk manna, sem hafa allt
önnur og óskyld störf að lífsat-
vinnu. Þó má víst óhætt telja að
siglfirzk blöð séu að öllu samn-
lögðu engu miður úr garði gerð
né verr skrifuð en önnur sambæri-
leg smábæjablöð hérlendis.
Siglfirzku blaðamennirnir hafa
því eigi talið sig vera blaðamenn
fyrst og fremst, og lítil afskipti
haft hver af öðrum, önnur en
þau, er hið daglega strit og starf
hefir í för með sér og kynning
manna í litlum bæ gefur tilefni til.
Og svo auðvitað þegar þeir hafa
verið að senda hver öðrum tóninn
í hálfkæringi eða bróðerni eftir
því, sem málsviðhorf og flokka-
kritur hefir gefið þeim ástæður til.
Það er því eigi ómerkur at-
burður í blaðamannasögu Siglu-
fjarðar, er þeir koma allir saman
á einn stað og ræða og rabba
saman í bróðerni.
En fráleitt hefði þessi ánægju-
lega kynningarstund að borið fyrir
tilstilli blaðamannanna sjálfra.
Svo er mál með vexti, að liðs-
foringi úr Bandaríkjahernum
kvaddi þá á sinn fund og hafði
boð inni fyrir þá sl. miðvikudags-
kvöld í Gildaskálanum.
Liðsforingi (kapteinn) þessi er
NflAR BÆKUR
Salamina,
Rockwell Kent
Þrúgur reiðinnar,
John Steinbeck
Vaxtarrækt,
Jón Þorsteinsson
Þeir, sem gerðu garðinn
frægan,
Dale Carnigie
órðaspil
Æfintýri bókstafanna
Hornstrendingabókin
Tindátarnir
Árbók Reykjavíkur,
Jón Helgason
Fagrar heyrði eg raddir,
i skinnbandi .
Lárusar Þ. J. Blöndal
Bókaverzlun
innfæddur íslendingur þótt nú sé
hann Bandaríkjaþegn og gegni
trúnaðarstöðu í hernum.
Hann heitir Ragnar Stefánsson
og kominn af merkum íslenzkum
ættum. Hann er fæddur á Seyðis-
firði og ólst þar upp með foreldr-
um sínum og á Fljótdalshéraði til
10 ára aldurs, en þá fluttist hann
með foreldrum sínum vestur um
haf.
Foreldrar hans voru Sólveig
Jónsdóttir frá Múla og Jón sonur
Stefáns prests Péturssonar að
Desjarmýri (d. 12. 8.’87) En móðir
Stefáns var Ragnhildur Björg
Metúsalemsdóttir sterka í Möðru-
dal, Jónssonar. Þarf eigi frekari
ættfærzlu til að vita, að Ragnar
er af engum aukvisum kominn.
Faðir Ragnars var um skeið í
her Bandaríkjamanna, er þeir
börðust til landa á Filipseyjum við
Spánverja, og var kallaður hér
Filipseyjakappi, og fór frægðar-
orð af framgöngu hans.
Ragnar ræddi lengi kvölds við
siglfirzku blaðamennina og bar þar
margt á góma. Lét hann í ljós
ánægju sína yfir samskiptum hers-
ins við norðlenzka blaðamenn.
Það er mikið efamál, að sigl-
firzkir blaðam. komi saman fyrst
um sinn, en ekki væri það ósenni-
legt, að þessi kvöldstund hafi sann
fært þá um það, að ekki færi illa
á því, þótt svo yrði oftar því að
enda þótt margt beri á milli í
málastreitu dægurþrassins, er
flokkspólitíkin skapar, þá eiga þeir
þó allt um allt, ýmisleg sameigin-
leg hugðarmál, er þeir hefðu gott
af að ræða, því persónulega mun
þeim mjög meinlítið hvers til ann-
ars.
I SKUGGSJANNI-
Yfirgangur unglinga.
Blaðinu er skrifað á þessa leið:
Undanfarna daga hefur borið
allmikið á því, að strákar hafa
hópast saman á kveldin og farið
all ófriðlega um götur bæjarins.
Svo rammt kveður að þessu, að
nýskeð réðst hópur drengja inn
á símastöð og lömdu einn starfs-
mann í andlitið og þurfti þessi
starfsmaður að fá lögregluvernd
heim til sín svo hann ætti ekki á
hættu að verða fyrir annarri árás.
Tveimur dögum áður en þetta
gerðist gengu nokkrir drengir um
bæinn og rændu hlutum úr hjól-
hestum. Skáru í sundur rafleiðsl-
ur og gerðu þannig hjólin ónothæf
um lengri tíma. Er þetta mjög
bagalegt, þar sem ómögulegt er
að fá suma varahluta í hjólhesta.
Ekki ósjaldan sér maður smá-
stráka liggjandi á gluggum, arg-
andi og æpandi öllum hinum verstu
orðum. Ekkert þýðir að ætla sér
að hasta á svona unglinga, því
þeir brúka bara munn. Segja full-
orðnu fólki „að halda kj.. og
éta sk....“
Mest ber þó á ólátum barna á
götum úti þegar bærinn er ljós-
laus og það er engu líkara ein ein-
mitt þá, fái þau leyfi til að vera
úti, en þá ættu foreldrar alls ekki
að láta börn sín vera úti.Þá er
það og mesti ósiður hjá bömum,
að lýsa með sterkum vasaljósum
framan í gangandi fólk.
Væri rík ástæða til að bama-
verndarnefnd og lögregla léti þetta
ófremdarástand til sín taka.
Orri.
Þingflokkur Sjálfstæðis-
manna hnekkir
söguburði.
t ýmsum blöðum landsins hefír
verið á lofti haldið um allangt
skeiðundanfarið, þeim söguburði,
að Sjálfstæðismenn væru að gera
tilraunir til stjórnarsamvinnu, ým-
ist með kommúnistum eða Fram-
sóknarmönnum.
Út af þessum þráláta söguburði
hefir nú þingflokkur Sjálfstæðis-
manna gefið út eftirfarandi til-
kynningu:
„Út af ítrekuðum söguburði um
tilraunir til stjórnarsamvinnu
milli Sjálfstæðimanna og kommún-
ista eða Sjálfstæðismanna og
Framsóknarmanna, sem borinn er
út á víxl, vill þingflokkur Sjálf-
stæðismanna lýsa yfir því, að þessi
söguburður á við engin rök að
styðjast.
Þingflokkur Sjálfstæðismanna".