Siglfirðingur


Siglfirðingur - 29.04.1944, Blaðsíða 1

Siglfirðingur - 29.04.1944, Blaðsíða 1
♦♦< Siglfirðingur fæst í Verzlunarfél. Siglufjarðar Aðalbúðinni. og Verzluninni Valur 17. árgangur. Laugardaginn 29. apríl 1944. 17. tölublað. Vér byggjum óuumið ónumið til sjávar o :æða!and Það var í kring um og fyrir miðja síðustu öld, að fjöldi Islend- inga uppgötvaði það, að ísland væri óbyggilegt harðindabæli. Þar hékk allt á horrauninni. Aldagömul kúgun og f járhagslegt og verklegt umkomuleysi hélt þessum fáu ís- lenzku hræðum í járngreipum. Og sú var tíðin að öll þeirra vörn og allt þeirra traust var hjá kúgur- unum dönsku, sem byggðu upp heimsborgina við Eyrarsund fyrir íslenzkt fé, en litu á íslendinga sem réttlausa siðleysingja. Eg held að enginn Islendingur geti nú með köldu blóði lesið hinar fárán- legu og viðbjóðslegu bænaskrár til konungs, sem hálf hungurmorða margkúgaðir bjálfarnir hérna voru að senda „hátigninni í Kaupen- havn.“ Það er blátt áfram hrylli- legt til þess að hugsa, að jafn kjarkmikil, gáfuð og á marga lund mikilhæf þjóð skuli hafa neyðzt til að lúta svo lágt - og það oftast nær ófyrirsynju og til einskis. En um miðja síðustu öld og þar á eftir var að mestu liðið hörmungatíma- bil bænaskránna, en skriðdýrshátt- urinn gagnvart „veleðla háborin- heitum“, „exellensum" og hátign- um varð enn langlífur í landinu, og gott ef hann er ekki enn við lýði í breyttri mynd, og verður síðar að því vikið. Þá var mönnum talin trú um, að hér væri með öllu ólifandi sakir gæðaskorts landsins og harðinda. En vestanAtlandzhafsins blasti við landið góða, Vínland Leifs heppna — þar sem menn lásu kaffibaunir og rúsínur af trjánum. Hingað gerðust íslenzkir agentar, sem létu kaupa sig til að níða sitt eigið land en gylla eyðimerkur og preríur Kanada. Þar fengu allir allt fyrir ekki neitt. Þar voru engin sveita- þyngsli, ekkert útsvar, og akrar uxu sjálfsánir. Þar var landrými með fádæmum, svo að úr mátti velja beztu blettina. Þar var allt, sem hugurinn girntist. Þar þurfti ekkert fyrir lífinu að hafa. Engan mann minnist ég hafa verið borinn fyrir þeirri staðhæf- ingu, að ísland væri ónumið land. Nei! Það var nú öðru nær. Hér var allt þrælnytjað, sagði fólkið — og meira til! Mestu búskussar og amlóðar, sem sveitastjórnirnar sögðu, að væri ónýtir til alls, voru bókstaflega sendir af höndum sér vestur um haf. Og þegar þangað kom í hið fyrirleitna landið, kom í ljós, að það þurfti meira en lítið fyrir líf- inu að hafa, en þar voru engar sveitastjórnir, sem gerðu merin að þurfalingum. Annaðhvort varð að duga eða drepast. Þar voru ekki nema tveir kostir fyrir hendi. Og þá sáu margir, að það hefði verið eins og barnagaman að rækta ís- lenzka jörð til nytja, bylta við ís- lenzka þýfinu og slétta túnbleðlana hjá því að standa nótt og nýtan dag í brunagaddi eða steikjandi sól við að ryðja skóg til akra. Það var erfitt verk að hreinsa trjáræt- urnar úr jarðveginum. Og margur óskaði sér aftur heim í íslenzka þýfið og ónumdu víðernin heima. Þeir sáu það flestir, að þegar á allt var litið, höfðu þeir brugðizt skyldunum við ættjörð sína og föðurland. Þeir fóru í aðra heims- álfu og gerðust þar landnemar og ræktunarmenn, í stað þess að rækta sitt eigið land, sem hafði fóstrað þá og alið. v Nú sjáum við ennþá betur en séð var á tímum Ameríkuæðisins, að hér býr fámenn þjóð í stóru og ónumdu landi, auðugu af mörg- um þeim gæðum, er stórþjóðirnar vildu allt í sölurnar leggja til að eiga heima hjá sér. Má þar til nefna jarðhitann og jöklana, „hin- hvítu kol,“ fiskimiðin og frjómold- ina. Það er fyrst nú, að við erum farnir að sjá það, íslendingar, og það mest í „gegn um annarra gler,“ að ,landið er fagurt og frítt,‘ Það er frjósamt og þrungið fleiri hagnýtum náttúrugæðum, en nokk urt sambærilegt land með sömu hnattstöðu. Og svo erum við allt í einu farnir að uppgötva þau sannindi líka, að við erum fámenn- ir í frjóu og stóru landi, að hver maður hefir svo að segja heilan ferkílómetra til umráða. Og þar við bætast svo ennþá víðáttumeiri flákar gagnauðugra fiskimiða. Hitaorkan og fossaflið er óþrjót- andi. En svo eru þessir örfáu Islend- ingar, mikill hluti þeirra, að kvarta um það, að hér sé ekkert til að gera — hér sé fyrirsjáanlegt at- vinnuleysi — hungur — hallæri — kreppa! 1 Ætli þessi lífsviðhorf séu þjóð- inni holl? Um margra ára skeið hafa hér ætt um byggðir og ból æsingamenn Svo sem kunnugt er hefur Þór- oddur Guðmundsson undanfarið • starfað að því að sölsa undir sig yfirráðin í Kaupfélagi Siglfirðinga, og mun það vera einn liðurinn í hans pólitísku 5 ára áætlun. Þetta pólitíska brölt hans innan K.F.S. hefur að vonum vakið gremju Framsóknar- og Jafnað- armanna, sem með réttu hafa hald- ið því fram, að slíkur félagsskapur væri hagsmunamál manna úr ýmis um stjórnmálaflokkum, sem ætti að vera óháð eða utan við alla pólitík. Þeir hafa haldið því fram, að í trúnaðarstöður K.F.S. ætti ein- göngu að velja menn eftir hæfni, en eigi pólitískum lit, enda mun það gjört í Kaupfélögum annar- staðar. Framsóknar-, Jafnaðar- og Sjálfstæðismenn, sem eru í K.F.S. hafa bent á, að félagið sem telja fólkinu trú um, að það eigi ekkert að gera sjálft til þess að skapa sér lífvænlega afkomu. Fólkið er gint eins og þursar frá gróðurmoldinni og útgerðinni og því er sagt, að það eigi bara að gera kröfur — kröfur til „and- skotans framleiðendanna,“ sem raki að sér gullinu í milljónum. En aldrei hefir það ennþá heyrzt, að þessir hinir sömu postular segi við fólkið: „Rífið ykkur upp úr vesaldómi atvinnuleysisins og gerizt framleiðendur, annað hvort til sjós eða lands, eftir því sem bezt á við ykkur. Landið bíður og kallar á starfandi hendur til að afla sér brauðs úr skauti jarðar- innar. Fiskimiðin eru nægilega stór og þau freista þeirra er fengsæld unna.“ v Nei. Það er allt annar tónn í á- róðri þeirra foringja, er nú kalla sig forsjónir og forsvarsmenn al- þýðunnar í landinu. Nú er boðorðið þetta: Ef þið fá- ið ekki atvinnu hjá framleiðslu- auðkýfingunum, þá er ekkert ann- að en að steyta ,,rot-front-hnefa“ væri eigi það f járhagslega sterkt að það þyldi harðsnúin pólitísk átök innan sinna vébanda. Þetta hafa Kaupfélagskommúnistar viðurkennt með samningi, er þeir gerðu 13. apríl 1943 við Fram- sóknar— og Jafnaðarmenn, og þann samning undirrituðu nokkrir kommúnistar ásamt sjálfum Þór- oddi. En svo hljóp valdagræðgi og einræðishneigðin í Þórodd. Hann hafði slampazt á þing og hans var stöku sinnum getið í sunnanblöð- um og útvarpi. Þetta stóðst hann eigi, honum þótti þunnt að vera bara jafningi þessara hæggerðu Framsóknar- og Jafnaðarmanna í K.F.S., sem enginn háttsettur mað ur í höfuðstaðnum þekkti sporð né hala á, — og því síður í Rússlandi. Framh. á 4. síðu Framh. á 2. síðu I. Einræðisbrölt Pórodds

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.