Siglfirðingur


Siglfirðingur - 29.09.1944, Side 4

Siglfirðingur - 29.09.1944, Side 4
4 SIGLFIRÐ INGUR Matvælageymslur. (Framliald af 1. síðu) til frystigeymslu eða rétt á hendur því fyrirtæki um slíka þjónustu. Héðanaf verður varla bót á þessu ráðin í haust, svo áliðið er nú orðið En hinsvegar er þeim mun brýnni nauðsyn á fyrir bæjarbúa og bæj- arstjórn fyrir þeirra hönd, að hugsa svo fyrir að á næsta hausti verði þessum vandræðum að fullu afstýrt. Það er með öllu óþalandi ástand og óforsvaranlegt frá heil- brigðislegu og menningarlegu sjónarmiði, að bær með hartnær 30(00 íbúa skuli vera með öllu svift- ur möguleikum til geymslu á nýj- um matvælum. Á Þessu verður að ráða bót. Þar er ekkert undanfæri fyrir bæinn. Nú vill svo til, að bærinn hefir í byggingu mikið stórhýsi þar sem er Rauðku-verksmiðjan, og mun bærinn eiga þar talsverðar efnis- birgðir umfram nauðsyn til Rauðkubyggingarinnar, að minnsta kosti fyrst um sinn. Auk þess er ekki óhugsandi, að einmitt þetta mál um frystigeymslu, fullkomna frystigeymslu, fyrir matvæli bæjar búa yrði á einhvern hátt leyst ein- mitt um leið og ef til vill í sam- bandi við verksmiðjubygginguna. Væri ekki óhugsandi að bænum gæti orðið slík lausn málsins hag- kvæm, því óumflýjanlegt er fyrir bæinn að leysa úr vandræðum bæj- arbúa í þessu efni, hvort sem er. Bæjarstjórn þarf að láta athuga það á hvern hátt bezt verði leyst úr þessum vanda, og þær athug- anir þola enga bið, ef viðunandi lausn á að fást fyrir næsta haust. Það þarf að byggja þetta frysti- hús fyrst og fremst með það fyrir augum, að geyma í því matvæli, og er þá mikils um vert, að eigi verði flaustrað að undirbúningi, og að þar verði miðað allt við það, er bezt og hagkvæmast þekkist nú í þessum efnum. Það er tæplega hægt að hugsa sér, að halli þurfi að vera á rekstri slíkrar stofn- unar, jafnbráðnauðsynleg og hún er, og jafnframt mundi hún verða stórt spor í áttina til þess, að dreifing daglegrar neyzluvöru bæjarbúa, og á þar einkum og sér- staklega við kjötmat og fiskmeti allskonar, yrði siðuðum mönnum samboðin, því það er tæplega vansalaust jafnstórum bæ og Siglufjörður er, hve kröfur neyt- enda um afhending og dreifing matvæla er á lágu stigi hér. Hér eru nú starfandi þrjár fiskbúðir, og virðast allar þrífast fjárhags- lega. En þó er venjulega úr svo litlu að velja þar af fiskmeti, að með ólíkindum er og gjörsamlega ólíkt fiskbúðum annarsstaðar, að minnsta kosti í höfuðstaðnum, og ætti þó ekki að vera óhægra um vik að afla sér fiskætis hér en þar. Það er ekki gott að vita, hverjar kröfur heilbrigðiseftirlitið hér ger- ir til þrifnaðar og húsakynna mat- vörubúða, en ekki eru þær háar, ef dæma má eftir húsakynnum og aðstöðu allri í fisksölubúðunum hérna. Þeir, er séð hafa umgengni og alla afhendingarháttu í matvöru- búðinni „Fiskur og síld“ í Berg- staðastræti, munu undrast, er þeir bera saman meðferð neyzlufiskjar þar, og fleiri matvöru, og annars- staðar, bæði í höfuðstaðnum og út um land. Slík fyrirmynd er til eftirbreytni, og ættu allir, er um slík fyrirtæki fjalla að kynnast þar öllum starfsháttum, bæði um afhendingu og ekki sízt „bak við“. Þá er það hreint ekki til neinnar fyrirmyndar, að hér skuli ekki vera nema ein búð er annast sölu kjöts og kjötmetis. Jafnstór bær og þessi, auk alls þess mikla f jölda, er hingað sækir á síldarvertíðinni og síldarflotans, er hér hefst við þann tíma, hefir mikla þörf fyrir aðra dreifingarmiðstöð slíkrar vöru. Það vita allir, er til þekkja, hver þröng er á þingi í kjötbúð- inni hérna á vissum tímum dags, þótt út yfir taki er aðkomuskip og aðkomufólk er hér flest. Enda er það ofætlun, að ein lítil búð með takmörkuðum mannafla geti fullnægt slíkri afgreiðsluþörf og hér skapast oft er mest er um að vera. Hér er mikil þörf einnar og ef til vill tveggja slíkra matvöru- búða í viðbót. Hér var eitt sinn önnur búð, er hafði með höndum kjötsölu, en einhvernvegin logn- aðist sú „forretning" út af, og var þá um kennt, að kjötverðlags- eftirlitið eða þeir hæstráðendur, er um þau mál fjalla hefðu eigi feng- izt til að veita verzluninni „slátr- unarleyfi.“ Ekki skal um þetta dæmt, enda er sá, er þetta skrifar ófróður í þeim ,,bransa“. En ef dæma má eftir slíkum dreifingar- miðstöðvum 'annarsstaðar á landi hér, sem engin slík „leyfi“ hafa, og virðast þó „standa sig vel,“ þá ætti ein slík verzlun hér í viðbót að hafa nægilegt starfssvið og ágæta möguleika til góðrar af- komu slátrunarleyfislaust, aðeins ef þeir, er þetta tækist á hendur þekktu leyndardóminn, sem liggur í því að gera neytendunum til hæf- is. Sé sú þekking ásamt einlægum vilja til staðar, þarf ekki efast um viðskiptin og ágóðann. Sé hér þörf fyrir jafnmargar dreifingarstöðvar erlendrar mat- vöru og álnavöru og raun ber vitni, þá væri óhætt að bæta við einni „kjötbúð“, án þess að mis- bjóða nokkrum, og án þess að fyrirtækið yrði f járhagslegt hættu- spil. Bezt er að auglýsa í Siglfirðingi. Unglingspiltur (helzt með gagnfræðaprófi) getur nú þegar fengið fasta atvinnu í lyf jabúðinni við allskonar aðstoðar og afgreiðslustörf. Eiginhandarumsókn með kaup- kröfu sendist mér fyrir 1. næsta mánaðar. A. SCHIÖTH. NYJAR BÆKUR Töframaðurinn, skáldsaga Beverly Gray nýliði. Tröllin í Heydalsskógi, barnasaga Undrabarnið Wolfgang Mozart Laxadælasaga ób. nokkur eintök og margar fleiri. Bókaverzlun Lárusar Þ. J. Blöndal AMERÍSKIR VETRARFRAKKAR fyrir herra nýkomnir í mjög smekklegu og vönd- uðu úrvali. Verzlunin Halldór Jónasson Hrerraföt, amerísk Prjónasilkiskyrtur Herrahanzkar Herrasokkar Verzlunin Halldór Jónasson | NYJA-BIO | [ Föstudaginn kl. 9: . [ j ORLOF FLUGMANNSINS í Fred Astair [ ? Joan Leshe J < Laugardag kl. 9: [ | ALI-BABA ? [ Aðeins þetta eina kvöld [ Sunnudag kl. 5: [ GÖG og GOKKE og [ GALDRAKARLINN [ 2 Allrasíðasta tækifærið til J að sjá þessa ágætu [ [ gamanmynd. [ 2 Laugardag kl. 9: [ [ ORLOF FLUGMANNSINS [ [ Mánudag kl. 9: [ [ N\ MYND! [ rsrsrrrsrsrsrsrsrsrsrrrrrrrrsrsrrsrrsrsrsrrrsrrrrrr | Siglufjarðarbíó I 2 Sunnudag kl. 5. [ HITAVEITA [ [ amerísk músík og gamanmynd [ [ Sunnudag kl. 9: [ DIXIE [ [ amerísk söngvamynd [ [ Bing Crosby [ 2 Dorothy Lamour [ Mánudag kl. 9: [ [ VÍKINGAR VEGA UM ÓTTU \ [ ATHUGIÐ ! [ [ Á laugardagskyöld kl. 10.30 verður ball [ í Siglufjarðarhíó. |j rrrrsrrrsrrrNrrrrrrrrrrrNrrNrrrrNrrrrrrrr Kvennærföt kr. 13.60 settið Vasaklútar, gjafakassar Blússuefni Verzlunin Halldór Jónasson SAMFESTINGAR á unglinga Verzlun „Sveinn Hjartarson“ '■mmmmmMmmmstmmmmæ

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.