Morgunblaðið - 09.04.2011, Page 4

Morgunblaðið - 09.04.2011, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011 PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 14, miðvikudaginn 20. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Íslandsmótið Pepsí-deild karla í knattspyrnu 30. apríl. Farið verður um víðan völl og fróðlegar upplýsingar um liðin sem leika sumarið 2011. ÍSLANDSMÓTIÐ PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2011 MEÐAL EFNIS: Umfjöllun um öll liðin í Pepsí-deild karla Allir leikmenn og ítarlegar upplýsingar um þá Sérfræðingar spá í styrkleika liðanna Allir leikdagar sumarsins Árangur liða í gegnum tíðina Dómarar sumarsins Ásamt fullt af spennandi efni –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ VIÐTAL Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Ég er svolítið gráðugur í mörkin,“ sagði Ragnar Jóhannsson, marka- kóngur úrvalsdeildar karla í hand- knattleik, N1-deildarinnar, í samtali við Morgunblaðið eftir að ljóst varð að hann er markakóngur annað árið í röð en í fyrra skoraði Ragnar flest mörk í 1. deild karla. „Ég hef hitt á gott tímabil þótt lið- inu mínu hafi ekki vegnað í samræmi við það. Þegar mér gengur vel þá held ég bara áfram að skora,“ sagði Ragnar sem hefur verið markahrók- ur upp alla yngri flokka með Sel- fossi. Ragnar segist ekki hafa velt því mikið fyrir sér á keppnistímabilinu hvort hann væri markahæstur í deildinni eða ekki. „Ég held að það sé ekkert alltof gott að pæla of mikið í markalistanum og hvar ég hef verið staddur á honum hverju sinni. Sem hluti af liðsheild hjá Selfossliðinu þá hefur gengi okkar sem liðs verið mér ofar í huga,“ segir Ragnar. Átti von á meiri mótspyrnu Spurður hvort hann hafi reiknað með að fá meiri mótspyrnu frá varn- armönnum andstæðinganna segist Ragnar hafa átt von á því en hann hefur gert nærri þriðjung marka Selfossliðsins í N1-deildinni. „Ég átti alls ekki von á að skora jafn mörg mörk og raun ber vitni um. Þetta var fyrsta keppnistímabilið mitt í úrvalsdeildinni og þótt mér gengi vel í 1. deildinni í fyrra þá fór ég ekki inn í úrvalsdeildina með allt- of miklar væntingar í þessum efnum, ég setti ekki stefnuna á að verða markakóngur á fyrsta ári.“ Selfoss féll úr N1-deildinni eftir aðeins eins árs veru. Ragnar segir það vera gríðarleg vonbrigði enda hafi markmiðið verið að halda sér uppi og menn talið sig eiga raun- hæfa möguleika á því. „Við lékum vel eftir áramótin en vantaði herslumuninn upp á í nokkr- um leikjum auk þess sem við spil- uðum illa í leikjum þar sem hefðum átt möguleika eins og á móti Val. Þá töpuðum báðum leikjunum við Aftureldingu, það var hreinlega dauðasynd og alveg ljóst að við hefð- um verið í betri stöðu fyrir lokaleik deildarinnar, þriðja leikinn við Aftureldingu, ef við hefðum unnið annan leikinn gegn henni. Síðan gerðum við jafntefli við Hauka og FH í leikjum þar sem við vorum nærri því að vinna. Við getum engum öðrum en sjálf- um okkur um kennt hvernig er kom- ið fyrir okkur,“ segir Ragnar. Spurður um skýringar af hverju Selfossliðið hafi sótt svo í sig veðrið eftir áramótin segir Ragnar líkleg- ustu skýringuna vera þá að „við vor- um bara svo mikið inni í okkur fyrir áramótin. Við þorðum ekki að sækja nógu ákveðið á mark andstæðing- anna sem lið og heldur ekki hleypa liðsviljanum og kjarkinum á skeið. Menn voru hræddir að sýna tilfinn- ingu og baráttu. Fram að áramótum lékum við oft afar illa sem endur- speglaðist í úrslitum leikja.“ Óviss um að vera áfram Nú þegar ljóst er að Selfoss leikur í 1. deild á næsta keppnistímabili segir Ragnar óvíst hvað hann taki sér fyrir hendur, hvort hann rói á önnur mið ellegar skipti um lið. Hann telur þó fullvíst að forráðmenn Selfoss setji stefnuna á að endur- heimta sæti í úrvalsdeildinni strax á næsta keppnistímabili. Til þess verði hinsvegar að tryggja að sem flestir leikmenn núverandi liðs haldi áfram en alltaf sé sú hætta fyrir hendi að los komist á leikmannhóp liðs sem fellur niður um deild. „Það er svo stuttur tími liðinn síð- an ljóst varð að við féllum að ég hef ekki gefið mér tíma til að velta fram- haldinu fyrir mér, hvort ég eigi að vera eða að fara,“ segir Ragnar og vill ekki viðurkenna að forráðamenn liða sem áfram verða í úrvalsdeild- inni séu farnir að bera víur sínar í sig. „Það er hinsvegar alltaf gaman ef einhver vill tala við mann,“ segir Ragnar og viðurkennir að hann sé beggja blands í afstöðu sinni til þess að vera áfram hjá Selfossi. „Fallið úr deildinni er mikil von- brigði fyrir Selfossliðið. Hinsvegar er ljóst að mikill efniviður er fyrir hendi hjá félaginu þannig að ekki er óraunhæft að liðið verði í toppbar- áttu 1. deildar á næsta keppnis- tímabili og geti vel farið upp á nýjan leik. Fór til Gummersbach Ragnar fór til æfinga um nokk- urra daga skeið hjá þýska 1. deild- arliðinu Gummersbach í janúar. Sú heimsókn hefur ekki skilað tilboði, alltént ekki enn sem komið er. „For- ráðamenn Gummersbach sögðust vera ánægðir með mig og þeir ætl- uðu sér að fylgjast áfram með mér það sem eftir væri keppnistímabils- ins. Þar má segja að málið standi,“ segir markakóngur N1-deild- arinnar, Ragnar Jóhannsson á Sel- fossi. „Er svolítið gráðugur í mörkin“ Ljósmynd/Guðmundur Karl Markakóngur Ragnar Jóhannsson skoraði 172 mörk í 21 leik Selfyssinga í vetur, rúm átta mörk í leik að meðaltali.  Ragnar Jóhannsson frá Selfossi markakóngur vetrarins  Gríðarleg vonbrigði að falla úr deildinni Markahæstu leikmenn í N1-deild karla Ragnar Jóhannsson Selfossi 172 Bjarni Fritzson Akureyri 164 Ólafur Bjarki Ragnarsson HK 147 Ásbjörn Friðriksson FH 142 Bjarki Már Elísson HK 137 Ólafur Guðmundsson FH 134 Einar Rafn Eiðsson Fram 126 Atli Ævar Ingólfsson HK 116 Oddur Gretarsson Akureyri 111 Björgvin Þór Hólmgeirsson Haukum 108 Guðjón Finnur Drengsson Selfossi 105 Guðmundur Hólmar Helgason Akureyri 103 Ernir Hrafn Arnarson Val 94 Bjarni Aron Þórðarson Aftureldingu 89 Guðmundur Árni Ólafsson Haukum 84 HK mætir KA í úrslitaleikjunum um Íslandsmeistaratitil karla í blaki. Kópavogsliðið lagði Stjörnuna að velli í oddaleik í Fagralundi í gærkvöld, 3:0, og þar með er HK í úrslitum bæði hjá körlum og konum þetta vorið. HK-ingarnir sækja KA heim í fyrsta úrslitaleik karl- anna á Akureyri á mánudagskvöldið. HK-konur fara austur í Neskaupstað og mæta þar Þrótti í fyrsta úrslita- leik þeirra á þriðjudagskvöldið. HK vann fyrstu hrinuna í gærkvöld með nokkrum yf- irburðum, 25:16, og var líka með örugga stöðu alla aðra hrinuna en hún endaði 25:22. Sú þriðja var hinsvegar hörkuspennandi og liðin voru yfir til skiptis. Framlengja þurfti hrinuna og HK náði loks að knýja fram sigur, 30:28, og þar með var þátttöku Garðabæjarliðsins á Ís- landsmótinu lokið þetta árið. vs@mbl.is HK-karlar líka í úrslitin  HK lagði Stjörnuna, 3:0  Mætir KA í úrslitaleikjum Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigur HK hafði betur gegn Stjörnunni í Fagralundi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.