Siglfirðingur

Útgáva

Siglfirðingur - 10.02.1948, Síða 1

Siglfirðingur - 10.02.1948, Síða 1
Gulrætur Kjötbúð Sígluf jarðar Siglufjarðarprentsmiðja h. f. 3. tb.l. Þriðjudaginn 10. febr. 1948 21. árgangur. Hvað líður rafveitumálum Siglufjarðar? Það hefir verið furðu hljótt um rafveitumál Siglufjarðar undan- farna mánuði. Sú var þó tíðin, að mál þetta var ofarlega á baugi hjá bæjarbúum bæði á mannfundum, í blöðum og meðal einstaklinga. Er skemmst að minnast þess þegar Einherji, með sérfræðing sinn 'i rafmagnsmálum, G. Iiannesson, lét hið skæra ljós sitt skína rétt fyrir bæjarstjórnarkosningarnar síðustu og fram til 21. jan. í fyrra. Þá varð allt í einu dúnalogn og hefir verið hljótt um þessi mál í dálkum blaðsins síðan, en það er kannske tilviljun ein, að þennan dag, 21. jan. 1947, féll úrskurður gerðardóms Verkfræðingafélags Islands í máli Siglufjarðarkaup- staðar gegn Höjgaard & Schultz A/S vegna virkjunar Skeiðsfoss. Það er bæjarbúum kunnugt, að hann átti fyrst og fremst frum- kvæðið að því, að farið var út i þennan málarekstur og hefði því verið eðlilegt, að honum hefði verið áhugamál, að fá úrskurð þennan birtan bæjarbúum. Af einhverjum ástæðum hefir Einherji samt ekki talið þetta rétt, en með þvi að ekki er kunnugt, að úrskurður þessi hafi verið birtur almenningi annars staðar en í Tímariti Verkfræðinga- félags íslands, en hér er um að ræða mál, sem varðar hvern ein- stakling í þessum bæ, telur Sigl- firðingur rétt að birta úrskurðinn orðréttan og fer hann hér á eftir. Svo sem kunnugt er kaus bæjar- stjórn á sínum tíma 5 manna néfnd, sem sat í IVí mánuð suður í Reykjavík og skildi hún kynna sér öll míálefni í sambandi við Skeiðs- fossvirkjunina og undirbúa máls- höfðun gegn Höjgaard & Schultz. Hafði hún aukalega lögfræðing og verkfræðing sér til aðstoðar. Það er haft eftir G. Hannessyni, sem var formaður þessarar nefndar, að hann hafi „langað 'i Langvad", verkfræðing félagsins, en ferða- lag þetta allt kostaði bæinn 60— 70 þúsund krónur, — eigi virðist það ætíð þurfa að kosta slíka upp- hæð að friðþægja löngun sinni. Flestir höfðu búizt við, að nefnd- in, eða einhver úr henni, hefði séð sóma sinn í því að birta þennan úrskurð, sem þeir kváðu upp verk- fræðingarnir Árni og Gústaf Páls- synir og lögfræðingurinn Einar Arnórsson, prófessor, en af ein- hverjum ástæðum hefir þetta láðst. Bæjarstjórnarkosningarnar síð- ustu snerust að talsvert miklu leyti um rafveitumál bæjarins, og víst er það, að mál þessi voru óspart notuð til þess að bægja þá- verandi bæjarstjéra, Ó. Hertervig, fr'á starfi sínu. Var því óspart lof- að, að stjórn þessara mála mundi verða breytt til hins betra, ef Hertervig færi frá og gekk Ein- herji með G. Hannessyni í broddi fylkingar þar á undan. Nú er kjörtímabilið 1946—1950 hálfnað og bæjarbúar spyrja: Hvað hefir verið gert í rafveitu- málunum, þessum stærstu og þýo- ingarmestu málum bæjarins ? Hvað hefir verið gert til þess að útvega aðra túrbínusamstæðu til viðbótar þeirri, sem fyrir er? Einhver mun kannske svara: Það liggur beiðni um verðfestingarleyfi hjá Fjár- hagsúáði. Rétt er það, beiðni þessi mun hafa legið þar í hálft ár. En hvernig er þá um lántökumögu- leika? Hvað hefir verið gert í þvi efni? Þannig spyrja bæjarbúar og þeir iega allan rétt á að fá svar við þessari fyrirspurn. I álitsgjörð sem Páll Sigurðsson verkfræðingur hefir sent bænum (dags. tveim dögum eftir úrskurð- inn áðurnefnda) er sýnt fram á, að orkuverið í Fljótum muni þvi sem næst geta staðið undir sér fjárhagslega árið 1950, ef þegar er bætt við annarri samstæðu lítið eitt stærri en sú, sem fyrir er. Rúmt ár er liðið síðan álitsgjörð þessi barst bæjarstjórn. Hvað hefir verið gert síðan ? I skrá yfir greiðslur þær, sem ríkissjóður hefir orðið að inna af hendi vegna átekinna ábyrgða, er Siglufjarðarkaupstaður færður með skuld, að upphæð 728.588,00 kr. miðað við 1. okt. 1947. Skuld þessi er hvorki vegna síldarverk- smiðjunnar Rauðku, eða annarra ábyrgða, heldur vegna ábyrgðar ríkissjóðs út af virkjun Skeiðsfoss. Sigluf jörður er eini kaupstaðurinn á landinu, sem er færður á þessa skrá. Menn spyrja m.a.: Hvernig líður þessari skuld, hefir hún hækkað, eða hefir hún lækkað? I stuttu máii: Hvað ætla forráða- menn bæjarins að gera í rafveitu- málunum ? Urskurður gerðardóms Verkfrœðingafé- lags íslands í máli Siglu- fjarðarkaupstaðar gegn Höj- gaard & Schultz A/S vegna virkjunar Skeiðsfoss. Ár 1947 þriðjudaginn 21. jan- úar kom gerðardómur Verkfræð- ingafélags íslands saman á Lauf- ásveg 25, og var þá tekið fyrir málið nr. 1/1946: Siglufjarðarkaupstaður gegn Höjgaard & Schultz h.f. og í því kveðinn upp svofelldur: Orskurður: Hugmyndaruppdráttur (Idépr- jekt) að virkjun Skeiðsfoss ’í Fljót- um í Skagafjarðarsýslu var fyrst gerður á árunum 1929—1931, og síðan var unnið að málinu til 1938, síðast af vegamálastjóra, sem jafn framt hefur af ríkisstjórnarinnar hálfu eftirlit vatnsvirkja og for- stöðumanni rafmagnseftirlitsins. Þeir hugsuðu sér stífluna setta í útrennsli Fljótaár úr vatninu, en töldu þó til greina koma þá tillögu, að stíflan yrði sett 300 m norður í ána. Árið 1941 bað þáverandi bæjarstjóri Siglufjarðarkaupstað- ar varnaraðilja þessa máls að gera frumdrætti að virkjun Skeiðsfoss með stíflunni 300 m 'í norður frá útrennsli árinnar, og varð þá þrýstivatnspípan þeim mun styttri en upphaflega var hugsað. Varnar- aðili setti vatnsborð uppistöðunnar í kóta 48,5 í stað kóta 49,5, sem hann segir áður hafa verið ráð- gert, með því að hann taldi það öruggara vegna einstakra staða í Stífluhólum, sem að nokkru leyti áttu að vera fyrirstaða miðlunar- vatnsins. Ráðgert var að leggja þrýstivatnspípuna austan megin árinnar. Frumdrættir þessir voru samþykktir af eftirlitsmanni vatns virkja. Jafnframt gerði varnarað- ili útboðsskilmála á ensku sam- kvæmt tilmælum bæjarstjóra um tilboð á vélum og háspennuefni frá Bandaríkjum Norður-Ameríku. Hinn 23. okt. 1942 gerðu aðiljar með sér samning um virkjun Skeiðsfoss. Samkvæmt honum tón varnaraðili að sér að gera fulln- aðaráætlun um rafstöð í Fljótum 0g byggja hana. Skyldi verkið þegar hafið og því hagað með það fyrir augum að hefja mætti rekstur stöðvarinnar á árinu 1943, ef mögulegt yrði að fá vélasam- stæðuna til landsins svo tímanlega á því ári. Skyldi stöðin gerð á kostnað og ábyrgð sóknaraðilja, er greiða skyldi vamaraðilja að fullu allan kostnað af efniskaup- um, verkakaup, verkstjórakaup, virkjakaup (,,Montöra“-kaup), verkamannatryggingar, eyðsla gagna, svo sem kola, olíu o.fl., farmgjöld, farmtryggingar, flutn- inga, opinber gjöld o.s.frv Fé það, sem varnaraðili hefði lagt fram til framkvæmdar verkinu, skyldi end- urgreiða honum mánaðarlega, samkvæmt framlagðri skilagrein, en sóknaraðili skyldi annast útveg- an á nauðsynlegum útborgunum og bankalánum í Bandaríkjunum. Varnaraðili skyldi hinsvegar leggja til blöndunarvélar með mót- orum, lyftitæki og loftþrýstitæki, auk ýmissa minni véla, gegn tiltek- inni leigu. Fyrir alla verkfræðiað- stoð, bæði hér á landi og í Banda- ríkjunum, og fyrir að ganga frá fullnaðaráætlun, útvegun á efni og vélum, stjórn og eftirlit með bygg- ingarstörfum og uppsetningu, end- urmyndun uppdrátta, símakostnað ferðakostnað o.s.frv. skyldi sókn- araðili, samkvæmt 6. gr. samnings- ins, greiða 200.000,00 ísl. og 26.000,00 dollara með nánar til- teknum gjalddögum. Miðað var við vísitölu 210, en breyting skyldi verða til hækkunar eða lækkunar ef vísitala breyttist. Byggingar- kostnaður var áætlaður í 3. gr.

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.