Siglfirðingur

Issue

Siglfirðingur - 10.02.1948, Page 2

Siglfirðingur - 10.02.1948, Page 2
s SIGCFIR ÐINGUE SIGLFIRÐINGUR Útgefandi : Sjálfstæðisfélögm í Siglufirði Ábyrgðarmaður: Ólafur Ragnars Blaðið kostar kr. 15,00 árg. Gjaldagi 1. júlí. Siglufjarðarprentsmifija h. f. ■^■•«aiprs samningsins 4 millj. 250 þús. kr., en ef hann reyndist minni, þá átti varnaraðili að f'á 10% af þeirri f járhæð, er sparaðist, og ef bygg- ingarkostnaður yrði meiri, þá skyldi draga lV-j.% af þeirri fjár- hæð, sem fram úr áætlun færi, frá umsaminni þóknun. Skyldi þó ekki í þessu sambandi koma til greina breytingar á byggingarkostnaði, sem stafaði af verðbreytingu á efni, vélum, farmgjöldum, trygg- ingum, verkalaunum, bifreiða- akstri o.sJfrv. Samkvæmt 8. gr. samningsins skyldi varnaraðili „bera tæknilega ábyrgð á fram- kvæmd verksins", en hvorki á að- keyptu fullbúnu efni né á vélum eða á útreikningi um vatnsrennsli, rúmmál og ummál gejonisins. — Fullnaðardrættir þeir, er varnar- aðili er sagður hafa þá gert, skyldu samþykktir af verkfræðiyfirvöld- um þeim, er hlut eiga að máli. Einnig skyldi varnaraðili vera háður því eftirliti og þeirri umsjón, sem þessi yfirvöld eða eftirlits- maður sóknaraðilja kynnu að hafa með framkvæmd verksins. Varnar- aðili skyldi gera tímaáætlun um allt verkið með tilheyrandi áætlun um efnisþörf, manmþörf og fjár-' greiðslu, er leggja skyldi fyrir trún aðarmenn sóknaraðilja til sam- þykktar. Og á meðan á verkinu stæði, skyldi varnaraðili senda sóknaraðila mánaðaryfirlit yfir framgang verksins, er sýndi notað efnismagn, vinnu og greiðslur. — Loks segir svo í niðurlagi 8. gr. samningsins: „Verksali (þ.e. varnaraðili) er um eins árs skeið eftir að rekstur stöðvarinnar hefur verið hafinn skyldur til að bæta úr þeim göllum, sem kunna að koma í ljós á virkj- uninni og stafa af vansmíðum. — Þessi ábyrgð nær ekki til vélanna og ekki heldur til tjóns, sem stafar af völdum náttúrunnar eða öðr- um ástæðum, sem verksala ekki verður kennt um.“ 1 9. gr. samningsins segir að endingu svo: „Rísi deilur milli verkkaupa og verksala út af skilningi á samningi þessum eða um atriði, er lúta að framkvæmd verksins, bæði meðan á virkjun stendur og eins á ábyrgð- arárinu, sker gerðardómur Verk- fræðingafélags íslands úr ágrein- ingnum, og skulu aðiljar hlíta þeim úrskurði.“ Samkvæmt ómótmæitri skýrslu varnaraðilja var byrjað á fram- kvæmd verksins haustið 1942, og gerði varnaraðili þá víðtækar taky- metermæhngar á svæði því, er má!i skiptir, þar á meðal á svæðinu kringum þrýstivatnspípuna. — Verkinu seinkaði þó frá því, sem ráðgert hafði verið, enda fengust ekki vélarnar nægilega snemma til þess að rekstur mætti héfjast á árinu 1943. Svo reyndist og, að verkið varð mörgum sinnum dýr- ara en ráð var fyrir gert, einkurn vegna verðhækkunar á byggingar- efni, hækkunar verkalauna, þving- aðrar eftirvinnu o.fl. Sónaraðili komst því í fjárþröng, sem þó greiddist úr veturinn 1944. Var nú unnið að virkjuninni það ár, og var lagningu þrýstivatnspípunnar lokið í októbermánuði 1944 sam- kvæmt ómótmæltri skýrslu varnar aðilja. Vér sérstök áherzla lögð á framkvæmd þeirra atriða verks- ins, er nauðsynleg þóttu vera tíl þess að orkuverið gæti sem fyrst tekið til starfa og gefið sóknar- aðilja tekjur. Loks hóf hann rekst- ur verksins 29. marz 1945, þó að allmargt væri þá enn eftir ófuil- gert. Sumarið 1945 var verkinu haldið áfram, og var stíflan meðal annars hækkuð um 6 m. Tímabilið frá október 1944 til maíloka 1946 liggur þrýstivatnsþípan eins og gengið var frá henni, og verða engin spjöll á jarðvegi við haná. Meðan varnaraðili enn vann að verkinu sumarið og haustið 1945, varð enn fjárþröng hjá sóknar- aðilja, og greiddi vamaraðili þá fyrir hann rúmar 670 þús. krónur, en 29. nóv. 1946 lauk verki varnar- aðilja. Var þá kominn til versins bæjarstjóri Siglufjarðarkaupstað- ar með verkfræðingi kaupstaðar- ins, ásamt einum verkfræðinga vamaraðilja, og gerðu verkfræðing arnir yfirlit um verk, sem ennþá voru óunnin þar í sambandi við orkuverið. Skuld sú, er varnaraðili taldi til hjá sóknaraðilja, stendur síðan óumsamin til 23. maí 1946. er aðiljar gerðu samning um hana með þeim hætti, að sóknaraðili viðurkenndi sig skulda varnarað- ilja kr. 722.912,25, „dog með For- behold overfor de Rettelser 1 Op- görelsen, som eventuelt vil frem- komme fra Statsrevisionens Side og fra den tekninske Revisions- kommission, sem er nedsat af „Samgöngumálaráðuneytið“ efter Anmodning fra Kommunen og Firmaet með eventuelt Fradrag iflg. Paragr. 6 i Kontrakten af 23. okt. 1942.“ Bæjarstjórn Siglu- fjarðarkaupstaðar skyldi gefa út skuldabréf fyrir kr. 600.000,00 með vöxtum og greiðsluskilmálum svo sem samið yrði, en afganginn skyldi greiða í síðasta lagi mánuði eftir að ríkisendurskoðunin hefði gefið sína skýrslu, þó aldrei síðar en 31. des. 1946. Síðast í maí 1946 varð jarðhrun nokkurt úr bakkanum neðan við þrýstivatnspípuna á 130—140 m kaflanum frá stíflu talið. Og i ágúst s.á. varð enn jarðhrun á köflunum ca. 54—63, 80—90 og 170, og í september 1946 mynduð- ust sprungur tvær, önnur á 54— 63 m kaflanum, ca. 20 m löng og ca. 2 m frá pípulegunni (Rörvæg), en hin 140—180 m frá stíflu og ca. 0,5 m frá pípunni (Rörside). — Sóknaraðili lét gera við spjöll þessi í júlí og október f.á. eftir skýrslu bæjarverkfræðings Siglufjarðar- kaupstaðar. Dagana 27. og 28. júní 1946 skoðuðu tveir verkfræðingar, ásamt einum verkfræðingi varnar- aðilja, verkið að tilhlutun raf- magnseftirlits rákisins, og gáfu verkfræðingarnir tveir álit sitt 10. júlí s.á. Telja þeir ýmislegt ógert og finna ýmislegt að því, sem gert hafði verið. Þar á meðal, að undir- staða þrýstivatnspípunnar muni varla verða talin örugg, með því að henni muni verða hætt vegna grjóthruns úr brekkunni, enda hafi þar hrunið úr bakkanum framan við pípuna, þar eð hann sé eigi grjótvarinn o.fl. Segist varnaraðili nú hafa gert sér i hugarlund, að sóknaraðili mundi ef til vill hugsa til að hafa uppi einhverjar kröfur vegna þessa. Nú virðist nokkur timi hafa liðið svo, að endurskoð- un, er getur í skilasamningi aðilja frá 23. ma'i 1946, varð ekki lokið, og segist vamaraðili hafa farið fram á það við sóknaraðilja, að fyrirvari sá, er í -samningunum greinir, yrði „bragt ud af Verden“, eins' og varnaraðili orðar það. Þetta sýnist verða til þess, að bæj- arstjórnin á Siglufirði skipar nefnd í málið þann 19. sept. 1946, en fyrst 9. okt. s.á. er varnaraðilja skýrt frá því í bréfi, að sóknaraðili ætti að hafa uppi kröfur á hendur honum í sambandi við virkjun Skeiðsfoss vegna margs, er vant- aði til fullnustu verksins, og vegna mistaka í framkvæmd þess, er varnaraðili bæri ábyrgð á. Telur nefndin 24 atriði þessarar tegund- ar. En af umræðum þeim, sem fram fóru milli nefndarinnar og verkfræðinga varnaraðilja hér í Reykjavík um atriði þessi síðast 1 september og október f.á. varð niðurstaðan sú, að nefndin kvaðst ætla að leggja til við bæjarstjórn- ina að sleppa öllum öðrum atriðum en þeim, sem vörðuðu þrýstivatns- pípuna. Það atriði óskaði nefndin, að lagt yrði undir úrlausn gerðar- dóms Verkijræðingafélags íslands. Taldi varnaraðiii með skirskotun til ábyrgðarákvæðis 8. gr. samn- ingsins frá 23. okt. 1942, að allar slíkar kröfur, þótt einhverjar hefðu verið, væri þá fyrntar, en samþykkti þó að leggja málið að því leyti sem það varðaði „Forsvar ligheden af Rörledningens Beligg- enhed“ til úrlausnar gerðardóms- ins, enda væri það gert eigi síðan en 31. okt. 1946, og, eins og í skeyti um samþykki þetta segir, „under Forudsætning af Betaling ifölge Gældsbevis og Overens- komst 23. Maj 1946.“ Samkvæmt tilmælum beggja aðilja var málio þannig afmarkað, tekið fyrir fyrsta sinni af gerðardóminum með undirrituðum dómendum þann 31. okt. f.á. Þess skal þegar getið, að varnaraðili telur sóknaraðilja að vísu ekki hafa efnt greiðslu- skyldu sína samkvæmt skuldabréfi og samningi 23. maí 1946, en hann hefur lýst yfir því í varnarskjali sínu dags. 30. nóv. f.á, fram lögðu í gerðardóm 2. des. f.á., að hann ætli sér ekki að stöðva mál þetta vegna áðurnefndra vanefnda. — Gerðardómendur hafa skoðað stað- háttu, og aðiljar hafa sótt málið og varið samkvæmt reglum um gerðardóm Verkfræðingafélags Is- lands. Kröfur sóknaraðilja, eins og þær eru að lokum fram fluttar í síðara sóknarskjali hans, eru þessar: 1. Að varnaraðili verði dæmdur til þeirrar vinnuskyldu, sem samn- ingurinn frá 23. okt. 1942 leggi honum á herðar, sem sé að færa þrýstivatnspípuna og nauðsynleg mannvirki í sambandi við hana á öruggan stað. En 'i þvi sambandi er það aðalkrafa hans, að pípan og mannvirki, sem nauðsynlega þarf að flytja með henni, verði færð vestur yfir Fljótaá, með þvi að þar sé öruggur grundvöllur undir hana. Til vara krefst hann þess að pípan verði færð til- „í línu, sem bláa línan á rskj. 40 segir til um, og verði þar gerður skurður handa henni og grafið niður á klöpp alla leið að stöðvarhúsi“. En ef gerðardómurinn telur heppi- légra og kostnaðarminna að grafa fyrir nógu þéttum og steinsteypt- um stuðlum niður á klöpp frá* stíflu niður að stöðvarhúsi, þá seg- ist hann ekkert hafa við það að athuga. Til þrautvara í þessum kröfulið gerir hann loks þá kröfu, „að þrýstivatnspípan verði færð eins og bláa strikið á rskj. 40 segir til um og þar grafinn skurður fyrir hana svo djúpt sem dómurinn telur hæfilega tryggt og undirbú- inn nógu tryggilega að áliti dóms- ins“, allt á kostnað varnaraðilja 2. Að vamaraðili greiði sóknar- aðilja fyrir orkutap meðan verið sé að færa þrýstivatnspípuna, og kostnað við bráðabirgðaviðgerð til tryggingar henni. 3. Að ef varnaraðili færi ekki mannvirkin á öruggan stað á sinn kostnað, þá greiði hann sóknar- aðilja 2 milljónir ísl. króna, kostn- að við bráðabirgðaviðgerð vegna

x

Siglfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.