Siglfirðingur


Siglfirðingur - 09.02.1950, Blaðsíða 1

Siglfirðingur - 09.02.1950, Blaðsíða 1
ÚrsEit kosninganna: Sjálfstœdisflokkurinn í Reykjavík fékk fleiri at^v. en hinir flokkarnir þrír samanlagt ENGINN ANNA BREYTING Á STYRKLEIKA FLOKK- í BÆJARSTJÓRN SIGLUFJARÐAR Það sem mesta athygli ivakti í nýafstöðnúm bæjar- og sveita- stjórnarkosningum, var hinn glæsilegi sigur Sjálfstæðisfl. í höfuðborg landsins. Hlaut flokk- urinn 14.367 atkv.' -og hreinan meirihluta, en hinir flokkarnir samanlagt 13.918 atkv. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur þannig bætt við sig 1377 atkv. frá Al- þmgiskosningunum í Iiaust, en Alþýðufl. tapað 400 atkv., komm- únistar tapað rúml. 630 atkv. og Framsókn tapað rúml. 600 atkv. Úrslit kosninganna hér í Siglu- firði urðu svo sem kunnugt er: Sjálfstæðisfl. 349 atkv. 2 fulltr. Alþýðufl..... 440 — 3 — Kommúnistar 519 — 3 — Pram£?.fl....212 —- 1) — Styrkleiikáhlutföll flolkkanna í bæjarstjóm Siglufjarðar eru þvlí hin sömu og fyrir kosningamar. Kosningáþátttaka varð allmiklu minni en í Alþingiskosningunum í haust, og atkvæðamagn allra flokkanna nokikuð lægra nú en þá, að undanskyldum Framsóknarfl., sem bætt hefur við sig nokkru atkvæðamagni, en heldur þó aðeins slínum eina fulltrúa (Sjá önnur úrslit á bls. 4). FRÁ BÆJARSTIÖRNARFUNDI Kommúnistar og kratar höfðu samstarf um kosn- ingu Rauðkustjórnar, endurskoðenda bæjarins, stjórnar Sparisjóðsins og endurskoðenda hans. Er hér að myndast vísir að meirihluta í bæjarstjórn?! Bjarni Bjarnason, ibæjarfógeti, kosinn forseti bæjarstjórnar S.l. mánudag kom hin nýkjörna bæjarstjóm saman til sáns fyrsta fundar. Jón Kjartansson, bæjar- stjóri setti fundinn og bauð bæjar- fulltrúana velkomna til vanda- Kommúnistar á undanhaldi Tapa yfir 630 atkv. í Reykjavík frá í haust og missa fulltrúa í bæjarstjórnum Akureyrar og Ólafsfjarð- ar til Sjálfstæðismanna Að undanskyldum kosningaúr- slitum í Neskaupstað leiddu ný- afstaðnar bæjar- og sveitastjórn- arkosningar í ljós, að kommún- istar eru hvarvetna á undanihaldi. Þeir töpuðu yfir 630 atkv. í Rvlk frá Alþingiskosningunum í haust, og misstu fulltrúa bæði á Akur- eyri og í Ólafsfirði. 1 Vestmanna- eyjum tapa kommúnistar rúmiun 200 atkv. frá kosningunum 1946 og á ísafirði rúmum 100. 1 þeim 10 bæjum, sem fengið höfðu kaupstaðarréttindi fyrir 1946 fengu kommúnistar samtals nú 10298 atkv., en höfðu 1946 pL0038. Sýnir það að viísu nokkurra atkvæða viðbót, en tekið tillit til fjölgunar kjósenda, er hér í raun- inni ekki einvörðungu um kyrr- stöðu að ræða, heldur athyglis- vert undanhald. Kosningaúrslitin í heild sýna því vaxandi pólitískan þroska hjá íslendingum; sýna, að straumur- inn liggur frá vinstri til hægri. — Kommúnistar geta ekiki falið fylg- ishnin sitt hvarvetna um land með hagstæðum úrslitum í einu einasta kjördæmi, eins og Mjölnir reynir í gær. Kommúnistablöðun- um þýðir ekki að láta, sem ein- vörðungu hafi verið kosið í Nes- kaupstað, heildarúrslitin sýna, að samra starfa. Að venju tók síðan aldursforseti, Gunnar Jóhannsson, að iþessu sinni, við stjórn fundar- ins. Var siðan gengið til forseta- ikosninga, og var Bjarni Bjama- son, forsetaefni Sjálfstæðisflokks- ins, kjörinn forseti ibæjarstjómar fyrir hið nýhafna kjörtámabil með 3 atkv. og hlutkesti milli hans og Gunnars Jóhannssonar, forseta- efnis kommúnista og Sigurjóns Sæmimdssonar, forsetaefnis Al- þýðuflökksins. Tók Bjami Bjarnason sáðan við fundarstjóm og fór fram kosning í hinar ýmsu og f jölmörgu nefndir ibæjarstjómar. Kosning í hinar helzu nefndir fóru sem hér segir: Allsherjarnefnd: Bjami Bjarna- son, Þóroddur Guðmimdsson, — Kristmar Ólafsson, Haraldur (Framhald á 3. síðu) þeir em á undanhaldi, og þeir vita að ókki verður feigum forðað. — Þeir, sem sáðu fræjum stéttarágs og erlendrar öfgastefnu d akur fósturmoldarinnar hafa uppsikorið fyrirlitningu og fylgistap. — Nú, sem oft fyrr, hefur sannast, að hver uppsker svo sem hann hefur til sáð. ELLI8I Síðastliðiim mánudag seldi Elliði afla sinn | Grimsby ífyrir £ 7946. Aflinn reyndist tæp 3200 kitt, en um 600 kitt voru dæmd ónýt. Elliði er (væntanlegur til Siglu f jarðar næsta þriðjudag, Bæjarstjórastarfið aug- lýst laust til umsóknar Á bæjarstjórnarfundinum s.l. mánudag var fram borin svohljóð andi tillaga: „Bæjarstjórnin samþykkir að auglýsa laust til umsóknar ibæjar-. stjórastarfið með umsóknarfresti til 20. þ.m. Jafnframt samþykkir Ibæjar- stjórnin að fara þess á leit við núverandi ibæjarstjóra, að hann gegni starfinu til 1. marz n.k.“ Tillagan var borin upp í tvennu lagi. Fyrri hlutinn var samþykkt- ur samhljóða, en kratarnir sátu hjá við sáðari hlutann, og er það uppátæki þeirra látt skiljanlegt. HEIESÚVERND, tímarit Náttúrulækningafélags íslands, 3. heí'ti 1949, er nýkomið út, fjölbreytt og vandað að efni og frágangi. Ur eínisinnihaldi má nefna þetta: Græni krossinn í Sviss (Jónas læknir Kristjánsson) Leið út úr ógöngum, hugleiðingar um tóbaksnautn (Vilhjálmur Þ. Bjarnar). Vöm og orsök krabba- meins III: Kraibbamein er hæg- fara eitrun (Björn L. Jónsson). Heitur matur og krabbamein. Rannsókn á áhrifum mataræðisins um meðgöngutámann á sængur- konuna og barnið. Lungnakrabbi og reykingar. Spurningar og svör. Uppslkriftir. Félagsfréttir o.fl. — Ritstjóri er Jónas Kristjánsson, læknir. ' SVEINSPRÓF ★ Sveinsprófi hafa lokið hér 1 Siglufirði: í rennismíði Hallur Sig- urbjörnsson, í vélvirlkjn Ingvi Br. Jakobsson og í húsasmíði Skúli Jónasson. X

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.