Siglfirðingur


Siglfirðingur - 08.04.1953, Qupperneq 1

Siglfirðingur - 08.04.1953, Qupperneq 1
Lausn ÖLAFUE KAGNAKS bœjarútgerðarmálanna Ríkisstjórnin ábyrgist milljón króna lán til að tryggja rekstur togaranna í bænum og skapa þeim heilbrigðan rekstrargrundvöll. AÐDKAGANDINN Snemma í febrúar kaus bæjar- stjórnin nefnd til suðurferðar, þeirra erinda að reyna að selja Síldarverksmiðjum ríkisins togar- ana Elliða og Hafliða, með þeim skiiyrðum þó, að togararnir yrðu héðan gerðir út, með siglfirzkum áhöfnum; leggðu að öðru jöfnu afla sinn hér á land, og að Siglu- fjarðarbær ætti forkaupsrétt á togurunum væru þeir seldir aftur. Samþykkt þessi var gjörð með atkvæðum Alþýðuflokksins, Fram sóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins, en socíalistar greiddu þar einir atkvæði á móti. Þessi bæjarstjórnarisamþykkt átti sér eðlilegan aðdraganda. — Bæjariútgerðin var í botnlausu skuldafeni og taprekstri, skuld- aði sjómönnum, landverkamönn- um, bönkum, stofnlánadeild, vá- tryggingarfélögunum og olíufélög- unum, og var auk þess komin undir hamarinn. Bæjarútgerðin hafði tapað á s.l. tveimur árum meira fé en öll álögð útsvör bæj- arbúá árin 1951 og 1952, og tog- ararnir hafa legið mánuðum sam- an bundnir við bryggju, b'íðandi uppboðs, víðsfjarri því að reyn- ast iífræn atvinnutæki, svo sem af þeim var vænzt. Það er í skemmstu máli frá að segja, að ekki tókst sala á tog- urunum, en hinsvegar tókst láns- ifjárútvegun að upphæð 4,5 millj- ónir með ríkisábyrgð, en gegn vissum skilyrðum þó. Skilyrði þessi hafa þegar birzt í einu bæj- arblaðanna og verða því ekki endurprentuð hér, en lítillega far- ið inn á þau skilyrði, sem margir eru einna óánægðastir með. [W-.i SKILYRDIN Menn geta ekki vænzt þess, að taka 4,5 milljón króna upp úr götunni á þessum tíma lánsfjár- skomtsins, án þess að þurfa nokk- uð á sig að leggja og án þess að tryggja lánveitandanum fé sitt á einn eða annan hátt. Og vissulega yæru ýmis þau skilyrði, sem sett eru fyrir lánfjárútveguninni til togaranna, æskilegri á annan hátt. En þau eru þó engan vegin eins xnyrk og menn vilja vera láta. Það sem menn helzt vilja setja út á skilyrði þessi skilst mér vera: 1) Að iRauðka skuli veðsett vegna togaranna. Nú er því til að svara, að Rauðka var áður veðsett irákis- sjóði og öðrum fyrir 19,8 millj. m.a. vegna Rafveitunnar, og ca 1 millj. að auki með veði í lausa- fé, og þótt þessi veðsetning hækki úr kr. 19,8 millj. 'i kr. 24,3 millj. fyrir tilstilli togaranna, eykur það sáralítið • hættuna á, að bær- inn missi verksmiðjuna úr hönd- um sér. Það skal að gefnu til- efni tekið fram, að Rauðka er ekki veðsett S.R., heldur ríkis- sjóði, sem fyrir átti að mestu leyti þau veðbönd, sem á verk- smiðjunni voru. 2) Að útsvör skipverja verði látin sitja inni sem áhættufé hjá S.R. Því er til að svara, að s.l. tvö ár hefur bæjarsjóður ekki séðeinn eyri af útsvörum þessara manna, þar eð bæjarútgerðin hefur „fryst“ þau inni, og til viðbótar öll útsvör landverkamanna og skrifstofufólks. Hér er þó samn- ingsbundið, að aðeins útsvör skips verjanna standi inni sem áhættu- fé hjá útgerðarstjórn skipanna. 3) Að S.R. eigi að gera tog- arana út á ábyrgð og áhættu bæjarsjóðs. I i Þetta skilyrði ríkisstjórnardnn- ar fyrir lánveitingunni er nokkuð umdeilt. Þess ber þó að gæta, að með samþykkt bæjarstjórnar, sem um getur í upphafi þessarar greinar, lýsir bæjarstjórnin því raunverulega yfir, að hún treystir S.R. ekki síður fyrir útgerð tog- aranna en því útgerðarformi, sem fyrir var. Einnig ber á það að líta, að það var almenn skoðun hér í bænum, að breyta þyrfti til um stjórnarfyriirikomulag þessa reksturs. Og lítil ástæða er til að gera ráð fyrir, að ríkisstjórnin ætlist til að bæjarsjóður standi undir hugsanlegum reksturshalla togaranna, þar sem hún hefur á annað bor/ð hlaupið undir bagga i þessu máli og engu bæjarfélagi sýnt jafn mikla aðstoð undan- farið og Siglufirði, jafnt i þessu máli sem öðrum, og má 1 því sambandi nefna seinustu aðstoð til Rafveitunnar, þar sem hún veitir tæprar milljón krónu ábyrgð til áframhaldandi stækk- unar Skeiðsfoss, en það var eitt. af þeim málum, er sendinefndin vann líka að syðra. 4) Að samningur við S.R. sé ekki uppsegjanlegur nema með samþykki ríkisstjórnaránnar, — meðan ríkissjóður standi í ábyrgð fyrir þessum fjórum og hálfri milljón króna. Þetta er að vísu illt ákvæði frá okkar bæjardyrum séð, en þó skiljanlegt frá sjónarmiði ríkis- stjórnarinnar. Þó má á að það benda, að sá varnagli er fyrir hendi, að eigandi atvinnutækja hlýtur að hafa heimild til að hætta rekstri þeirra, þegar hon- um henta þykir, og enginn getur neytt okkur í áframhaldandi tap- rekstur í það óendanlega. Fari hinsvegar svo, að okkur takizt að borga þessar fjórar milljónir, er ríkisstjórnin er í ábyrgð fyrir, stendur okkur opin leið til upp- sagnar á samningnum ef okkur henta þykir. 5) Að bærinn þurfi að semja um lausasikuldir bæjarútgerðar- innar. Til þess að hægt yrði að koma togurunum á reksturshæfan grun völl var það álit þeirra aðilja, sem um þessi mál fjölluðu, að 4,5 millj. kr. nægðu ekki, nema tækist að semja um talsvert af lausaskuldum útgerðarinnar, — þ.á.m. skuldir til vátryggingar- félaganna o g olíufélaganna og ýmislegt af minni venzlunarskuld- um. Gert var ráð fyrir, að ef samningar fengjust á skuldum þessum til tveggja ára væri grund, völlur fenginn. Áður en nefndin fór frá Reykjavík var búið að semja um allar stærstu skuld- irnar. Samningar náðust á þeim grundvelli, að % hluti væirii greidd ur strax af því lánsfé, sem fékkst, i/3 á að greiðast eftir eitt ár og Vs hluti eftir tvör ár. 6) Að togararnir leggi upp bræðslusíldarafla hjá Rauðku eða S.R. Um þetta atriði, hvar togararn- ir leggi upp bræðslusíldanafla, er ekki um samið. Á það má þó benda, að komi til mála, að tog- ararnir verði gerðir út á síld- veiðar, mun útgerðiú þurfa að semja við Rauðku um öll. veiðar- færi, sem eru í eign verksm. Rauðku. En út frá því verður að ganga, að hin nýja framkvæmda- stjórn togananna noti veiðiútbún- að, sem er í eigu bæjarins í stað þess að kaupa nýjan. Ef út í þá sálma á að fara að ætla framkvæmdastjóra tilhneig- ingu til að láta hagsmuni verk- smiðjanna sitja ifyrir hagsmun- um bæjarins í sambandi við rekstur togaranna, má vitaskuld telja upp atriði í það óendanlega. En bæjarstjórnin gengur inn á þessa breytingu á framkvæmda- stjórn togarianna, m.a. vegna þess, að hún treystir Sigurði Jónssyni til að stjórna þessum rekstri án hlutdrægni og án þess að ganga á hag bæjarins. HEFUR VÉRIÐ GENGIÐ A SJÁLFSTÆÐI BÆJARINS? Til eru þeir sem álíta, að með þessum aðgerðum hafi verið freklega gengið á sjálfsforræði bæjarins. Sannleikurinn er hins- vegar sá, að irdkisstjórnin hefur lyft bæjarútgerðinni yfir örðugan hjalla með þvi skilyrði, að fram- kvæmdastjórn hennar annaðist 'í framtiðinni aðilji, sem hún treyst- ir til að skapa útgerðinni fram- tiðartilveru. Þótt þannig hafi verið frá mál- um gengið, er rangt að segja, að fjáriræði bæjarins hafi verið frá honum tekið. Þvert á móti er hér um að ræða tilraun til að létta á þeim þunga, sem bæjarútgerðin fram að þessu hefur verið á bæn- um, og sem var farinn að hvíla Framhald á 4, siðy

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.