Siglfirðingur


Siglfirðingur - 12.08.1954, Qupperneq 2

Siglfirðingur - 12.08.1954, Qupperneq 2
2 SIGLFIRÐINGUR Siglfirðingur MALGAGN siglfirzkra SJÁLFSTÆÐISMANNA Ritstjórn: Blaðnelndin Ábyrgðarmaður: ólaíur Ragnars Auglýsingar: Frane Jónatansson SfLDVEIÐIN Framhald af 1. síðu Bf engjnn væri til að trufla hana á leið sinni upp, mundi hún róleg leggja hér að landi, eins og í gamla daga. Sé nú þetta rétt at- hugað, er fullkomin ástæða fyrir Islendinga að leggja einhverskon- ar hömlur á þennan yfirgang er- lendra síldveiðiskipa. Hvað myndu Norðmenn gera, ef Islendingar sigldu sínum s'ild- veiðiflota til Noregs og færu að stunda veiðar á hafinu meðan Norðmenn biðu eftir að síldin kæmi inn á venjuleg mið. Þeir yrðu sjálfsagt ekki lengi að hugsa um að reka Islendinga af höndum sér. 'Vel má vera, að sumum finnist þetta firrur einar, en vilja menn iþá ekki kynna sér háttu Norð- manna á þessu sviði. Hvernig haga þeir sér gagnvart síldinni? Þeir fara aldrei langf til hafs til síldveiða á vetuma. Þeir senda s'ín eftirlitsskip til að athuga hvað síldargöngunni líður og hvemig hún hagar sér. Svo þegar síldin er gengin á hentug veiðisvæði, þá hefjast síldveiðamar. Við skulum hugsa okkur, að ef svipuð aðferð væri viðhöfð við síldargöngur hér, að síldin komi ótrufluð og óáreitt eftir sínum venjulegu leiðum upp á gmnnmiðin, þar sem hún hefði sinn vissa dvalartíma. Það leikur varla á tveim tungum, að þá væri annað ástand en það, sem nú hef- ur skapazt veg,na margra ára afla- brests. Því verður ekki neitað, að síð- an síldin fór að veiðast hér við land og verða að þýðingarmikilli lútflutningsvöra, hafa fyrir komið einstök aiflaleysisár. Það má telj- ast eðlilegt. En veruleg árleg veiðitregða kom ekki í ljós fyrr en útlendingum var bannað að hafa hér söltunarstöðvar í landi og veiða síld innan vissra tak- marka. Þá beindu útlendingar flota sínum á djúpmiðin, á venju- legar s'íldarleiðir, og ösluðu þar í síldinni með ýmiskonar veiðitækj- um. Þetta ónæði varð svo til þeirr ar traflunar, að síldin breytti um strik, hélt djúpt austur í stað 'þess að halda upp að landi. 'Hliðstætt dæmi er t.d. með þorskveiðar sumsstaðar á Norður- landi og einna gleggst á Skaga- firði. Áður en vélbátaútgerðin hófst, var á hverju vori tryggjur þorskafli norður með Skaga. Réru þá á hverju ári árabátar, sem héldu til við fuglaveiðar í Drang- ey og réru þá í Selnesdjúp og norður hjá „Þursa“ á tryggan fisk. Þegar svo vélbátar frá Sigju- firði fóra að sækja fisk vestur á Skagagrunn *vor eftir vor, rýrn- aði strax ifiskgengdin inn með Skaganum og hvarf með öllu. Þama hafa vélbátarnir truflað fiskgönguna og hún beinzt austur í djúpin, í stað þess að halda ó- áreitt á fornar stöðvar inn með Skaga. Þetta kann einhverjum að þykja hlægilegt og undrunarefni, að nokkrum manni 'skuli detta í hug, að hægt sé að hafa áhrif á þorsk- eða síldargöngur. En nú má til athugunar taka. Sögur herma að í fornöld hafi allir firðir og flóar verið fullir af allskonar fiski, Þá hélt fiskurinn sínum hætti að hverfa úr fjörðum Norð- anlands, þegar hausta tók og kom aftur með vorinu. Sjálfsagt hef- ur fiskurinn haft þennan hátt á. frá upphafi, og hefur hann enn. Eftir því sem landsmenn sinntu betur fiskveiðum og veiðitækin bötnuðu, rýmaði fiskaflinn, sem hefur líklega komið til af því, að veiðst hefur meira en viðkoman var. Þó hélt fiskurinn sínum upp- tekna hætti, að koma inn á firð- ina á hverju vori, og voru glöggir menn alveg vissir um hvenær ætti að hefja róðra, og sjaldan sem afli brást. En svo komu hin stórvirku veiðitæki til sögunnar og fara að taka fiskinn á göng,u sinni inn í firðina. Þá breytist skyndilega, engin fiskgengd og aflatregða. Þetta ætti að vera ljóst hverjum manni, sem hefur veitt þessu at- hygli. Það er erfitt að fullyrða, en ákaflega sterkar líkur benda til þess, að erlendi veiðiflotinn sé að eyðileggja síldveiði okkar, og því nauðsynlegra öllu að taka það til rækilegrar athugunar. Kaupum ]/2 flöskur og lyfjaglös fyrst um sinn. APOTEKBE) Kjötmeyrir gerir gamalt rollukjöt Ijúf- fengt og meyrt. Fæst í APOTEKINU Air-wick á kr. 15,00 og kr. 12,00 Fæst í APOTEKINU Vtsvarsskráin 1954, ásamt útsvarsstigum og álagningarreglum, liggur frammi til athugunar bœjarbúum í Verzlunarfélagi Siglufjarðar h. f., Tún- götu 3, frá 3.—18. ágúst n. k. Utsvarskœrur þurfa að hafa borizt bœjarskrif- unni fyrir 18. ágúst n. k. — Þó hafa siglfirzkir síld- veiðisjómenn kœrufrest til 8. september n. k. Siglufirði, 3. ágúst 1954. ! ’ • BÆJARSTJÓRI o O o o n o o n n n n n n n n n n n n n n n n n n n n n n n Auglýsing um manntalsþing Hið árlega manntalsþiug f Siglufjarðarkaupstað verður lialdið í bæjarþingsalnum við Gránugötu liér í bæ, laugardaginn 21. ágúst 1954 kl. 10 f.h. — Falla þá í gjalddaga eftirtalin gjöld fyrir árið 1954: Fasteignaslíattur Tekju- og eignaskattur Lestagjald ■ 1 Vitagjald Námsbólcagjald Vélaeftirlitsgjald Persónuiðgjald til almannatrygginga Atvinnurekstrar- og áhættuiðgjald Mjólkuieftirlitsgjald Sóknargjald og kirkjugarðsgjald Er hér með skorað á alla þá, sem inna eiga af hendi gjöld þessi á yfirstandandi ári og ekki liafa þegar gert {>að, að gera skil á þeim á hérmeð auglýstu manntalsþhigi. Bæjarfógetinn í Siglufjarðarkaupstað 24. júlí 1954. EINAR INGIMUNDARSON TILKYNNING Nr.1/1934. Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á brauðum: Franskbrauð, 500 gr....................... kr. 2,60 Heilhveitibrauð, 500 gr.................... — 2,60 Vínarbrauð, pr. stk......................... — 0,70 Kringlur, pr. kg............................ — 7,60 Tvíbökur, pr. kg............................ — 11,55 Rúgbrauð, óseydd, 1500 gr................... — 4,00 Normalbrauð, 1250 gr........................ — 4,00 Séu nefnd brauð bökuð með annarri þyngd en að ofan greinir, skulu þau verðlögð lí hlutfalli við ofangreinll verð. Á þeim stöðum, sem brauðgerðir eru ekki starfandi, má bæta sannanlegum flutningskostnaði við hámarksverðið. Utan Reykjavlkur og Hafnarfjarðar má verðið á rúgbrauðum og normalbrauðum vera kr. 0,20 hærra en að framan greinir. Söluskattur er innifalinn í verðinu. 4. »— * < * .. Reykjavík, 30. júlí 1954. , -v>, - , ... . , . VERÐGÆZLUSTJÓRI

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.