Siglfirðingur - 27.08.1954, Side 2
2
SIGLFIRÐINGUR
■‘s-fc f :■
Hilmar Jónsson frá Tungu
MINNINGARÖRÐ
Siglfirðingur 1
MÁLOAGN siglfibzkba
SlALFSTÆDISMANNA
Ritstjórn: Blaðnelndia
Abyrgðarmaður: Ólalur Ragnars
Auglýsingar: Franc Jónatansson
ATVINNUVANDAMÁLIN
(Framhald af 1. síðu)
vinnu fyrir bæjarbúa á meðan
unnið er að framtíðarbyggingu
öruggs atvinnulífs.
Má í þessu sambandi benda á
atvinnutækin, sem bærinn á, tog-
arana. Nú þarf að vinna fljótt og
vel að því, að þeir komist á veið-
ar, og leggi upp afla sinn hér.
Það þarf einnig að vinna að því,
að hraðfrystihúsin fái nægileg
hráefni til vinnslu.
Það er ekki annað vitað, en
hraðfrystihúsið Hrímnir rísi upp
sem nýtízku vinnslustöð, samkv.
samningum, sem Hallgrknur
Oddsson hefur gjört við bæinn.
Ýta þarf undir framkvæmdir þar.
Þá verður að vinna að því, að
lengdur verði starfstími Tunnu-
verksmiðjunnar og henni útvegað
nægilegt efni til að vinna úr.
Loks má nefna vatnsveituna.
Vinna við hana verður talsverð,
eða minnsta kosti getur bjargað
og firrt menn atvinnuleysi, ef
byrjað væri strax á vinnu þar.
Þá er og einnig eitthvað tals-
vert eftir við flóðvarnargarðinn.
Á þetta er nú bent, bæði með
framtíðaruppbyggingu atvinnulífs
svo sem togarana og hraðfrysti-
húsin og svo ígripavinnuna eins
og vatnsveituna og flóðvarnar-
garðinn, til þess nú, meðan annað
er ekki fyrir hendi að skapa at-
vinnu. Annars er það nauðsyn, að
vatnsveitan verði fullgerð, annað
gengur ekki, ef nokkur vinnsla
verður í hraðfrystihúsunum. —
Þetta er nú það, sem grípa má til
strax og verður að vinna ötullega
og markvisst að.
Bæjarstjórninni er fullljóst
ástandið í lífsafkomu bæjarbúa
og mun að minnsta kosti meiri-
hluti bæjarstjórnar, hafa hugsað
rækilega um vandamálin og mun
leggja fram sínar tillögur til úr-
lausnar í bráð.
Þegar um þa ðer. að ræða að
leggja grundvöll að byggingu ör-
uggs atvinnulífs hér í bæ, má
strax benda á, að til þess að sá
grundvöllur verði traustur, verða
vinnubrögðin og starfaðferðir að
hagsmunamálum bæjarins að
taka miklum stakkaskiptum, og
mun verða síðar um þá hhð máls-
ins rædd.
★ Minningargrein um frú Sigríði
Stefánsdóttur verður að bíða
næsta blaðs vegna rúmleysis.
Hann lézt af slysförum á Kefla
víkurflugvelli 16. þ.m. Hafði hann
verið við byggingu flugskýlis þar,
og var við vinnu sína ofarlega í
byggingunni, þegar hann af ein-
hverjum ástæðum missti fótanna
og hrapaði til jarðar með þeim
afleiðingum, að hann kom ekki
til meðvitundar og andaðist
stuttu síðar.
Hilmar heitinn var búsettur
hér, og fór, eins og fleiri suður á
land í atvinnuleit.
Hann var fæddur í Tungu í
Stíflu árið 1914, sonur sæmdar-
hjónanna Sigurlínu Hjálmarsdótt-
ur og Jón G. Jónsson þáverandi
bónda og hreppstjóra, sem nú eru
búsett hér.
Hilmar ólst upp á heimili for-
eldra sinna til fullorðins ára, og
átti því láni að fagna að eiga yn-
dælt æskuheimili, sem stjórnað
var af foreldrum hans með mikl-
um myndarbrag, og vandist þar
umsvifamikilli sveitavinnu.
Árið 1935 gekk Hilmar heitinn
að eiga heitmey sína Magneu
Þorláksdóttur frá Gautastöðum í
Stíflu og hófu þau þegar búskap
á hluta af Tungu, en brugðu búi
1943 og fluttu til Siglufjarðar.
Eignuðustu þau 3 efnileg börn.
Hilmar heitinn var velgerður
maður, greindur vel, greiðvikinn
og góðviljaður sínu samferðafólki.
Hann var óvenju fjölhæfur, prýði
lega handhagur bæði á tré og
járn. Fór þar saman vandvirkni
og góð afköst, því fjarri skapi
hans var dundur og slén við
vinnu eða hroðvirkni.
Hann var söngvinn í bezta lagi.
Sönglistin var honum mjög hug-
kær. I þeim efnum var hann að
vísu dálítið hlédrægur, og ekki
kvað neitt að honum sem söng-
manni, sem sjálfsagt hefur staf-
af af næmum smekk og miklum
kröfum til sjálfs sín, en oft heyrð
ist hann nunna við störf sín
lög, sem hljóðnæm eyru hans
höfðu heyrt. Tónaregnið, sem að
eyrum barst svalaði sál hans eins
og regnið blóminu eftir þurrk.
Hann lék forkunnarvel á harmón-
íku, settlega og taktfast, og var
eftirsóttur að spila fyrir dansi.
Einnig átti hann orgel harmóní-
um, sem hann lék á sér til un-
unar. Á þessu sviði var hann
alveg sjálfmenntaður. Má óhætt
fullyrða, að ef hann hefði notið
þeirrar tilsagnar, sem nú býðzt,
mundi hann hafa orðið atkvæða-
mikill á sviði sönglistarinnar.
Hilmar heitinn var vinmargur.
Öllum, sem kynntust honum vel,
þótti vænt um hann. Hann var
fremur hæggerður og seinn til
kynningar, en dagleg framkoma
hans og hlýlegt viðmót var flgst-
um geðfelld og varð til þess, að
menn sóttu frekar eftir vináttu
r
hans. —Vandamenn og vinir sitja
hnýpnir og trega lostnir við frá-
fall þessa góðvinar.
Spurningin verður áleitin: Hví
Hví var þessum vini vorum svo
skjótt beður búinn?
Okkur verður svarafátt. Á
Á skilnaðarstundum sem þessari,
finnum við bezt, hve við erum
veik og fávís.
Frú Sigrún Guðlaugsdóttir Hen
riksen lézt að heimili sínu hér í
bæ 6. þ.m. Kenndi hún sjúkleika
á síðastl. vetri og var um skeið
á sjúkrahúsinu hér til lækninga.
Var hún komin heim af sjúkra-
húsinu og tekin við stjórn heim-
ilisins. En að kvöldi dags 6. þ.m.
missti hún snögglega meðvitund
og andaðist eftir skamma stund.
Frú Sigrún var dóttir Guðlaugs
sál. Sigurðssonar skósmiðs og
konu hans Petreu sál. Sigurðar-
dóttir. Voru þau hjónin velmetin
hér í bæ.
Sigrún giftist Ole Henriksen út-
gerðarmanni hér í bæ, og eignuð-
ust þau 3 börn, 2 drengi, upp-
komna og eina stúlku innan við
fermingaraldur.
Ung að árum stofnaði frú Sig-
rún sitt eigið heimili með eigin-
manni sínum. Henni var heimilið
kært. Það var hennar ríki, sem
hún stjórnaði með dugnaði og ráð
deild. Umhugsunin um að skapa
unaðslegt heimili með elskhuga
sínum og börnum var fyrst og
síðast. Með prúðmennsku sinni
og lipurð umgekkst hún alla, en
þó ber heimili hennar bezta vott-
inn um þá skapgerð. Hún var
ekki gefin fyrir afskipti af mál-
um utan heimilisins, og því hefur
fráfall hennar ekki víðtæk áhrif
á opinberan félagsskap, en ömur-
legur tómleiki grípur heimilið. —
Nú er hún fallin frá hugumprúða
konan, sem stóð ávallt hugrökk
og þétt við hlið eiginmanns síns
í bríðu og stríðu og tók þátt í
öllum hans störfum; konan, sem
lifði með börnum sínum og með
sannri móðurumhyggju leysti úr
vandræðum þeirra og strauk
mjúkum móðurörmum um vanga
þeirra. Það má því með sanni
segja, að skjótt hafi sól brugðið
sumri á því heimili, og sár harm-
ur kveðinn að eiginmanni, börn-
um og öðrum nánum vandamönn-
um. En gæfan er sú og gleði, að
eiga ljúfar og fagrar endurminn-
Þjóðskáldið Matthías Jochums-
son lýsir því af sinni alkunnu '
snilld í þessu stefi:
Veikur maður, hræðstu eigi,
hlýddu;
hreyk þér eigi, þoldu, strýddu.
Þú ert strá, en stórt er Drottins
vald.
Hel og fár þér finnst á þínum
vegi,
fávís maður, vittu, svo er eigi.
Haltu fast í Herrans ldæðafald,
láttu geysa lögmál fjörs ognauða,
lífið hvorki skilur þú né þel.
Trú, þú — upp úr djúpi dauða
Drottins rennur fagrahvel.
Hvíl þú í friði. Blessuð sé minn-
ing þín. P. E.
ingar um góða eiginkonu og ást-
ríka móður.
Jarðarför frú Sigrúnar fór
fram 20. þ.m. að viðstöddu fjöl-
menni og fór sú athöfn mjög
virðulega fram.
Blessuð sé minning þessarar
mætu konu.
Ávarp til Siglfirðinga
Siglfirðingar! Samnorrœna sund-
keppnin hefur nú staðið yfir á fjórða
nxánuð.
Hver er svo árangur okkar? Hann
er mjög svo lélegur. Hver er ástæðan
fyrir þessu áhugaleysi, sem er þó
mest ríkjandi hjá fullorðna fólkinu?
Aftur á móti hafa börnin sýnt sér-
stakan dugnað og áhuga, enda eiga
þau heiður skilið fyrir frammistöð-
una.
Ungir knattspyrnumenn hér í hæ
hafa sýnt mikinn dugnað í sumar.
Þeir hafa unnið hverja keppnina af
annarri, hæði við Akureyringa og
lsfirðinga. Þökk sé þeim.
Slíkan sigur ættum viðað geta
unnið í samnorrænu sundkeppninni
og innbyrðis keppninni við Vest-
mannaeyjar og tsafjörð. Iín keppni
er um það milli þessara bæja, hver
bætir hlutfallslega mestu við sig frá
sundkeppninni 1951.
Bæjarstjórnin hefur ákveðið, að
sundlaugin verði opin til 15. sept. svo
að hinir mörgu Siglfirðingar, sem
eiga eftir að þreyta 200 metrana,
geti lokið því fyrir þann tíma. Sund-
laugin verður opin frá 1. sept. til 15.
sept. daglega frá kl. 2e.h. til 7 e.h.
Slíkan sigur ættum við að geta
bvetja ykkur til þess að synda 200
metrana. Einnig viljum við hvetja
þá, sem lokið hafa sundinu til þess
■að hafa áhrif á alla, sem geta synt
vegalengdina. Nú er um að gera að
allir standi sig; heiður Islands og
bæjarfélags okkar er í húfi.
Siglufirði, 27. ágúst 1954.
Þ. Ragnar Jónasson
settur bæjarstjóri.
Baldur Eiríksson
forseti bæjarstjórnar Siglufjarðar
SigurSur Gunnlaugsson
form. Norrænafélagsins í Siglufirðí
fíragi Magnússon
form. Knattspyrnufél. Siglufjarðar
Helgi Sveinsson
forrn, Iþróttabandalags Siglufj,
f
Frú Sigrún Guðlaugsdóttir Henríksen
MINNINGARORÐ