Morgunblaðið - 30.04.2011, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 30.04.2011, Qupperneq 4
VIÐHORF Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ég fagna þeirri ákvörðun KSÍ og Fylkis- manna að færa leik Fylkis og Grindavíkur á mánudagskvöldið yfir í Kórinn í Kópavogi. Málið er afskaplega einfalt. Það er allt annað að spila fótbolta á rennisléttu gervi- grasi í hæsta gæðaflokki en á grasvelli sem ekki er tilbúinn fyrir þau átök sem fylgja 90 mínútna leik. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er mikill gæðamunur á gervigrasinu í Kórnum og gervigrasinu á Stjörnuvelli þar sem leikið er allt sumarið í efstu deildum karla og kvenna. Og að auki fer leikurinn fram í húsi þar sem aðstaða fyrir áhorfendur er glæsileg. Það mun fara ákaflega vel um stuðnings- menn Fylkis og Grindavíkur í Kópavoginum á mánudagskvöldið. Þetta er einfaldlega það sem allir verða að vera viðbúnir að gera, þegar spilaður er fótbolti á Íslandi í byrjun og lok tímabils. Sérstaklega þegar það hefst 1. maí eins og þetta árið. Það er ákaflega skiljanlegt að Grindvík- ingar hafi ekki verið tilbúnir til að víxla leikjum og mæta Fylki á sínum velli á mánudagskvöldið. Þá hefðu þeir þurft að hefja mótið á tveimur leikjum á sínum velli og sett hann í uppnám. Sumir berja enn höfðinu við steininn og tuða um að Íslandsmótið eigi ekki heima innanhúss. Þeir hinir sömu ættu þá að beita sér fyrir því að mótið hefjist aldrei fyrr en eftir miðjan maí. Eða bara í byrjun júní svo þeir þyrftu ekki að horfa upp á þessi ósköp. Kannski fá einhverjir bakþanka ef hann brestur á með sól og blíðu á mánudaginn. Varla þó vallarstjórinn á Fylkisvelli. Morgunblaðið/RAX Fylkisvöllur Guðmann Hauksson vallarstjóri mundar sögina en eins og sjá má vantar mikið uppá að völlurinn sé tilbúinn til að taka við 90 mínútna fótboltaleik á mánudaginn kemur. Ánægjuleg ákvörðun 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 2011 Körfuknattleiksþjálfarinn sigur- sæli Sigurður Ingimundarson hefur gert samning við Keflavík um að stýra karlaliði fé- lagsins næstu tvö árin. „Hér er gott að vera,“ sagði Sigurður þegar Morgun- blaðið ræddi við hann í gær en hann þjálfaði bæði karla- og kvennalið félags- ins í áraraðir með frábærum árangri. Karlaliðið hefur fimm sinnum orðið Íslands- meistari undir hans stjórn, 1997, 1999, 2003, 2005 og 2008, og kvennaliðið fimm sinnum, 1992, 1993, 1994, 1996 og 2004. Stemningin alltaf sú að berjast um titla „Við ræddum saman eftir að Guðjón Skúlason ákvað að halda ekki áfram með liðið. Stemningin í Keflavík er alltaf sú að berjast um titla. Nú förum við yfir málin í ró- legheitunum og sjáum hvaða leik- menn verða hjá félaginu. Við reyn- um að keyra þetta aðeins upp. Það er verið að vinna á fullu í leik- mannamálum,“ sagði Sigurður enn- fremur. Spurður hvort einhverjir leikmenn væru með lausan samning sagði Sigurður að Keflvíkingar væru að skoða mál Sigurðar Þor- steinssonar. Sigurður hætti með Keflavíkur- liðið vorið 2009 og gerðist þjálfari Solna í Svíþjóð. Dvölin þar var þó stutt því Sigurður sagði upp í byrj- un tímabils og sneri aftur heim. Þá tók hann við þjálfun Njarðvíkur- liðsins og stýrði því tímabilið 2009- 10 og svo fyrri hluta síðasta tíma- bils en hætti störfum að tólf um- ferðum loknum. kris@mbl.is Sigurður kominn aftur í Keflavík Sigurður Ingimundarson Undanúrslitunum á Íslandsmóti liða í keilu lauk í fyrrakvöld. Í karlaflokki vann ÍR-PLS sigur á ÍA-A, 30:10, og KFR-Lærlingar unnu ÍR-PLS, 27:13. Það verða því ÍR-PLS og KFR-Lærlingar sem leika til úrslita. Í kvennaflokki unnu KFR- Afturgöngur sigur á ÍR-Buffi, 22:18, og KFR-Valkyrjur unnu ÍR- TT, 30:10. Lið KFR-Afturgangna og KFR-Valkyrja mætast því í úr- slitum. Fyrstu úrslitaleikirnir fara fram á mánudagskvöld klukkan 19 og lið sem fyrr nær 30 stigum hampar Ís- landsmeistaratitlinum. vs@mbl.is Úrslit í keilu á mánudaginn FÓTBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslandsmeistarar Breiðabliks og stór- lið KR ríða á vaðið þegar Pepsi-deild karla í knattspyrnu hefst annað kvöld. Liðin mætast klukkan 19:15 á Kópavogsvellinum og er það viðeig- andi fyrsti leikur á 100 ára afmæli Ís- landsmótsins. Blikar stóðu uppi sem sigurveg- arar í fyrsta skipti í sögu félagsins að lokinni síðustu umferð í fyrra og þetta verður því fyrsti alvöru leikur þeirra sem Íslandsmeistarar. „Ég hef ekki hlerað marga bæjarbúa en við í liðinu erum orðnir mjög spenntir,“ sagði Kári Ársælsson, fyrirliði Breiðabliks, þegar Morgunblaðið heyrði í honum hljóðið í gær. Breiða- bliki hefur ekki gengið ýkja vel á und- irbúningstímabilinu. „Við viljum sanna okkur eftir frek- ar dapurt gengi í vetur og ætlum að sýna hvað í okkur býr. Við höfum allir verið saman á æfingum að und- anförnu en það vantaði svolítið upp á það í vetur vegna landsliðsferða og utanlandsferða þar sem menn fóru til æfinga. Við höfum nú náð mjög góð- um æfingum rétt fyrir mót sem er fínt og mér líst vel á fyrsta leik,“ sagði Kári og var ekki hissa á nið- urstöðunni í árlegri spá forráða- manna liðanna. „Alls ekki. Þar var sjálfsagt horft mikið til úrslita okkar í vetur. Ég gerði slíkt hið sama þegar ég útbjó mína spá og tók mið af gengi liðanna í vetur. Í fyrra var okkur spáð 4. sæti og við unnum. Við erum því ekkert að stressa okkur á þessu enda er spáin meira til gamans gerð,“ sagði Kári. Umgjörðin til fyrirmyndar Blikar blása í lúðra af þessu tilefni og verður ýmislegt um að vera áður en liðin hefja leik. „Þetta er fyrsti leikurinn á hundr- aðasta Íslandsmótinu og eini leik- urinn þann daginn. Tilhlökkunin er mikil og ég held að okkar gras sé í þokkalegu standi en það er alltaf ver- ið að tala um þetta blessaða gras. Það er gaman að því að gerður verður skemmtilegur dagur úr þessu. Um- gjörðin hefur verið til fyrirmyndar hjá Breiðabliki að mínu mati og það er um að gera að hafa hana sem flott- asta. Mér finnst mjög jákvætt hvern- ig þessi þáttur hefur lagast á undan- förnum árum. Ég reikna því með fjölmenni og mér skilst að fólk hafi verið hvatt til þess að koma með seðla svo ekki verði biðraðir í posana,“ sagði Kári og hló. Stjórnar flugumferð Þegar Kári er ekki að sparka tuðr- unni á jörðu niðri fylgist hann grannt með umferðinni í háloftunum. Kári hefur nýlokið námi í flugumferðar- stjórnun og starfar við fagið í Reykja- vík. Hann segir dómarann kunna Eg- il Má Markússon vera farinn utan til starfa en tveir vinnufélagar hans eru knattspyrnumenn, Víðir Leifsson FH-ingur og Henning Jónasson frá Stokkseyri, en þeir hafa báðir spilað í efstu deild. „Hingað til hefur þetta gengið vel og mér finnst vinnuveit- andinn og samstarfsfólkið sýna bolt- anum skilning en það á eftir að koma betur í ljós hvernig þetta gengur.“ Morgunblaðið/Eggert Fyrirliðinn Kári Ársælsson tók við Íslandsbikarnum síðasta haust sem fyrirliði Breiðabliks og hann verður geymdur í Kópavogi, allavega til haustsins. „Við viljum sanna okkur“  Íslandsmeistarar Breiðabliks taka á móti KR í opnunarleik Íslandsmótsins annað kvöld  Hafa ekki verið sannfærandi í vetur  Kári ekki hissa á spánni  Breiðablik vann báða leiki liðanna á síðasta tímabili. Fyrst 2:1 á Kópa- vogsvelli þar sem Olgeir Sigurgeirsson og Guðmundur Pétursson skor- uðu fyrir Blika en Viktor Bjarki Arnarsson fyrir KR. Síðan 3:1 á KR-velli þar sem Haukur Baldvinsson, Kristinn Steindórsson og Alfreð Finn- bogason komu Blikum í 3:0 en Guðjón Baldvinsson minnkaði muninn.  KR hefur hins vegar unnið 25 af 48 leikjum liðanna í efstu deild en Blikar aðeins 10. Fyrir leikinn í fyrra hafði KR ekki tapað fyrir Blikum á Kópavogsvelli síðan 1996.  Breiðablik og KR mættust líka í 1. umferð á Kópavogsvelli 1994. KR vann 5:0 þar sem Tómas Ingi Tómasson skoraði þrjú mörk og Jim Bett tvö.  Grétar S. Sigurðarson, miðvörður KR, skoraði hjá Blikum í öllum fjór- um leikjum liðanna árin 2008 og 2009. Breiðablik – KR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.