Siglfirðingur - 22.09.1961, Síða 3
3
Æskoþróttur 09 framfaravilji
einkenndu 16. þing Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna á Akureyri 8.—10. september sl.
16. iþing Sambands ungra Sjálfstæðismanna var h'áð á Akureyri 8.,
9. og 10. sept. sl. Þingið sátu um 140 fulltrúar sjálfstæðisæskunnar um
gjörvaUlt landið.
Að lokinni þingsetningu og skýrslu stjórnar um starfseimi sambands-
ins, skiptu þingfulltrúar sér í 5 nefndir: stjórnmálanfend, efnahags-
málanefnd, utanríkismálanefnd, vinnulöggjafanefnd og skipulagsnsfnd,
samkvæmt frjálsu vali hvers 0g eins, eftir áhuga og sérþekkingu við ■
komandi.
Stönfuðu nefndir frá M. 9—12 f.h., bæði 9. og 10. sept., en þing-
íundir voru eftir hádegi báða dagana, þar sem nefndarálit voru rædd
og afgreidd. Voru þá oft þróttmiklar og skemm'tilegar umræður, sem
vitnuðu um rákan stjórnmálaáhuga, æskuþrótt og framfaravilja sam-
takanna.
9. sept. sátu þingfuiltrúar hádegisverðarboð miðstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins. Bjarni Benedifctsson, forsætisráðherra, ávarpaði viðstadda
i fræðaindi og skemmtilegri ræðu. Gunnar Tlhoroddsen, fjármálaráð-
herra, saJt og boðið. Að kveldi þessa dags var kvöldvaka að Hótel KEA.
Þingið markaði stefnu ungra sjálfstæðismanna í ályktunum um al-
menn þjóðmál, efnahagsmiál, utanríkismál, öryggismál og vinnulög-
gjöf, auk ályktunar um skipulagsmál sambandsins. Að Joknum þeim
stönfum fór fram stjórnarkjör og var síðan þinginu slitið í kynningar-
för um Eyjafjörð, sem farin var í boði sjálfstæðismanna á Akureyri.
Þingstörf einkenndust að þrótti og brennandi áhuga fulltrúanna á
rnálefnum þjóðarinnar, þeim er til heilla og haigsældar horfa, og 'lofar
miklu um framtíðarfylgi Sjálfstæðisflokksins meðal æskunnar í sveit
og við sjó.
„Þerna í eldhúsi kommúnismans"
• Sovétlist
Sonur Hannibals Valdimarsson-
ar, Arnór, sem stundað hefur
nám 'í Rússlandi, h'efur ritað
grein um Sovéthst á tímarit, er
Birtingur nefnist. Segir hann þar
ófagra sögu um þá fjötra, sem
Sovétlist og íistaimenn eru færðir
í, svo verk þeirra megi þjóna
þeim eina tilgangi, sem þau mega
hafa, að styrkja pólitík valdhaf-
anna! Sonur Hannibals segir m.a.
„Listamenn eru starfsmenn rik-
isins og þjóna því, eins og allt
launafólk. Aðrar afurðir en þær,
sem þóknanlegar eru ríkinu, þýð-
ir þeim ekki að bjóða til sölu,
því aðrar vörur kaupir það ekki
og kemur ekki á markað.“
Ennfremur segir í greininni:
„Listir snerta allmjög hug-
mundafræðileg efni. Þess vegna
er þeim sett það verkefni að
kenna mönnum kommúniska hug-
myndafræði. Af þessu leiðir tvö
eðlileg einkenni á öllum listum
Sovétríkjanna: 1. Þær eru datakt-
iskar (eiga að kenna mönnum
réttan hugsunarlhátt, hugsunar-
hátt Flobksins), ala menn upp í
anda kommúnismans og fá menn
til að þjóna honum. 2. Þær eru
tæki í höndum Flokksins og rík-
isvaldsins til þess að reka áróð-
ur. Öll list í Sovétríkjunum er
áróðurslist“!
Og enn segir sonur Hannibals:
„En þessar bókmenntir eru
f jarlægar því lifandi lífi, sem lif-
að er í landinu. Þær eru lygar
mest part; fjalla um syndlausar
hetjur flokksins og sýna, að þær
bera ætíð sigur úr býtum. Hin
ægimiltla fjölbreytni mannlegs
lífs og mannlegra tilfinninga er
lokað land fyrir þessum bók-
menntum. í þeim er sagt frá öllu
eins og það á að vera, ekki eins
og það er.“
Þefta eru athyglisverðar upp-
lýsingar ungs menntamanns, sem
sjálfur hefur numið í Rússlandi,
og er á nánum tengslum við fyigi-
lið rússneska kommúnismans hér
á landi. Hér talar sá, sem ckki
verður rengdur. Er það þetta
fangeisi hugsana, talaðra og rit-
aðra orða, sem kommúnistar
hafa að bjóða isilenzkri æsku?
Matvælageymsla í Hrímni
Þar sem leigusamningum um íshólfin í hraðfrystihúsinu Hrímni hef-
ur verið sagt upp, verða hólfin eltki leigð út framvegis.
Öllum þeim, sem enn eiga matvæli í geymslu þar nú, ber að hafa
fjarlagt þau fyrir 25. september.
Siglufirði, 15. sept. 1961.
BÆJARSTJÓRI
Heimilishjálpin
tekur til starfa að nýju 1. október n.k. Frú Guðný Fanndal tekur á
móti beiðnum mn heimilisaðstoð og skipuleggur skiptingu á milli
heimila.
Siglufirði, 18. sept. 1961.
BÆJARSTJÓRI
FRESTUR
til að kæra til yfirskattanefndar tekju- og eignaskatt og útsvör
álagt 1961 er til 15. október 1961.
Siglufirði, 14. sept. 1961.
YFIRSKATTANEFND
BÆJARMÁLIN
(framliald af 1. síðu)
undirbúa frebari frambvæmdir
m.a. með tilliti til byggingu
söltunarstöðva, en þama ætti
að vera hægt að koma upp
með góðu móti nokkrum sölt-
unarstöðvum.
3) Aka stórgrýti í flóðvarn-
argarðinn, norðan eyrarinnar.
Ræktun og bygging að
Hólsbúinu
9 Á Hólsbúinu hefur verið mik-
ið um ræ'ktun á þessu ikjör-
tímabili og ef áfram heldur,
sem horfir, ætti þúið að geta
orðið sjálfu sér nógt um hey-
öflun.
£ Á Hólsbúinu er nú unnið að
nýbyggingu íbúðarhúss fyrir
bústjóra og starfsfólk.
Steinsteyptar götur og
Ráðhústorg
Q I fyrra var steypt Gránugata
og Lækjargata, milli Aðalgötu
og Gránugötu.
^ Nú, þessa dagana, er unnið
að því að steinsteypa Túngötu
frá Aðalgötu norður að Eyr-
argötu, og þann kafla Suður-
götu, sem er ofan Ráðhús-
'torgs. Er þá nokkuð á 2. km
af götum Siglufjarðar stein-
steypítur, og þannig þarf á-
fram að halda, þvi aðrar göt-
ur bæjarins eru 'lítt til sóma. I
fraimihaldi af þessu verður
Ráðhústorg rutt af skúrum og
grasþakið, utan bílastæðis,
sem fyrirhugað er ofan Lækj-
argötu, milii Aðalgötu og
Gránugötu.
Framkvæmdir annarra
9 Henriksenbræður hafa reist
myndarlegt geymslu- og fisk-
móibtökuhús á söltunarstöð
sinni og ier framtak þeirra
mjög lofsvert.
9 Hafin er bygging mjólkur-
vinnslu- og dreifingarstöðvair
á lóðinni nr. 7 við Aðalgötu,
sem KEA og kaupfélagið á
Sauðárkróki munu að standa.
Hér er um stórbót á mjólkur-
málum kaupstaðarins að ræða,
og var ekM vanþörf á.
Þá hefur blaðið fregnað að til
standi að reisa hér nýtt póst-
og símstöðvarhús, sem mikil
þörf er fyrir, enda hafa marg-
ir smærri nærliggjandi staðir
verið iangt á undan okkur 1
þeim efnum. Væntantega fylg-
ir sjálívirkt símberfi í kjöl-
farið.
^ S.R. var á bæjarstjórnarfundi,
14. sept. sl„ veitt heiímild tii
að reisa niðursuðu og niður-
lagningaverksmiðju nyrzt við
(neðan) Norðurgöbu. Á þessu
hausti er fyrirhugað að reisa
neðri hæð norðurhelmings
verksmiðjubyggingarinnar og
tvær hæðir af norðurheJmingi
'starfsmannahúss. Hér er stig-
ið fyrsta skrefið í istóru máli,
þýðinganmikil'li atvinnugrein,
sem vonandi á eftir að isetja
svip sinn á Siglufjörð, og eiga
forráðaimenn S.R. þakkir bæj-
arbúa skyldar fyrir framtakið.
Samgöngumálin
Samgöngumiálin eru og verða
stærsta hagsmunamál kaupstað-
arins og meðan ekki úr rætist um
þau efm, verður fólksfiutningur
héðan ekki istöðvaður. Hér ber
hæst Strákaveginn, sem á eftir að
verða helzta lyftistöngin í fram-
tíðarvexti Siglufjarðar. I sumar
hefur vierið unnið að lagningu
vegarins vesban megin, út almenn
inga, en vegam'álastjóri virðist
'flýta sér hæga,.bæði í þessu efni
og um nauðsynilegt viðháld á
Skarðsveginum, sem ekkert hiefur
verið sinnt um í sumar og er einn
versti vegakaflinn á landinu. Þá
er nauðsynleg tilkoma flugvallar
hér og standa vonir til, að hafizt
verði handa um það mál að vori.
Virðist þar Vera undir skilnings-
betri og viðbragðsfljótari menn
að sækja en um vegamábn, sem
þó eru og verða kaupstaðnum
mun meira hagsmunamál.
Fólksfækkun
Árið 1941 munu iibúar Siglu-
fjarðar hafa flestir verið, um
3.100. 91. ár hefur þeim fækkað
hægt en sáfellt, svo líbúatalan nú
er 2.680. Miðað við leðlitega fólks-
fjöigun ætti íbúatalan hins vegar
að vera 3.800. Þessari fækkun
veldur fyrst og frernst isamgöngu-
leysi, ásamt árstíðaibundnu at-
vinnuleysi vetrarmánuðina.
Þegar þess er gætt, hve veiga-
miklu hlutverki Siglufjarðarkaup-
staður gegnir í þjóðarbúskapnum
(framliald á 4. síðu).