Siglfirðingur


Siglfirðingur - 22.09.1961, Qupperneq 3

Siglfirðingur - 22.09.1961, Qupperneq 3
3 Æskoþróttur 09 framfaravilji einkenndu 16. þing Sambands ungra Sjálfstæðis- manna á Akureyri 8.—10. september sl. 16. iþing Sambands ungra Sjálfstæðismanna var h'áð á Akureyri 8., 9. og 10. sept. sl. Þingið sátu um 140 fulltrúar sjálfstæðisæskunnar um gjörvaUlt landið. Að lokinni þingsetningu og skýrslu stjórnar um starfseimi sambands- ins, skiptu þingfulltrúar sér í 5 nefndir: stjórnmálanfend, efnahags- málanefnd, utanríkismálanefnd, vinnulöggjafanefnd og skipulagsnsfnd, samkvæmt frjálsu vali hvers 0g eins, eftir áhuga og sérþekkingu við ■ komandi. Stönfuðu nefndir frá M. 9—12 f.h., bæði 9. og 10. sept., en þing- íundir voru eftir hádegi báða dagana, þar sem nefndarálit voru rædd og afgreidd. Voru þá oft þróttmiklar og skemm'tilegar umræður, sem vitnuðu um rákan stjórnmálaáhuga, æskuþrótt og framfaravilja sam- takanna. 9. sept. sátu þingfuiltrúar hádegisverðarboð miðstjórnar Sjálfstæðis- flokksins. Bjarni Benedifctsson, forsætisráðherra, ávarpaði viðstadda i fræðaindi og skemmtilegri ræðu. Gunnar Tlhoroddsen, fjármálaráð- herra, saJt og boðið. Að kveldi þessa dags var kvöldvaka að Hótel KEA. Þingið markaði stefnu ungra sjálfstæðismanna í ályktunum um al- menn þjóðmál, efnahagsmiál, utanríkismál, öryggismál og vinnulög- gjöf, auk ályktunar um skipulagsmál sambandsins. Að Joknum þeim stönfum fór fram stjórnarkjör og var síðan þinginu slitið í kynningar- för um Eyjafjörð, sem farin var í boði sjálfstæðismanna á Akureyri. Þingstörf einkenndust að þrótti og brennandi áhuga fulltrúanna á rnálefnum þjóðarinnar, þeim er til heilla og haigsældar horfa, og 'lofar miklu um framtíðarfylgi Sjálfstæðisflokksins meðal æskunnar í sveit og við sjó. „Þerna í eldhúsi kommúnismans" • Sovétlist Sonur Hannibals Valdimarsson- ar, Arnór, sem stundað hefur nám 'í Rússlandi, h'efur ritað grein um Sovéthst á tímarit, er Birtingur nefnist. Segir hann þar ófagra sögu um þá fjötra, sem Sovétlist og íistaimenn eru færðir í, svo verk þeirra megi þjóna þeim eina tilgangi, sem þau mega hafa, að styrkja pólitík valdhaf- anna! Sonur Hannibals segir m.a. „Listamenn eru starfsmenn rik- isins og þjóna því, eins og allt launafólk. Aðrar afurðir en þær, sem þóknanlegar eru ríkinu, þýð- ir þeim ekki að bjóða til sölu, því aðrar vörur kaupir það ekki og kemur ekki á markað.“ Ennfremur segir í greininni: „Listir snerta allmjög hug- mundafræðileg efni. Þess vegna er þeim sett það verkefni að kenna mönnum kommúniska hug- myndafræði. Af þessu leiðir tvö eðlileg einkenni á öllum listum Sovétríkjanna: 1. Þær eru datakt- iskar (eiga að kenna mönnum réttan hugsunarlhátt, hugsunar- hátt Flobksins), ala menn upp í anda kommúnismans og fá menn til að þjóna honum. 2. Þær eru tæki í höndum Flokksins og rík- isvaldsins til þess að reka áróð- ur. Öll list í Sovétríkjunum er áróðurslist“! Og enn segir sonur Hannibals: „En þessar bókmenntir eru f jarlægar því lifandi lífi, sem lif- að er í landinu. Þær eru lygar mest part; fjalla um syndlausar hetjur flokksins og sýna, að þær bera ætíð sigur úr býtum. Hin ægimiltla fjölbreytni mannlegs lífs og mannlegra tilfinninga er lokað land fyrir þessum bók- menntum. í þeim er sagt frá öllu eins og það á að vera, ekki eins og það er.“ Þefta eru athyglisverðar upp- lýsingar ungs menntamanns, sem sjálfur hefur numið í Rússlandi, og er á nánum tengslum við fyigi- lið rússneska kommúnismans hér á landi. Hér talar sá, sem ckki verður rengdur. Er það þetta fangeisi hugsana, talaðra og rit- aðra orða, sem kommúnistar hafa að bjóða isilenzkri æsku? Matvælageymsla í Hrímni Þar sem leigusamningum um íshólfin í hraðfrystihúsinu Hrímni hef- ur verið sagt upp, verða hólfin eltki leigð út framvegis. Öllum þeim, sem enn eiga matvæli í geymslu þar nú, ber að hafa fjarlagt þau fyrir 25. september. Siglufirði, 15. sept. 1961. BÆJARSTJÓRI Heimilishjálpin tekur til starfa að nýju 1. október n.k. Frú Guðný Fanndal tekur á móti beiðnum mn heimilisaðstoð og skipuleggur skiptingu á milli heimila. Siglufirði, 18. sept. 1961. BÆJARSTJÓRI FRESTUR til að kæra til yfirskattanefndar tekju- og eignaskatt og útsvör álagt 1961 er til 15. október 1961. Siglufirði, 14. sept. 1961. YFIRSKATTANEFND BÆJARMÁLIN (framliald af 1. síðu) undirbúa frebari frambvæmdir m.a. með tilliti til byggingu söltunarstöðva, en þama ætti að vera hægt að koma upp með góðu móti nokkrum sölt- unarstöðvum. 3) Aka stórgrýti í flóðvarn- argarðinn, norðan eyrarinnar. Ræktun og bygging að Hólsbúinu 9 Á Hólsbúinu hefur verið mik- ið um ræ'ktun á þessu ikjör- tímabili og ef áfram heldur, sem horfir, ætti þúið að geta orðið sjálfu sér nógt um hey- öflun. £ Á Hólsbúinu er nú unnið að nýbyggingu íbúðarhúss fyrir bústjóra og starfsfólk. Steinsteyptar götur og Ráðhústorg Q I fyrra var steypt Gránugata og Lækjargata, milli Aðalgötu og Gránugötu. ^ Nú, þessa dagana, er unnið að því að steinsteypa Túngötu frá Aðalgötu norður að Eyr- argötu, og þann kafla Suður- götu, sem er ofan Ráðhús- 'torgs. Er þá nokkuð á 2. km af götum Siglufjarðar stein- steypítur, og þannig þarf á- fram að halda, þvi aðrar göt- ur bæjarins eru 'lítt til sóma. I fraimihaldi af þessu verður Ráðhústorg rutt af skúrum og grasþakið, utan bílastæðis, sem fyrirhugað er ofan Lækj- argötu, milii Aðalgötu og Gránugötu. Framkvæmdir annarra 9 Henriksenbræður hafa reist myndarlegt geymslu- og fisk- móibtökuhús á söltunarstöð sinni og ier framtak þeirra mjög lofsvert. 9 Hafin er bygging mjólkur- vinnslu- og dreifingarstöðvair á lóðinni nr. 7 við Aðalgötu, sem KEA og kaupfélagið á Sauðárkróki munu að standa. Hér er um stórbót á mjólkur- málum kaupstaðarins að ræða, og var ekM vanþörf á. Þá hefur blaðið fregnað að til standi að reisa hér nýtt póst- og símstöðvarhús, sem mikil þörf er fyrir, enda hafa marg- ir smærri nærliggjandi staðir verið iangt á undan okkur 1 þeim efnum. Væntantega fylg- ir sjálívirkt símberfi í kjöl- farið. ^ S.R. var á bæjarstjórnarfundi, 14. sept. sl„ veitt heiímild tii að reisa niðursuðu og niður- lagningaverksmiðju nyrzt við (neðan) Norðurgöbu. Á þessu hausti er fyrirhugað að reisa neðri hæð norðurhelmings verksmiðjubyggingarinnar og tvær hæðir af norðurheJmingi 'starfsmannahúss. Hér er stig- ið fyrsta skrefið í istóru máli, þýðinganmikil'li atvinnugrein, sem vonandi á eftir að isetja svip sinn á Siglufjörð, og eiga forráðaimenn S.R. þakkir bæj- arbúa skyldar fyrir framtakið. Samgöngumálin Samgöngumiálin eru og verða stærsta hagsmunamál kaupstað- arins og meðan ekki úr rætist um þau efm, verður fólksfiutningur héðan ekki istöðvaður. Hér ber hæst Strákaveginn, sem á eftir að verða helzta lyftistöngin í fram- tíðarvexti Siglufjarðar. I sumar hefur vierið unnið að lagningu vegarins vesban megin, út almenn inga, en vegam'álastjóri virðist 'flýta sér hæga,.bæði í þessu efni og um nauðsynilegt viðháld á Skarðsveginum, sem ekkert hiefur verið sinnt um í sumar og er einn versti vegakaflinn á landinu. Þá er nauðsynleg tilkoma flugvallar hér og standa vonir til, að hafizt verði handa um það mál að vori. Virðist þar Vera undir skilnings- betri og viðbragðsfljótari menn að sækja en um vegamábn, sem þó eru og verða kaupstaðnum mun meira hagsmunamál. Fólksfækkun Árið 1941 munu iibúar Siglu- fjarðar hafa flestir verið, um 3.100. 91. ár hefur þeim fækkað hægt en sáfellt, svo líbúatalan nú er 2.680. Miðað við leðlitega fólks- fjöigun ætti íbúatalan hins vegar að vera 3.800. Þessari fækkun veldur fyrst og frernst isamgöngu- leysi, ásamt árstíðaibundnu at- vinnuleysi vetrarmánuðina. Þegar þess er gætt, hve veiga- miklu hlutverki Siglufjarðarkaup- staður gegnir í þjóðarbúskapnum (framliald á 4. síðu).

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.