Morgunblaðið - 24.05.2011, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.05.2011, Qupperneq 1
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2011 íþróttir Júdó Frábær árangur Íslendinga á Norðurlandamótinu í Ósló. Unnu til fimmtán verðlauna. Þorvaldur Blöndal kom heim með tvö gull. Líður eins og strætó hafi keyrt yfir sig. 3 Íþróttir mbl.is Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Kolbeinn Sigþórsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, gengur til liðs við hollensku meistarana Ajax í sumar, eða verður um kyrrt hjá AZ Alkmaar í eitt ár til viðbótar. Andri Sigþórsson, bróðir hans og umboðsmaður, staðfesti við Morg- unblaðið í gær að sú ákvörðun lægi fyrir. Önnur félög kæmu ekki til greina og nú réðist framhaldið af því hvort Ajax og AZ næðu saman um kaupverð á Kolbeini. „Niðurstaðan er sú að það sé hárrétt skref hjá Kolbeini á hans ferli að ganga til liðs við Ajax en hugsa ekki um England eða Þýskaland að svo stöddu. Ég hef enga trú á öðru en að félögin nái saman og finni lausn sem kemur sér vel fyrir alla aðila. Mér finnst afar ólíklegt að AZ taki áhættuna á því að missa hann frá sér án greiðslu eftir eitt ár. Kolbeini líð- ur hinsvegar vel hjá AZ og af hans hálfu er ekkert því til fyr- irstöðu að vera þar eitt tímabil enn ef með þarf,“ sagði Andri. Kolbeinn, sem er 21 árs gamall sóknarmaður, hefur verið í röðum AZ frá 2007 þegar hann kom til félagsins frá HK. Hann kom inn í aðalliðið fyrir nýliðið tímabil og sló hressilega í gegn. Kolbeinn varð markahæsti leikmaður liðsins í úrvalsdeildinni með 15 mörk og varð sjötti hæstur í deildinni í heild, og þá skoraði hann mörk fyrir liðið í Evrópudeild UEFA og hollenska bikarnum. Þá skoraði Kolbeinn þrjú mörk í fyrstu fimm A-landsleikjum sínum á síðasta ári og er í 21-árs lands- liðinu sem leikur í úrslitakeppni EM í Danmörku í næsta mánuði. Eingöngu Ajax í myndinni  Kolbeinn bíður niðurstöðu í viðræðum Ajax og AZ  Tilbúinn til að leika eitt tímabil enn með AZ ef ekki nást samningar  Telur Ajax rétta skrefið á ferlinum Morgunblaðið/Ómar Holland Kolbeinn Sigþórsson ætlar hvorki til Englands né Þýskalands. GOLF Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is Tíðarfarið hefur verið allt annað en milt að undanförnu og kuldi hefur verið í kortunum hjá veðurfræðingum í rúmar tvær vikur. Á meðan bíða kylfingar hér á Fróni með kylfurnar í start- holunum. Fyrsta umferðin í Eimskipsmótaröð- inni í golfi hefst um næstu helgi en hún er leikin á Garðavelli á Akranesi. Þar ræður ríkjum Ró- bert Halldórsson vallarstjóri. Hann segir völl- inn góðan þrátt allt. „Völlurinn er mjög góður og kylfingar sem hafa spilað hér að undanförnu eru á sama máli. Þrátt fyrir þetta kuldahret lít- ur hann vel út. Við búum hinsvegar við það að það hefur ekki verið eins mikið spil á vellinum og á völlunum á höfuðborgarsvæðinu. Það nennir enginn að fara upp á Skaga og spila í tveggja til þriggja stiga hita og með vindinn í fangið.“ Þá segir Róbert ekkert því til fyrirstöðu að spila á vellinum um næstu helgi. „Ástandið er gott fyrir helgina en flatirnar eru mjög góðar. Auðvitað myndi ég vilja fá meiri hita en völl- urinn býr enn að þeim hlýindum sem voru í lok apríl og byrjun maí. Ekkert hefur hinsvegar gerst síðan þá. Fólk hrósar engu að síður að- stæðum og því er ekkert að vanbúnaði að halda fyrstu umferð Eimskipsmótaraðarinnar.“ Hrakar dag frá degi Ekki eru allir vellir í eins góðu ástandi og Garðavöllur og það skiljanlega. Birkir Már Birgisson, vallarstjóri í Grafarholtinu, hefur þurft að grípa til ráðstafana vegna kuldans. „Við ætlum að hafa lokað til tvö á daginn fram á fimmtudag til að byrja með og svo verður það bara metið þegar þar að kemur hvort við þurf- um að halda því áfram. Það fraus hjá okkur að- faranótt sunnudags og hitinn fer oft niður í tvær til þrjár gráður,“ segir Birkir um ástæður þess að gripið er til slíkra ráðstafana. „Það springa ekki út fræ hjá okkur og vex ekki gras í slíkum aðstæðum. Maður horfir í raun bara á vellina versna dag frá degi. Þetta er skelfilegt ástand.“ Birkir segir aðeins vanta hita í jörðina. „Við Spurður hvort askan frá gosstöðvunum í Grímsvötnum eigi eftir að hafa einhver áhrif á vellina á höfuðborgarsvæðinu segir Guðmundur svo ekki vera. „Á meðan hún er ekki í sama magni og maður sá á mbl.is frá Kirkjubæjar- klaustri þá höfum við engar áhyggjur. Þó tók ég eftir því að það var nokkuð um ryk í kringum golfbílana þegar maður keyrði um völlinn í dag [gær].“ Á Akureyri snjóaði í gær eins og gert hefur með hléum undanfarna daga. Í ljósi þess verður Jaðarsvöllur töluvert seinni til í ár að sögn Steindórs Kr. Ragnarssonar vallarstjóra. „Það er líklegra að fjallið verði opnað um helgina en golfvöllurinn.“ En þess má geta að töluvert hef- ur snjóað í Hlíðarfjalli að undanförnu. gamla vellinum að sögn Guðmundar Árna Gunnarssonar vallarstjóra. „Völlurinn lítur nokkuð vel út. Hann hefur þó tekið eitt til tvö skref aftur á bak í kuldanum. Nýi völlurinn kemur prýðilega undan vetri þrátt fyrir fram- kvæmdir. Við gátum opnað hann á laugardag- inn síðastliðinn.“ Öskunnar vart undan golfbílunum „Gamli völlurinn hefur það fram yfir að hann er grónari en sá nýi verður ekki lengi að ná hon- um.“ Guðmundur þakkar fyrir að hann hefur úr 27 holum að moða og því dreifist álagið víðar. Hann segir þó að líklega sé völlurinn tveimur vikum á eftir miðað við sama tíma í fyrra. erum að verða alveg tveimur vikum á eftir mið- að við undanfarin ár. Það er náttúrlega kominn áburður í alla velli, nú vantar bara hitann og rigninguna til að koma þessu af stað. Grafarholtið er svolítill kuldapollur, til dæmis ef hitinn fer í þrjár gráður í Reykjavík þá má fastlega búast við því að hér séu núll gráður.“ Farið eitt til tvö skref aftur á bak Ástandið á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði er gott að sögn Daniels Harleys vallarstjóra þó þrjár fyrstu flatirnar hafi farið frekar illa. Hann líkt og allir vallarstjórar sem Morgunblaðið tal- aði við beið eftir meiri hita og rigningu. Hjá GKG er ástandið ágætt, sérstaklega á Morgunblaðið/Kristinn Grafarholt Notkun á velli Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholtinu hefur verið takmörkuð vegna lágs hitastigs. Myndin var tekin í gær. Lokað til tvö sökum kulda  Gripið til ráðstafana í Grafarholti vegna næturfrosts  Golfvellir standa í stað  Ástand gott á Akra- nesi  Nýi völlurinn hjá GKG nær fljótt þeim gamla  Líklegra að fjallið verði opnað en golfvöllurinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.