Morgunblaðið - 28.05.2011, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2011
Staða ráðgjafa
við skólaþjónustu Norðurþings
Laus er til umsóknar staða ráðgjafa við
skólaþjónustu Norðurþings.
Í starfinu felst meðal annars:
- Að hafa umsjón með og vera ráðgjafi við
grunn- og leikskóla á þjónustusvæðinu um
nám og kennslu nemenda með frávik og
sérþarfir.
- Greiningar og skimanir og ráðgjöf um
aðgerðir í framhaldi af þeim
- Að starfa ásamt öðru starfsfólki Félags-
þjónustu Norðurþings að sífelldri þróun á
þjónustu við nemendur, foreldra og skóla
á þjónustusvæðinu
Hæfniskröfur eru eftirfarandi:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s.
sérkennara-, námsráðgjafa –
- eða önnur sambærileg menntun.
- Reynsla af kennslu og vinnu með börnum
og unglingum
- Þjónustulipurð og góð samskiptahæfni
- Metnaður vegna þjónustuþega, sem eru
börn, foreldrar og starfsfólk skóla
- Sveigjanleiki í starfi
Skólaþjónustan starfar sem deild innan
Félagsþjónustu Norðurþings.
Þjónustusvæðið spannar stórt landssvæði
og eiga sex sveitarfélög aðild að
þjónustunni. Á þjónustusvæðinu eru 9
grunnskólar og 8 leikskólar. Megin starfs-
stöð er hjá Félagsþjónustu Norðurþings
sem staðsett er á Húsavík. Um er að ræða
60% starf .
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Sigurður Aðalgeirsson grunnskólafulltrúi
og kennsluráðgjafi, sími 464 6100, netfang
sigurdura@nordurthing.is
Launakjör eru samkvæmt viðeigandi og
gildandi kjarasamningi.
Umsóknarfrestur er til 10. júní næstkomandi
og er æskilegt að viðkomandi geti hafið
störf í ágúst næstkomandi eða eftir nánara
samkomulagi
Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu
mannlífi og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.
Höldur ehf · Tryggvabraut 12 · Sími 461-6000 · holdur@holdur.is · www.holdur.is
Vinnutími er frá 08:00 - 17:00 mán.- fim og 08:00 - 15:00 á föstudögum.
Upplýsingar um starfið veitir Ari Þór Jónsson - þjónustustjóri í síma 840-6060
og hægt er að senda umsókn og ferilskrá á netfangið arij@holdur.is.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2011
Vanur réttingamaður óskast
Höldur ehf var stofnað árið 1974.
Hjá fyrirtækinu starfa um 120 manns
og er fyrirtækið með starfsemi á 14
stöðum á landinu.
Bílaverkstæði Hölds er staðsett við
Draupnisgötu 1 á Akureyri, þar er
rekið mjög öflugt alhliða bifreiða-
verkstæði sem án efa er eitt það best
búna utan höfuðborgarsvæðisins.
Fjöldi starfsmanna í dag er um 22.
Verkstæðið er þjónustuaðili fyrir
bílaumboðin Heklu, Bernhard og
Öskju en annast auk þess viðgerðir á
öllum öðrum tegundum bíla.
Alþjóðaskólinn á Íslandi auglýsir eftir
metnaðarfullum
starfskrafti
Alþjóðaskólinn (The International School of
Iceland) er eini alþjóðlegi grunnskólinn á
Íslandi. Við leitum að metnaðarfullum aðila
til að bætast í okkar hóp og taka þátt í
skemmtilegu og spennandi uppbyggingar-
starfi með grunnskólabörnum frá öllum
heimshornum.
Starfslýsing:
Umsjónarkennsla
Íslenskukennsla sem móðurmál og
annað tungumál
Stærðfræði
Þemakennsla
Þróun námsskrár
Starfshlutfall: 70-100%
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Mikil reynsla af að vinna með börnum
Íslenska sem móðurmál
Mjög góð enskukunnátta sem gerir
viðkomandi kleift að vinna í alþjóðlegu-
og tvítyngdu umhverfi
Sjálfstæð vinnubrögð, sveigjanleiki,
stundvísi og heiðarleiki
Vinnur vel í hóp
Nánari upplýsingar um starfsemina
má finna á heimasíðu okkar:
www.internationalschool.is.
Áhugasamir vinsamlega sendið umsókn
ásamt ferilskrá til Bertu Faber, skólastjóra í
netfangið isi@internationalschool.is, eigi
síðar en föstudaginn 3. júní 2011.
Lífeindafræðingur
Klínísk lífefnafræðistofa Holtasmára KLH /
Hjartavernd leitar að lífeindafræðingi til afleys-
inga í 100% stöðu frá 8. ágúst 2011 í eitt ár.
Hæfniskröfur eru B.Sc í lífeindafræði, reynsla af
vinnu á rannsóknarstofu og færni í tölvunotkun
og ensku. Kostur að hafa unnið á rannsóknar-
miðuðum og stöðluðum vinnustað. Starfsum-
hverfi er uppbyggjandi og verkefnin eru
fjölbreytt og krefjandi. Möguleiki er að nýta
hluta af vinnu þessa árs í mastersverkefni
tengdu vinnunni.
KLH er faggilt rannsóknarstofa, skv.
SS-EN ISO 15189
KLH er faggilt rannsóknarstofa þar sem starf-
semin er byggð upp á bæði rútínu- og vísinda-
rannsóknum, jafnframt rannsóknar og þróunar-
vinnu. Hluti af starfseminni fellst í uppbygg-
ingu og varðveislu lífsýnabanka.
Upplýsingar veitir Alda M. Hauksdóttir,
yfirlífeindafræðingur rannsóknarstofu KLH /
Hjartavernd, í síma 535 1800 eða á
alda@hjarta.is
Umsóknum skal skila á netfangið
atvinna@hjarta.is eða til Hjartaverndar merktar
„Rannsóknarstofa KLH / Hjartavernd“
fyrir 8. júní 2011.
--------------------------------------------------------------------------------------------------
Starfsmenn Hjartaverndar eru um 60 alls og samanstendur af fólki
með ólíka menntun sem í sameiningu vinnur að því að framkvæma
rannsóknir á sem vísindalegastan og áreiðanlegastan hátt. Í Hjarta-
vernd starfa m.a. læknar, lífeindafræðingar, líffræðingar, tölfræð-
ingar, verkfræðingar, geislafræðingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkra-
liðar og úr ýmsum öðrum starfstéttum. Starfsmenn Hjartaverndar
vinna að ýmsum verkefnum, eins og við Öldrunarrannsókn
Hjartaverndar, við áhættumat, á rannsóknarstofu Hjartaverndar, við
myndgreiningardeild, á skrifstofu, við fræðslumál, við úrvinnslu
ganga, gæðastjórnun, fjármálastjórnun og ýmis samstarfsverkefni
sem Hjartavernd tekur þátt.
Slökkviliðsstjóri
hjá Brunavörnum Austur-
Húnavatnssýslu
Starf slökkviliðsstjóra er laust til umsóknar.
Slökkviliðsstjóri þarf að hafa reynslu af
starfi í slökkviliði og löggildingu
slökkviliðsmanns. Um er að ræða hluta-
starf 2/3 en umsækjanda býðst annað starf
á móti hjá Þjónustumiðstöð Blönduósbæj-
ar 1/3.
Meðal helstu verkefna slökkviliðsstjóra
eru:
Annast rekstur slökkviliðsins, þar með
talið umsjón með æfingum og menntun
slökkviliðsmanna.
Annast umsjón og rekstur með
tækjabúnaði slökkviliðsins.
Eldvarnareftirlit sveitarfélaganna sam-
kvæmt samþykktri Brunavarnaráætlun.
Slökkviliðsstjóri er æðsti yfirmaður slökkvi-
liðsins og stjórnar því á æfingum og í út-
köllum og starfar hann með stjórn Bruna-
varna A-Húnavatnssýslu. Ráðið verður í
starfið sem allra fyrst. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga
og Landssambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningarmanna.
Allar nánari upplýsingar um störfin veita
Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson, formaður
stjórnar Brunavarna í síma 892 2439 eða
Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri Blöndu-
ósbæjar, s. 455 4700.
Umsóknarfrestur er til 20. júní 2011 og skal
senda umsókn til Blönduósbæjar, Hnjúka-
byggð 33, 540 Blönduós, merkt: ,,Umsókn
um starf slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum
A-Hún.“
Brunavarnir A-Húnavatnssýslu er byggðasamlag Blönduósbæj-
ar og Húnavatnshrepps um rekstur slökkviliðs. Hjá slökkviliðinu
eru að jafnaði um 15 manns á útkallsskrá. Íbúar svæðisins eru
um 1.350 og er slökkvistöðin staðsett á Blönduósi.
www.slokkvibill.is