Siglfirðingur


Siglfirðingur - 08.03.1976, Síða 1

Siglfirðingur - 08.03.1976, Síða 1
 1. tölublað. Málgagn Sjálfstæðismanna í Siglufirði Mánudagur 8. marz 1976 47. árgangur EYJÓLFUR KONRÁÐ JÓNSSON : Framfarírnar hvergi meirí en hér Þegar Eyjólfur Konráð Jónsson, al- þingismaður var hér staddur fyrir nokkru átti Siglfirðingur viðtal við hann, og sner- ist talið einkum um siglfirzk hagsmuna- mál. Eyjólfur lýsti ánægju sinni yfir hin- um margháttuðu framkvæmdum, sem nú er unnið að hér og kvaðst vona, að erfið- asti hjallinn væri að baki í siglfirzkum at- vinnumálum. Hitaveita og virkjun „iStærstu málin nú eru að sjálfsögðu hitaveitufram- kvæmdirnar og virkjunin í Fljótaá,“ sagði Eyjólfur Kon ráð Jónsson. „Við getum ját- að það núna, að þegar unnið var að framgangi hitaveit- unnar var við erfiðleika að etja. Ýmsir töldu, að á tak- mörkunum væri, að þessi hitaveita gæti talizt hag- kvæm, og aðrir reyndu að drepa málinu á dreif, meðal annars með flutningi frum- varps á Alþingi. Málið náð- ist fram fyrir forgöngu fjög- urra ráðherra. Gunnar Thor- oddsen, iðnaðarráðherra, tók jmálið inn á lista yfir æski- legar orkuframkvæmdir. Þar var þó um að ræða miklu fleiri framkvæmdir en þær, sem unnt var að ráðast í að því sinni, en bæði forsæt- isráðherra og fjármálaráð- herra lýstu yfir stuðningi Eyjólfur Konráð Jónsson sínum við einmitt þessa framkvæmd, því að hún væri skammt undan, og hitaveitu- framkvæmdir ættu að sitja í fyrirrúmi, og Ólafur Jó- hannesson, dómsmálaráð- herra, barðist að sjálfsögðu fyrir framgangi málsins. Rík isstjórnin ruddi þannig hindrununum úr vegi. OBoranirnar í fyrra báru góðan árangur eins og allir hér vita, og nú í sumar kem- ur nýr bor Orkustofnunar hingað, er hann hefur lokið verkefni á Blönduósi. Vona menn sannarlega, að sá ár- angur verði af borunum, að ekki þurfi að byggja kyndi- stöð, og er hitaveitan þá orðin mjög hagkvæmt fyrir- tæki. Virkjunin í Fljótaá var lengi á döfinni eins og kunn- ugt er, og fékkst ekki sam- þykkt fyrr en þingmenn kjördæmisins fluttu þings- ályktun um þá framkvæmd, allir aðrir en Ragnar Arn- alds, sem neitaði að standa að þingsályktuninni. Engu að síður samþykkti þáver- andi orkumálaráðherra, Magnús Kjartansson, að heimila þessa framkvæmd. Þessi virkjun er að vísu lítil, og kannske má halda því fram með réttu, að hún standist ekki samanburð við stórvirkjanir. En trú mín er samt sú, að hún eigi eítir að mala gull um langa hríð, og staðreynd er, að þessi virkj- un hefði borgað sig að miklu leyti eða jafnvel að fullu, ef hún hefði verið heimiluð tveim eða þrem árum áður en raun varð á og jafn- framt tengd við Skagafjarð- arsvæðið, en alkunna er, að gífurlegum fjármunum hef- ur verið á glæ kastað í orku- kreppunni með dísilkeyrslu. Samgöngumálin j Siglfirðingur spurði Eyj- ólf Konráð Jónsson næst um 'samgöngumálin og svaraði hann: „Á undanförnum árum hefur vissulega mikið áunn- izt í samgöngumálunum, og má segja, að nú sé aðeins einn þröskuldur á Sigluf jarð- arvegi, Skriðurnar. Fyrir nokkrum árum fékkst sam- þykkt þingsályktun um rann- sókn á því að færa veginn 1 Skriðunum niður að sjó, en dráttur hefur orðið á framkvæmd tillögunnar. Nú í sumar er hins vegar fjár- veiting til þess að hefja þessa rannsókn, og vonandi verður niðurstaðan sú, að ekki verði talið óviðráðanlegt að færa veginn, og væntan- lega verður það þá gert á •næstu árum. Er raunar frá- 'leitt, að hin dýra og mikla framkvæmd, sem göngin eru, skuli aðeins nýtast að tak- mörkuðu leyti til þess, að örstutt haft lokar veginum tíðum. iVegamálastjóri hefur lýst því yfir, að næsti snjóblás- ari, sem keyptur verður til landsins, muni verða stað- settur hér, og að sjálfsögðu verður af því mikil bót. Þá er þess að gæta, að stórframkvæmdir verða á næstu árum við gerð Norð- urvegar, og er hugmyndin sú, að hefja þessar aðgerðir 'nú strax á þessu ári, og I verður kapp lagt á að byggja :upp veginn á Holtavörðu- heiði, þannig að hann geti orðið fær svo til hvern dag jársins. Verður að sjálfsögöu jaf þessu mikið hagræði fyr- ir allar byggðir norðanlands. Fyrir forgöngu Gests Fanndals er væntanlegur slökkvibíll á flugvöllinn nú í ár,, og jafnframt á að verða unnt að iengja flugbrautina, þannig að öryggi aukist og stærri vélar geti hagnýtt völlinn. Jafnframt er þess að geta, að Landhelgisgæzlan hefur haft til athugunar að nota fulgvöllinn hér meir en verið hefur, þegar hann hef- ur verið endurbættur með þessum hætti. Og loks vil ég benda á, að talsverðar framkvæmdir verða í höfninni nú á þessu ári og undirbúin sú aðstaöa, sem fiskvinnsia Þormóðs I ramma þarf á að halda, þeg- ar hún hefur risið, sem von- andi verður ekki ýkja langt að bíða úr þessu.“ Fjárveitingar til Siglufjarðar ; En hverjar eru fjárveit- ingar hingað til Siglufjarðar nú á þessu ári? „Til hafnarframkvæmd- anna eru á f járlögum veittar 20.6 milljónir króna. Aðrar fjárveitingar eru ekki stór- Framhald á 2. síðu Bœjarstjórn samþykkir að taka upp ó- lagningu gatnagerðargjalda í Siglufirði Á bæjarstjómarfundi þ. 16. febrúar sl. var endaníega samþykkt að taka upp álagningu gatnagerðargjalda hér í Siglufirði. Höfðu meirihlutaflokkarnir áður rætt þessi mál við fulltrúa frá Alþýðubandalaginu með þeim árangri, að full samstaða náðist innan bæjarstjórnar um upphæð álagsprósentu og annað, er að þessu lýtur. I jólablaði Sigl- firðings var þeim þáttum þessa máls, sem snúa að skýr- ingum á mismun A og B gjalda og hvernig þessi gjöld eru lögð á, greiðsluskilmálum o. fl., gerð allgóð skil, og er ekki ástæða til að endurtaka það nú. Hér mun því fyrst og fremst fjallað um álagningarprósentuna og framkvæmda- áætlun um gatnagerð í Siglufirði næstu 10 árin. A-gjald (einvörðungu lagt á nýbyggingar). Ákveðið hefur verið, að A-gjöld verði lögð á fasteignir á eftirgreindan hátt: Einbýlishús ...................................... 2,0% Tvíbýlishús og sambyggð einb.hús á einni hæð .... 1,6% Tveggja hæða fjölbýhshús ......................... 1,2% Fjölbýlishús 3 hæðir eða meira ................... 0,8% Verzlunar- og skrifstofubyggingar ................ 2,0% Iðnaðar- og annað atvinnuhúsnæði, vörugeymsl- ur og önnur mannvirki ............................ 0,8% Gatnagerðargjöldin eru tvennskonar: A-gjald, sem rennur til undirbyggingar gatna og lagna og B-gjald, sem ætlað er að standa und- ir lagningu varanlegs slit- lags og gangstétta. Prósentutölurnar hér að ofan miðist við ákveðinn hluta byggingarkostnaðar á rúmmetra, eins og hann er talinn af Hagstofu Islands 342347 á hverjum tíma. Þessi svo- nefndi „vísitölurúmmetri" var þann 1. nóv. s.l. kr. 18.485,00. Til skýringar á útreikningi 'A-gjalds skulu hér tekin dæmi af tvennskonar íbúð- iarhúsnæði í mismunandi húsagerðum. Ef við í fyrsta lagi hugsum okkur 500 m3 einbýlishús, lítur dæmið þannig út: 500 X 18.485 X 0,02 = A-gjald kr. 184.850,00. Ef við hins vegar tökurn dæmi af 300 m3 íbúð í þriggja hæða fjölbýlishúsi, verður það svo: 300 X 18.485 X 0,008=A-gjald kr. 44.364. Eins og áður getur mið- ast þessi útreikningur við byggingarvísitölu 1. nóvem- ber 1975. Framhald á 3. síðu ISLAKQS

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.