Siglfirðingur


Siglfirðingur - 08.03.1976, Blaðsíða 4

Siglfirðingur - 08.03.1976, Blaðsíða 4
4 SIGLFIRÐINGUR Mánurlagur 8. marz 1976. Mikil grózka er nú í öllu íþróttalífi á Siglufirði, og er vonandi að á þeirri braut verði haldið áfram, því að ekkert er heilbrigðara en ástundun íþrótta og þátttaka í liinum ýmsu íþróttagreiniun, sem bjóða upp á allt hið bezta: heilbrigt líf, keppni og mikla ánægju í keppni og ferðalögum. Hér á eftir er nefnt það helzta, sem er á dagskrá hjá íþróttafélögunum í Siglufirði: T. B. S. Mjög annasamt tímabil er nú framundan hjá T. B. S. og er þar helzt að nefna: T. B. S. tekur þátt í svo- kallaðri liðakeppni B. S. I. og K. R., bæði í A og B flokki. A flokkur félagsins keppir við lið frá T. B. R. og K. R., en B-liðið fer beint í úrslit B-flokks og hefst sú keppni eftir 15. marz. Keppni T. B. S. í A-flokki átti að vera hafin, en vegna ýmiskonar erfiðleika af völd- um veðurs, húsnæðisleysis o. fl. hefur ekki orðið af keppni ennþá, en nú á næstu helgum mun keppnin fara fram og verður gaman að fylgjast með hinu frækna siglfirzka badmintonfólki T. B. S. etja kapp við bezta badminton-fólk landsins, og eru bæði lið K. R. og T.B.R. væntanleg til Siglufjarðar. Unglingameistaramót Is- lands í badminton fer fram hér á Siglufirði 20. og 21. marz og er ekki að efa, að T.B.S. unglingarnir krækja sér í marga verðlaunapen- inga og nokkra Islandsmeist- aratitla, eins og verið hefur undanfarin ár og staðfesta þar með, að unglingarnir frá Siglufirði eru fremstir í flokki badmintonkeppenda á Islandi. Islandsmót í badminton fer fram á Akranesi dagana 3. og 4. apríl og mun T.B.S. senda nokkra keppendur. Kínverjar. Allar líkur eru á, að T.B.S. fái í heimsókn til Siglufjarð- ekki ómerkari íþróttamenn en Kínverja, og stendur til að þeir komi 24. apr. og leiki badminton við T.B.S.-fólk. Er óskandi, að þessi stór- hugur þeirra T.B.S.-inga rætist og Siglfirðingar fái að sjá þessa kínversku snill- inga keppa og sýna badmin- ton, en hér er um að ræða sýningarflokk er ferðast um heiminn og leikur badminton bæði inbyrðist og eins við aðra, og víst er, að T.B.S. á vísan stuðning allra bæj- arbúa við móttöku slíkra aufúsugesta. K. S. Starf K. S. í vetur felst mest í fjáröflun og æfingum og hefur K. S.-Bingó vakið athygli og undirtektir bæjar- búa mjög góðar, og eru K.S.- ingar þakklátir fyrir stuðn- inginn. K. S. hugðist taka þátt í Islandsmóti innanhúss, en ófærð í lofti og á jörðu kom í veg fyrir það, en nú er í- athugun að fara til Ak- ureyrar og leika þar nokkra leiki í innanhúss knatt- spyrnu. K. S. hefur ráðið Elías Jónasson sem þjálfara frá 1. maí í vor, en Elías þjálf- aði hér 1974. Ljóst er, að n. k. sumar verður mikið annriki hjá knattspyrnumönnum, yngri sem eidri og líklegt er, að leiknir verði nálægt 70 leikir. K.S . tekur þátt í Islands- móti allra flokka og eru leikir t. d. í 3. deild 10, auk úrsiitaleikja, og er fyrsti leikurinn 22. maí. Fyrirhug- að er Norðurlandsmót í öil- um flokkum. Knattspyrnu- menn úr Færeyjum munu koma í heimsókn í lok júlí og nokkrir gestaleikir munu verða leiknir. Frá Skíðafélagi Siglufjarðar — Skíðaborg Starfsemi félagsins 1975 —1976 hófst með aðalfundi, sem haldinn var í nóvember 1975. Þar var gerð grein fyr- ir starfsemi félagsins á s. 1. ári og var fjárhagur félags- ins nokkuð góður, miðað við aðstæður, þar sem lítið var um framkvæmdir. Síðan var gengið til stjórnarkjörs og gengu allir úr stjórninni, nema Aðalheiður Rögnvalds- dóttir, sem nú gegnir störf- um gjaldkera sem áður, og er það tuttugasta árið í röð. Sem dæmi um áhuga Sigl- firðinga á Skíðafélaginu má geta þess, að ekki voru mættir nema 5 fullorðnir á aðalfundinum. Nóg um það. I stjóm félagsins eru Rögn- valdur Þórðarson formaður, Aðalheiður Rögnvaldsdóttir gjaldkeri, Benóný S. Þor- kelsson ritari, Ágúst Ste- fánsson varaformaður, og meðstjórnendur Sigurjón Er- lendsson og Guðmundur Skarphéðinsson. Firmakeppnin fór fram 28. desember 1975. Þátttak- endur voru 73 fyrirtæki. Sigurvegarar urðu: 1. Tré- verk, 2. Samvinnutrygging- ar, 3. Hafglit. 10. janúar fór fram svig- mót. Sigurvegarar urðu: 7—8 ára Óðirm Freyr Rögn- valdsson, 7—8 ára stúlkur: Helga Kristín Einarsdóttir, 9—19 ára: Sigurður Sigur- jónsson, 11—12 ára: Tómas Kárason, 13—14 ára: Stefán Þór Rögnvaldsson, 11—12 ára stúlkur: Brynja Ólafs- dóttir, 15—16 ára: Jóhann Örn Jóhannsson, 17 ára og eldri: Andrés Stefánsson. Göngumót var haldið 17. janúar. Sigurvegarar urðu: 7—8 ára stúlkur: Arna Arn- arsdóttir, 11—12 ára stúlk- ur: Þóra Sveinsdóttir, 11— 12 ára: Gestur Antonsson, 13—14 ára: Ingvar Hreins- son og 9—10 ára: Kristján Benediktsson. Punktamót í göngu fór fram í Reykjavík og voru sendir 3 keppendur. Meðal keppenda var Magnús Eiríks son, hinn landsfrægi göngu- maður, sem nú hefur geng- ið yfir í okkar raðir, til mik- illar ánægju og eflingar fyr- ir skíðaíþróttina í Siglufirði. Magnús sigraði með nokkr- um yfirburðum í punktamót- inu og svo áttum við annan og þriðja mann í 17—19 ára flokki. Þann 31. janúar var keppt í stökki í Gryfjunum. Úrslit urðu: 7—8 ára: Þröstur Geirsson, 9—10 ára: Magn- í ús Helgason, 11—12 ára: ! Tómas Kárason, 11—12 ára ! stúlkur: Brynja Ólafsdóttir. Siglufjarðarmót í svigi, yngri flokkar, fór fram 7. febrúar 1976. Úrslit: 7—8 ára: Baldvin Kárason, 7—8 ára stúlkur: Arna Arnars- dóttir, 9—10 ára Óðinn Jó- hannsson, 11—12 ára stúlk- ur: Brynja Ólafsdóttir, 11— 12 ára: Gunnar Björn Rögn- valdsson. Punktamót í stökki og göngu fór fram í Siglufirði 21.—22. febrúar. Úrslit: Stökk 17—19 ára: Hallgrím- ur Sverrisson, 20 ára og eldri: Benóný S. Þorkelsson. Ganga 17—19 ára: Haukur Sigurðsson Ó, 20 ára og eldri: Trausti Sveinsson F. Þátttakendur í punktamót- inu voru allir beztu stökk- og göngumenn landsins. Þ. 28. febrúar var keppt í stórsvigi í öllum flokkum og voru keppendur alls 75, og hafa víst aldrei verið fleiri. Úrslit: 7—8 ára: Þröst ur Geirsson, 7—8 ára stúlk- ur: Guðrún B. Alfreðsdóttir, 9—10 ára: Sigurður Freys- son, 9—10 ára stúlkur: Rak- el Björnsdóttir, 11—12 ára: Aðalsteinn Arnarsson, 11— 12 ára stúlkur: Júlía Sverr- isdóttir, 13—14 ára: Stefán Þór Rögnvaldsson, 15—16 ára: Jóhann Sigurjónsson, 17 ára og eldri: Andrés Ste- fánsson. Einnig hafa á þessu tíma- bili verið haldin tvö boð- göngumót með mikilli þátt- töku og áfram verður hald- ið í vetur um hverja helgi, svo framarlega sem veður leyfir. Komið hefur verið á föst- um æfingatímum í öllum greínum. Kennarar eru Á- gúst Stefánsson í alpagrein- um, Benóný S. Þorkelsson í stökki og Magnús Eiríksson í göngu. Á Hóli mun Skíða- félagið sjá um veitingar um helgar og er fólk hvatt til að fá sér hressingu og njóta útiverunnar. Mikilvæg og merk ákvörð- un var tekin á stjórnarfundi hjá félaginu um miðjan fe- brúar. Þar var ákveðið með öllum greiddum atkvæðum að reisa almennings-skíða- lyftu við Hól, sem verður um 950 m löng. Búið er að mæla út landið fyrir lyftuna og gerði það Þorseinn Jóhann- esson verkfræðingur. Teikn- ingar og önnur gögn eru senn á förum til Þýzkalands, með umsögn um tilboð. Siglfirðingar! Stöndum saman að uppbyggingu þessa mannvirkis fyrir næsta vet- jUr, og eflum skíðaíþróttina í Siglufirði, almenningi til heilla. Siglfirzkar skíðahetjur frá 1963 1 Þetta eru ekki nýjar myndir, þær eru teknar á Skarðs- raóti 1963. Jafnframt því að þessar myndir eru af þekktu siglfirzku skíðafóIki,Árdísi Þórðardóttur og Jóhanni Vil- | bergssyni, þá minna þær á það langa og góða tímabil, iþegar Siglfirðingar unnu flestöll gullin á skíðamótum hér já landi. I

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.