Siglfirðingur - 08.03.1976, Qupperneq 4
4
SIGLFIRÐINGUR
Mánurlagur 8. marz 1976.
Mikil grózka er nú í öllu íþróttalífi á Siglufirði, og er
vonandi að á þeirri braut verði haldið áfram, því að
ekkert er heilbrigðara en ástundun íþrótta og þátttaka
í liinum ýmsu íþróttagreiniun, sem bjóða upp á allt hið
bezta: heilbrigt líf, keppni og mikla ánægju í keppni og
ferðalögum.
Hér á eftir er nefnt það helzta, sem er á dagskrá hjá
íþróttafélögunum í Siglufirði:
T. B. S.
Mjög annasamt tímabil er
nú framundan hjá T. B. S.
og er þar helzt að nefna:
T. B. S. tekur þátt í svo-
kallaðri liðakeppni B. S. I.
og K. R., bæði í A og B
flokki. A flokkur félagsins
keppir við lið frá T. B. R.
og K. R., en B-liðið fer beint
í úrslit B-flokks og hefst sú
keppni eftir 15. marz.
Keppni T. B. S. í A-flokki
átti að vera hafin, en vegna
ýmiskonar erfiðleika af völd-
um veðurs, húsnæðisleysis
o. fl. hefur ekki orðið af
keppni ennþá, en nú á næstu
helgum mun keppnin fara
fram og verður gaman að
fylgjast með hinu frækna
siglfirzka badmintonfólki
T. B. S. etja kapp við bezta
badminton-fólk landsins, og
eru bæði lið K. R. og T.B.R.
væntanleg til Siglufjarðar.
Unglingameistaramót Is-
lands í badminton fer fram
hér á Siglufirði 20. og 21.
marz og er ekki að efa, að
T.B.S. unglingarnir krækja
sér í marga verðlaunapen-
inga og nokkra Islandsmeist-
aratitla, eins og verið hefur
undanfarin ár og staðfesta
þar með, að unglingarnir frá
Siglufirði eru fremstir í
flokki badmintonkeppenda á
Islandi.
Islandsmót í badminton
fer fram á Akranesi dagana
3. og 4. apríl og mun T.B.S.
senda nokkra keppendur.
Kínverjar.
Allar líkur eru á, að T.B.S.
fái í heimsókn til Siglufjarð-
ekki ómerkari íþróttamenn
en Kínverja, og stendur til
að þeir komi 24. apr. og leiki
badminton við T.B.S.-fólk.
Er óskandi, að þessi stór-
hugur þeirra T.B.S.-inga
rætist og Siglfirðingar fái
að sjá þessa kínversku snill-
inga keppa og sýna badmin-
ton, en hér er um að ræða
sýningarflokk er ferðast um
heiminn og leikur badminton
bæði inbyrðist og eins við
aðra, og víst er, að T.B.S.
á vísan stuðning allra bæj-
arbúa við móttöku slíkra
aufúsugesta.
K. S.
Starf K. S. í vetur felst
mest í fjáröflun og æfingum
og hefur K. S.-Bingó vakið
athygli og undirtektir bæjar-
búa mjög góðar, og eru K.S.-
ingar þakklátir fyrir stuðn-
inginn.
K. S. hugðist taka þátt í
Islandsmóti innanhúss, en
ófærð í lofti og á jörðu
kom í veg fyrir það, en nú
er í- athugun að fara til Ak-
ureyrar og leika þar nokkra
leiki í innanhúss knatt-
spyrnu.
K. S. hefur ráðið Elías
Jónasson sem þjálfara frá
1. maí í vor, en Elías þjálf-
aði hér 1974.
Ljóst er, að n. k. sumar
verður mikið annriki hjá
knattspyrnumönnum, yngri
sem eidri og líklegt er, að
leiknir verði nálægt 70 leikir.
K.S . tekur þátt í Islands-
móti allra flokka og eru
leikir t. d. í 3. deild 10, auk
úrsiitaleikja, og er fyrsti
leikurinn 22. maí. Fyrirhug-
að er Norðurlandsmót í öil-
um flokkum. Knattspyrnu-
menn úr Færeyjum munu
koma í heimsókn í lok júlí
og nokkrir gestaleikir munu
verða leiknir.
Frá Skíðafélagi Siglufjarðar
— Skíðaborg
Starfsemi félagsins 1975
—1976 hófst með aðalfundi,
sem haldinn var í nóvember
1975. Þar var gerð grein fyr-
ir starfsemi félagsins á s. 1.
ári og var fjárhagur félags-
ins nokkuð góður, miðað við
aðstæður, þar sem lítið var
um framkvæmdir. Síðan var
gengið til stjórnarkjörs og
gengu allir úr stjórninni,
nema Aðalheiður Rögnvalds-
dóttir, sem nú gegnir störf-
um gjaldkera sem áður, og
er það tuttugasta árið í röð.
Sem dæmi um áhuga Sigl-
firðinga á Skíðafélaginu má
geta þess, að ekki voru
mættir nema 5 fullorðnir á
aðalfundinum. Nóg um það.
I stjóm félagsins eru Rögn-
valdur Þórðarson formaður,
Aðalheiður Rögnvaldsdóttir
gjaldkeri, Benóný S. Þor-
kelsson ritari, Ágúst Ste-
fánsson varaformaður, og
meðstjórnendur Sigurjón Er-
lendsson og Guðmundur
Skarphéðinsson.
Firmakeppnin fór fram
28. desember 1975. Þátttak-
endur voru 73 fyrirtæki.
Sigurvegarar urðu: 1. Tré-
verk, 2. Samvinnutrygging-
ar, 3. Hafglit.
10. janúar fór fram svig-
mót. Sigurvegarar urðu:
7—8 ára Óðirm Freyr Rögn-
valdsson, 7—8 ára stúlkur:
Helga Kristín Einarsdóttir,
9—19 ára: Sigurður Sigur-
jónsson, 11—12 ára: Tómas
Kárason, 13—14 ára: Stefán
Þór Rögnvaldsson, 11—12
ára stúlkur: Brynja Ólafs-
dóttir, 15—16 ára: Jóhann
Örn Jóhannsson, 17 ára og
eldri: Andrés Stefánsson.
Göngumót var haldið 17.
janúar. Sigurvegarar urðu:
7—8 ára stúlkur: Arna Arn-
arsdóttir, 11—12 ára stúlk-
ur: Þóra Sveinsdóttir, 11—
12 ára: Gestur Antonsson,
13—14 ára: Ingvar Hreins-
son og 9—10 ára: Kristján
Benediktsson.
Punktamót í göngu fór
fram í Reykjavík og voru
sendir 3 keppendur. Meðal
keppenda var Magnús Eiríks
son, hinn landsfrægi göngu-
maður, sem nú hefur geng-
ið yfir í okkar raðir, til mik-
illar ánægju og eflingar fyr-
ir skíðaíþróttina í Siglufirði.
Magnús sigraði með nokkr-
um yfirburðum í punktamót-
inu og svo áttum við annan
og þriðja mann í 17—19 ára
flokki.
Þann 31. janúar var keppt
í stökki í Gryfjunum. Úrslit
urðu: 7—8 ára: Þröstur
Geirsson, 9—10 ára: Magn-
í ús Helgason, 11—12 ára:
! Tómas Kárason, 11—12 ára
! stúlkur: Brynja Ólafsdóttir.
Siglufjarðarmót í svigi,
yngri flokkar, fór fram 7.
febrúar 1976. Úrslit: 7—8
ára: Baldvin Kárason, 7—8
ára stúlkur: Arna Arnars-
dóttir, 9—10 ára Óðinn Jó-
hannsson, 11—12 ára stúlk-
ur: Brynja Ólafsdóttir, 11—
12 ára: Gunnar Björn Rögn-
valdsson.
Punktamót í stökki og
göngu fór fram í Siglufirði
21.—22. febrúar. Úrslit:
Stökk 17—19 ára: Hallgrím-
ur Sverrisson, 20 ára og
eldri: Benóný S. Þorkelsson.
Ganga 17—19 ára: Haukur
Sigurðsson Ó, 20 ára og
eldri: Trausti Sveinsson F.
Þátttakendur í punktamót-
inu voru allir beztu stökk-
og göngumenn landsins.
Þ. 28. febrúar var keppt
í stórsvigi í öllum flokkum
og voru keppendur alls 75,
og hafa víst aldrei verið
fleiri. Úrslit: 7—8 ára: Þröst
ur Geirsson, 7—8 ára stúlk-
ur: Guðrún B. Alfreðsdóttir,
9—10 ára: Sigurður Freys-
son, 9—10 ára stúlkur: Rak-
el Björnsdóttir, 11—12 ára:
Aðalsteinn Arnarsson, 11—
12 ára stúlkur: Júlía Sverr-
isdóttir, 13—14 ára: Stefán
Þór Rögnvaldsson, 15—16
ára: Jóhann Sigurjónsson,
17 ára og eldri: Andrés Ste-
fánsson.
Einnig hafa á þessu tíma-
bili verið haldin tvö boð-
göngumót með mikilli þátt-
töku og áfram verður hald-
ið í vetur um hverja helgi,
svo framarlega sem veður
leyfir.
Komið hefur verið á föst-
um æfingatímum í öllum
greínum. Kennarar eru Á-
gúst Stefánsson í alpagrein-
um, Benóný S. Þorkelsson í
stökki og Magnús Eiríksson
í göngu. Á Hóli mun Skíða-
félagið sjá um veitingar um
helgar og er fólk hvatt til
að fá sér hressingu og njóta
útiverunnar.
Mikilvæg og merk ákvörð-
un var tekin á stjórnarfundi
hjá félaginu um miðjan fe-
brúar. Þar var ákveðið með
öllum greiddum atkvæðum
að reisa almennings-skíða-
lyftu við Hól, sem verður um
950 m löng. Búið er að mæla
út landið fyrir lyftuna og
gerði það Þorseinn Jóhann-
esson verkfræðingur. Teikn-
ingar og önnur gögn eru
senn á förum til Þýzkalands,
með umsögn um tilboð.
Siglfirðingar! Stöndum
saman að uppbyggingu þessa
mannvirkis fyrir næsta vet-
jUr, og eflum skíðaíþróttina
í Siglufirði, almenningi til
heilla.
Siglfirzkar skíðahetjur frá 1963
1 Þetta eru ekki nýjar myndir, þær eru teknar á Skarðs-
raóti 1963. Jafnframt því að þessar myndir eru af þekktu
siglfirzku skíðafóIki,Árdísi Þórðardóttur og Jóhanni Vil-
| bergssyni, þá minna þær á það langa og góða tímabil,
iþegar Siglfirðingar unnu flestöll gullin á skíðamótum hér
já landi.
I