Siglfirðingur - 08.03.1976, Qupperneq 2
2
SIGLFIRÐINGUR
Mánuriagur 8. marz 1976.
SIGLFIRÐINGUR
Málgagn Sjálfstæðismanna í Siglnfirði
Ábyrgðarmaður: Þormóður Runólfsson
Slglufjarðarprentsmiðja h. f.
Verkföll eru úrelt baráttutæki
Hinum víðtæku verkföllum, sem staðið hafa hér
á landi undanfarið, er nú að mestu lokið. Sennilega
hefur sjaldan eða aldrei komið jafn afdráttarlaust
í ljós og nú, hvað verkföll eru orðin úrelt og skað-
leg baráttutæki.
Það er almennt viðurkennnt, að undirstöðuat-
vinnuvegir okkar, fiskveiðar, fiskiðnaður og flestar
greinar annarskonar iðnreksturs, eru ekki þannig
í stakk búnir um þessar mundir, að þeir geti tekið
á sig auknar útgjaldabyrðar sem nokkru nemur,
án þess að fá það bætt á annan hátt. Þetta hafa
forustumenn launþegasamtakanna viðurkennt í
verki með því að leggja æ meiri áherzlu á það, að
ríkisvaldið láti vinnudeilur meira og meira til sín
taka og geri ýmsar fjármálalegar ráðstafanir til
að bæta kjör þegna þjóðfélagsins með margvíslegu
móti. Síðan er þess einnig krafizt, að ríkisvaldið
geri ráðstafanir til að bæta greiðslustöðu atvinnu-
veganna, sem geri þeim kleift að standa undir aukn-
um launagreiðsum.
Nú hljóta náttúrlega flestir að skilja, að í þessu
tilliti er ríkisvaldiö eitt og hið sama og þjóðin
sjálf. Þeirra fjármuna, sem ríkisvaldið er krafið
um á þennan hátt, verður aðeins aflað með tvennu
móti, — þegar frá eru taldar erlendar lántökur,
sem trauðla þýðir að tala um lengur. — í fyrra
tilvikinu með því að leggja auknar álögur á þjóð-
ina í formi einhvers konar skatta, sem er auðvitað
ekld annað en bamalegur blindingsleikur. Og í
seinna tilvikinu með því að draga stórkostlega úr
ýmsum þjóðhagslega nauðsynlegum framkvæmd-
um, sem hlýtur að skaða þjóðina þegar fram í
sækir, jafnframt því sem það býður heim hættu
á stórfelldu atvinnuleysi. Þegar grannt er skoðað
verður Ijóst, að það er alveg sama hvemig að er
farið; það getur enginn til lengdar eytt meiru en
hann aflar, hvorki einstaklingur né þjóðfélag.
Af ofanrituðu er ljóst, að kjarabarátta launþega-
samtakanna stendur ekki lengur um það, að kría
meira fé út úr atvinnurekstrinum eðáT ríkisvaldinu,
einfaldlega vegna þess, að báðir þessir aðilar eru
þegar þurrmjólkaðir. Átök á vinnumarkaðinum
standa nú fyrst og fremst milli hinna ýmsu hags-
mimahópa launþega, sem hver um sig reynir að
hrifsa til sín sem stærstan skerf af þjóðarfram-
leiðslunni. Þegar svo þjóðarframleiðslunni er upp
skipt, eru æfinlega margir hagsmunahópar, sem
telja sig hafa orðið afskipta og hefja verkföll til
að knýja fram meira fyrir sig. Verkföllin draga úr
þjóðarframleiðslunni, þannig að enn minna verður
til skiptanna við næstu samninga, og fleiri óánægju-
hópar verða til staðar til að hrinda af stað næsta
verkfalli. En verðbólgubraskaramir, hættulegasti
afætulýður nútíma þjóðfélags, núa saman höndum
og fitna með hverjum deginum sem líður.
Ef íslenzku þjóðina vanhagar um nokkurn skap-
aðan hlut þessa stimdina, þá er það aukinn félags-
þroski.
Hvad - fœst-hvar?
SOMMER-vörurnar fást í Bólsturgerðinni.
SOMMER-gólfteppi
SOM M ER-veggd ú ku r
SOMMER-gólfdúkur
BÓLSTURGERÐIN
Sími 71360
Framfarirnar hvergi meiri en hér
Framhald af 1. síðu
vægilegar, enda hefur megin-
áherzlan verið lögð á að afla
f jár til hitaveitu og virkjun-
arframkvæmda, auk sam-
göngumálanna. Þó eru smá
f járveitingar til dagvistunar-
heimilisins, til golfklúbbsins,
íþróttabandalagsins og til
knattspymuvallarins, en auk
þess er í fjáriögunum heim-
íid til að kaupa Hótel Hvann
eyri og hagnýta það ágæta
hús sem heimavist og
kennslustofur fyrir skólalíf-
ið hér. Er þess að vænta, að
heimild þessi verði hagnýtt,
þrátt fyrir fjárvöntun rikis-
sjóðs, enda unnt að fá and-
virðið lánað að verulegu
leyti.
Þá er þess að gæta, að
brýn þörf er á því, að komið
verði upp aðstöðu fyrir
heilsugæzlu, og læknisbú-
staður þarf hér að rísa, að
minnsta kosti einn. Því mið-
ur voru mál þessi ekki tekin
nægilega föstum tökum á sl.
ári, en undirbúnmgur fjár-
laga fer fram á miðju ári —
og raunar fyrr — þannig að
þá reyndist ekki unnt að
koma máli þessu fram. Eg
hef rætt um fjárveitingu til
að koma fyrir heilsugæzlu
í sjúkrahúsinu, við heilbrigð-
isráðherra og raunar fleiri
aðila, og standa vonir til
þess að úr því verði greitt,
en satt bezt að segja er mjög
hart sótt á í heilbrigðismál-
unum í nánast hverjum ein-
asta þéttbýlisstað á landinu,
þannig að sú barátta getur
orðið erfið.“
Atvinnulífið
jer undirstaðan
| Þá var vikið að siglfirzk-
um atvinnumálum og um
þau hafði þingmaðurinn
þetta að segja:
i „Mikilvægasta atvinnufyr-
irtæki Siglfirðinga er að
hjálfsögðu Þormóður rammi.
Því miður hefur rekstur þess
fyrirtækis gengið miklu verr
'en skyldi, og ber þar margt
til, sem ég skal ekki tíunda
hér. Trú mín er hins vegar
sú, að nú sé fyrirtækið kom-
ið á heilbrigðan rekstrar-
grundvöll og muni í framtíð-
inni verða mikilvæg lyfti-
stöng atvinnulífsins hér. Það
er ekkert launungarmál, að
ég hef alla tíð verið því and-
vígur, að ríkið væri æðstráð-
andi í þessu fyrirtæki. !Ég
taldi eðlilegt og sjálfsagt,
að rikisvaldið veitti verulega
fjármuni til að byggja upp
öflugt atvinnulíf hér, vegna
vanrækslusynda stjómvalda,
þegar síldin hvarf og aðal-
atvinnufyrirtæki bæjarins,
sem einmitt voru í eigu rík-
isins, stöðvuðust. Held ég að
reynslan hafi sýnt, að heppi-
legra hefði verið að fara eft-
ir tillögu, sem ég flutti á
bæjarstjórnarfundi strax í
janúarmánuði 1968 að mig
minnir, en þar var gert ráð
fyrir að kaupa tvö togskip
og opna fiskvinnslu, en þetta I
er hðin tíð.
ÍÉg get skýrt frá því hér,
til að menn fái hugmyndina
til umræðu, að ég hef verið
að gæia við að beita mér
fyrir því, að ríkið afhenti
bæjarbúum endurgjaldslaust
hluti sína í Þormóði ramma,
með þeim hætti, að hverjum
Siglfirðingi yrði sent heim
til eignar þau hlutabréf,
sem ríkið á í fyrirtækinu,
þannig að það verði alsigl-
firzkt. Hefði ég gaman at aó
ræða þá hugmynd síðar hér..
Vonandi er, að báðir tog-
ararnir gangi vel héðan 1 frá
og unnt verði að beina meg-
inaflinu að því, að koma
fiskiðjuverinu upp, og hef
ég trú á, að þetta muni tak-
ast nú, þegar meiri festa
ríkir um stjórn fyrirtækis-
ins en verið hefur.
Allir kannast við erfiðleika
Húseininga, en vonandi hef-
ur nú einnig þar verið kom-
izt yfir mestu erfiðleikana.
Þó er enn eftir að treysta
betur hag fyrirtækisins,
meðal annars með því að fá
breytingar á reglum um
söluskatt og leitast við að
tryggja, að Húseiningar
eignist fasteignina, þar sem
starfrækslan fer fram.
Siglósíld hefur átt í erf-
iðleikum eins og kunnugt er,
enda hefur lagmetisiðja yf-
irleitt gengið heldur brösug-
lega. En þetta fyrirtæki er
það næsta, sem þarf að end-
urskipuleggja og treysta,
því að vissulega er það mikil-
væg stoð siglfirzku atvinnu-
lífi. Skal ég ekki fara lengra
út í þá sálma á þessu stigi.
En vissulega eru önnur
atvinnufyrirtæki mikilvæg
hér á staðnum. Má þar
nefna Togskip, Dag, Isafold
og Egilssíld, og svo önnur
minni útgerðarfyrirtæki, sem
öll hafa geysimikla þýðingu
fyrir atvinnuöryggið, þótt
mönnum virðist stundum yf-
irsjást í því efni.“
Önnur hagsmunamál
En hvað viltu segja um
önnur hagsmunamál kjör-
dæmisins:
„Þar ber auðvitað hæst
Blönduvirkjun, sem vonir
standa til að unnt verði að
ráðast í áður en langt líður.
Það er skoðun mín, að sveit-
ar- og sýslufélög á Norður-
landi vestra eigi að hafa for-
göngu um Blönduvirkjun, ef
til vill með samvinnu við
Vestfirðinga og með þátt-
töku Landsvirkjunar, því að
Blönduvirkjun verður vara-
virkjun fyrir Reykjavíkur-
svæðið. Allmikið hefur verið
rætt um svonefnda Norður-
landsvirkjun, en ég hygg að
flestir í þessu kjördæmi séu
tregir til þátttöku í slíku
fyrirtæki, sem þeir réðu litlu
í. Raimar tel ég að auka
þurfi sjálfsstjórn kjördæm-
isins, ekki sízt í orkumálum.
Þá vil ég geta þess, að nú
er unnið að því, að í sumar
verði rannsakað til fulls,
hvort unnt sé að stunda hag
kvæmar loðnuveiðar úti fyr-
ir Norðurlandi. Mundi það
vissulega hafa mikla þýðingu
fyrir Siglufjörð.
iÉg vil að lokum lýsa á-
nægju minni yfir framför-
unum hér, enda ljóst, að
erfiði undangengiima ára er
farið að bera árangur. Þótt
f járhagur þ jóðarinnar sé
| vissulega erfiður um þessar
mundir, geta Siglfirðingar
Iglaðst yfir framförunum,
1 sem kannski eru nú meiri
hér en annars staðar — og
var tími til kominn.
Auglýsing um fyrirframgreiðslu
þinggjalda í Sigluf jarðarkaupstað
árið 1976.
Skattgreiðendur eru hér með minntir á, að 2.
gjalddagi fyrirframgreiðslu þinggjalda 1976 var 1.
marz s. 1.
Sé skattgreiðsla ekki innt af hendi innan mán-
aðar frá gjalddaga, ber að greiða 2% dráttarvexti
fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði, sem greiðsla
dregst. Vangreiðsla að liluta veldur því, að skatt-
ar gjaldandans 1976 falla í eindaga 15. næsta mán-
aðar eftir að álagningu er lokið.
Bæjarfógetinn í Siglufirði, 3. marz 1976.
ELÍAS I. ELlASSON
Bifvélavirki
Siglufjarðarkaupstaður óskar eftir að ráða bif-
vélavirkja frá 15. marz n. k. Áskilið er að hlutað-
eigandi hafi réttindi sem bifvélavirki. Umsóknir
sendist til bæjarstjórans, Siglufirði, sem jafnframt
gefur allar nánari upplýsingar.
Siglufirði, 24. febrúar 1976.
BÆJARSTJÓRINN,
Siglufirði.